Morgunblaðið - 02.04.2022, Qupperneq 43
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Maður finnur að kófið er að
minnka. Smátt og smátt. Eitt
merki þess eru hreinlega fleiri til-
kynningar um tónleika, veri þeir
með heimabrugguðu hæfileikafólki
eða erlendum gestum. Rak mig í
rogastans er ég sá að Aldous Har-
ding hefur verið bókuð til að spila
í Hljómahöllinni í ágúst. Eitt af
því síðasta sem ég gerði fyrir kóf
var að sjá Tindersticks spila í
téðri Höll, í febrúar 2020.
Harding lék reyndar á Íslandi
árið 2017, á Iceland Airwaves.
Kom fram í Fríkirkjunni og tróð
upp í kjölfar magnaðs setts frá
Báru Gísla. Ég vissi af henni þá,
þó ég væri ekki á bólakafi, en fer-
ill hennar átti heldur betur eftir
að taka kipp stuttu síðar.
Harding fæddist sem Hannah
Harding en tók sér listakon-
unafnið sem við þekkjum síðar.
Hún ólst upp í bænum Lyttelton á
suðureyju Nýja-Sjálands, bæ sem
telur rúmlega 3.000 manns. Hann
er rétt hjá borginni Christchurch,
hvar Hera okkar ól manninn en
Christchurch var líka varnarþing
hinnar merku útgáfu Flying Nun
sem gaf út tímamótanýbylgju á ní-
unda áratugnum (The Verlaines,
The Chills o.fl.). Móðir hennar er
þekkt tónlistarkona, Lorina, en
Aldous forðaðist lengi vel að feta í
hennar fótspor.
Fyrr en varði var hún samt
farin að spila með vinkonu sinni
Nadiu Reid (sem er í dag með
þekktari tónlistarkonum Nýja-
Sjálands) og árið 2014 kom fyrsta
plata hennar út, samnefnd henni.
Nýsjálenska tónlistar-
konan Aldous Harding
leikur í Hljómahöll í
ágúst. Það er mikill
hvalreki fyrir íslenska
tónlistaraðdáendur.
Engin undanbrögð
Listakona Aldous Harding er á ótrúlegu skriði um þessar mundir og færir pistlahöfundi gleðiyl í hjartað.
Tónlistin þar er nokkuð ólík þeirri
sem hefur gefið henni frægð og
frama. Einslags gotnesk þjóðlaga-
tónlist með indíbrag og einkar
áhrifarík sem slík. Söngröddin í
handanheimsgír, hátónuð í hálf-
gerðum fornum Appalasíustíl.
Galdrarnir voru þarna alveg en
hún átti svo eftir að verða ramm-
göldrótt á næstu misserum.
Hið ægivirta 4AD fór nú að
eltast við okkar konu og næsta
plata, Party, kom út á þess vegum
árið 2017. Upptökustjórnandi eng-
inn annar en John Parish sem hef-
ur unnið mikið með PJ Harvey.
Tónlistin var breytt. Skríti- og
jaðarpopp var orðið miðlægt, andi
Nico yfir jafnvel, og tilfinnanlegt
hugrekki gagnvart því að búa til
eitthvað nýtt og vera ekkert að
festast. „Imagining my Man“ lík-
ast til besta dæmið um þessa nýju
stefnu. Hún og Parish héldu svo
áfram sínu góða samstarfi á hinni
stórkostlegu Designer þar sem allt
raðast saman í dásamlegu jafn-
vægi. „The Barrel“ sló í gegn, eins
vel og hægt er að slá í gegn í
neðanjarðarpoppi/rokki.
Fjórða platan, Warm Chris,
kom svo út sama dag og ég hóf
skrif á þessum pistli. Parish er
enn á sleðunum og samstarf hans
og Harding augljóslega gefandi
bæði og næringarríkt. Í viðtali við
Mojo er Harding spurð út í vinnu-
ferli plötunnar og hún er afar
lykluð og dularfull í öllum svörum
sínum. Ég hvet þá sem eru að lesa
þennan pistil að fletta upp viðtali
við hana á Youtube (FaceCulture,
2019) hvar hún nær að vera af-
strakt og heimspekileg um leið og
hún er í djúpri einlægni og heiðar-
leika. Ótrúlegt að sjá þetta! Og
þegar ég tala um að mig hafi rek-
ið í rogastans þá var það nákvæm-
lega þannig. Fékk gleðiyl í hjart-
að, því að það er tiltölulega
auðvelt að nema það þegar fólk er
„alvöru“. Aldous Harding er þann-
ig listakona og það verður frábært
að sjá það á sviði í ágúst komandi.
»
Galdrarnir voru
þarna alveg en hún
átti svo eftir að verða
rammgöldrótt á næstu
misserum.
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
EMPIRE
VARIET Y
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
75%
Sýning á nýjum verkum eftir Lilju
Birgisdóttur, It’s not you, it’s me,
verður opnuð í galleríinu Þulu við
Hjartatorg í dag, laugardag, kl. 14.
Í tilkynningu segir að sýningin
fjalli um samband okkar við hvers-
dagslega hluti sem tapað hafa til-
gangi sínum og þannig ef til vill
einnig fagurfræðilegu gildi. Ljós-
myndirnar sem Lilja sýnir eru
handmálaðar með olíulitum á
silfurprent og eru eins konar „port-
rettmyndir af þessum hlutum sem
gefur þeim ákveðið rými og endur-
vekur að vissu leyti tilverurétt
þeirra.“
Lilja nam við Konunglega
listaháskólann í Hollandi. Hún er
einn aðstandenda Kling & Bang og
hefur verið ötul við sýningahald á
undanförnum árum.
Sýnir handmáluð
ljósmyndaverk
Sýnir Í verkunum fjallar Lilja Birgisdóttir
um samband við hversdagslega hluti.
Frá haustinu
2020 hafa píanó-
leikarar landsins
flutt hverja
píanósónötu
Ludwigs van
Beethovens á
fætur annarri í
tilefni af því að
þá voru 250 ár fá
fæðingu tón-
skáldsins.
Fjórar til af píanósónötum
Beethovens verða fluttar í Salnum í
dag, laugardag, kl. 16. Helgi Heið-
ar Stefánsson flytur sónötu nr. 6 í
F-dúr, op. 10 nr. 2, Thomas Higger-
son sónötu nr. 7 í D-dúr, op. 10 nr.
3, Valgerður Andrésdóttir sónötu
nr. 12 í As-dúr, op. 26 og Anna Mál-
fríður Sigurðardóttir sónötu nr. 30
í E-dúr, op. 109.
Leika fjórar són-
ötur Beethovens
Anna Málfríður
Sigurðardóttir