Morgunblaðið - 21.04.2022, Blaðsíða 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022
50 ÁRA Friðgerður er Skagamaður en
býr í Kópavogi. Hún er hjúkrunarfræð-
ingur að mennt frá HA og er aðstoðar-
deildarstjóri á líknardeild L5 á Landakoti.
Hún syngur í Kór Lindakirkju og söng í
Jesus Christ Superstar á skírdag í Hörpu,
einnig starfar hún í Oddfellow á Akranesi.
Hún er einnig mikil íþróttamanneskja og
hefur verið í hlaupahópum, crossfit, kennt
jóga o.fl. Friðgerður spilaði fótbolta með
ÍA og í háskólaboltanum í Bandaríkjunum.
Hún þjálfaði einnig stúlknaflokka í Noregi.
FJÖLSKYLDA Maki Friðgerðar er
Daníel Arason, f. 1972, forstöðumaður
stjórnsýslu í Vogum. Börn Friðgerðar eru Kristrún, f. 1997, Haukur, f. 2000,
og Edda Guðnabörn, f. 2004. Foreldrar Friðgerðar voru Jóhann Lárusson, f.
1937, d. 1991, húsasmiður, en vann á Skattstofu Vesturlands, og Svanheiður
Ólöf Friðþjófsdóttir, f. 1939, d. 2020, vann á dvalarheimili aldraðra. Þau voru
búsett á Akranesi.
Friðgerður Ólöf Jóhannsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þér finnst hægt miða með starfs-
framann en vertu róleg/ur. Sýndu vinum
skilning og þér mun verða launað þótt síðar
verði.
20. apríl - 20. maí +
Naut Eitthvað á eftir að koma þér svo á
óvart að þú munt undrast þín eigin við-
brögð. Búðu þig undir óvæntar fréttir.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú blómstrar þessa dagana og
nýtur þess að vera í félagsskap fjölskyldu og
vina. Varastu að gera of mikið úr hlutunum
eða ganga of langt.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þér tekst nú loksins að ná eyrum
þeirra sem hingað til hafa skellt skollaeyrum
við málflutningi þínum. Einhver spyr þig
spjörunum úr.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Það er mikil hætta á töfum og trufl-
unum í dag og næstu daga. Samskipti við
einhvern nákominn færast upp á hærra
plan. Vertu á varðbergi gagnvart fagurgala.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Láttu ekki draga þig inn í þrætur eða
leiðindi. Ekki láta neinn leggja stein í götu
þína.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það er líklegt að einhver misskilningur
eigi sér stað í samskiptum við annað fólk í
dag. Nú er kominn tími til að þú haldir ferð
þinni áfram af einurð og sjálfsöryggi.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Varastu stóryrtar yfirlýsingar
og skuldbindingar sem kunna að koma þér í
koll. Gættu þín í öllu sem snýr að fjármálum.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Áður en þú setur afrek einhvers
annars á stall, skaltu hugleiða þín eigin.
Hverjar sem undirtektirnar við málflutningi
þínum verða, máttu vita að þú hefur lagt
þitt af mörkum og mátt vel við una.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú gætir þurft að segja vini frá
vandamálum þínum, eða hlusta á vandamál
annarra í dag. Haltu áfram að lifa drauminn.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það er farsælla að segja hug
sinn en að byrgja allt inni. Reyndu allt sem
þú getur til að halda friðinn við unglinginn á
heimilinu.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú ert svo ákafur/áköf að sólar-
hringurinn dugar þér ekki til að koma öllu
því í verk sem þú vildir. Margir skilja ekki
hvað þú ert að ganga í gegnum, en það er
allt í lagi.
fjallanna mest. Auðvitað væri
ánægjulegt að hafa fjölskylduna nær
en samfélagsmiðlarnir bæta þar úr
skák. Á mínum námsárum í Svíþjóð
og Bandaríkjunum var rándýrt að
hringja heim svo það gerðist einu
sinni á ári. Nú er nánast ókeypis og
þráðlaust samband endalaust.
Danir eru glaðværir, vinafúsir og
seinir til vandræða. Ég hef lesið tals-
vert um samskipti þeirra og Íslend-
inga frá fyrri tíð. Ég tel að aðrar
kirkjunnar og að margs háttar fé-
lagsmálum. Ekki má heldur gleyma
norrænu, evrópsku og alþjóðlegu
háskóla- og vísindasamstarfi.
Ég treysti því að störf mín í HÍ
hafi orðið til þess að auka veg hans
og vanda. Kannski lagði ég þar mest
af mörkum fyrir og eftir rektors-
starfið. Mér tókst að innleiða rann-
sóknaleyfi fyrir kennara þegar ég
var varamaður í kjaradómi og síðar
sem formaður í Félagi prófessora
kom ég því til leiðar ásamt með-
stjórnendum míinum að fella kaup
og kjör undir kjaranefnd. Það varð
til mikillar hækkunar á launum pró-
fessora og allra annarra háskóla-
kennara í kjölfarið. Áður fengu pró-
fessorar ekki meira en þeir sem
stóðu við bensíndælu. Nú dæla menn
sjálfir en kennarar verða seint að
vélmennum.“
Danir glaðværir og vinafúsir
Guðmundur er búsettur í Dan-
mörku. „Það henti nokkurn veginn
samtímis að ég fór á eftirlaun,
kvæntist danskri konu og flutti á
sveitabýli í Danmörku. Ég er stund-
um spurður að því hér í Danmörku
hvort ég hafi ekki heimþrá. Auðvitað
sé ég fyrir mér sólskinblett í heiði og
bárur smáar rísa. En ég sakna
G
uðmundur Kristján
Magnússon fæddist 21.
apríl 1937 í Reykjavík
og ólst upp á Laugar-
nesvegi 34 í húsi sem
var reist á Kirkjubólstúninu.
„Ég var að átta mig á því að ég hef
verið að leika mér allt lífið. Núna
byrjum við hjónin daginn með borð-
tennis og á sumrin leikum við tennis
úti við – auk þess að þjálfa börn og
fullorðna. Ég spila vikulega brids í
tveimur klúbbum með góðum
árangri. Leikir af öllu tagi eru góð
leið til þess að samlagast þjóðfélag-
inu. Ég stóð að stofnun körfubolta-
félags bæði í menntaskóla og há-
skóla. Ég spilaði brids í unglinga-
stúku og gekkst fyrir bæði brids- og
taflæfingum í háskóla. Í HÍ sótti ég
leikfimi með blakívafi hjá Valdimari
Örnólfssyni þrisvar í viku og æfði
körfubolta tvisvar í viku.“
Guðmundur gekk í Laugarnes-
skóla, varð stúdent frá MR 1957,
fil.kand. frá Uppsalaskóla 1961, fil-
.lic. frá sama skóla 1965 og fil.dir. í
hagfræði þaðan 1969. Hann stundaði
framhaldsnám við MIT í Cambridge
í BNA 1965. „Ég vildi helst verða at-
vinnumaður í körfubolta en ég var ei
nógu hár í loftinu til þess. Næsta val
var læknisfræði en hún tók of langan
tíma. Þessu næstu komu tungumál
en ég sá fyrir mér að enda sem fá-
tækur kennari. Það endaði með hag-
fræði til þess að geta séð fyrir mér
og fjölskyldu. Ég nam svo þjóð-
hagfræði í lengri tíma en læknis-
fræðin hefði tekið og ég endaði sem
kennari.
Nám mitt var leikur að tölum,
táknum og orðum. Í doktorsritgerð
minni studdist ég við bókina Leikja-
fræði og hagsýni eftir von Neumann
og Morgenstern. Þar átti ég við
kenninguna um hámark vonnytja.“
Guðmundur kenndi meðfram
námi við Uppsalaháskóla og var
lektor þar 1963-66 og sérfræðingur
1967-68. Hann varð prófessor við
Háskóla Íslands 1968 og rektor HÍ
1979-85. „Það má segja að ég hafi
haft mörg járn í eldinum. Auk
kennslu- og rektorsstarfa í HÍ hef
ég setið í stjórnum banka, fyrir-
tækja og sjóða, unnið á vettvangi
þjóðir geti lært af því hvernig staðið
var að sjálfstæði Íslendinga. Stærsti
munurinn sem ég fann á Dönum og
Íslendum við komu mína hér var að
á Íslandi spyrjum við: „Hvað get ég
gert sjálfur?“ Hér spyrja menn
gjarnan: „Hvað getur sveitarfélagið
og stóri bróðir gert fyrir mig?“ Ég
hygg að þetta megi að hluta til skýra
með háum sköttum hér sem menn
vilja endurheimta.
Svo er reginmunur á vöxtum af fé.
Guðmundur Magnússon, fv. prófessor í hagfræði og rektor Háskóla Íslands – 85 ára
Á Sjálandi Sveitabýlið Strandagergård sem þau hjónin, Guðmundur og Lisa, búa á.
Lífið er kær leikur
Hjónin Lisa von Schmalensee og Guðmundur Magnússon.
Til hamingju með daginn
Hella Kornelia Kacperska fæddist 21.
apríl 2021 kl. 2.00 á HSU á Selfossi.
Hún á því eins árs afmæli í dag.
Kornelia vó 3.182 g og var 48 cm löng
við fæðingu. Foreldrar hennar eru
Pawel Kacperski og Anna Kacperska.
Nýr borgari
AUDI A3
SPORTBACK
E-TRON
Raðnúmer 122324
Nýskráning 3/2019
Bensín/Rafmagn
Akstur 27.000 km.
Næsta skoðun 2023
Sjálfskipting 6 gírar
150 hestöfl
Þyngd 1.593 kg.
Litur: hvítur
Álfelgur
4 heilsársdekk
Aðgerðahnappar í stýri
Hiti í stýri
Aksturstölva
Spólvörn
Stöðugleikakerfi
Hraðastillir
Lykillaust aðgengi
Lykillaus ræsing
Bakkmyndavél
Handfrjáls búnaður
Bluetooth símatenging
Hiti í framsætum
Kr. 3.990.000
Ásett verð 4.290.000
Selhellu 5, 221 Hafnarfjörður
Sími 522 4466
bilasala@hertz.is