Morgunblaðið - 21.04.2022, Page 41

Morgunblaðið - 21.04.2022, Page 41
MINNINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022 ✝ Gunnar Maron Þórisson fædd- ist á Garði í Mos- fellssveit 13. ágúst 1943 en ólst upp á Fellsenda í Þing- vallasveit. Hann lést á HVE Hvammstanga 6. apríl 2022. Foreldrar hans voru Dóra Helga- dóttir, f. 4.12. 1919, d. 10.3. 2007, og Þórir Haraldsson, f. 29.3. 1921, d. 25.2. 1995. Systkini Gunnars eru albróðirinn Helgi, d. 6. apr- íl 1998, hálfsystkinin Hafberg, Ásmundur, Halldóra, Sigurður, Þórir, Benedikt og Bjarni Þór- isbörn og stjúpsystirin Hall- fríður. Hinn 19. apríl 1973 kvæntist Gunnar Unu Vil- hjálmsdóttur, f. 23. júlí 1949. Dætur þeirra eru: 1) Jóna Elín, f. 6. janúar 1973, frá fyrra sambandi á hún a) Gunnar Þorgeir Guðnason, f. 9. febrúar 2000. Maki Jónu er Jónas Jón- asson, f. 30. maí 1965. Þau eiga tvö börn, b) Jónas Helga, f. 24. september 2004, og c) Guðveigu Fanneyju, f. 15. apríl 2007. 2) Dóra Sigrún, f. 8. maí 1982, maki Helgi A. Guðbrandsson. Þau eiga eina dóttur, Unu Bellu, f. 25. júlí 2005. Útför Gunnars fer fram frá Reynivallakirkju í Kjós í dag, 21. apríl 2022, klukkan 14. Gunnar frá Fellsenda í Þingvallasveit var góður granni, vinur og frændi. Þegar þau Una fluttu rúmlega mið- aldra norður í Hrútafjörð hafði ætt hans búið í Fellsenda hátt í heila öld. Afi hans og amma, Helgi Jónsson og Jónína Sig- urðardóttir, hófu þar búskap árið 1910. Ábúendaskipti höfðu þá orðið níu sinnum frá því jörðin var byggð út úr Stíflisdal árið 1847. Þeim hjónum og af- komendum þeirra var greini- lega betur lagið en öðrum að sitja þessa snjóþungu fjallajörð, þaðan sem útsýni er ægifagurt. Seint á 19. öld var lagður vagn- fær vegur yfir Mosfellsheiði, gamli Þingvallavegurinn. Helgi réðst í að gera svokallaðan plógveg, sem tengdi hin mjög svo ágætu engjalönd í Fells- enda við gamla Þingvallaveg- inn. Engjaheyskapur á Fells- endajörðinni varð um tíma eftirsóttur, og umfangsmiklir heyflutningar til Reykjavíkur og nærsveita. Þeir pabbi og Gunnar voru fjórmenningar, rekja má ætt- irnar í beinan karllegg pabba og beinan kvenlegg frá móður Gunnars að Málfríði Gunn- laugsdóttur og Jóni Halldórs- syni á Vestri-Leirárgörðum í Leirársveit. Þegar pabbi fór til náms á Hvanneyri, rétt innan við tvítugt, var langt í frá sjálf- sagt að það væri hægt. Afi var orðinn heilsulaus og pabbi að- almaðurinn í útiverkunum. Því var það að Gunnar, sem þá var rétt innan við fermingu, var fenginn sem vetrarmaður að Heiðarbæ. Einnig var hann há- seti á murtuvertíð frá Heið- arbæ í nokkur haust. Það telst til mannkosta við Þingvallavatn að geta ekki bara veitt, heldur líka étið mikið af murtu. Það sem í þessum efnum skilur á milli meðalmanna og afburða- manna er ekki bara átgetan heldur líka afköstin við að bein- hreinsa murtuna. Hjá pabba gerðist þetta eins og af sjálfu sér, allt í einu var komin risa- stór beinahrúga, hann búinn að sporðrenna 15 murtum og hreinsa ofan í smáfólkið. Gunn- ar var sá eini sem hafði nokkuð í pabba að gera í murtuáti, og tilþrifin voru gríðarleg, hann beinhreinsaði 3-4 murtur, stakk gafflinum í gegnum þær allar í einu og sporðrenndi; endurtók þetta nokkrum sinnum. Gunnar vann mörg haust við sauðfjárslátrun í Grindavík. Lækningamáttur Bláa lónsins hafði þá verið uppgötvaður og tók Gunnar upp á því af góð- mennsku sinni að koma þar við á ferðum sínum og færa pabba, sem hafði slæmt exem, galdra- glundrið úr lóninu. Gunnar hafði ýmis embætti í sveitinni, var til dæmis formaður bún- aðarfélagsins svo lengi að það var lagt niður eftir að hann flutti úr sveitinni. Hann var bólusetningameistari sveitar- innar og stjórnaði um árabil áburðardreifingu fyrir sína sveit í landgræðsluflugi með „þristinum“ Páli Sveinssyni. Bróðir minn Kolbeinn minnist þess með mikilli gleði þegar hann fékk að fara með Gunnari í áburðarflug. Gunnar var lyk- ilmaður í söfnun upplýsinga til byggðasögu sveitarinnar í rit- röðina um Sunnlenskar byggð- ir. Hans merkasta sagnaritun var þó í gegnum ljósmyndun, er þar fjársjóður geymdur. Fyrir hönd míns fólks þakka ég Gunnari góða samfylgd og votta Unu, dætrunum og fjöl- skyldunni allri okkar innileg- ustu samúð. Jóhannes Sveinbjörnsson, Heiðarbæ. Það er orðið harla langt síð- an leiðir okkar Gunnars á Fellsenda lágu fyrst saman. Foreldrar mínir eignuðust jörð- ina Stíflisdal í Þingvallasveit þegar ég var á fyrsta ári en Stíflisdalur er næsti bær við Fellsenda. Það var venjan á þessum árum að foreldrar mín- ir gistu með okkur börnunum aðeins yfir sumarið í Stíflisdal. Bóndi á Fellsenda var þá Helgi Kristinn Jónson ásamt dætrum sínum Margréti og Dóru, móð- ur Gunnars. Fellsendi liggur hátt, líklega hæsti bærinn í sýslunni, og þar er oft afar snjóþungt og þess eru dæmi að snjór gat legið á túnum fram að þjóðhátíð. Þarna ólst Gunnar upp með Helga yngri bróður sínum. Á æskuárum mínum fór ég stund- um fótgangandi að hitta þá bræður enda vorum við fé- lagarnir á svipuðum aldri. Húsakynnin voru lítil, hesthús sambyggt við íbúðarhúsið en fjárhús og fjós voru úr torfi og grjóti. Þrátt fyrir kröpp kjör hjá Helga og dætrunum var gestrisni þeirra við brugðið. Ekki var bíll á bænum, ekki dráttarvél, hesturinn var þarf- asti þjónninn og Helgi átti góða hesta. Hestur dró sláttuvélina og rakstrarvélina og önnur heyvinna var upp á gamla móð- inn. Það var gaman að taka þátti í henni. Þá fórum við Gunnar oft saman út með Sauðafellinu til að ná í kýrnar. Helgi fellur frá 1958 og þá færist búskapurinn til Dóru og Gunnar er farinn að undirbúa að taka við þótt ungur sé. Hann fer því í Bændaskólann á Hvanneyri. Húsin á Fellsenda eru úr sér gengin og að falli komin og nýtt íbúðarhús er reist um 1960. Veturinn 1958- 1959 fær Fellsendafjölskyldan inni hjá okkur í Stíflisdal. Eftir að Gunnar tekur við búsforráðum og kvænist Unu Vilhjálmsdóttur og eignast dæt- urnar Jónu og Dóru þá vinnur hann að því að stækka túnin, en allt kemur fyrir ekki, landið er harðbýlt og sækja þarf slægjur annað. Gunnar lét sér mjög annt um sveitina sína og kom að ritum, gagnasöfnun og myndaöflum kaflans um Þingvallasveitina í ritverkinu „Sunnlenskar byggð- ir“. En það var gott að eiga góð- an nágranna eins og Gunnar að. Eftir að við hjónin reistum sumarbústað okkar við Stíflis- dalsvatn kom Gunnar næstum á hverju sumri með skít í Mikla- skóg og einu sinni kippti hann jeppanum okkar upp er við höfðum næstum misst hann of- an í Fúsalæk sem snjór var yf- ir. Fyrir um það bil áratug brugðu þau Una og Gunnar búi hér fyrir sunnan og fluttu í Hrútafjörðinn. Eftir það hitt- umst við sjaldnar. Nú að leið- arlokum sendum við hjónin Unu og öðrum ættingjum inni- legustu samúðarkveðjur okkar. Sigfús A. Schopka. Meginstoðir fæðuöryggis þjóðarinnar hvíla á íslenskum landbúnaði. Þó virðist suma skorta skilning á lykilhlutverki bænda sem eru að framleiða margvíslegar búvörur fyrir sí- stækkandi hóp neytenda. Gunn- ar fjárbóndi á Melum í Hrúta- firði, og áður á Fellsenda í Þingvallasveit, var einn þeirra fjölmörgu bænda sem hafa lagt hönd á plóginn við framleiðslu hollra og góðra matvæla um fjölda ára. Honum kynntist ég m.a. við störf mín hjá Búnaðar- félagi Íslands og síðar hjá Bændasamtökum Íslands. Gunnar var ætíð dyggur tals- maður bænda, skoðunarmaður ársreikninga hjá Landssamtök- um sauðfjárbænda um margra ára skeið, auk þess að vera lengi á meðal aðalfundarfull- trúa hjá samtökunum. Þá var Gunnar skeleggur höfundur stuttra og hnitmiðaðra greina um margvísleg efni tengd sauð- fjárræktinni og landbúnaði al- mennt, einkum í Bændablaðinu. Hann hafði ákveðnar skoðanir á málunum og lét gjarnan í sér heyra, alltaf jákvæður og stutt í bros og góðlátlega glettni. Við fráfall Gunnars hugsa ég til hans með hlýhug eftir margra áratuga kynni, lengst af sem eigendur sauðfjár í land- námi Ingólfs Arnarsonar. Þeg- ar hann var á ferðinni í Bænda- höllinni leit hann gjarnan við á skrifstofunni hjá mér, Una kona hans oft með í för. Mest var rætt um kindur og fjárbú- skap, greint frá heimtum á haustin, stuttar sögur sagðar og oft hlegið dátt. Ræktun for- ystufjár bar gjarnan á góma og áttum við Gunnar og Una nokkra samvinnu um þau efni fyrr á árum. Þá áttum við Gunnar annað sameiginlegt áhugamál, mörk og marka- skrár, en hann hafði mikla ánægju af söfnun og lestri slíkra öndvegisrita. Honum var ætíð annt um reglubundna og góða skráningu fjármarka og hvort sem þau Una bjuggu í Árnessýslu eða Strandasýslu áttu þau alltaf mörg mörk. Þá deildum við stundum með okk- ur fréttum um kindur sem höfðu komið fram í réttum á ólíklegustu stöðum, sannkallað- ar flökkukindur, jafnvel úti- gengnar. Oftast komu við sögu ær með lömb. Voru kindurnar búnar að fara í gegnum eina eða fleiri sauðfjárveikivarnalín- ur, misvel við haldið, og því kallaðar línubrjótar. Alltaf var ánægjulegt að spjalla við Gunn- ar um þessi og önnur mál. Ég minnist Gunnars með virðingu og þökk og votta Unu og öllum öðrum aðstandendum innilega samúð. Ólafur R. Dýrmundsson. Síðasti ábúandinn á Fells- enda er fallinn frá. Hann hafði að vísu flutt sig um set fyrir all- mörgum árum, en í mínum huga var hann alltaf Gunnar á Fellsenda. Fellsendi í Þing- vallasveit er kostarýr jörð, en þar bjó afi okkar Gunnars lengst allra, eða í hartnær hálfa öld. Þar ólust mæður okkar Gunnars upp við kröpp kjör á öldinni sem leið. Dóra Helga- dóttir móðir Gunnars tók við af föður sínum og Gunnar tók svo við af móður sinni. Þannig var jörðin Fellsendi í Þingvallasveit í ábúð sömu fjölskyldu í hart- nær heila öld. Gunnar Þórisson sleit barns- skónum á Fellsenda og átti þar heima lungann úr sinni ævi. Hann var einn af þessum ís- lensku sauðfjárbændum sem leggja mikið á sig við þá iðju, en hafa of litla eftirtekju. Hann gekk í Bændaskólann á Hvann- eyri og sótti sér þar menntun við hæfi. Gunnar kvæntist eft- irlifandi eiginkonu sinni Unu Vilhjálmsdóttur árið 1973 og tók þá við búi móður sinnar. Eins og fram hefur komið er jörðin Fellsendi kostarýr og liggur hátt yfir sjó. Heyskapur var því alla tíð erfiður og m.a. af þeim ástæðum þurfti að sækja slægjur langt að. Þau Gunnar og Una ákváðu því að flytjast búferlum að Mel- um í Hrútafirði árið 2005 og hafa búið þar síðan. Gunnar var hvers manns hugljúfi og ávallt brosandi þótt á móti blési. Hann hafði fleiri áhugamál en búskapinn, t.d. hafði hann áhuga fyrir ljós- myndun og stundaði það þegar færi gafst frá búskapnum. Einnig hafði hann áhuga fyrir gömlum fróðleik af ýmsu tagi svo sem ættfræði, safnaði um það ýmsum gögnum. Hin síðari ár ferðuðust þau Una talsvert innanlands þegar heyönnum sleppti. Hann hafði unun af því að heimsækja frændur og vini. Ég minnist Gunnars frænda míns sem lífsglaðs náunga sem öllum vildi vel og var fús til að leggja góðum málum lið. Hann var gegnheill og heiðarlegur eins og flestir sveitamenn sem við þekkjum, verðugur fulltrúi þeirra mörgu sem alltaf unnu af heilindum og alltaf vildu hafa það sem sannara reyndist. Helgi Gunnarsson. Látinn er Gunnar Maron Þórisson, fv. bóndi á Fellsenda Þingvallasveit. Fyrir nokkrum árum hætti Gunnar og eiginkona hans Una Vilhjálmsdóttir búskap á Fells- enda og fluttu að Melum í Húnavatnssýslu til búreksturs og aðstoðar á stórfjárbúi dóttur þeirra hjóna og fjölskyldu. Gunnar hafði átt við veikindi að stríða sl. ár en var duglegur að koma við á bæjum í Þing- vallasveit og Grafningi til að rækta vinatengsl ásamt því að koma í haustréttir á Heiðarbæ og víðar í hreppunum. Hann var ávallt með mynda- vél í ferðum sínum og hefur því væntanlega átt margar góðar myndir af mannlífinu eystra fyrr og síðar og víðar að sem og úr ferðum erlendis. Gunnar var duglegur að sækja fundi og ráðstefnur og sat í nokkrum nefndum og stjórnum um landbúnaðarmál o.fl. Hann var ávallt léttur í lund og hafði gaman af því að fara með léttar eftirhermur við viss tækifæri og frásagnir af skondnum atvikum. Tíminn líður og þeir sem hafa átt mörg sporin í sveit- unum eystra hverfa af vett- vangi mannlífsins þar með eft- irsjá, en eftir lifa minningar um skemmtilegar samverustundir og eftirminnilegt samferðafólk. Það sannar hið fornkveðna, að nota skal hverja stund sem best meðan heilsa og geta leyfir og það reyndi Gunnar að gera. Gunnar undi sér vel í há- fjallasal Þingvallasveitar, Fells- enda, þótt þar væri oft snjó- þungt á vetrum og voraði stundum seint. Því ljúfari var vorboðinn þegar hann kom með morgun- roða og fuglasöng í túni og við heiðarbrún með undirleik álfta í fjarska á Stíflisdalsvatni. Slíkar stundir gáfu Gunnari gleði inn í amstur dagsins við sauðburð og fleiri verk. Guð verndi Gunnar og minn- ingu hans. Við fjallavötnin fagurblá er friður, tign og ró. Í flötinn mæna fjöllin há með fannir, klappir, skóg. Þar líða álftir langt í geim með ljúfum söngva klið, og lindir ótal ljóða glatt í ljósrar næturfrið. (Hulda.) Vottum eiginkonu Gunnars, dætrum, fjölskyldu og vinum innilega samúð okkar. Fyrir hönd fjölskyldunnar frá Nesjavöllum, Ómar G. Jónsson. Gunnar Maron Þórisson Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN VALUR TRYGGVASON, lést fimmtudaginn 7. apríl á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi. Útför hans fer fram í Víðistaðakirkju mánudaginn 25. apríl klukkan 13. Stella Rut Vilhjálmsdóttir Vala Jónsdóttir Hjörtur Haraldsson Eygló Jónsdóttir Sjöfn Jónsdóttir Magnús Gíslason Tryggvi Jónsson Árný Sveina Þórólfsdóttir Hrönn Jónsdóttir Sigurður Harðarson barnabörn og langafabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, RUTH GUÐJÓNSDÓTTIR bankaritari, lést föstudaginn 15. apríl á Droplaugarstöðum. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 28. apríl klukkan 15. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Droplaugarstaða fyrir góða umönnun. Arna S. Mathiesen Eyjólfur K. Emilsson Guðjón Þór Mathiesen Auðný Vilhjálmsdóttir Theódóra Mathiesen Arnór Þ. Gunnarsson Kristín Anna, Úlfur Kjalar, Theodór Árni, Sigríður Erla, Aron Bjarni og Arnór Alex Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR HELGI KRISTJÁNSSON, Stekkjarholti 5, Ólafsvík, lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi miðvikudaginn 13. apríl. Útförin fer fram frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 30. apríl klukkan 15. Sérstakar þakkir til starfsfólks HVE Akranesi fyrir hlýhug og yndislega umönnun. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjartavernd. Björg Magnúsdóttir Hallfríður G. Einarsdóttir Þór Sigurðsson Theodóra S. Einarsdóttir Magnús A. Einarsson Svanhildur Ólafsdóttir Rut Einarsdóttir Sigurjón Hilmarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.