Morgunblaðið - 21.04.2022, Síða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022
DAGMÁL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
„Bara það að átta sig á því hversu
mörg leyfi eru í gistingu á landinu,
hvað það eru mörg herbergi á bak
við það og af hvaða týpu. Þetta er
allt til í lokuðu skjali hjá sýslumann-
inum á Ísafirði sem þverneitar að af-
henda okkur. Bara til að nefna eitt
dæmi um það hvernig kerfið er ekki
alveg að vinna með okkur við að
halda utan um þessar tölulegu upp-
lýsingar.“
Er ekki hægt að kalla þetta skjal
fram á einhverri opinni heimasíðu?
„Nei það er því miður ekki hægt.
Við höfum sent nokkra tölvupóst um
að fá aðgang að þessu opinberlega
en það gengur illa.“
Hvað er svona leynilegt og hættu-
legt í þessum gögnum?
„Ég held að það væri upplagt að
þú spyrðir sýslumanninn út í það.“
Þessi orð lætur Jóhannes Þór
Skúlason, framkvæmdastjóri Sam-
taka ferðaþjónustunnar, falla í nýju
viðtali á vettvangi Dagmála þar sem
farið er vítt yfir sviðið og staðan tek-
in á greininni sem nú er að vakna af
eins konar þyrnirósarblundi eftir
hamfaraár kórónuveirunnar.
Líkt og hafrannsóknir
Segir hann að gera þurfi mun bet-
ur í því að greina stöðu ferðaþjón-
ustunnar og áhrif hennar á íslenskt
hagkerfi en nú er gert. Nefnir hann
sem dæmi að Hafrannsóknastofnun
haldi úti öflugu starfi vegna nýtingar
fiskistofna og að fara þyrfti jafn öfl-
uga leið þegar kemur að atvinnu-
grein sem til skamms tíma var orðin
sú mest gjaldeyrisskapandi í land-
inu, þ.e. áður en veirufaraldurinn
setti allt úr skorðum.
Jóhannes segir tækifærin blasa
við greininni og að mikil eftirspurn
sé eftir því að komast til landsins.
Eftirspurnarhlið jöfnunnar sé því
nokkuð sterk en meiri óvissa sé uppi
um getu ferðaþjónustufyrirtækja til
þess að anna henni svo að vel sé.
Manna þurfi stöður og koma inn-
viðum, sem legið hafa ónotaðir að
nokkru marki síðustu tvö árin, aftur
í gang. Það geti tekið tíma. Hann er
þó trúaður á að vel muni takast til.
Viðtalið við Jóhannes Þór geta
áskrifendur Morgunblaðsins nálgast
á mbl.is eða með því að skanna inn
kóðann hér að neðan.
Fá ekki upplýsingar frá sýslumanni
- Samtök ferðaþjónustunnar hafa kallað ítrekað eftir gögnum um skráningu gististaða en fá engin svör
- Eftirspurnarhlið greinarinnar í góðum gír - Flóknari staða með framboðið vegna áfalla síðustu ára
Viðspyrna Ferðaþjónutan er að ræsa vélarnar að nýju eftir dapurt tímabil.
Skeifudagur Grana, hestamanna-
félags nemenda við Landbún-
aðarháskóla Íslands (Lbhí) á
Hvanneyri, verður haldinn í dag í
reiðhöllinni á Mið-Fossum. Dag-
skráin hefst kl. 13. Skeifudagurinn
er uppskeruhátíð nemenda í reið-
mennskuáföngum skólans. Að
þessu sinni verður því fagnað sér-
staklega að Lbhí hefur eignast Mið-
Fossa. Verður hægt að skoða að-
stöðuna að dagskrá lokinni. Á
Skeifudeginum er keppt um Morg-
unblaðsskeifuna, verðlaun sem
veitt hafa verið í 64 ár. Einnig um
Gunnarsbikarinn. Meðal annarra
verðlauna má nefna ásetuverðlaun
FT og Framfaraverðlaun Reynis.
Hvanneyringar halda
Skeifudaginn í dag
Ljósmynd/Rósa Björk Jónsdóttir
Viðurkenning Laufey Rún Sveins-
dóttir vann Skeifuna á síðasta ári.
- Aðstaðan á
Mið-Fossum kynnt
Starfsmannafatnaður
fyrir hótel og veitingahús
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | www.eddaehf.is
Hótelrúmföt kristin@run.is | Starfsmannafatnaður thorhildur@run.is
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Hótelstjórnandann
Hótelrúmföt
Sérhæfum okkur í sölu á rúm-
fatnaði og öðru líni fyrir hótel
Dagskrá:
Hefðbundin ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins
Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins
Önnur mál
Við bjóðum sjóðfélaga velkomna á fundinn.
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs.
Grand Hótel Reykjavík,
fimmtudaginn 28. apríl kl. 17:00
Gildi-lífeyrissjóður
Ársfundur 2022
▪
▪
▪
Lífeyrissjóður www.gildi.is
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
slí
ku
.A
th
.a
ð
ve
rð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
fy
rir
va
ra
.
yr
irv
yr
irv
arar
a.a.Porto
tin
ga
á
slí
ku
.
ík
u.
At
h.
að
ve
rð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
f
án
fy
rir
v
yr
irv
5. MAÍ Í 3 NÆTUR
Vila Galé Porto Centro
595 1000 www.heimsferdir.is
Flug & hótel frá
116.300
3nætur
aaaa
Atvinna