Morgunblaðið - 21.04.2022, Side 24

Morgunblaðið - 21.04.2022, Side 24
24 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022 titlinum „The Other Jagger“ og reyndar víðar þar sem hlaðvarp Al- mars ratar út á lýðnetið allt í senn um veitur Apple, Google og Spotify. Má þar sjá Bretann í makindum á gömlum sveitabæ í Glastonbury þar sem hann býr og heldur skepn- ur, þar af hund nokkurn sem sótti mjög fast að narra eiganda sinn í boltaleik meðan á viðtalinu stóð en hafði ekki erindi sem erfiði. Í spjall- inu ræðir Jagger meðal annars ung- lingsárin í Dartford þar sem ekki hafi alltaf verið mikið við að vera á árunum eftir heimsstyrjöldina síð- ari. Þar, og í Bretlandi almennt, hafi kvikmyndahúsin gegnt veiga- miklu menningarhlutverki á meðan sjónvarpsútsendingar voru skammt á veg komnar. „Bíó var snar þáttur í lífinu, fólk fór í bíó, sjónvarpið var ekki stórt á þessum tíma, einhverjir áttu sjónvarpstæki en dagskrárliðir voru mjög af skornum skammti,“ segir Jagger, „útvarpið og dag- blöðin voru þýðingarmiklir miðlar og svo fór fólk á krána, það var það sem almenningur gerði,“ heldur hann áfram og rifjar upp þá breyt- ingu á samfélaginu sem innflutt am- erísk dægurmenning hafði í för með sér um miðbik síðustu aldar og upp úr því. „Hérna byrjaði vesenið“ Almar vill þá vita hvort og þá hvers konar stuðnings þeir bræður hafi notið frá foreldrum sínum þeg- ar áhugi þeirra á tónlist var að taka á sig mynd fyrir rúmum 60 árum og hvernig ungum Bretum hafi gengið að fóta sig á þeirri vegferð sem að lokum gat af sér eina nafntoguðustu rokkhljómsveit sögunnar. „Bróðir minn stóð undir sér pen- ingalega, hann naut styrks þar sem hann var í háskólanámi og þurfti ekki að fá sér vinnu. Meira að segja Keith [Richards] fór í listaskóla sem þýddi að hann þurfti heldur ekki að vinna fyrir sér. Brian Jones hafði vinnu, eða hlutastarf, ég man eftir honum að vinna og ég held að Bill Wyman hafi unnið, Charlie [Watts] líka, Charlie var grafískur hönn- uður,“ segir Jagger frá upphafs- árum Rolling Stones. Áskoranirnar voru þó skammt undan. „Hérna byrjaði vesenið. Þarna er spilamennska á tónleikum farin að taka á sig mynd og þá þarf að taka ákvörðun …“ hér er þolinmæði hunds Jaggers endanlega á þrotum og hann geyr mjög, eins og skepnan Garmur fyrir Gnipahelli í frásögn Völuspár, og Jagger skipar dýrinu höstugum rómi að liggja sem kyrr- ast. Snýst um að koma fólki í gang „Þarna þurftu menn að gera það upp við sig hvort þeir ætluðu að verða farsælir tónlistarmenn eða hvort þeir ætluðu að tilkynna hljóm- sveitinni að þeir gætu aðeins sinnt tónlistinni í hlutastarfi sem táknaði þá að þeir gætu bara spilað um helg- ar,“ heldur Jagger áfram og rifjar upp sögu af frænda þeirra bræðra, Richard Taylor, sem lék á bassa í Rolling Stones um fimm mánaða skeið í árdaga sveitarinnar en gerði garðinn mun frægari með hljóm- sveitinni The Pretty Things. „Konan hans krafðist þess að hann hætti al- farið í tónlistinni, en hann fór nú aft- ur í tónlistina,“ rifjar Jagger upp og rekur upp hlátrasköll. „Oftast snýst þetta bara um að fá fólk til að byrja að tala, á endanum segja flestir eitthvað áhugavert þegar maður kemur þeim á sporið,“ segir Almar af rekstri hlaðvarps síns en reyndar þarf ekki að horfa lengi á spjall þeirra Jaggers þar til ljóst verður að fyrirhöfnin við að losa um málbein Bretans var ekki ærin, Jagger tekur hreinlega á sprett þar sem hann situr í mak- indum í stól sínum og má Almar hafa sig allan við til að fylgja hon- um eftir úr einu umræðuefni í ann- að auk þess að skjóta inn spurn- ingum og í kjölfar einnar sögunnar, í það sinnið af samstarfi Jaggers við tónlistarmanninn Ike Turner heit- inn, þagnar Jagger skyndilega og spyr í hálfgerðum kæruleysistón: „Jæja, var það eitthvað fleira?“ Biðu við Akrópólis daglega Jagger er nokkrum árum yngri en bróðir hans í Rolling Stones, varð 74 ára nú skömmu fyrir jól, og hefur því farið gegnum nokkrar tæknibyltingar, í tónlist sem á öðr- um vettvangi, en sérstaklega áhugaverð er þó frásögn hans af því þegar þeir vinirnir fóru á puttanum frá Bretlandi til Aþenu í Grikklandi og urðu fljótlega á ferðalaginu við- skila þegar sömu ökumenn höfðu eðlilega ekki rými fyrir þá alla. Engir voru farsímarnir og því brugðið á það ráð að hittast við há- borgina Akrópólis. „Þeir vissu auðvitað ekkert hve langan tíma það tæki hvern þeirra að húkka sig til Grikklands svo hver og einn fór bara upp að Akrópólis á hverjum degi og beið þar uns hóp- urinn var að lokum allur kominn saman,“ segir Almar og leynir ekki hrifningunni á þrautseigju Bret- anna ungu fyrir mörgum áratugum. „Núna yrði þetta bara leyst með SMS-skilaboðum eða á Messenger en þetta og fleira sem hann sagði mér frá sýnir okkur bara hvað þetta er fjarlægt því sem við nú erum vön.“ Almar segir vinnuframlagið við hvern þátt hlaðvarpsins samanlagt nálgast einn vinnudag eða svo. „Maður tekur á móti gestinum, býð- ur kaffi og talar við hann og svo set ég tónlist inn á og tek upp einhverja stutta kynningu á þættinum. Að lokum ýti ég þessu út á samfélags- miðla og læt vita af nýju efni, ætli þetta séu ekki svona átta tímar, ég er að garfa í þessu á kvöldin og um helgar eða áður en ég byrja að vinna á morgnana,“ segir hann og játar að á óvart hafi komið hve tæknihliðin sé í raun einföld, klipp- ingar og því um líkt. „Ég heyri af fólki sem langar að vera með podcast en er eitthvað að mikla það fyrir sér, en þetta er miklu minna mál en maður heldur,“ segir Almar sem horfði á kennslu- myndbönd á lýðnetinu, prófaði sig áfram og hreinlega spurði sér reyndari hlaðvarpara. Þekkingin sé þó verðmæt og fróðlegt að fylgjast með því hve vandað efni þaulsætnir grúskarar sendi frá sér. „Fyrst var ég fjóra-fimm tíma að klippa til þáttinn, nú er ég kannski 40 mín- útur að því,“ segir hann af lærdómi sínum. Úr forstjórastólnum í allt annað Dagleg störf Almars snúast þó um atvinnuvefsetrið Alfreð sem fyrr segir. Eins og svo víða annars stað- ar blés þar stífur mótvindur í heimsfaraldrinum þegar snarhægði á ráðningum og leit að starfs- kröftum um allan heim. „Síðasta haust fór þetta svo að fara aftur af stað. Ég er fyrst og fremst í mark- aðsmálum og samskiptum við við- skiptavini. Kerfið sem við notum er þannig að endalaust er hægt að breyta og bæta við og við skoðum notendahegðun og notendaupplifun. Þetta er kannski ekki það sem ég hef verið þekktastur fyrir gegnum tíðina,“ segir Almar sem margir minnast sem forstjóra danska flug- félagsins Sterling og þar á undan Iceland Express, „en þetta er bara það sem fyrirtækið hefur þurft á að halda. Þú getur verið með stórt fyrir- tæki og fullt af einhverjum sérfræð- ingum og vinnan snýst þá um að stýra þeim og ná því besta út úr öll- um, hérna þarf maður meira að gera hlutina sjálfur, ég hef verið að fara yfir blogg-greinar og alls konar hluti og koma með ábendingar um hluti sem við ættum að skrifa um á okkar vef, hvað er heppilegt að setja í tölvupóst til okkar viðskipta- vina og svoleiðis. Maður er bara kominn niður á gólf,“ segir Almar Örn Hilmarsson að lokum léttur í bragði, frá Prag í Tékklandi þar sem hann fæst við svo ólíka þætti sem að þjónusta notendur íslensks atvinnuleitarvefjar og rekja garn- irnar úr bróður einnar elstu rokk- stjörnu heimsbyggðarinnar. Bauð Stones-bróðurnum í spjall - Rekur hlaðvarp í Prag í Tékklandi - Christopher Jagger til í að ræða við Íslendinginn - „Meira að segja Keith fór í listaskóla“ - Tæknihlið hlaðvarpsins engin hindrun - Kominn niður á gólf aftur Rokkmenni Hvorugt þessara myndefna lítur beinlínis út fyrir að hafa vermt forstjórastóla flugfélaga um dagana en það hefur Almar Örn Hilmarsson, hægra megin, þó á sinni ferilskrá. Hann sinnir atvinnuleitarvefnum Alfreð á skrifstofutíma en dundar sér við hlaðvarpið The Bla Bla Bunker í hjáverkum. Kent-bræður Christopher og Mick Jagger slitu barnsskónum í Dartford í Kent þar sem bíóið var ævintýri eftirstríðsáranna. Dálítið eins og á Íslandi. VIÐTAL Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Þegar kórónufaraldurinn var að byrja fannst mér einhvern veginn eins og mig vantaði eitthvað meira, einhvern vettvang til að tjá mig. Mér hefur alltaf fundist það mjög athyglisvert sem ég hef sjálfur frá að segja, en eftirspurnin hefur kannski verið eitthvað minni,“ segir Almar Örn Hilmarsson, lögfræð- ingur og hlaðvarpsstjórnandi í hinni fornu og fögru Prag í Tékklandi, þetta síðasta með nokkurri glettni í röddinni. Það sem kom út úr þessari inni- byrgðu tjáningarþörf Almars var hlaðvarpið The Bla Bla Bunker, sem ef til vill mætti snúa yfir á ís- lensku sem Blaðurbyrginu þótt tit- illinn bjóði reyndar upp á gnótt þýðingarmöguleika. Einn nýjasti gestur Almars nú á vordögum er Christopher Jagger, breskur tón- listarmaður, leikari og rithöfundur frá Dartford í Kent sem lifað hefur langa ævi í skugga náins ættingja og þarf vart að segja mörgum les- endum að hér er kominn litli bróðir Rolling Stones-líkneskisins Micks Jaggers. Örlítið meira þó af aðdraganda Blaðurbyrgis Almars sem hann reyndar lifir ekki af, saltið í graut- inn mylur hann úr eignarhlut sínum í atvinnuleitarvefnum Alfreð sem senn fagnar tíu ára afmæli sínu og fjölmargir Íslendingar kannast við. Almar á hlut í tékkneska útibúi Al- freðs. „Þannig að mér datt í hug að búa til podcast [hlaðvarp] og fara að tala um einhverja hluti og rak mig þá næst á að ég vissi í raun ekki nógu mikið um neitt sérstakt til að það gengi upp svo hugmyndin varð eiginlega að fara að tala við fólk sem ég þekkti og sá hópur spannar auðvitað allt frá eiturlyfjasölum upp í stjórnmálamenn,“ heldur hann sköpunarsögunni áfram. Ábendingar úr ýmsum áttum Stefnan hafi því verið sett á al- mennt rabb við Pétur og Pál um hvað þeir væru að fást við, almenna sýn á lífið og tilveruna og þar fram eftir götunum. Verkefnið hafi svo fljótlega undið upp á sig og þróast úr því að vera einn til tveir þættir í mánuði yfir í vikulegan þátt. „Ég fór að fá ábendingar úr ýmsum átt- um um fólk sem sniðugt væri að tala við og ég bryddaði líka upp á því að fá viðmælendur sem geta rætt um atburði sem eru að gerast, ég var með fólk um daginn sem var að tala um stríðið í Úkraínu en svo koma svona menn eins og Chris Jagger og þá snerist spjallið um hann og hans ferðalag gegnum líf- ið,“ útskýrir Almar. Tilurð þáttarins með Jagger var hálfgerð tilviljun. Almar spjallar reglulega við náunga sem selur vín- ilplötur í Prag og er einnig tónlist- armaður og sá hafi nefnt við hann að á prjónunum væri að taka upp tónlist með Jagger á næstunni sem er með mörg járn í eldinum og sendi í september frá sér plötuna Mixing Up The Medicine samtímis því sem sjálfsævisagan Talking To Myself kom út en platan var sú þrettánda úr smiðju Jaggers sem starfrækir hljómsveitina Atcha þótt ekki hljómi hún á öllum plötunum. Bíóið, blöðin … og kráin Almar lét þá slag standa og sendi Jagger erindi með tilboði um viðtal sem Bretanum leist vel á. „Hann tók svona hrikalega vel í þetta og ætlaði að koma í stúdíóið en tafðist svo í öðru og komst ekki svo við tókum þetta upp á netinu,“ lýsir Al- mar og geta áhugasamir horft og hlustað á viðtalið á YouTube undir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.