Morgunblaðið - 21.04.2022, Page 34

Morgunblaðið - 21.04.2022, Page 34
34 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022 Sumardagurinn fyrsti er í dag og með honum fyrirheit um bjarta sumardaga. Flest okkar þekkja þessa undursamlegu tilfinningu sem fylgir því að halla sér aftur í litríka blómabreiðu hæst á heiðum og finna hvernig lífstakt- urinn nær samhljómi við náttúruna. Á því andartaki er eflaust hægt að mæla geðheilsu okkar sem góða en almennt eru fá- ir mælikvarðar til á geðheilsu. Það liggur í eðli hugtaksins „geðheil- brigði“, sem er margvítt og bygg- ist, ásamt frávikum þess, á hugsun, einhverju sem við höfum þó aldrei getað skilgreint og jafnvel ekki skilið. Hver svo sem skilgreiningin er, þá ætti viðleitni okkar í lífinu ávallt að miða að því að bæta líðan og forðast vanlíðan. Síðasta starfsár í starfsemi Geð- hjálpar hefur verið viðburðaríkt. Stjórn samtakanna og starfsfólk hefur unnið markvisst út frá því hlutverki samtakanna að rækta geðheilsu Íslendinga og unnið af heilindum að framtíðarsýn samtak- anna um mannréttindi, aukna fræðslu og vandaða ráðgjöf, þar sem þörfum allra hópa er mætt af virðingu. Þetta starf er ekki síst mikilvægt nú þegar samfélag okkar stendur frammi fyrir áskorun. Ljóst er að fé til almannaþjónustu dregst sam- an næstu misserin en á sama tíma eru allar líkur á því að þörfin fyrir þjónustuna aukist mikið. Því er mikilvægt að huga bæði að sókn og vörn. Sókn, í þeirri merkingu að vinna með orsakaþætti geðheil- brigðis, og vörn, í þeirri merkingu að bæta og breyta viðbragðs- kerfum okkar. Til verksins höfum við hugmyndafræði þar sem rask- anirnar fá að mínu mati of mikið vægi, fjármagn og athygli í saman- burði við heilbrigðið sem röskunin (frávikið) er dregin af. Við verðum að snúa hægt en örugglega af þess- ari braut, endurskoða vitund okk- ar, hugsun og hegðun gagnvart geðheilbrigði og sálarlífi mannsins. Það verður að vera rými fyrir öll blóm jarðar, öll litbrigðin. Velflestar greiningar benda til þess að geðheilsa hafi orðið, og verði áfram, fyrir ágjöf vegna þeirra aðstæðna sem veirufarald- urinn hafði í för með sér ofan í hraðar samfélagsbreytingar. Því verður mikilvægi mannlegra sam- skipta og annarra félagslegra or- sakaþátta geðheilbrigðis ekki nægi- lega ítrekað á tímum sem bjóða upp á æ auðveldari „aðskilnað“ frá öðru fólki. Í þessu tilliti er sú hug- mynda- og aðferða- fræði, sem geðheil- brigðiskerfið okkar er byggt á, mikilvægari en nokkru sinni fyrr. Geðheilbrigðiskerfið okkar á að taka mið af sjónarhóli notenda og aðstandenda. Við vilj- um hafa áhrif á það og erum reiðubúin til samstarfs um mótun t.a.m. geðheilbrigðis- stefnu og aðgerðaáætl- unar í geðheilbrigðismálum. Um- bætur í mannréttindamálum og endurskoðun viðhorfs til nauðungar eru lóð á vogarskálar þeirra sem vilja að geðheilbrigðisþjónustan mótist á forsendum þjónustuveit- enda en ekki þjónustunotenda. Geðhjálp hefur styrkst í sínu hlutverki en á sama tíma hefur fé- lagið einnig styrkt aðra. Á síðasta aðalfundi samtakanna var „Styrkt- arsjóður geðheilbrigðis“ stofnaður með það fyrir augum að styrkja framfarahugmyndir innan geðheil- brigðismála. Sjóðurinn, sem er sjálfstæður með sér stjórn og fag- ráði, hefur tekið á móti rúmlega 100 milljónum króna frá Geðhjálp og er ásetningur núverandi stjórn- ar samtakanna að halda áfram að styrkja sjóðinn þannig að hann verði sterkt vogarafl til framfara í geðheilbrigðismálum. Með því nýt- um við eigið fé samtakanna, sem í lok árs 2020 nam tæplega 188 m.kr., til að skapa hreyfingu til góðs í málaflokknum um leið og við hvetjum opinbera aðila og einka- aðila til að leggja okkur lið með framlögum til sjóðsins. Það er markmið núverandi stjórnar sjóðs- ins að efla sjóðinn verulega á næstu misserum og mikilvægi hans er óumdeilt, það fundum við í stjórninni gjörla þegar um tíu milljónum króna var úthlutað í fyrsta sinn á síðasta ári til marg- víslegra verkefna. Um leið og ég þakka stjórn og starfsfólki Geðhjálpar kærlega fyr- ir samstarfið vil ég sérstaklega þakka öllum þeim fjölmörgu styrktaraðilum sem hafa stutt okk- ur í orði og efni sem og félags- mönnum öllum. Þakka ykkur inni- lega fyrir að vera með okkur á þessari mikilvægu vegferð því án ykkur næðum við ekki árangri. Án ykkar væri blómabreiðan fátæk- legri. Litrík blómabreiða Eftir Héðin Unnsteinsson Héðinn Unnsteinsson » Geðhjálp hefur styrkst í sínu hlut- verki en á sama tíma hefur félagið einnig styrkt aðra. Höfundur er formaður Geðhjálpar. Hlutfall eldri borg- ara á Íslandi mun hækka ört gangi mannfjöldaspár eftir. Samkvæmt miðgildi mannfjöldaspár Hag- stofu Íslands mun hafa fjölgað í aldurs- hópnum 70-100 ára um 43 prósent árið 2030 og ætla má að sú þróun haldi áfram. Fjölgunin er langt umfram aðra aldurshópa á sama tímabili. Svipaða sögu má segja um fjölgun í elsta hópnum í Evrópu en þó er svo að hlutfall eldri borgara er víðast hvar hærra í dag en hér á landi. Þetta kallar á skýrari stefnumótun og aukið fjár- magn. Búsetuúrræði þarf í öllum byggðakjörnum Mikilvægt er að Fjarðabyggð sem sveitarfélag hefji samtal og leiti leiða til að byggja fjölbýlishús fyrir eldri kynslóðir, t.d. á Eskifirði og í Neskaupstað, svipað því sem er á Reyðarfirði, það mun auka framboð einbýlishúsa þar sem í dag búa einn eða tveir í of stóru og dýru húsnæði og vilja minnka. Þau óhagnaðardrifnu búsetuverkefni sem þegar eru í gangi á vettvangi Húsnæðis- og mannvirkjastofn- unnar þurfa að horfa í auknum mæli til eldri kynslóða. Mikilvægt er að skilyrði kaupa eða leigu á íbúðum óhagnaðardrifinna húsnæð- isfélaga séu hentug eldri borgurum og tekið sé mið af því í tekju- og eignaviðmiði. Fjölga verður hjúkrunarrýmum Biðlistar eftir hjúkrunarrými eru að lengjast. Forystumenn Fjarða- byggðar mega ekki sofna á verð- inum í kröfu um fjölgun hjúkr- unarrýma. Brýnt er að horfa til þess að hjúkrunardeildin í Nes- kaupstað stenst í dag ekki nútíma- kröfur og mikilvægt að endurnýja með fleiri rýmum. Einnig þarf að horfa til framtíðar varðandi stækk- un Hulduhlíðar á Eskifirði og nýta betur húsnæði Uppsala á Fá- skrúðsfirði og endurbæta gamla dvalarheimilishlutann. Efling heimaþjónustu, dagþjón- ustu og heimahjúkrunar gerir eldri borgurum kleift að búa lengur á sínu heimili og njóta viðeigandi þjónustu þar. Fjarðabyggð er eft- irbátur annarra samfélaga varðandi dagdvalarþjónustu og úr því verður að bæta. Af 833 dagdvalarrýmum sem voru á landinu árið 2020 voru einungis sex í Fjarðabyggð (fimm í Breiðdalsvík og eitt í Neskaup- stað). Hér verður að lyfta grettis- taki. Á sama sama tíma er þetta sóknarfæri fyrir samfélagið. Dag- dvalarþjónusta er úrræði fyrir eldri borgara sem hefur gefið góða raun. Úrræðið er persónubundið þar sem einstaklingur getur fengið þjónustu ákveðna daga vikunnar allt eftir þörfum viðkomandi. Þjónustan ger- ir viðkomandi kleift að búa lengur í heimahúsi án þess að það komi nið- ur á daglegum athöfnum og gerir bið eftir hjúkrunarrými bærilegri. Virkjum betur mannauðinn Öflug atvinnufyrirtæki í Fjarða- byggð kalla á vinnuafl. Uppbygging undanfarinna ára hefur eflt sam- félagið, sem hefur vaxið og dafnað með auknum umsvifum fyrirtækja. Íbúum fjölgar en hvergi nærri nóg til að mæta eftirspurn atvinnulífs- ins. Fjarðabyggð er samfélag sem þarf að hámarka framfarir og verð- mætasköpun. Þar býr stór hópur 67 ára og eldri sem blessunarlega býr við góða heilsu og fulla starfs- orku og löngun til þátttöku í at- vinnulífi. Þessi hópur býr yfir þekkingu, reynslu og ástríðu til samfélagsins, sem mætti miðla bet- ur til yngri kynslóða. Hér þarf Fjarðabyggð aukinn baráttuanda fyrir fólk sem vill vinna en mætir sífellt hindrunum eftir 70 ára aldur. Eflum og stækkum vinnumark- aðinn, hjálpum fólki að vinna. Hlúum að eldri borgurum í Fjarðabyggð Eftir Ragnar Sigurðsson og Árna Helgason » Fjarðabyggð leiti leiða til að byggja fjölbýlishús fyrir eldri kynslóðir, t.d. á Eski- firði og í Neskaupstað, svipað því sem er á Reyðarfirði. Ragnar Sigurðsson Ragnar er oddviti Sjálfstæðisflokks- ins í Fjarðabyggð og varaþingmaður. Árni er framkvæmdastjóri og fram- bjóðandi Sjálfstæðisflokksins. Höfundar eru fyrrverandi fram- kvæmdastjórar hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð. Árni Helgason Atvinna Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is stalogstansar.is VARAHLUTIR Í KERRUR 2012 2021 N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Mikið úrval af HVÍLDARST með og án rafmagns lyftibú Komið og skoðið úrvalið ÓLUM naði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.