Morgunblaðið - 21.04.2022, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022
ÁSKAP TILBOÐ
Húðfegrun býður upp á fjölbreytt úrval
áttúrulega húðmeðferða án skurðaðgerða.
Ve
13
Við to réttu
Pe
21 re
Við
ta 13
Gelísprautun náttúruleg
húðmeðferð sem fyllir upp í
hrukkur og línur, mótar varir
og andlitsdrætti.
HollywoodGlow þéttir húð
á andliti og hálsi ásamt því
að gefa henni samstundis
aukinn ljóma.
20% afsláttur af
Hollywood Glow
30% afsláttur af
Gelísprautun
Nýttu þér Páskatilboðin okkar!
Ferðalög á
Edith Gunnars
edithgunnarsdottir@gmail.com
Það fer ekki á milli mála að útivistar-
áhugi landsmanna hefur aukist til
muna undanfarin ár. Við sjáum það á
bílastæðunum við þessi hefðbundnu
fjöll við borgina sem og auðvitað á
sjálfum fjöllunum. Það eru þó ótal
fleiri leiðir sem hægt er að ganga en
við erum vanaföst og göngum því iðu-
lega þær leiðir sem við þekkjum. Það
getur því verið sniðugt að skrá sig í
gönguhóp til að prófa nýjar leiðir og
græða í leiðinni bæði fróðleik og
skemmtilega göngufélaga.
Í byrjun maí eru til að mynda tveir
hópar að fara af stað hjá Ferðafélagi
Íslands, undir stjórn Edithar Gunn-
arsdóttur leiðsögukonu. Annar
þeirra einbeitir sér að Þingvöllum og
svæðinu þar um kring og hinn að
Bláskógabyggð. Edith stýrir verk-
efninu FÍ Göngur og gaman og er
markmiðið með því að fara skemmti-
legar gönguleiðir á ákveðnum svæð-
um og fræðast í leiðinni um sögu
þeirra. Hóparnir hafa farið um ýmis
svæði, eins og Esjuna, Hengilinn,
Hvalfjörð, Reykjanes og Ölfus.
FÍ Göngur og gaman Þingvellir
Við þekkjum flest sögu Þingvalla,
þar sem Alþingi var stofnað og Þor-
geir Ljósvetningagoði ákvað að Ís-
lendingar yrðu kristin þjóð. Við lærð-
um líka um flekaskilin, sem sjá má
meðal annars af toppi Ármannsfells.
En færri vita kannski að Þingvalla-
vatn er eitt merkilegasta vatn á norð-
urhveli og eitt það mest rannsakaða á
alþjóðlegum vettvangi, til dæmis af
dr. Pétri M. Jónassyni vatnalíffræð-
ingi, sem segir það vera fjársjóð
framtíðarinnar. Það kemur úr Lang-
jökli og er 2.500 ára gamalt sam-
kvæmt mælingum og tekur 20-30 ár
fyrir vatnið að renna í Þingvallavatn.
Það er því afar áhugavert að ganga á
þessu svæði og virða það fyrir sér frá
ólíkum sjónarhornum en fyrirhug-
aðar eru göngur á Arnarfell, Ár-
mannsfell, Hrafnabjörg, Lágafell,
Miðfell og Stóra-Reyðarbarm. Þá
verður einnig sumarsólstöðuganga á
Skjaldbreið og þjóðleiðin um Leggja-
brjót gengin.
FÍ Göngur og gaman
Bláskógabyggð
Bláskógabyggð varð til við samein-
ingu Þingvallahrepps, Laugardals-
hrepps og Biskupstungnahrepps.
Þar er að finna mörg afar tignarleg
fjöll sem búa yfir mörgum tröllasög-
um sem við trúum að sjálfsögðu. Það
toppar fátt Högnhöfða í góðu
skyggni því af honum sést í tólf sýsl-
ur. Á leiðinni á toppinn er farið í
gegnum Brúarskörð, ein stórbrotn-
ustu gljúfur á Íslandi. Hlöðufellið er
önnur perla, formfagur móbergs-
stapi, sem er umkringd tignarlegum
fjöllum eins og Högnhöfða, Skjald-
breið og Jarlhettum. Af toppnum er
stórkostlegt útsýni á góðum degi.
Fleiri skemmtileg móbergsfjöll eru á
svæðinu eins og Kálfstindar sem eru
hluti af löngum fjallgarði en þaðan er
magnað útsýni um allt Suðurland og
jökla landsins. Í þessu verkefni verð-
ur gengið á öll fyrrgreind fjöll sem og
á Hrútafjöll, Kvígindisfell, Lágafell
og Súlufell. Þá verður einnig farið í
sumarsólstöðugöngu á Ok.
Það er óhætt að mæla með báðum
þessum hópum fyrir fólk sem vill
fræðast um svæði í skemmtilegum
göngum en frekari upplýsingar um
verkefnin er að finna á heimasíðu
Ferðafélags Íslands, www.fi.is.
Kynningarfundur um báða hópana
verður svo á facebook-síðu Ferða-
félagsins mánudaginn 25. apríl kl. 20.
Göngur og gaman
Það getur því verið sniðugt að skrá sig í gönguhóp
til að prófa nýjar leiðir og græða í leiðinni bæði
fróðleik og skemmtilega göngufélaga.
Höfundur er leiðsögumaður, ráðgjafi
og jógakennari.
Göngur og gaman Sumarsólstöðuganga á Skjaldbreið. Gleði Hópur að ljúka göngu um Leggjabrjót með viðkomu í Brynjudal.
Á toppnum Endalaus gleði á toppi Búrfells.
Fararstýrur Edith Gunnarsdóttir og
Dögg Ármannsdóttir hjá Göngum og gamni.