Morgunblaðið - 21.04.2022, Page 35
UMRÆÐAN 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022
Ánægjuábyrgð
Bindur lykt hratt
Klumpast vel
Rykast ekki
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes
www.gaeludyr.is
SUMARSKÓRNIR SEM KRAKKARNIR ELSKA
Vortex Flash
9.995 kr./ st. 27-35
Glimmer Kicks
9.995 kr./ st. 27-35
Adventure Track
9.995 kr./ st. 27-35
Microspec Max - Airy color
8.995 kr./ st. 27-35
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
SKECHERS
Í dag fæst bara ein-
fyrir-tvær-tilboð í
íbúðakaupum í
Reykjavík. Til að fá
eina íbúð þarf að
borga fyrir tvær,
íbúðina sem þú vilt fá,
gamla húsið sem var
fyrir og var rifið, fé-
lagslegar íbúðir ná-
granna sem borgin
lætur þig borga með í,
innviðagjald vegna
borgarlínu og jafnvel
pálmatré. Hamingju-
stundin við að flytja
inn í sína fyrstu íbúð
verður æ trega-
blandnari. En svona
hefur þetta ekki alltaf
verið, því miðað við bygging-
arkostnað hefur íbúðaverð hækkað
um 80-90% frá aldamótum.
Þegar allt er of dýrt tapa allir.
Leigjandinn tapar þegar leigan
hækkar, kaupandinn tapar þegar
fasteignaverð hækkar og verktakinn
tapar þegar fólk hættir að hafa efni
á íbúðinni sem það var að byggja. Af
hverju er ekki allt morandi í bygg-
ingarkrönum í Reykjavík nú í hæsta
fasteignaverði sögunnar? Vilja verk-
takar ekki græða? Svarið er einfalt:
Hækkunin er vegna kostnaðar en
ekki vegna gróða.
Byggjum aftur ódýrt
Fyrsta skrefið í að leysa húsnæð-
isvandann er að átta sig á því að það
er ekki hlutverk borgaryfirvalda að
ákveða hvar og hversu dýrt borg-
arar búa. Þvert á móti gegnir borgin
þjónustuhlutverki og þarf að sjá til
þess að allir geti fundið húsnæði við
sitt hæfi.
Auka þarf lóðaframboð strax og
auðvelda uppbyggingu þar sem
ódýrast og fljótlegast er að byggja.
Bestu svæðin fyrir stórfellda hraða
uppbyggingu eru í landi Keldna og
Korpu; stór auð svæði með litlu
flækjustigi. Þessi svæði
þarf að byrja að skipu-
leggja strax, en meðan á
því stendur þarf jafn-
framt að flýta fyrir upp-
byggingu innan skipu-
lagðra hverfa svo hægt
sé að byrja strax að
byggja.
En til að halda lóða-
verði niðri til lengdar
þarf að skoða nýjar leið-
ir.
Viðeyjarleiðin
Viðeyjarleið er sam-
göngulausn sem mun
breyta borginni til
langrar framtíðar. Í
henni er Viðey tengd við
land á þremur stöðum;
við Laugarnes, Brimnes
og Gufunes.
Hjólað út í Viðey
Tenging Laugarness við Viðey
verður gegnum steypt botngöng.
Þessi tegund ganga hentar mjög vel
fyrir styttri innanbæjartengingar og
lítið mál væri að hafa sérhjólaakrein
í slíkum göngum, sem myndi búa til
alvörumiðbæjartengingu þar sem
fólk gæti líka hjólað út í Viðey og
notið náttúru og sögu sem þar er.
Sundabraut óþörf með
Viðeyjarleið
Tenging Viðeyjar til suðurs við
Gufunes væri einföld landfylling því
afar grunnt er þarna á milli. Með
slíkri tengingu frá Laugarnesi væri í
raun kominn fyrsti áfangi Sunda-
brautar, sem myndi leysa umferð-
arvandamál á Sæbraut og Miklu-
braut.
Tvöföldun Reykjavíkur
til norðurs
Tenging Viðeyjar til norðurs væri
um hefðbundin göng eins og Hval-
fjarðargöngin en áhrif þessarar
tengingar væru jafnvel enn áhuga-
verðari, því með henni mun stærð
Reykjavíkur nánast tvöfaldast þar
sem fýsilegt óbyggt byggingarland í
borginni verður orðið jafnstórt
byggðu borgarlandi. Ferðin úr bæn-
um mun styttast um 20 mínútur og
aðeins taka 10 mínútur fyrir íbúa
Grundarhverfis að renna niður í
miðbæ. Kjalarnesbúar sem ynnu í
bænum myndu spara sér 40 mínútur
á dag í akstri. Byggð á Kjalarnesi
væri orðin nær miðbænum í tíma en
þau úthverfi Reykjavíkur sem verið
er að byggja í dag og 40-50 km löng
óbyggð strandlengja yrði aðgengileg
Reykvíkingum þegar Viðeyjarbraut
og tengdar framkvæmdir væru
komnar. Viðeyjarleið myndi þannig
tryggja að um langa framtíð geti all-
ir sem vilja búa í Reykjavík fundið
sér heimili við hæfi.
Leysum húsnæðis-
vandann strax
Húsnæðisvandamál borgarinnar
er í dag alvarlegasta samfélagsmein
sem Íslendingar glíma við. Tvöföld-
un húsnæðisverðs veldur því að þús-
undir festast í fátæktargildrum á
meðan sífellt færri hafa efni á að
koma þaki yfir höfuðið. Það er löngu
kominn tími til að taka á þessum
vanda með alvörulausnum sem
duga. Meginástæðan fyrir framboði
Ábyrgrar framtíðar í borgarstjórn-
arkosningunum er einmitt að koma
með lausnirnar og verður öllum til-
tækum ráðum beitt til að tryggja að
ástandið verði aftur eðlilegt. Hver
veit nema draumahús margra bíði
þeirra við sjávarsíðuna á Kjalarnesi!
Nýtt 40 milljóna einbýlishús
við sjávarsíðuna í Reykjavík
Eftir Jóhannes
Loftsson
Höfundur er oddviti Ábyrgrar
framtíðar í Reykjavík.
abyrgframtid@gmail.com
Jóhannes Loftsson
Nýtt byggingarland
verður jafnstórt
núverandi byggð
Íslenska fasteignabóluhagkerfið
Hlutfall vísitalna markaðsverðs og byggingarkostnaðar (%)
200%
180%
160%
140%
120%
100%
80%
60%
40%
20%
0%
2000 2006 2008 2010 2012 2014 2016 2018 2020
78% yfirverð
»Með Viðeyj-
arleið má
leysa húsnæð-
isvandann til
frambúðar.
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is