Morgunblaðið - 21.04.2022, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.04.2022, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022 9 DAGAR Á ALBÍR EÐA TENERIFE ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS 24. APRÍL - 03. MAÍ 9 DAGAR HG TENERIFE SUR 3* VERÐ FRÁ117.900 KR ÍBÚÐ MEÐ EINU SVEFNHERBERGI Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN 24. APRÍL - 03. MAÍ 9 DAGAR ALBÍR GARDEN RESORT 3* VERÐ FRÁ67.500 KR ÍBÚÐ MEÐ EINU SVEFNHERBERGI Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við kíktum á vélina í síðustu viku með neðansjávardróna. Hún er í fínu standi, ekkert hefur breyst og því er ekkert því til fyrirstöðu að flytja hana,“ segir Lárus Kazmi, stjórnandi köfunarhóps sérsveitar ríkislögreglustjóra. Stefnt er að því að hífa flugvélina TF-ABB upp úr Þingvallavatni á morgun, föstudag. Flugvélin, sem fórst í byrjun febrúar með fjóra karlmenn um borð, liggur á 48 metra dýpi í Ölfusvatnsvík. Í tilkynningu frá lögreglu í gær kom fram að undirbúningur vegna verkefnisins hefði staðið yfir frá því ís hvarf af vatninu. Uppsetning vinnubúða vegna aðgerðanna hefst í dag en setja þarf upp tjaldbúðir með aðstöðu fyrir björgunarmenn og öryggisbúnað vegna köfunar. Vanda þarf til verka við varð- veislu muna og passa gögn Lárus segir í samtali við Morg- unblaðið að aðgerðin verði flókin. Búist er við því að um 30 manns taki þátt í henni, þar af 12 kafarar. Um er að ræða samstarfsverkefni lögreglunnar á Suðurlandi, sér- sveitar Ríkislögreglustjóra, slökkviliðs og fleiri aðila. „Við sendum tvo kafara niður að flugvélinni sem liggur á 48 metrum og þeir festa stroffur í vélina. Því næst verður hún hífð upp á töluvert minna dýpi og tryggð fyrir flutning. Þá verður siglt með vélina nær landi, um 1,5 kílómetra, þar sem við vinnum meira í henni,“ segir Lárus. „Þá byrjar hin eiginlega rann- sóknarvinna. Vélin verður ljós- mynduð í bak og fyrir, allt innihald hennar, mælaborð, stjórntæki og annar búnaður. Annað verður svo tekið til hliðar,“ segir Lárus enn fremur og bætir við að huga þurfi vandlega að varðveislu þeirra muna sem finnast um borð. Mikilvægt sé að raftæki eins og símar og mynda- vélar séu flutt í vatni til rannsóknar svo gögn og fleira spillist ekki. Þeg- ar rannsókn á vélinni er lokið mun krani hífa flugvélina upp á pall og hún verður flutt í land. Vel þjálfaðir kafarar Lárus segir enn fremur að að- stæður til þess að sækja vélina séu betri nú en þegar hún fór í vatnið í febrúar. „Þetta verða vitaskuld erf- iðar kafanir. Það er alltaf hætta að fara svona djúpt en við höfum gert allar ráðstafanir til að bregðast við slysum. Við erum líka með vel þjálf- aða menn sem eru vanir því að fara djúpt og kafa mikið.“ Drónaflug verður bannað á svæðinu Gert er ráð fyrir að aðgerðir á svæðinu hefjist með sjósetningu og prófunum á tækjabúnaði klukkan níu á morgun. Björninn, fjarskipta- bíll Landsbjargar, verður á vett- vangi til að tryggja fjarskipti. Jafn- framt verða prammar nýttir sem aðstaða úti á vatninu og einnig til að hífa flugvélina af botni Þingvalla- vatns og færa að landi. Lögreglustjórinn á Suðurlandi hefur ákveðið að banna yfirflug allra loftfara um svæðið frá klukk- an átta á föstudagsmorgun og þar til aðgerðum er lokið. Fyrir liggur að nota þarf dróna lögreglu við að- gerðina og eins mun þyrla Land- helgisgæslunnar vera í viðbragðs- stöðu til flugs á vettvang ef þörf krefur. Björgun flugvélarinnar úr Þingvallavatni 1-2° Hitastig vatnsins er um 1-2 gráður 48m Vélin liggur á 48 metra dýpi. Hún verður flutt um 1,5 km frá köfunarstaðnum að landi þar sem unnið verður nánar í henni. 30 Áætlað er að um 30 manns taki þátt í aðgerðunum. Þar af eru 12 kafarar. Um er að ræða samstarfsverkefni lögreglunnar á Suðurlandi, sérsveitar Ríkislögreglustjóra, slökkviliðs og fleiri aðila. Tjaldbúðir verða settar upp með aðstöðu fyrir björgunarmenn og öryggisbúnað vegna köfunar. Einnig verður Björninn, fjarskiptabíll Landsbjargar, á vettvangi til að tryggja fjarskipti. Tveir kafarar verða sendir niður að flugvélinni til að festa stroffur í hana. Því næst verður vélin hífð upp á um það bil 5 metra dýpi. 5 10 15 20 25 30 35 40 45 Kafari í réttum hlutföllum Þar fer fram rannsókn á vélinni og hún verður tryggð fyrir flutning. Krani mun hífa vélina upp á pramma og þannig verður hún flutt í land Vélin í réttum hlutföllum Heimild: Köfunarhópur sérsveitarinnar Prammi Um 30 manns í björgunarliðinu - Flugvélin TF-ABB verður hífð upp úr Þingvallavatni á morgun - Kafarar þurfa að kafa á niður á 48 metra dýpi Morgunblaðið/Eggert Aðgerðir Mikið mun mæða á lögreglu, slökkviliði o.fl. við Þingvallavatn. Sorglegt slys » Vélin sem fórst í byrjun febr- úar var af gerðinni Cessna 172N. » Um borð voru Haraldur Diego, 49 ára flugmaður, og þrír farþegar; Josh Neuman, 22 ára frá Bandaríkjunum, Nicola Bellavia, 32 ára Belgi, og Tim Ailings, 27 ára Hollendingur. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Freyr Bjarnason Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra sagði í gær í viðtali við mbl.is að hann bæri að sjálfsögðu pólitíska ábyrgð á sölu 22,5 prósenta hlut rík- isins í Íslandsbanka með því að setja ferlið af stað. Hann sagðist aðspurður hins veg- ar ekki sjá ástæðu til að íhuga stöðu sína eða jafnvel segja af sér. Hann teldi margt af því sem sagt hefði ver- ið um þetta mál einfaldlega rangt. Bjarni sagðist í viðtalinu standa með þeirri sannfæringu sinni að rík- ið ætti að losa sig úr samkeppnis- rekstri. Hann er enn þeirrar skoðunar að salan hafi verið vel heppnuð þegar á heildina er litið, en spurningar um framkvæmdina varpi skugga á árangurinn. Bjarni telur að ekki hafi verið far- ið á svig við lög á nokkurn hátt af hálfu fjármálaráðuneytisins og að mikið af þeirri gagnrýni sem komið hafi fram sé eftiráspeki. Bankasýsl- unni hafi hins vegar mátt takast bet- ur til við útboðið og það kunni að vera að þátttakendur í því hafi ekki uppfyllt skyldur sínar. Þá hafi sumt varðandi framkvæmdina orðið til þess að skapa tortryggni. Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa kallað eftir því að Alþingi komi saman fyrr en áætlað var vegna málsins en Birgir Ármannsson for- seti þingsins segir útlit fyrir að svo verði ekki. Hann gerir ráð fyrir að þing komi saman næsta mánudag líkt og er á áætlun. Óvíst er hvert fyrirkomulagið verður til þess að ræða söluna á þinginu. Margt rangt í umræðunni - Þing kemur líklega ekki saman fyrr Morgunblaðið/Eggert Bankasýslan Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.