Morgunblaðið - 21.04.2022, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022
Ferðalög, fjallgöngur, fjölskyldustund, samvera, ævintýri, gróður og gott á grilli. Sumarið er tíminn er
sungið í laginu og hið sama segja þau sem Morgunblaðið ræddi við um gæðatíma sem er fram undan.Sumargleði
„Íslenska sumarið er
ævintýri,“ segir Diljá
Mist Einarsdóttir
þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins. „Við fjöl-
skyldan búum í Graf-
arvogi, sem er hverfi
margra möguleika
þegar kemur að úti-
veru og leikjum. För-
um oft til dæmis á
hjóli í Spöngina þar
sem er frábær ísbúð
– eða þá í frábæra gróðurreiti sem svo víða má
finna í borginni. Börnin okkar tvö, þau Jökull
Róbert átta ára og Susie Rut sex ára, eru eftir
síðustu sumur orðin ágætlega ferðavön og fær
í flest. Sumarið 2020 fórum við með góðum
vinahópi í göngu um Laugaveginn og í fyrra
um Víknaslóðir austur á landi. Sonurinn var
þarna með og lét sig ekkert muna um að ganga
18 kílómetra á einum degi. Í sumar förum við
eitthvað annað skemmtilegt með þessum sama
hópi og þar gætu Strandirnar komið til greina.
Ég hlakka mjög til þessara ferða, ekki síst fyr-
ir hönd barnanna minna.“
Starf Alþingis stendur eitthvað fram í júní,
en ógerlegt er að slá föstu hver lokadagurinn
verður. „Oft tekur pólitíkin nýja og óvænta
stefnu og bregðast þarf við aðstæðum. Ég geri
því ekki miklar áætlanir vegna fyrri hluta
sumarsins. Ef stund gefst kemst ég vonandi í
hlaup með skemmtilegum hópi vinkvenna
minna úr menntaskóla. Þá hittumst við gjarn-
an í Breiðholti eða Bryggjuhverfi og skokkum
þaðan fram Fossvogsdal, þar sem er frábær
stígur í fallegu umhverfi. Eftir hlaupasprett er
þá gjarnan tekin hressing á Kaffi Nauthól –
góðum stað í fallegu umhverfi.“
Fjölskyldan,
leikir og útivera
„Samvera og að mað-
ur er manns gaman
er kjarni starfs
íþróttahreyfing-
arinnar. Því eru tæki-
færin nýtt nú þegar
veiran er að baki,“
segir Jóhann Stein-
ar Ingimundarson,
formaður Ung-
mennafélags Íslands.
Í sumar eru fjórir
viðburðir á dagskrá
undir merkjum Íþróttaveislu, sem verður í um-
sjón Ungmennasambands Kjalarnesþings sem
er 100 ára um þessar mundir. Vettvangur
þessa verður á Álftanesi, í Kópavogi, á Sel-
tjarnarnesi og í Mosfellsbæ. Landsmót UMFÍ
fyrir fólk 50 ára og eldra verður í Borgarnesi
24. til 26. júní og um verslunarmannahelgina
er Unglingalandsmót UMFÍ á Selfossi. Vegna
sóttvarna hefur slíkt mót ekki verið haldið frá
2019.
„Unglingalandsmótin voru áður fyrr haldin
í júlí en voru fyrir tuttugu árum eða svo færð á
verslunarmannahelgina. Sú ákvörðun þótti á
sínum tíma djörf en sannaði sig fljótt. Hamrað
var á banni við allri vímuefnanotkun og mikil-
vægi samveru fjölskyldunnar og þau skilaboð
náðu í gegn. Ávinningurinn af þessu er marg-
þættur. Raunar fylgist fólk víða erlendis af
áhuga með hvernig þessu starfi okkar er hátt-
að, til dæmis í Danmörku.“
Þegar félagsstarfi sleppir segir Jóhann
Steinar margt fram undan. Foreldrar hans séu
sjötug um þessar mundir og af því tilefni stefni
stórfjölskyldan – alls 17 manns – til Tenerife í
júní. „Ég hlakka mikið til þeirrar ferðar, að
vera í sólinni með mínu besta fólki.“
Landsmótin og
sól á Tenerife
„Sú hefð hefur skap-
ast að skátar sjái um
ýmsa viðburði á sum-
ardaginn fyrsta. Fyr-
ir vikið hefur þetta á
vissan hátt orðið há-
tíðin okkar, sem er
bara skemmtilegt,
rétt eins og allt okk-
ar starf,“ segir Erika
Eik Bjarkadóttir,
verkefnastjóri hjá
Skátasambandi
Reykjavíkur. Hún er jafnframt nemi í útivist-
ar- og uppeldisfræðum við háskóla í Finn-
landi.
Nú á sumardaginn fyrsta verða skátar með
lifandi og ævintýraríka dagskrá í boði í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal í
Reykjavík. Afsláttur er af aðgangseyri og frítt
í valin leiktæki og á viðburði skátanna. Þá
verður dagskrá við skátaheimilin í Árbæjar-
hverfi, Vesturbæ og Grafarvogi og víðar eftir
atvikum. Allt er þetta upptaktur að þeirri
skemmtilegu dagskrá fyrir börn og unglinga
sem skátarnir standa fyrir í sumar.
„Í sumar hittast yngri skátar á móti á Úlf-
ljótsvatni og unglingarnir á Hömrum við
Akureyri. Skátar, átján ára og eldri, mætast
síðan inni í Landmannalaugum og ganga
Laugaveginn. Áður en að því kemur þarf ég
að koma mér sjálfri í form og er þegar komin
á fullt. Ég geng oft á fjöll og fer þá á tindana
nærri Mosfellsbæ. Er búin að taka Esjuna, en
svo eru þarna líka Grímmannsfell, Helgafell,
Mosfell og fleiri. Þá reyni ég líka að príla upp
á öll þau Búrfell sem ég finn, en eins og sjá
má á kortum skipta þau tugum ef allt landið
er tekið í talningunni.“
Upptaktur að
sumarstarfinu
„Nú blómstrar allt
og ástæða er til að
gleðjast,“ segir
Björgvin Örn Egg-
ertsson, sem er
brautarstjóri í garð-
yrkjuskóla Landbún-
aðarháskóla Íslands
á Reykjum við
Hveragerði. Skv.
langri hefð er þar
opið hús á sum-
ardaginn fyrsta.
Húsið verður opnað kl. 10 og tekið er á móti
gestum til kl. 17. Hátíðardagskrá hefst kl. 14
og þar mun forseti Íslands, Guðni Th. Jó-
hannesson, veita garðyrkjuverðlaun þeim
sem lagt hafa gott af mörkum til grein-
arinnar. Á sölutorgi verður hægt að fá ferskt
grænmeti, blóm, kryddolíur, plöntur og fleira
gott. Í gróðurhúsi má kynna sér íslenska ban-
anarækt og í verknámshúsi verða verkefni
nemenda til sýnis, tjarnir og náttúrugrjót.
„Garðyrkjuskólinn iðar af lífi á sumardag-
inn fyrsta, hér er gleði og góð stemning.
Margir hafa fyrir venju að koma austur fyrir
fjall á þessum degi, til dæmis fólk sem er að
leita hugmynda í sinni eigin garðrækt,“ segir
Björgvin Örn sem ætlar líkt og aðrir svo
sannarlega að njóta alls þess góða sem ís-
lenska sumrinu fylgir.
„Við fjölskyldan eigum hjólhýsi, en slíku
fylgja margir möguleikar þegar velja skal
næturstað. Ég á fjölda ættingja á Austurlandi
og þangað förum við oft. Vorum eystra í
fyrra og veðurteppt þar í þrjár vikur; í 25°
hita marga daga í röð. Í sumar geri ég síðan
ráð fyrir að leiðin liggi á Vestfirði, þar sem er
margt sem mig langar að sjá og kynnast.“
Allt er í blóma
og húsið opið
Ef þú hefur ekki heimsótt Færeyjar nýlega skaltu láta verða að því.
Þangað er heillandi að koma, stórbrotið landslag, gott vegakerfi,
góður matur og rómuð gestrisni eyjaskeggja.
Ferðaskrifstofa eldri borgara býður sérferð fyrir eldri borgara til Færeyja
dagana 22.-26. ágúst. Flogið frá Keflavík með Atlantic Airways og gist á hinu
glæsilega Hótel Brandan 4* Fararstjóri: Gísli Jafetsson.
Innifalið í verði: Flug báðar leiðir frá Keflavík til Færeyja. Gisting á Hótel Brandan 4* í
4 nætur, morgunverður og kvöldverður alla daga. Auk þess skoðunarferðir til Götu,
Klaksvíkur, Fuglafjarðar, Gásadals og víðar. Heimsókn í Norðurlandahúsið og einnig að
Kirkjubæ þar sem hádegisverður er snæddur í elsta timburhúsi sem búið er í í Evrópu.
*Aukagjald fyrir einbýli: 39.500 kr.
FÆREYJAR
með flugi 22.-26. ágúst
Sérferð
eldri borgara
Það er mikil
stemning í
okkar ferðum
Verð kr. 199.900 á mann m.v. gistingu í tvíbýli*
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðaskrifstofu
eldri borgara í símum 783-9300 og 783-9301,
einnig með tölvupósti í gegnum netfangið
hotel@hotelbokanir.is og á
www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is
Niko ehf | Austurvegi 6 | 800 Selfoss | kt. 590110-1750
Hótel Brandan