Morgunblaðið - 21.04.2022, Side 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022
SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is
SAG
EIN RAFHLAÐA
+ Öll verkfæri fyrir garðinn,
heimilið og bílskúrinn
A
vfs.is
„Við erum á frábærum stað, inni á
aðalsvæði tvíæringsins. Frá 2005
höfum við verið hér og þar um Fen-
eyjar, sem hefur líka verið frábært,
í sérhúsnæði en núna erum við
inni í þessari stóru sýningu þannig
að við reiknum með að fá alla vega
tuttugu þúsundum fleiri gesti
þannig að allir sem fara inn á
tvíæringinn renna í gegn á ein-
hverjum tímapunkti,“ segir Auður
Jörundsdóttir, forstöðumaður
Kynningarmiðstöðvar íslenskrar
myndlistar, stödd í Feneyjum.
Opnun fyrir fjölmiðla fór fram á
þriðjudegi og segir Auður að Sig-
urður hafi líka fengið góða umfjöll-
un um sýningu sína fyrir fram.
„Það hefur verið fjallað um verkið
og tekin viðtöl við hann í fagtíma-
ritum þannig að þetta hefur þegar
vakið mikla forvitni blaðamanna.“
Vart þarf að fjölyrða um mik-
ilvægi Feneyjatvíæringsins fyrir
myndlistarmenn og heiðurinn
verður vart meiri en að fá að sýna
fyrir þjóð sína á þessari viðamiklu
og merku hátíð. Tvíæringurinn
verður opnaður gestum 23. apríl
og stendur hann yfir til 27. nóv-
ember. Síðast þegar hann var
haldinn, 2019, sóttu hann um
600.000 gestir. Í dag, fimmtudag,
fer fram foropnun á tvíæringnum
fyrir útvalda og verður íslenski
skálinn opnaður ásamt fjölda ann-
arra. Auður segir viðburðinn ein-
stakan, þann eina í heimi mynd-
listar þar sem fólk komi fram
undir sínum þjóðarfána.
„Á frábærum stað“
UM 600.000 GESTIR ÁRIÐ 2019
Í Feneyjum Auður Jörundsdóttir, Sigurður Guðjónsson og Mónica Bello.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Sigurður Guðjónsson er fulltrúi
Íslands á Feneyjatvíæringnum í
myndlist sem átti að fara fram í
fyrra en var frestað um ár vegna
kófsins. Verk Sigurðar ber titilinn
„Ævarandi hreyfing“ og fer sérstök
foropnun fram á sýningu hans og
tuga annarra í Feneyjum í dag en
aðalopnun verður á laugardag, 23.
apríl. Má búast við að mörg hundr-
uð þúsund manns streymi um
svæðið næstu sjö mánuði þar sem
tvíæringnum lýkur 27. nóvember.
Þessi umfangsmesta, alþjóðlega
myndlistarhátíð heims er nú haldin
í 51. sinn og er verk Sigurðar stór
fjölskynjunarskúlptúr. Í honum er
hljóði og mynd „ofið saman á kraft-
mikinn hátt og skapast þannig
heillandi rými fyrir gesti skálans“,
svo vitnað sé í fréttatilkynningu frá
Kynningarmiðstöð íslenskrar
myndlistar.
Mónica Bello er sýningarstjóri
íslenska skálans en hún gegnir
starfi sýningarstjóra við CERN,
Evrópsku rannsóknastofnunina í
öreindafræði í Genf. Koma þar
saman listamenn, öreindafræðingar
og verkfræðingar og einbeitir Bello
sér að frásögnum í tækni- og vís-
indamenningu nútímans og hvernig
listamenn koma af stað nýjum
rannsóknum á fyrirbærum sem eru
í deiglunni. Segist Bello í tilkynn-
ingu afar ánægð að fá að vinna með
Sigurði, þar fari listamaður sem
veki forvitni og hvetji hana áfram
með „djúpstæðri hrifningu sinni á
eðli efnis og einstöku sköpunarferli
þar sem hann notar látlaust um-
hverfi, auðgað með hljóði og mynd“
og verkið „Ævarandi hreyfing“
beini athygli að stöðugu flæði orku
og efnis og sé hylling til myndavél-
arinnar, sjónræns efnis, tilrauna-
starfsemi og skynræns rýmis.
Allt að fara í gang
„Hún er frábær, stórkostleg,“
svarar Sigurður þegar hann er
spurður hvernig stemningin sé í
Feneyjum. „Það er sól og fullt af
fólki að detta inn núna, allt að fara í
gang,“ bætir hann við en þegar
blaðamaður ræddi við hann, á
þriðjudegi, var verið að opna tvíær-
inginn fyrir fjölmiðlamönnum.
Verk Sigurðar er myndbands-
innsetning á tveimur sex metra
flekum og sjá má svífandi járnryk,
stækkað og magnað upp með
myndavélarlinsu listamannsins, eins
og því er lýst í tilkynningu, og geta
gestir „sökkt sér ofan í hreyfingu
abstrakt efnisins þegar það skekk-
ist og afmyndast svo að til verða ný
form og myndir, líkt og yfirborð á
órafjarlægri plánetu“.
Sigurður er beðinn að lýsa þessu
frekar fyrir lesendum Morgun-
blaðsins sem hafa ekki kost á því að
upplifa það í Feneyjum. „Ég hef
verið að tala um þetta sem risastór-
an fjölskynjunarskúlptúr, þetta er
verk sem þarf að ganga inn í og
upplifa og taka inn í sýningarrým-
inu. Það er að vissu leyti svolítið
innblásið af salnum líka. Ég felli
strúktúrinn inn í sýningarrýmið,“
útskýrir Sigurður. Verkið sé í raun
í nokkrum hlutum, þ.e. rýmið,
strúktúrinn, hljóðheimurinn og
vídeóið.
„Grunnurinn er málmryk og seg-
ull sem ég filma með ofur-makró-
linsu þannig að þetta verði eins og
óreiðukennt landslag af efni sem
fellur inni í vídeóinu sem fer í bein-
an abstrakt díalóg við hljóðheiminn
í rýminu,“ útskýrir Sigurður.
– Er þetta ekki tæknilega flókið
verk í framkvæmd?
„Já og nei, það fer eftir því
hvernig þú horfir á það, mér finnst
það ekki en jú, það eru tæknileg
element þarna í gangi. Hvernig við
mögnum upp þennan rykmassa og
umbreytum honum svo aðeins í
tölvu og svo er önnur stækkun í
rýminu og þá fer þetta yfir í hug-
leiðingar um skala og hvernig þú
upplifir hann, míkró og makró,“
svarar Sigurður. Þarna sé á ferð-
inni tilraunamennska með efni,
hljóð, vídeó og rými. „Þessi hugleið-
ing, samsetning hljóðs og myndar
og rýmis, er alltaf útgangspunktur í
verkunum mínum á einhvern hátt
en þetta er skynjunar- og upplif-
unarrými.“
Sigurður segir hvern þátt verks-
ins hafa jafnmikið vægi og um
hljóðheim þeirra Valgeirs Sigurðs-
sonar, tónlistarmanns og tónskálds,
segir hann að þar fari rafhljóðmassi
sem þeir hafi unnið með. „Þetta eru
allt rafhljóð sem er svo umbreytt í
gegnum alls konar forrit,“ útskýrir
Sigurður, tækni sem brjóti hljóð-
heiminn upp í agnir sem eigi í
beinu, ljóðrænu samtali við málm-
rykið í vídeóinu. Um leið sé þetta
mikill hljóðmassi sem tengist því
hvernig verkið gangi í gegnum sýn-
ingarrýmið, hreyfingunni í verkinu.
Mikil áhersla lögð á Arsenale
Íslenski skálinn er á Arsenale
sem er eftirsóttur staður á tvíær-
ingnum. Aðalsýningasvæðið er í
garðinum, Giardinu della Biennale,
þar sem finna má fjölda skála
ólíkra þjóða og í hinni miklu bygg-
ingu Arsenale er svo umfangsmikil
sýning sem stýrt er af sýningar-
stjóra. Sá velur listamenn eða
-hópa til sýningahalds og til hliðar
við Arsenale eru svo nokkrir
þjóðarskálar, þeirra á meðal sá ís-
lenski.
Sigurður segir mikla áherslu
lagða á sýninguna í Arsenale og því
liggi þangað mikill straumur gesta.
Hann segist finna fyrir þessum
straumi nú þegar, á foropnunardegi
fyrir fjölmiðla. Þá fer fram mikil
tengslamyndin á tvíæringnum við
áhrifafólk í myndlistarheiminum og
segir Sigurður ómögulegt að segja
til um hvaða áhrif þátttaka hans í
tvíæringnum muni hafa á hans feril.
Hann hafi þegar fengið athygli víða
og þá m.a. í mikilvægum myndlist-
armiðlum.
Að lokum má geta þess að á opn-
unardegi íslenska skálans kemur út
ný sýningarskrá um feril og list-
sköpun Sigurðar og er bókin hönn-
uð af Arnari Frey Guðmundssyni
og Birnu Geirfinnsdóttur hjá Studio
studio á Íslandi og gefin út af Dist-
anz-útgáfufyrirtækinu í Berlín. Í
útgáfunni má sjá myndir af inn-
setningunni auk valinna nýlegra og
eldri verka Sigurðar. Þar má einnig
finna grein sýningarstjórans Món-
icu Bello um listamanninn.
Margt smátt gerir eitt stórt
- „Ævarandi hreyfing“ Sigurðar Guðjónssonar í íslenska skálanum í Feneyjum - Foropnun í dag og
almenn opnun á laugardag - Stór fjölskynjunarskúlptúr þar sem hljóð og mynd eru ofin saman
Ljósmynd/Ugo Carmeni
Tilkomumikið Verk
Sigurðar í íslenska
skálanum í Feneyjum.