Morgunblaðið - 02.04.2022, Blaðsíða 48
Vinir
fá sérkjör
Skráning á icewear.is
GRÍMSEY ha
Kr. 2.990
RUMUR flannel skyrta
Kr. 9.990.-
SÓLA zip-off göngubuxur
Kr. 17.990.-
ARCTIC EXPLORER
göngustafir
Kr. 5.990.-
Þín útivist - þín ánægja
HVÍTANES Merínó hálsklútur
Kr. 4.990.-
MÁR tveggja laga regnjakki
Kr 22 990
BRIMNES
meðalþykk
göngusokk
Kr. 2.15
. . .-
ASOLO Falcon
Kr. 29.990.-
DRANGSNES merino buxur
Kr. 11.990.-
DRANGSNES hálfrennd peysa
Kr. 11.990.-
ir
ar
0.-
nskar
.-
Kór Langholtskirkju kemur fram á sínum fyrstu tón-
leikum á árinu í kirkjunni annað kvöld, sunnudag,
klukkan 20. Á efnisskránni eru tvö verk eftir þekktustu
tónjöfra barokksins, Dixit Dominus eftir Händel og
Messa í g-moll eftir J.S. Bach. Händel samdi Dixit Dom-
inus árið 1707, þá 22 ára að gamall. Verkið hefur aðeins
verið flutt þrisvar hér á landi. Missae breves í g-moll er
ein af að minnsta kosti fimm messum sem Bach samdi
á árunum 1737-1748. Hún hefur aðeins verið flutt tvisv-
ar hér. Stjórnandi kórsins er Magnús Ragnarsson.
Kór Langholtskirkju flytur tónverk
eftir Bach og Händel á tónleikum
LAUGARDAGUR 2. APRÍL 92. DAGUR ÁRSINS 2022
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.330 kr.
Áskrift 8.383kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Tvær af þeim átta þjóðum sem hafa orðið heimsmeist-
arar karla í knattspyrnu, Spánn og Þýskaland, drógust
saman í riðil í lokakeppni HM 2022 í Katar en dregið var
í átta riðla keppninnar í gær. Hollendingar höfðu
heppnina með sér og lentu í riðli með gestgjöfunum og
þá eru líkur á að Englendingar þurfi að mæta annað-
hvort Walesbúum eða Skotum í riðlakeppninni. »41
Stórþjóðir lentu saman í HM-riðli
ÍÞRÓTTIR MENNING
Dóra Ósk Halldórsdóttir
doraosk@mbl.is
„Það er ákveðin útrás að standa með
uppreista öxi, viðbúinn að kasta í
mark,“ segir Elvar Ólafsson sem rek-
ur fyrirtækið Berserkir axarkast í
Hjallahrauni 9 í Hafnarfirði. „Hug-
myndin kviknaði þegar ég var á
ferðalagi í Toronto í Kanada með vin-
um mínum og við fórum inn á stað
þar sem hægt var að kasta öxum.
Mér fannst þetta strax mjög
skemmtilegt og vildi helst fara strax
aftur að kasta daginn eftir. Þetta er
svo frábær blanda af keppni og vit-
leysu og svo er hluti af gamninu að
það er eins og maður sé að gera eitt-
hvað af sér.“ Elvar hugsaði með sér
að fyrst honum þætti þetta svona
skemmtilegt væri kannski málið að
kynna Íslendingum axarkastið.
Þegar heim var komið var Elvar að
ræða þetta í fjölskyldunni og mág-
konu hans, Helgu Kolbrúnu Magn-
úsdóttur, fannst þetta mjög spenn-
andi, en hún hafði prófað axarkast í
Nýja-Sjálandi þar sem hún var að
keppa í bogfimi. Elvar segir að þau
séu mjög íþróttalega sinnuð og með
gott keppnisskap.
Þótt flestir komi í hóp hafa líka pör
komið sem vilja fara á öðruvísi
stefnumót. „Mest koma samt hópar
frá fyrirtækjum og svo erum við með
mikið af steggja-og gæsahópum. Við
erum með tvær brautir og fjögur
skotmörk og við kynnum allar örygg-
isreglur og aðstoðum við tæknina og
svo gerum við alltaf smá keppni fyrir
hópana, svo einhver gangi frá leikum
sem sigurvegari.“ Segir Elvar að á
sumrin skipuleggi þau stundum úti-
viðburði og komi þá með búnaðinn á
staðinn.
Keppt er í axarkasti víða um heim-
inn og hægt að fara á heimsmeistara-
mót í íþróttinni og aldrei að vita nema
íslenskur víkingur mæti í keppni í
framtíðinni.
Elvar segir að það sé ákveðin
tækni í axarkasti og sumir nái henni
fyrr en aðrir. „Maður byrjar hægt og
svo fer maður að safna stigum.“ Öxin
er 700 g að þyngd, svo það er talsvert
önnur tækni en í pílukasti. „Við að-
stoðum fólk í byrjun og ég hef fengið
eldri mann í göngugrind sem réð vel
við kastið og einu sinni kom Banda-
ríkjamaður sem var blindur, og með
aðstoð gekk þetta alveg upp hjá hon-
um.“
Það þarf ekki að koma í þungum
víkingaskrúða og grár fyrir járnum
þegar mætt er í axarkastið, því axirn-
ar eru á staðnum og best er að vera í
þægilegum fatnaði. Hægt er að fá
léttar veitingar á staðnum, en ekki
áfengi, og sextán ára aldurstakmark
er á staðnum nema í fylgd með full-
orðnum.
„Þótt ég vilji nú ekki ganga svo
langt að kalla þetta reiðistjórnun, þá
veit ég að ef maður mætir pirraður á
staðinn fer maður út léttari á brún.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Axarkast Elvar við eitt skotmarkið, en axarkast er ekki bara pílukast á sterum, heldur þarf ákveðna tækni.
„Frábær blanda af
keppni og vitleysu“
- Í Hafnarfirði er nú hægt að tengjast sínum innri víkingi