Morgunblaðið - 21.04.2022, Side 40

Morgunblaðið - 21.04.2022, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022 VIKUR Á LISTA 6 3 2 3 1 1 2 1 1 1 HUNDRAÐÓHÖPPHEMINGWAYS Höf. Lilja Sigurðardóttir Les. Lilja Sigurðardóttir, Örn Árnason ásamt öðrum leikröddum BRÉFIÐ Höf. Kathryn Hughes Les. Sara Dögg Ásgeirsdóttir ÆVINTÝRI FREYJU OG FRIKKA - DROTTNINGINAFGALAPAGOS Höf. Felix Bergsson Les. Felix Bergsson, Þuríður BlærJóhannsd. HVARFIÐ Höf. Johan Theorin Les. Jóhann Sigurðarson AÐ LÁTA LÍFIÐ RÆTAST Höf. Hlín Agnarsdóttir Les. Þórunn Lárusdóttir NÁTTBÁL Höf. Johan Theorin Les. Jóhann Sigurðarson KONANHANS SVERRIS Höf. Valgerður Ólafsdóttir Les. Margrét Örnólfsdóttir BANNAÐAÐ EYÐILEGGJA Höf. Gunnar Helgason Les. Gunnar Helgason HELKULDI Höf. Viveca Stein Les. Hanna María Karlsdóttir MANNAVILLT Höf. Anna Ólafsdóttir Björnsson Les. Þórunn Erna Clausen 1. 2. 3. 4. 7. 8. 6. 10. 9. 5. - › › › › TOPP 10 VINSÆLUSTU HLJÓÐBÆKURÁ ÍSLANDI VIKA 15 Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is „Tónlistin er ástríða mín og síðan ég var sex ára gömul hefur lífið mitt snú- ist um hana,“ segir Ekaterina Kleb- ensina, alltaf kölluð Kate, ung söng- kona og píanisti frá Úkraínu sem kom hingað til lands fyrir nokkrum vikum eftir að hafa flúið stríð í heimalandi sínu. Kate ræddi við blaðamann um upplifun sína af stríðinu, af Íslandi og draum sinn um að finna fólk til að iðka tónlist sína með hér á landi. Elskaði að kenna og ferðast Kate bjó alla tíð í Zjytómýr, borg í Norður-Úkraínu, þar sem hún út- skrifaðist úr bæði söng- og píanó- námi. Þar starfaði hún sem píanó- kennari í tónlistarskóla og sem kon- sertmeistari í listaskóla á fram- haldsskólastigi. Auk þess ferðaðist hún með ábreiðuhljómsveit sinni víðs- vegar og hélt tónleika, meðal annars víða um Úkraínu og í Kína og Egyptalandi. „Ég elskaði þennan möguleika á að geta fundið tilgang í kennarastarfinu og að geta líka ferðast um heiminn og flutt tónlist. Þetta var draumurinn minn alveg frá því ég var barn,“ segir Kate. „Ég var með þetta allt í lífi mínu fyrir stríðið,“ bætir hún við áður en hún lýsir því hvernig óttinn við Rússa jókst með hverjum deginum eftir inn- rás þeirra í Úkraínu. Flúðu heimalandið „Enginn vissi hvað Rússarnir myndu leggja undir sig næst. Svo ég og fjölskyldan mín ákváðum að flýja borgina okkar og land til að finna frið. Við vorum kvíðnar og hræddar,“ segir Kate sem lýsir því hvernig hún, móðir hennar og amma sváfu í kjallara fyrstu tíu daga stríðsins vegna ótta. Ekki séð kærastann í tvo mánuði Mæðgurnar ákváðu í kjölfarið að ferðast til Póllands þar sem þær dvöldu í mánuð en Kate þurfti að skilja kærastann sinn, Volodymyr, og tíkina sína, Lolu, eftir í Úkraínu en Stuðningur Íslendinga kom mest á óvart Kate, ung úkraínsk tónlistarkona, flúði stríð í heimalandi sínu alla leið til Íslands en hún segir Ís- lendinga hafa tekið sér opnum örmum. Kate leitar nú leiða til að iðka tónlist hér á landi. Ást Kate ásamt tíkinni sinni, Lolu, sem hún á með kærasta sínum, Volodymyr. Þau eru bæði enn í Úkraínu og hefur hún ekki séð þau í tæpa tvo mánuði. Ísland Kate hefur lengi dreymt um að ferðast til Íslands en óraði ekki fyrir því að stríð í heimalandinu yrði til þess að hún kæmi hingað til lands. þau hefur hún ekki séð í tvo mán- uði. Þá skildi leiðir mæðgnanna en amma Kate þarfnaðist læknis- hjálpar og vildi því fara aftur til Úkraínu. Móðir Kate fylgdi henni aftur til heimalandsins en Kate ákvað þá að fara alla leið til Íslands, ein á báti, en hana hafði oft dreymt um að heimsækja landið. „Ég ákvað að fara til Íslands. Hver einasti dagur er ný upplifun fyrir mig. Ég er mjög spennt fyr- ir nátt- úrufegurðinni á Íslandi, mig dreymdi alltaf um að sjá þetta fallega land. En það er fólkið á Íslandi sem hefur komið mér mest á óvart. Þessi magnaði stuðningur gefur okkur von og til- finninguna sem við söknum svo mikið – öryggi. Við Úkraínu- menn erum ykkur allir svo þakklátir. Í dag finn ég styrk og mig langar að deila því sem ég get. Ég er að leita að tækifæri til að syngja og að fólki sem hefur áhuga á að búa kannski til tónlist saman,“ segir Kate sem segist geta sungið alls konar tón- list og ábreiður, hvort sem það er lo- unge, djass, popp, diskó eða rokk. Hún deilir myndbandi af sér að syngja af öryggi og með hljómfagurri röddu lagið Ain’t No Sunshine When She’s Gone, upprunalega með Bill Withers. Dreymir um faðmlag „Það væri frábært að geta æft hér á Íslandi eins og ég var að gera í heimalandi mínu,“ segir hún. Stærsti draumurinn hennar er þó eins og stendur að fá að faðma fjölskyldu sína, kærasta sinn og hundinn sinn. Ástríða Tónlist hefur verið ástríða Kate frá því hún var sex ára gömul. Hún syngur bæði og spilar á píanó og nýtur þess bæði að læra, kenna og flytja tónlist. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Hlaðvarpið Vinnuskúrinn fjallar um allt tengt iðnaði en þar spjalla Hjálmar Friðbergsson, stofnandi Iðnaðar- manna Íslands, og Svavar Heimisson múrari við iðn- aðarfólk úr öllum áttum. „Umræðan fer mikið til fram í vinnuskúrum og eldhúsum landsins og þarna fannst okkur kjörið að sameina hana í eyrum landsmanna,“ segir Hjálmar í samtali við Morgunblaðið og K100.is en þeir Svavar leggja áherslu á að spjalla ekki aðeins við fólk á höfuðborgarsvæðinu heldur líka fólk af öllum kynjum á landsbyggðinni. „Þarna er klárlega stór hópur fólks sem hefur gaman af að heyra hvað aðrir iðnaðarmenn eru að sýsla,“ segir Hjálmar. K100 fékk Hjálmar og Svavar til að mæla með nokkrum áhugaverðum hlaðvörpum en báðir hlusta þeir aðallega á hlaðvörp í vinnunni. Iðan – Augnablik í iðnaði „Afar skemmti- legir þættir um alls konar tengt iðnaði“ Ekkert rusl Áhugaverðir þættir um rusl. Lena og Margrét fá okkur til hugsa um hversu miklu við erum að henda. Draugar fortíðar Með Baldri og Flosa. Alveg hreint frábærir þættir. Fá mann oft til að hlæja og nánast gráta á sama tíma. Okkar á milli Áhugaverðir viðtalsþættir þar sem rætt er við alls konar fólk. Til dæmis við innflytjendur um upplifun þeirra hér á landi. HæHæ Helgi og Hjálmar eru alltaf hressir og létta manni lundina í amstri dagsins með aulalegu gríni í bland og skemmtilegum gestum. Umræðan úr vinnuskúrnum Iðnaðarmennirnir Hjálmar og Svavar Heimisson tóku hlutina í eigin hendur þegar þeim þótti vanta ákveðna teg- und hlaðvarpa í hlaðvarpsflóruna og stofnuðu hlaðvarpið Vinnuskúrinn. Vinnuskúrinn Hjálmar og Svavar spjalla við iðnaðar- menn af öllu tagi í nýja hlaðvarpinu Vinnuskúrnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.