Morgunblaðið - 21.04.2022, Side 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
sl
ík
u
At
h
að
ve
rð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
fy
rir
va
raVerona
á
sl
ík
g
re
ys
tá
n
BEINT FLUG Í ALLT SUMAR
a.
Flugsæti
595 1000 www.heimsferdir.is
19.950
Flug aðra leið frá
Flugsæti
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Inga Þóra Pálsdóttir
ingathora@mbl.is
Ekki er órofa samstaða innan mið-
stjórnar ASÍ með að fordæma hóp-
uppsögn Sólveigar Önnu Jónsdóttur,
formanns Eflingar, á öllu starfsfólki
félagsins.
Þetta sagði Drífa Snædal, forseti
ASÍ, í samtali við mbl.is að loknum
fundi miðstjórnar í gær þar sem mál-
ið var tekið fyrir.
Drífa segir að hugsanlega hafi
meirihluti fundarmanna viljað for-
dæma uppsagnirnar, en samstaðan
hafi ekki verið órofa.
„Það var ekki órofa samstaða um
að fordæma hópuppsögnina. Ég
hefði lagt til drög að ályktun um að
fordæma þetta hefði ég skynjað að
það væri órofa samstaða um málið.
Það var því miður ekki og því lagði
ég það ekki til.“
Drífa hefur áður fordæmt upp-
sagnirnar og sagt að ekki sé hægt að
réttlæta þær, en stjórn Eflingar seg-
ir þær komnar til vegna skipulags-
breytinga.
Eðlilegt að boða til fundar
Í fyrradag var greint frá því að
hátt í 500 félagsmenn Eflingar hefðu
skilað inn undirskriftum til stjórnar
félagsins til að knýja fram félags-
fund. Stjórnin á eftir að boða fundinn
en ljóst er að af honum verður þar
sem félaginu er skylt að boða til
fundar ef minnst 300 félagsmenn
krefjast þess.
Að sögn Agnieszku Ewu Ziól-
kowska, varaformanns Eflingar, hef-
ur Sólveig Anna boðað til stjórnar-
fundar á sunnudaginn til þess að
ákveða dagsetningu fyrir félags-
fundinn.
„Mér finnst gott að það sé boðað
til félagsfundar í félagi þar sem það
eru svona mikil átök. Við höfum allt-
af hvatt til þess að svona hlutir séu
unnir á hinum félagslega vettvangi
aðildarfélaga, þannig að mér finnst
það eðlilegt framhald að það sé boð-
að til félagsfundar hjá Eflingu,“ seg-
ir Drífa. »32
Ekki samstaða innan ASÍ
- Mögulega sé meirihluti miðstjórnar sammála - Hefði lagt fram tillögu að álykt-
un ef full samstaða hefði verið um málið - Gott að boðað verði til félagsfundar
Morgunblaðið/Eggert
Efling Drífa Snædal, forseti ASÍ, hef-
ur áður fordæmt hópuppsögnina.
Taktur var sleginn með tilþrifum í Ingunnarskóla í Grafar-
holti í Reykjavík í gærmorgun þar sem nemendur léku múr-
verk. Ungmenni úr þremur grunnskólum í Reykjavík hafa
hlotið þjálfun hjá tónskáldinu Rune Thorsteinssyni í því að slá
bala eins og notaðir eru við múrverk. Með slíku má skapa
skemmtilegan rytma eins og heyrðist svo vel í Grafarholtinu í
gær. Viðburður þessi var hluti af barnamenningarhátíð í
Reykjavík, en undir þeim merkjum hefur verið bryddað upp á
mörgu skemmtilegu síðustu daga, sem lifa mun í minni.
Morgunblaðið/Eggert
Tónar, taktur og mikil tilþrif í Grafarholtinu
Andrésar Andar-leikarnir á Akur-
eyri voru settir formlega í gærkvöldi.
Að þessu sinni taka 780 krakkar á
aldrinum 4-15 ára þátt í þeim og
koma þeir frá 18 félögum hvaðanæva
af landinu. Hófu þeir hátíðina í gær
með því að fara í skrúðgöngu frá
Lundarskóla að íþróttahöllinni, þar
sem opnunarhátíðin fór fram.
Þetta er í 46. sinn sem leikarnir
eru haldnir, en aflýsa þurfti þeim
bæði í fyrra og hittifyrra vegna
kórónuveirufaraldursins. Var því
mikil eftirvænting í hópnum í gær að
fá að hefja leik. Keppni hefst í dag,
sumardaginn fyrsta, og standa leik-
arnir yfir þar til síðdegis á laugar-
dag.
Keppt er í alpagreinum, og eru
flestir keppendur í þeim flokki, en
einnig er keppt í skíðagöngu. Þá hafa
snjóbretti verið að ryðja sér til rúms
á síðustu árum. Sérstakur stjörnu-
flokkur er einnig á leikunum, þar
sem fatlaðir og hreyfihamlaðir geta
keppt.
Leikarnir haldnir í 46. sinn
- 780 keppendur skráðir á Andrésar Andar-leikana
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Skrúðganga Krakkarnir voru spenntir að fá að taka þátt í leikunum.
Gabríel Douane
Boama, sem
strauk úr gæslu-
varðhaldi á
þriðjudaginn, er
ekki enn fund-
inn.
„Við viljum
finna þennan
mann sem fyrst
en hann er
ákærður meðal
annars fyrir ofbeldisbrot. Hvað
vakir fyrir honum með því að
strjúka veit ég ekki, en þetta er
varhugaverður maður,“ segir
Sveinn Ingiberg Magnússon yfir-
lögregluþjónn í samtali við mbl.is.
Hann skorar á Gabríel að gefa
sig fram. „Við skorum á manninn
að gefa sig fram en allir sem sjá
hann eru hvattir til þess að láta lög-
reglu vita í 112.“
„Þetta er varhuga-
verður maður“
Gabríel Douane
Boama