Morgunblaðið - 21.04.2022, Qupperneq 42
42 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022
Kynni okkar við
Magnús hófust fyr-
ir fyrir nokkrum
áratugum þegar
Freyja gerðist fé-
lagi í samkór Trésmiðafélags
Reykjavíkur, þar var Maggi fyr-
ir ásamt Möggu og var hann um
tíma formaður kórsins og fórst
það vel úr hendi sem og annað
sem hann tók sér fyrir hendur.
Meðal kórfélaga var mikil sam-
heldni, sameiginlegar skemmt-
anir, söngferðir innanlands sem
utan og útileguferðir í smærri
hópum. Við eigum það Magga að
þakka að hafa komið á marga
staði utan alfaraleiða, farartækið
var jeppinn hans, kallaður Gráni
gamli. Leiðir lágu meðal annars í
Lakagíga, Núpsstaðaskóg, Flat-
eyjardal og Fjörður svo eitthvað
sé nefnt, og aldrei kom annað til
Magnús G.
Ólafsson
✝
Magnús G.
Ólafsson fædd-
ist 21. janúar 1942.
Hann lést 3. apríl
2022. Útför hans
fór fram 12. apríl
2022.
greina en að Maggi
væri fararstjóri.
Sérstaklega er
okkur minnisstæð
ferðin í Drekagil og
Öskju í góðum hópi.
Lagt var upp frá
tjaldsvæðinu í
Vaglaskógi upp úr
hádegi í blíðskapar-
veðri sem entist alla
ferðina, komið til
baka kl. fjögur um
nóttina og Gráni gamli renndi
inn í Vaglaskóg á síðasta bens-
índropanum. Þessar minningar
eru okkur öllum fastar í minni.
Maggi var einstakur hagleiks-
maður og ber þar hvað hæst fjöl-
breyttan tréútskurðinn ýmissar
gerðar, sannkölluð listaverk sem
hann mörg hver gaf vinum og
vandamönnum og prýða þeirra
heimili. Okkur gaf hann tvær
heiðlóur svo listilegar gerðar að
minnstu munar að heyrist í þeim
dirrindíið. Ævinlega voru hlýjar
móttökur þegar litið var inn í
Heiðargerðinu, Magga einstök
húsmóðir og garðurinn og heim-
ilið með þeim hætti að engum
duldist að þar voru á ferð sann-
kallaðir snyrtipinnar og fagur-
kerar.
Nú að leiðarlokum þökkum
við vináttu og samfylgd gegnum
árin og sendum Möggu og fjöl-
skyldu innilegar samúðarkveðj-
ur, en hún hefur verið hinn
trausti
klettur í gegnum veikindaferl-
ið og megi æðri máttarvöld
styðja þau nú á sorgartímum.
Það er mikil eftirsjá að þessum
mæta manni og minningin verð-
ur ætíð í heiðri höfð.
Sigurgeir og Freyja.
✝
Helen Bára
Brynjarsdóttir,
„Bíbí“, fæddist 10.
maí 1938 á Ak-
ureyri. Hún lést á
heimili sínu Ferju-
bakka 6 í Reykjavík
23. mars 2022.
Foreldrar henn-
ar voru Sigrún
Bárðardóttir, f.
8.11. 1916, d. 9.1.
2001 og Brynjar
Eydal, f. 22.10. 1912, d. 9.10.
1995. Samfeðra systkini hennar
eru Anna Inger, f. 13.3. 1942,
Guðfinna, f. 27.2. 1946, Matt-
hías, f. 24.5. 1952, d. 5.5. 2021,
Margrét Hlíf, f. 8.7. 1958.
Helen giftist Eyjólfi Veturliða
Jónssyni matreiðslumanni, f.
16.9. 1939 í Reykjavík, d. 12.10.
2021, þau skildu. Helen og Eyj-
ólfur eignuðust fimm börn: 1)
Sigurður Eyjólfsson Sigurdal
sálfræðingur, f. 10.12. 1965,
giftur Margréti Kristjánsdóttur
Sigurdal sálfræðingi, f. 8.3.
1970, þau eiga þrjú börn: Helen
læknanema, f. 31.8. 1997, Áróru
læknanema, f. 23.9. 1999 og
Óríon nema, f. 9.12. 2007. 2) Sig-
rún María verkakona, f. 7.7.
1967. Hún á af fyrra sambandi
dæturnar Guðrúnu
Maríu starfskonu, f.
1.6. 1990 og Ingi-
björgu Helgu
starfskonu, f. 9.4.
1992. Sigrún María
er gift Óskari
Haukssyni, húsa-
og húsgagnasmið,
þau eiga tvo syni:
Eyjólf Hauk verka-
mann, f. 23.6. 1986
og Ingólf Jón Ágúst
smið, f. 10.11. 1998. 3) Eyjólfur
Brynjar viðskiptafræðingur, f.
1.9. 1969. Sonur hans er Christi-
an Eyjólfur nemi, f. 17.9. 2009.
4) Jón Þór viðskiptafræðingur,
f. 9.3. 1971, giftur Guðrúnu
Unni Rikharðsdóttur viðskipta-
fræðingi, f. 31.5. 1971, þau eiga
þrjú börn: Guðnýju Lenu, BA
sálfræði, f. 2.8. 1994, maki Phil-
ipp Hollenhorst og eiga þau
Ölbu Emilie, f. 2019, Kristófer
Örn atvinnuflugmann, f. 25.11.
1996, maki Gabríela Gunn-
arsdóttir, Arnór Gauta nema, f.
31.5. 2002, kærasta Eva Smára-
dóttir. 5) Kristín, f. 4.7. 1978, d.
7.5. 2000.
Helen var jörðuð frá Foss-
vogskapellu í kyrrþey að eigin
ósk þann 7. apríl 2022.
Lýs, milda ljós, í gegnum þennan
geim,
mig glepur sýn,
því nú er nótt, og harla langt er heim.
Ó, hjálpin mín,
styð þú minn fót; þótt fetin nái
skammt,
ég feginn verð, ef áfram miðar samt.
Ég spurði fyrr: Hvað hjálpar heilög trú
og hennar ljós?
Mér sýndist bjart, en birtan þvarr, og
nú
er burt mitt hrós.
Ég elti skugga, fann þó sjaldan frið,
uns fáráð öndin sættist Guð sinn við.
Þú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér,
þú logar enn,
í gegnum bárur, brim og voðasker.
nú birtir senn.
Og ég finn aftur andans fögru dyr
og engla þá, sem barn ég þekkti fyrr.
(Matthías Jochumsson)
Sigurður Eyjólfsson
Sigurdal, Sigrún María
Eyjólfsdóttir, Eyjólfur
Brynjar Eyjólfsson og
Jón Þór Eyjólfsson.
Helen Bára
Brynjarsdóttir
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Sálm. 14.2
biblian.is
Drottinn horfir á
mennina af himnum
ofan til þess að sjá
hvort nokkur sé
hygginn, nokkur
sem leiti Guðs.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
AGNES JÓHANNSDÓTTIR,
Efstaleiti 12, Reykjavík,
sem lést fimmtudaginn 7. apríl, verður
jarðsungin frá Langholtskirkju laugardaginn
23. apríl klukkan 14. Streymt verður frá athöfninni á
https://youtu.be/h9EQlPkWFI0. Hlekk á streymi má nálgast á
www.mbl.is/andlat.
Soffía Haraldsdóttir
Ásdís Haraldsdóttir
Jóhann Haraldsson Gréta Pape
Sveinn Haraldsson
Haraldur Agnes Civelek
Marta Eiríksdóttir Benoit Branger
Daníel Jóhannsson Amber Allen
Naomi Grace Jóhannsdóttir
Agnes Jónasdóttir Hans Margrétarson Hansen
og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÓLÖF ERNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Eyri, Ísafirði
6. apríl. Útför fer fram í Ísafjarðarkirkju
laugardaginn 23. apríl klukkan 14.
Streymt verður frá athöfn og verður það auglýst síðar.
Katrín Hjartar Jónsdóttir
Anna Jónsdóttir Konráð Einarsson
Halldóra Jónsdóttir Eiríkur Böðvarsson
Jóhannes Jónsson Íris Björk Felixdóttir
Íris Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÍÐUR VILHJÁLMSDÓTTIR,
lést á heimili sínu, Sóltúni 2 í Reykjavík,
föstudaginn 15. apríl. Jarðarförin verður í
Bústaðakirkju föstudaginn 29. apríl
klukkan 10.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Sóltúni.
Vilhjálmur Vilhjálmsson Steinunn Ósk
Guðríður Vilhjálmsdóttir Sigurbergur Björnsson
Sigurður Vilhjálmsson Ingunn Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
SKÚLI SIGURGEIRSSON,
áður til heimilis í Lindasíðu 4,
Akureyri,
lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð
14. apríl. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 25. apríl klukkan 13.
Margrét Skúladóttir Sigurður Bjarklind
Svanhildur Skúladóttir Einar Ólafsson
Ragnheiður Skúladóttir Árni V. Kristjánsson
barnabörn og langafabörn
Ástkær eiginkona og móðir,
KRISTÍN JÓHANNA KJARTANSDÓTTIR,
Stína frá Bakka,
tækniteiknari,
lést á GE-11 Landspítala Hringbraut
sunnudaginn 17. apríl.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju 2. maí klukkan 13.
Stefán Hans Stephensen
Kjartan Á. Guðbergsson
Bróðir okkar,
HÖRÐUR B. SIGURÐSSON,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð
sunnudaginn 10. apríl. Útförin fer fram frá
Kolbeinsstaðakirkju, Snæfellsnesi,
laugardaginn 30. apríl klukkan 14.
Guðrún Sigurðardóttir
Auður Sigurðardóttir
Kristján Sigurðsson
Trausti Sigurðsson
og aðrir aðstandendur
Elsku pabbi okkar, tengdapabbi,
afi og langafi,
SNJÓLFUR HÖRÐUR PÁLMASON,
fyrrv. lögregluþjónn
frá Helgastöðum,
Reykjadal, S-Þingeyjarsýslu,
lést á hjúkrunarheimili í Svíþjóð laugardaginn 16. apríl.
Pálmar Þór Snjólfsson Anna Maggý Óskarsdóttir
Björg Snjólfsdóttir
Haraldur Snjólfsson Rúna Sverrisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
VALBORG SVEINSDÓTTIR
meinatæknir,
lést á Borgarspítalanum 20. apríl.
Útför verður auglýst síðar.
Frosti Bergmann Eiðsson Sólveig Haraldsdóttir
Logi Bergmann Eiðsson Svanhildur Hólm Valsdóttir
Hjalti Bergmann Eiðsson
Sindri Bergmann Eiðsson Elfa Björk Eiríksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri,
SÆVAR ÁRNASON,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
þriðjudaginn 19. apríl.
Útför hans verður auglýst síðar.
Hildur Ellertsdóttir
Örn Úlfar Sævarsson Ásta Andrésdóttir
Ellert Sævarsson
Aldís Ósk Sævarsdóttir Ómar Kristófersson
barnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
HULDA ÞÓRÐARDÓTTIR,
Burknavöllum 3,
Hafnarfirði,
lést 3. apríl á hjúkrunarheimilinu Sólvangi.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
miðvikudaginn 27. apríl klukkan 13.
Sverrir V. Guðmundsson
Þröstur Sverrisson Sigríður María Jónsdóttir
Fjölnir Sverrisson Kristina Sverrisson
Dagný Sverrisdóttir Jóhannes G. Erlingsson
Alvar Sverrisson Laleet Abreo Sverrisson
barnabörn og barnabarnabörn