Morgunblaðið - 21.04.2022, Side 20
20 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022
Hafnfirðingum og vinum Hafnar-
fjarðar er boðið í heimsókn á Lífs-
gæðasetur St. Jó í dag en þar verður
opið hús frá klukkan 12 til 15.
Fyrr í mánuðinum afhenti Styrkt-
ar- og líknarsjóður Oddfellowregl-
unnar á Íslandi Alzheimersamtök-
unum og Parkinsonsamtökunum 530
fermetra húsnæði til afnota fyrir
starfsemi samtakanna á þriðju hæð
hússins. Í dag verða fleiri rými í hús-
inu opnuð formlega.
Lífsgæðasetrið er í húsinu þar
sem St. Jósefsspítali var áður en
Hafnarfjarðarbær eignaðist húsið að
fullu sumarið 2017 eftir samninga
við ríkið. Skuldbatt bærinn sig sam-
hliða til að reka almannaþjónustu í
fasteigninni að lágmarki í 15 ár frá
undirritun samnings og hefja rekst-
ur í eigninni innan þriggja ára frá
undirritun samnings.
Tveimur árum frá undirritun
samnings, á 92 ára vígsluafmæli
hússins 5. september 2019, var húsið
opnað formlega sem lífsgæðasetur
og samhliða fluttu inn fimmtán fyrir-
tæki sem öll hafa það að markmiði
að auka lífsgæði fólks. Nú verða all-
ar hæðir í húsinu opnaðar formlega
að undanskildum kjallara en vinna
er hafin við endurgerð kjallara húss-
ins.
Sumarhátíð
Opna húsið er hluti af Björtum
dögum, menningar- og þátttöku-
hátíð sem hófst í Hafnarfirði í gær
og stendur í allt sumar. Er sumar-
deginum fyrsta fagnað með fjöl-
breyttum hátíðarhöldum um allan
Hafnarfjörð, s.s. fuglaskoðun í
Höfðaskógi, víðavangshlaupi í hjarta
Hafnarfjarðar, alþjóðlegri söng-
stund og perlukóðun, skátamessu og
skrúðgöngu. Hægt er að sjá dag-
skrána á heimasíðu Hafnarfjarðar-
bæjar, hafnarfjordur.is.
Opið hús í Lífsgæðasetri St. Jó í dag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lífsgæðasetur Opið hús verður í dag í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði en húsið hefur verið endurnýjað.
- Sumrinu fagnað á Björtum dögum
Næturlíf í Reykjavíkurborg hefur
alltaf þótt með eindæmum fjörugt
og hefur litla borgin okkar í norðri
dregið að sér margan gestinn sem
vill upplifa hömlulaust djamm fram
á nætur. Á litlu svæði í miðbænum
eru skemmtistaðirnir úti um allt og
glaumurinn frá Laugavegi heyrist
upp að Hallgrímskirkju og jafnvel
lengra. Eins
skemmtilegt og
það er að lyfta
glasi í góðra vina
hópi fylgir
djamminu mikill
hávaði og þegar
gengið er um
miðborgina
snemma morguns
um helgar má sjá
rusl og sóðaskap
sem djamm-
ararnir skilja eftir sig í óminni fjörs-
ins kvöldið áður.
En miðbærinn er ekki bara partí-
staður. Þar búa líka fjölskyldur,
eldri borgarar, einstaklingar og alls
konar fólk. Nú finnst mörgum íbú-
um í hverfinu lætin og sóðaskap-
urinn fara yfir öll mörk, en eftir að
samkomubanni létti hefur ástandið
verið með versta móti og læti og ösk-
ur fram eftir nóttu. Nú gætu sumir
sagt að partístand fylgi alltaf mið-
borgum og eitthvað er til í því, en þó
er leitun að öðrum eins hamagangi
og í miðbæ Reykjavíkur.
„Ég vil benda á að ástandið hér í
miðbænum er alveg á skjön við þró-
unina í helstu borgum Vesturlanda,
þar sem gefist hefur verið upp á því
að hrúga öllum næturklúbbunum
saman í miðborginni,“ segir Kolbrún
Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks
fólksins.
„Síðan er næturlífið í miðbænum í
hrópandi mótsögn við áherslu borg-
arinnar á vistvænt og heilsusamlegt
umhverfi, sem og hljóðlátan ferða-
máta og önnur græn markmið. Þetta
er blönduð byggð og í miðbænum
býr vinnandi fólk sem þarf á svefni
sínum og hvíld að halda.“
Í Lögreglusamþykkt fyrir
Reykjavíkurborg frá 2008 segir í 6.
gr.: „Lögreglan getur vísað þeim
mönnum í burtu af almannafæri sem
með háttsemi sinni valda vegfar-
endum eða íbúum í nágrenninu
ónæði. Sama á við um þá sem valda
óspektum, hættu eða hneykslan á al-
mannafæri sökum ölvunar eða af
öðrum ástæðum.“ Kolbrún segir að í
nóvember 2018 hafi Flokkur fólksins
lagt fram tillögu um að borgin
tryggði eftirlit með framkvæmd
reglugerðar frá árinu 2008 um há-
vaðamengun í borginni. Hún segir
að það hafi ekki verið gert.
„Það er ekkert eðlilegt að nætur-
klúbbar séu opnir fram á morgun í
blandaðri byggð og það er mikilvægt
að finna lausnir á þessu ófremdar-
ástandi,“ segir Kolbrún sem segist
þó alls ekki á móti skemmtistöð-
unum. „Ég skemmti mér í Holly-
wood, Klúbbnum og Sigtúni í eina
tíð, en það voru allt staðir sem voru í
jaðri byggðarinnar sem var þá.“
Hún leggur til að skipta borginni í
hljóðsvæði þar sem hávaðasvæðin
yrðu fjærst íbúabyggð og talar til
dæmis um Granda eða önnur iðn-
aðarhverfi sem mögulega kosti fyrir
næturklúbba, en stöðum í mið-
bænum yrði þá lokað fyrr. Þá væri
hægt að hafa næturstrætó til að
skila fólki aftur til síns heima.
„Síðan væri gott að ráða hér næt-
urlífsstjóra sem héldi alveg utan um
þennan málaflokk, sæi um kvartanir,
hefði eftirlit með að reglugerðum
væri fylgt eftir og lögum væri fram-
fylgt. Þá væri komið miklu skilvirk-
ara samtal milli borgaranna, veit-
ingahúsanna og borgaryfirvalda sem
myndi skila sér í betri lausnum fyrir
alla.“
Kolbrún segir að mikilvægt sé að
finna nýjar lausnir. „Ég er menntað-
ur sálfræðingur og er reynd í því að
hlusta. Ég hlusta á íbúana í mið-
bænum og einnig eigendur fyrir-
tækjanna og það þarf að ræða þetta
þótt þetta sé flókið mál. Það hjálpar
engum að forðast að ræða um erfiða
hluti. Miðbærinn er bærinn okkar
allra, en líka heimili fjölda manns.
Það má ekki gleyma því.“
doraosk@mbl.is
Næturlífsstjóri óskast í miðbæinn
- Leita þarf nýrra lausna í miðbænum segir Kolbrún Baldursdóttir, oddviti Flokks fólksins í Reykjavík
mbl.is/Ari
Miðbærinn Mikill hávaði og sóðaskapur fylgir skemmtanalífinu í miðbænum og íbúar langþreyttir á ástandinu.
Kolbrún
Baldursdóttir
STREET 1
10.995 kr. / St. 27-35
ECCO SUMARSKÓR
Biom K1
12.995 kr. / St. 27-35
Biom K1
12.995 kr. / St. 27-35
STREET 1
10.995 kr. / St. 27-35
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS