Morgunblaðið - 21.04.2022, Side 53
DÆGRADVÖL 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
MiniMax Ø: 33 cm, H: 50 cm Verð 159.900,-
Large Ø: 33 cm, 1688 cm2 Verð 249.900,-
X-Large Ø: 61 cm, 2919 cm2 Verð 359.900,-
BIG GREEN EGG
KAMADO KERMAMIK GRILL
Þú getur gert allt
á Egginu – grillað,
bakað, steikt, gufusoðið
og reykt.
„ÉG HELD AÐ FIÐLA SÉ EKKI HLJÓÐFÆRIÐ
FYRIR ÞIG.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að gefa honum séns.
STÆRÐFRÆÐIKENNSLA
GRETTIS: SEX KLEINU-
HRINGIR PLÚS SEX KLEINU-
HRINGIR ERU SAMTALS…
TVEIR TÓMIR
DISKAR!
HA, HA, HA! STOPP!
ÞETTA KITLAR!
HVAÐ ER
Í GANGI
HJÁ SIGGA
SÓÐA?
HEE HEE
HEE ! ! MAURAR!
„NIÐUR MEÐ HÖNDINA. „ERTU ALGER
HÁLFVITI“ VAR EKKI BEINT SPURNING.“
STARFSMANNASTJÓRI
Vaxtabyrði hefur sligað margan
manninn á Fróni en hér eru mínus-
vextir af húsbréfum. Danska krónan
fylgir evrunni eins og skugginn en
íslenska krónan sveiflast eins og
hagvindurinn blæs.
Margt hefur breyst í hagfræðinni
frá því ég tók að nema hana. Fyrsta
setningin í kennslubókinni var að
hagfræðin fjallaði um ráðstöfun
knappra gæða. Sum gæði væru
reyndar ókeypis – eins og andrúms-
loftið. Í þá tíð fengu menn að veiða
fisk ótakmarkað og vatnið var svo
ódýrt að það var næstum frjáls gæði.
Nú er öldin önnur. Það má segja að
það sé ekki lengur ókeypis að draga
andann. Við eigum að lifa visthæfu
lífi. Ég tel að hvort sem menn trúa á
eilíft líf eða ekki, hvort sem þeir eru
trúaðir eða guðleysingjar, eigi þeir
að höndla eins og lífið sé eilíft.“
Fjölskylda
Eiginkona Guðmundar er Lisa
von Schmalensee, f. 30.12. 1951,
mag.art. í norrænum bókmenntum.
Þau eru bús. á Sjálandsodda við Ísa-
fjörð, um 90 km norðvestur af Kaup-
mannahöfn. Fyrri kona Guðmundar
er Valdís Árnadóttir, f. 16.6. 1938.
Dætur Guðmundar og Valdísar
eru 1) Hanna Valdís, f. 10.3 1962, pí-
anókennari, bús. í Reykjavík; 2)
Arndís, f. 24.7. 1966, mannfræð-
ingur. Maki Einar Hallvarðsson,
bús. í Reykjavík; 3) Margrét, f. 16.9.
1968, tannsmiður. Maki: Arnar
Hilmarsson, bús. í Reykjavík; 4)
Hulda Kristín, f. 5.5. 1973, markaðs-
fræðingur. Maki: Árni Haukur
Árnason, bús. í Reykjavík. Barna-
börn Guðmundar eru níu og langafa-
börnin ellefu. Dóttir Lisu er Menja,
29.2. 1972, líffræðingur. Maki:
Róbert Arnar Stefánsson, búsett í
Stykkishólmi. Barnabörn Lisu eru
þrjú.
Tvíburasystur Guðmundar: Mar-
grét Halla, f. 14.5. 1939, d. 2.9. 2003,
og Sólveig Magnea, f. 14.5. 1939,
bús. í Bandaríkjunum.
Foreldrar Guðmundar voru hjón-
in Magnús Júníus Jón Magnússon, f.
2.6. 1912, d. 10.2. 1998, vélstjóri og
Kristín Lilja Collin Guðmundsdóttir,
f. 11.8. 1913, d. 9.7. 2010, húsfreyja.
Þau voru bús. í Reykjavík.
Guðmundur
Magnússon
Hallgerður Snorradóttir
húsfreyja í Melshúsum
Oddur Erlendsson
bóndi í Melshúsum á Álftanesi
Margrét Oddsdóttir Collin
húsfreyja á Brú og í Reykjavík
Guðmundur Eiríksson
bóndi á Brú í Biskupstungum
Kristín Lilja Collin
Guðmundsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Kristín Guðmundsdóttir
húsfreyja á Tortu og Eiríksstöðum
Eiríkur Jónsson
bóndi á Tortu og Eiríksstöðum í Biskupstungum
Margrét Gunnarsdóttir
húsfreyja í Nýjabæ
Jón Brandsson
bóndi í Nýjabæ á Álftanesi
Sólveig Jónsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Magnús Vigfússon
verkstjóri í Reykjavík
Sigríður Narfadóttir
húsfreyja í Reykjakoti
Vigfús Ólafsson
bóndi í Reykjakoti í Mosfellssveit
Ætt Guðmundar Magnússonar
Magnús Júníus
Jón Magnússon
vélstjóri í Reykjavík
Á sumardaginn fyrsta kemur
þessi braghenda Páls Ólafs-
sonar upp í hugann, en hann orti
hana á Nes-hálsi í ágúst 1898:
Sólskríkjan mín situr þarna á sama
steini
og hlær við sínum hjartans vini
honum Páli Ólafssyni.
Ingólfur Ómar sendi mér góðan
póst: „Mér datt í hug að gauka að
þér vorljóði sem eru fjórar brag-
hendur. Veðrið er bjart og ynd-
islegt og heiðskír himinn þar sem
ég er staddur núna, nánar tiltekið
uppi í Borgarfirði.“
Morgunsunna mild og fögur merlar
voga
geislum vefur grund og móa,
glöðum rómi syngur lóa.
Töfraskikkju skrýðist fold úr skarti
blóma
mógul stráin blakta í blænum
blístrar fugl á kvisti grænum.
Á heiðum morgni heyrist kvak úr
heiðaveri
álftir úti á síki synda
seytlar streymi dýjalinda.
Bjarmi sólar birtu slær á brúnir fjalla
blundar lygnt og ládautt hafið
loga gyllt er skýjatrafið.
Helgi R. Einarsson minnist þess,
að fyrir allmörgum árum steig
hann gæfuspor 15. apríl og því varð
þessi til:
Þakklæti
Enga ég aðra vil fremur,
hún örlög mín samdi og semur.
Við ýttum úr vör
í þessa för
fyrir árum nú 53.
Og síðan þessar:
Ef lít ég yfir liðin ár,
sem ljúfar myndir veita,
veit ég alveg upp á hár
að engu vildi breyta.
Hitt og þetta þakka ber,
þó sé margs að sakna,
á hverju kvöldi er halla mér
ég hlakka til að vakna.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir
um „vorannir“:
Bændur nú brasa og saga
og brotgjarnar vélar þeir laga.
Aðrir sá byggi
en aumingja Siggi
er úti með ærnar í haga.
Og hér er „Andrúms er þörf“ eft-
ir Davíð Hjálmar:
Ég kem fram við konur af virðingu.
Við kornskurð og mjaltir og hirðingu
og öll þeirra störf
andrúms er þörf.
Mín er í mannheldri girðingu.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sólskinsljóð og gæfuspor