Morgunblaðið - 21.04.2022, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 21.04.2022, Blaðsíða 44
44 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022 ✝ Elma Ósk Hrafnsdóttir fæddist í Reykja- vík 4. febrúar 1956. Hún lést í faðmi fjölskyld- unnar 2. apríl 2022. Foreldrar hennar eru Finn- laug Óskarsdóttir, f. 20. febrúar 1938, og Hrafn Bene- diktsson, f. 14. des- ember 1933. Systkini Elmu eru þau Sólveig, Benedikt, Auður, Gísli Egill, Bjarni og Hrafn- hildur. Fyrrverandi eiginmaður Elmu er Benóný Ólafsson; þau skildu. Hinn 1. febrúar 1980 kynntist Elma eftirlifandi eig- inmanni sínum, Jóni Arnarr Elín Krista, f. 19. ágúst 2001, b) Ágúst Ingi, f. 5. mars 2007, og c) Eva Dagbjört, f. 27. júní 2011. Stjúpbörn Elmu úr fyrra hjónabandi Jóns Arnarr og Sigrúnar Guðmundsdóttur eru: 1) Orri, f. 5. nóvember 1970; eiginkona hans er Þórdís Valdimarsdóttir og börn þeirra eru: a) Eyja, f. 11. des- ember 1995, b) Kári, f. 13. des- ember 1997, c) Flóki, f. 29. maí f. 2007, og d) Þorri, f. 1. maí 2009. 2) Arnarr Þorri, f. 12. mars 1975, d. 2. júní 2001; dóttir hans og Svanhvítar Tryggvadóttur: a) Salka, f. 21. júlí 1998. Dóttir Jóns Arnarr og Ingunnar Ásdísardóttur er: 3) Ásdís Gríma, f. 7. desember 1979; sonur hennar og Ásgeirs Guðmundssonar: a) Úlfur Kári, f. 28. febrúar 2007. Útför Elmu verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 21. apríl 2022, klukkan 15. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat Einarssyni, f. 12. febrúar 1949. Þau bjuggu í óvígðri sambúð til 22.11. 2001 er þau gengu í hjónaband. Einkadóttir þeirra hjóna er: 1) Kristín Birta, f. 6.júní 1982; dóttir henn- ar og Sigurðar Samík Davidsen, f. 30. nóvember 1980, er a) Sesselja Sól, f. 19. janúar 1999; sambýlismaður hennar er Kristján Alfreð Kristinsson, f. 16. ágúst 1998. Eiginmaður Kristínar Birtu er Sigurður Ágústsson, f. 12. júlí 1982. Stjúpbörn Kristínar Birtu frá fyrra hjónabandi Sigurðar og Ragnheiðar Blöndal eru a) Ég er ekki oft orðlaus elsku mamma mín, ef einhver veit það manna best, þá ert það þú. En ég veit bara ekki hvað ég á að segja til að lýsa því almennilega hvað þú skilur eftir stórt skarð í hjört- um okkar, nú þegar þú ert farin. Það eina sem ég get sagt er að ég væri ekki sú manneskja sem ég er í dag ef þín hefði ekki notið við. Ég gleymi því aldrei hvað þið pabbi voruð sorgmædd þegar Siggi greindist með krabbamein. Ég sá hræðsluna og sorgina skína úr augum ykkar beggja. En þegar þú greindist varstu full af hugrekki og stóískri ró. Ég sagði þér, strax og ég heyrði að krabbameinið væri á fjórða stigi, að þú þyrftir ekki að berjast fyrir mig. Því ég vissi að af tveimur hræðilegum valkostum væri líkn- andi meðferð auðveldari kostur- inn fyrir þig. En uppgjöf var ekki í þínum orðaforða. Þú vildir berjast – því þú þráðir að sjá sumarið. En ég veit að þú barðist ekki til að sjá sumarið, elsku mamma. Þú barðist til að eiga lengri tíma með pabba, því þú vissir að hjarta hans væri í þúsund molum. Þú barðist fyrir Sólina þína, því þú vissir að hún gæti ekki hugsað sér lífið án þín. Og þú barðist fyr- ir mig því þú vissir svo vel, þó vildi virðast hugrökk fyrir þig, að innst inni þráði ég ekkert heitar en að fá aðeins lengri tíma með þér. Þú varst trú sjálfri þér fram á síðasta dag og gerðir allt sem í þínu valdi stóð til að reyna að láta okkur öllum líða betur. Ég veit að þú varst líka hrædd og sorg- mædd og við spjölluðum stund- um um hvað það væri skrýtin til- hugsun að þú þyrftir að kveðja alla. En aldrei léstu bilbug á þér finna eða vildir að einhver væri að vorkenna þér. Þeirri hetjudáð sem þú drýgðir síðustu vikur lífs þíns er ómögulegt að koma í orð. Þá barðist þú til síðasta blóð- dropa til að fá að komast heim, í faðm fjölskyldunnar, þó að það yrðu síðustu skrefin þín í þessu lífi. Ég kveð þig, elsku mamma, svo full þakklætis fyrir allar stundirnar okkar saman og allt það sem þú kenndir mér. Þakklát að öll börnin mín hafi fengið að kynnast þér og að þú hafir fengið að sjá mig blómstra úr ódælum unglingi í hamingjusama mömmu og eiginkonu. Takk fyrir allar fórnirnar sem þú færðir til að ég gæti eignast það líf sem ég á í dag. Já og fyrir að kenna mér að vera hugrökk – eins og þú. Ég skrifa um konu sem kynntist ég ung. Um hríð henni ævin reyndist svo þung. En eins og klettur úti við ballarhaf. Stóð hún allt af sér og hafði það af. Hún er konan sem aldrei, dró kost minn í efa. Sú sama og kenndi mér, hvað það er að gefa. Hún er sú, sem að þerraði öll tárin mín. Ein sú sama, og græddi öll sárin mín. Þetta er konan, sem með kvölum mig ól. Og alla tíð síðan, hefur verið mitt skjól. Þetta er konan, sem kenndi mér flest er ég kann. Elsku mamma mín, þér um eilífð ég ann. Sú eina kona, sem fram á síðasta dag. Hugsaði frekar um minn, en sinn eigin hag. (Birta) Þín Birta. Harmi þrungin kveðjum við elstu dóttur okkar Elmu Ósk sem var kölluð burtu svo skjótt. Það eru þung spor að kveðja barnið sitt en ótal margar góðar minn- ingar ylja. Í hugann kemur mynd af þessu fallega barni með galopin augun í vöggunni. Hún var svo slétt og falleg og hún var alltaf fíngerð. Það má segja að Elma hafi ver- ið tilbúin að sigra heiminn strax á fyrsta árinu, hún var bráðger, óttalaus, fim og elskaði að hlaupa og klifra. Hún setti okkur vand- lega inn í foreldrahlutverkið og gaf ekkert eftir. Það mátti ekki hafa af henni augun eitt augnablik því hún var svo kraftmikil sem barn. Hún byrjaði ekki að máta sig við eitt og eitt orð heldur hrundu út úr henni heilu setningarnar þegar hún byrjaði að tala. Hún vildi taka af skarið og segja okkur fyr- ir um hvað skyldi gert og hvert skyldi haldið. Hún var listræn og naut sín með handavinnu eða saumaskap og fékk útrás fyrir eigin hug- myndir og sköpun í gegnum handverkið. Hún saumaði forláta kjóla á móður sína, púða og seinni árin varð heklið hennar grein og njót- um við fjölskyldan dýrmætra gripa sem prýða heimili okkar á jólahátíð. Með aldrinum einkenndi þó stilling og hógværð fas hennar. Jákvæð afstaða til lífsins, hæg- læti, vandvirkni og mildi í garð meðborgara sinna lýsa henni vel. Hún var hvetjandi, lausnamið- uð, hafði frumkvæði og tilbúin að rétta hjálparhönd ef þörf var á. Iðulega hvatti hún móður sína til dáða varðandi hekl og handa- vinnu. Við kveðjum gullfagra barnið okkar með orðum Heine. Okkar tengsl eru órjúfanleg eins og Benedikt afi hennar orðar svo vel í ljóði sem alltaf er í heiðri haft á okkar heimili. Elmu dóttur okkar þökkum við fyrir samveruna, stuðninginn og hvatninguna. Minning um einstaka konu lifir. Elsku Jón, Birta, Siggi og fjöl- skylda, Sól, Kristján, Orri, Þór- dís, Gríma og fjölskyldur ykkar og börnin okkar öll, við biðjum guð að gefa okkur öllum styrk til að takast á sorgina. Þú ert sem bláa blómið svo blíð og hrein og skær. Ég lít á þig og löngun mér líður hjartað nær. Mér er sem leggi ég lófann á litla höfuðið þitt, biðjandi Guð að geyma gullfagra barnið mitt. (Benedikt Gröndal (Heine) --- Við kveðjum þig – svo hljóðar harmsins mál. En hitt er þögul vissa, að okkar sál hún kveður aldrei, hvorug aðra í heimi, og hefur engin mörk á lífsins ál. Við skiljumst eigi. Okkar beggja leið er ein og söm um þrotlaust tímans skeið. Og þó að fundi beri að sinni sundur, við sjáumst yfir draumahöfin breið. (Benedikt Gíslason frá Hofteigi) Mamma og pabbi. Elsku Elma systir mín er látin. Hún fékk ekki langan tíma eftir að hún greindist með illvígan sjúkdóm sem tók hana frá okkur. Við vorum varla búin að átta okk- ur þegar hún var farin. Við Elma vorum framan af ævi okkar frekar eins og tvíburar en systur. Við vorum alltaf saman. Við bjuggum til okkar eigin leiki, gengum í eins fötum, fermdumst saman, giftum okkur saman, fórum á útihátíðir og til útlanda saman svo eitthvað sé nefnt. Kær minning sem hefur verið mér ofarlega í huga er þegar við fengum ferðaplötuspilara saman í fermingargjöf. Þennan dag var yndislegt veður, sól og logn á Kópaskeri. Við systur klifruðum upp á þak og sátum þar með spil- arann og sungum með „Let it be“ með Bítlunum. Þetta er dýrmæt minning sem ég geymi. Elma mín var alltaf svo góð og tilbúin að hjálpa. Þegar ég varð ólétt að Kollu minni þá sagði hún: „Ég skal hjálpa þér.“ Það var mér mikilvægur stuðningur á þeim tíma. Hún passaði líka Siggu mína þangað til hún komst á leikskóla. Ég á henni margt að þakka. Hún Elma mín hefur sent mér á hverjum jólum í mörg ár listi- lega heklaðar stjörnur, snjókorn, bjöllur og grýlukerti. Þessir fal- legu munir munu minna mig á hana alltaf á jólum. Hún systir mín var listrænn snillingur í höndunum, dugleg og vildi öllum vel. Hennar skarð verður seint fyllt. Elsku systir, takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér. Ég kveð þig með sárum söknuði. Elsku Jón, Birta, Siggi, Sól, mamma og pabbi og aðrir að- standendur, guð gefi ykkur styrk. Hví fölnar jurtin fríða og fellir blóm svo skjótt? Hví sveipar barnið blíða svo brátt hin dimma nótt? Hví verður von og yndi svo varpað niður í gröf? Hví berst svo burt í skyndi hin besta lífsins gjöf? (Björn Halldórsson í Laufási) Sólveig systir (Solla). Heyr þú, Hérað. Heyrið, Austfirðir: Gleymið aldregi góðum konum. Þær eru guðs gróðrarreitur, ókomins vors og ættlands sómi Þannig orti Matthías Jochum- son um formóður okkar hana Margréti frá Geirólfsstöðum sem var amma Benedikts afa. Þau orð eiga vel um þig systir mín sem settir svo sannarlega kjarnmik- inn svip á mannlífið og snertir strengi samferðamanna þinna. Það er eins og það hafi verið skrifað í skýin að þú munir hvíla í Hólavallakirkjugarði með tengdaforeldrum þínum svo stutt frá heimilum þínum á Suðurgötu 8 og Hólatorgi 2. Suðurgata var líka ástarbraut foreldra okkar þegar þau gengu milli Mjóstrætis 8 og Lóugötu 2 og mun leiði þitt verða staðsett miðja vegu milli fyrrverandi heimila þeirra. Í þessum fagra garði muntu hvíla systir góð í ansi hreint góð- um félagsskap. Mesta sorgin sem þið Jón, Birta, Sól, Orri og Gríma tókust á við var fráfall elsku besta Þorra ykkar sem hvílir steinsnar frá leiði ykkar Einars Braga og Stínu. Það verða fagnaðarfundir og á milli hvíla líka turtildúfurnar Páll og Ragnheiður og svo Guð- rún langamma steinsnar frá. Þeg- ar dóttir mín kvaddi þig í síma rétt fyrir andlát þitt heyrðist þér hún kveðja þig með orðunum góða skemmtun. Þú hlóst og sagðir já, þetta er rétti andinn, góða skemmtun. Þú varst sextán ára gömul þeg- ar ég kom í heiminn, sjöunda barnið. Þú áttir tillöguna að nafni mínu og þannig varð ég stúlkan þín. Þegar ég heimsótti þig á bana- beðinn varstu enn svo fögur og þokkafull, þó að sjúkdómurinn hefði tekið alla fyllingu úr andliti þínu, að þú minntir mig á drottn- ingu. Eftir að þú fluttir á Selfoss dvaldir þú oft nokkra daga í Hlé- skógunum hjá foreldrum okkar og fjölskyldu minni og þá styrkt- ust systraböndin enn. Þegar dótt- ir mín Elma Finnlaug var skírð eftir formæðrum okkar, eins og þú, varstu stolt og þú varst börn- um mínum alltaf svo góð. Það er fallegur samhljómur í því að þú kveður nú á sumardaginn fyrsta Elma Ósk Hrafnsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku Elma mín. Þetta eru orðin sem koma þegar ég hugsa til þín: Mikil fjöl- skyldumanneskja, orð- heppin og listræn. Það lék allt í höndunum á þér. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Blessuð sé minning þín. Birna Helga Garðarsdóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma okkar, EVA SÓLEY RÖGNVALDSDÓTTIR kennari, lést á heimili sínu Hömrum, Mosfellsbæ, miðvikudaginn 13. apríl í faðmi fjölskyldunnar. Útförin fer fram frá Bessastaðakirkju mánudaginn 25. apríl klukkan 12. Magnús Sveinsson Cecilía Magnúsdóttir Örn Arnarson Íris Magnúsdóttir Sveinn Snorri Magnússon Elín Málmfríður Magnúsdóttir og barnabörn Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HÓLMFRÍÐUR ÞÓRA GUÐJÓNSDÓTTIR, sem andaðist á Hjúkrunarheimilinu DAS við Brúnaveg sunnudaginn 27. mars, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 22. apríl klukkan 10 árdegis. Ragnar Friðriksson Þórhalla Snæþórsdóttir Sólveig Erla Ragnarsdóttir Jón Steinar Jónsson Hlynur Ívar Ragnarsson Vigdís Braga Gísladóttir og fjölskylda Elskuleg móðir okkar og amma, KRISTÍN EIRÍKA GÍSLADÓTTIR, Markarflöt 10, andaðist mánudaginn 11. apríl. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju fimmtudaginn 28. apríl klukkan 13. Streymt verður frá útförinni á streyma.is. Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat. Brynja Hrönn Jónsdóttir Hildur Edda Jónsdóttir Sverrir Már Jónsson Gunnar Hrafn Jónsson Helgi Hrannar, Brynjar Orri og Birgir Hrafn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, STEFÁN BRIEM, lést mánudaginn 18. apríl á Landspítalanum. Snorri Briem Rachel Briem Kjartan Briem Erla Jóhannsdóttir Axel Jóhannsson Bodil Fich og barnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, MAGNÚSAR A. JÓNSSONAR klæðskera. Guðrún H. Gunnarsdóttir Vinný Magnúsdóttir Hreinn Sigtryggsson Björgvin Örn Jóhannsson Sóley Hallgrímsdóttir Vala Magnúsdóttir Einar Sigurjónsson og barnabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.