Morgunblaðið - 21.04.2022, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 21.04.2022, Blaðsíða 58
58 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022 SMÁRALIND – KRINGLAN – DUKA.IS Ø 12 cm 1.690,- Ø 15 cm 2.490,- Ø 19 cm 3.590,- Ø 24 cm 5.490,- Ø 30 cm 6.990,- BLÓMAPOTTAR Endurunnið plast Framleiddir í Danmörku „Þetta er rosalega metnaðarfull og ævintýraleg hátíð,“ segir Harpa Rut Hilmarsdóttir, verkefnastjóri barna- menningar hjá Reykjavíkurborg, um hátíðina Big Bang Festival sem haldin verður í Hörpu í dag, 21. apr- íl. Um er að ræða evrópska tónlist- arhátíð fyrir unga áheyrendur. Efnisskráin er sögð fjölbreytt og metnaðarfull og samanstendur af tónleikum, innsetningum og tónlist- artengdum smiðjum undir hand- leiðslu fagfólks í tónlist. Markmið hátíðarinnar er að auka aðgengi barna að tónlist. „Þetta eru tónlistarviðburðir sem eru sér- staklega hugsaðir fyrir börn. Við er- um að reyna að gera upplifunina þannig að þau fái að vera þátttak- endur. Það er ókeypis inn á allt og hluti af markmiðinu er að öll börn geti fengið að upplifa svona metn- aðarfulla tónlistarviðburði óháð fjár- hag. Börn eru 25% af þjóðinni og það er full ástæða til þess að næra þau sérstaklega og þau er oft miklu opn- ari en fullorðnir,“ segir Harpa. Í tilkynningu um hátíðina segir jafnframt: „Sérstök áhersla er lögð á tónlistarfólk og tónskáld sem sjá æv- intýrið í tónlistarsköpun sinni og vilja leita frjórra leiða til að kynna tónlist fyrir börnum og deila með þeim sviðinu.“ Sem dæmi má nefna að hinn íslenskættaði Dani Rune Thor- steinsson ætlar að búa til 120 barna trommuhljómsveit í Grafarholti og Úlfarsárdal. Hann hélt tónleika við vatnstankana hjá Ingunnarskóla í gær og heldur aðra í Hörpu í dag. „Við nýtum ýmis rými í Hörpu sem fólk fær venjulega ekki að fara í, við erum til dæmis inni í búninga- geymslu óperunnar og einhvers staðar baksviðs, en líka í stóru al- mennu rýmunum,“ segir Harpa. Tónlistarhátíðin var stofnuð árið 2010 af sex evrópskum samstarfs- aðilum. Árið 2015 hlaut hátíðin hin virtu EFFE-verðlaun sem veitt eru framúrskarandi evrópskum menn- ingarhátíðum. Árið 2018 hlotnaðist Big Bang fjögurra ára stuðningur á vegum Creative Europe-áætlunar Evrópusambandsins. Hátíðin er haldin í 17 mismunandi borgum í Evrópu og var Barnamenning- arhátíð Reykjavíkur boðin þátttaka í verkefninu 2019. Hátíðin átti að fara fram á Barnamenningarhátíð 2020 en fer nú loksins fram tveim árum síðar. Hátíðin verður árleg hér eftir. ragnheidurb@mbl.is Spenningur Nokkrir skipuleggjenda barnatónlistarhátíðarinnar Bing Bang ásamt hópi barna sem eru í hlutverki sérstakra erindreka hátíðarinnar. Að sjá ævintýrið í tónsköpuninni - Barnatónlistarhátíðin Big Bang Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Barnabókaverðlaun Reykjavík- urborgar voru afhent í Höfða um há- degi í gær, síðasta vetrardag 20. apr- íl. Þau eru veitt í þremur flokkum. Linda Ólafsdóttir hlaut verlaunin í flokki myndlýsinga fyrir bókina Reykjavík barnanna. Sverrir Nor- land hlaut þau í flokki þýðinga fyrir þýðingu sína á bókinni Eldhugar: Konurnar sem gerðu aðeins það sem þær vildu eftir Pénélope Bagieu. Kristín Helga Gunnarsdóttir var verðlaunuð í flokki frumsaminna bóka fyrir bók sína Ótemjur. Í umsögn dómnefndar um Reykjavík barnanna eftir Lindu Ólafsdóttur og Margréti Tryggva- dóttur segir meðal annars: „Myndlýsingar Lindu hafa mjög klassískt yfirbragð, feta vel einstigið á milli raunsæis og stíliseringar og dempaðir litirnir gefa heildarverk- inu fallegan tón. Það er ljóst að til grundvallar liggur mikil heim- ildavinna; til að endurspegla sem best anda hvers tímabils þarf að huga að öllum smáatriðum, hvort sem það er í byggingum eða klæðn- aði fólks. Linda hefur unnið fagurlega úr efnivið sínum, mjólkurflöskur úr gleri í nestistíma, kennari að skenkja börnum lýsi úr lýsiskönnu og panell á veggjum skólastofu fanga vel tíðarandann og segja merkilega sögu samhliða þeirri sem kemur fram í textanum. Reykjavík barnanna er metnaðarfullt sagn- fræðirit með grípandi og fræðandi myndum sem höfðar til barna á öll- um aldri.“ Þetta er í annað sinn sem Margrét og Linda vinna saman að bók en Linda hlaut þessi sömu verðlaun fyr- ir myndlýsingar í fyrri bók þeirra Ís- landsbók barnanna. Hlýlegt og lestarhvetjandi Um þýðingu Sverris Norland á Eldhugar: Konurnar sem gerðu að- eins það sem þær vildu segir: „Á myndasöguformi eru sagðar þrjátíu sögur af konum sem settu, hver með sínum hætti, mark sitt á mannkynssöguna. Konurnar sem Bagieu kýs að fjalla um eru æði ólík- ar og Eldhugar er ekki dæmigerð af- rekskvennabók í þeim skilningi. En sögur þeirra eru samt sem áður ein- stakar, þær fjalla um mannlega reisn og eru sagðar frá hispurslausu sjónarhorni kvenna og saman mynda konurnar þrjátíu í Eldhugum fjölskrúðugan hóp af kvenhetjum frá ólíkum tímabilum í mannkynssög- unni, af ólíkum stéttum og frá öllum heimshornum. Þýðing Sverris Norland er vand- lega unnin. Tónninn er bæði hlýleg- ur og lestrarhvetjandi og fallegur, handskrifaður textinn eykur þau áhrif. Stíllinn er hnitmiðaður, mál- farið fágað og gagnsætt og þýðingin fellur í alla staði vel að myndasögu- forminu. Hér er á ferðinni sígilt og vandað verk sem mun gleðja unga lesendur um ókomin ár.“ Brýn málefni í víðu samhengi Um Ótemjur eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur segir dómnefnd: „Ótemjur eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur er spennandi saga þar sem fjallað er um aðkallandi samfélagsmál. Í forgrunni eru fé- lagsleg réttindi barna og þörfin fyrir öryggi, ástúð og umhyggju. Þrátt fyrir alvarlegt umfjöllunarefni er frásögnin bæði hröð og leikandi og Kristín Helga tekst í bók sinni á við efnið af næmni og frásagnargleði. Myndin sem teiknuð er upp er langt frá því að vera svarthvít, persón- urnar eru hvorki algóðar né alvond- ar – ekki einu sinni þær sem ítrekað bregðast skyldum sínum. Um leið er afstaða höfundar skýr: Öll börn eiga að njóta bæði verndar og frelsis. Í bókinni eru þessi brýnu málefni sett í víðara samhengi, því réttindi barna snúa ekki síst að rétti þeirra til að tengjast ósnortinni náttúrunni og söguna má einum þræði lesa sem áminningu um að standa jafnframt vörð um hana.“ Dómnefnd verðlaunanna fékk yfir hundrað bækur til skoðunar í ár og voru fimm bækur tilnefndar í hverj- um flokkanna þriggja. Dómnefndina skipuðu þau Tinna Ásgeirsdóttir, sem var formaður, Ásmundur Krist- berg Örnólfsson, Guðrún Lára Pét- ursdóttir, Karl Jóhann Jónsson og Valgerður Sigurðardóttir. „Sígilt og vandað“ - Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar afhent í gær - Linda, Sverrir og Kristín Helga voru verðlaunuð Morgunblaðið/Eggert Verðlaunahafar Kristín Helga Gunnarsdóttir, Sverrir Norland og Linda Ólafsdóttir voru kampakát fyrir framan Höfða að lokinni athöfn. Búgívúgí- og blúspíanó- leikarinn og -söngvarinn Ben Waters heldur tón- leika í Húsi Máls og menningar, Laugavegi 18, annað kvöld kl. 20 og fer miðasala fram á vefn- um Tix.is. Waters hefur haldið um 250 tónleika á ári um allan heim og er um þessar mundir í hljómsveit Ronnies Woods (and his Wild Five), að því er fram kemur í tilkynningu. Waters hefur gefið út plötur og komið fram með liðsmönnum Rolling Stones og er þessa dagana að vinna að verkefni með Jeff Beck. Hann var einnig um árabil í hljóm- sveitinni A,B,C, & D of Boogie-Woogie með Charlie Watts heitnum og lék mikið með Chuck Berry og Jerry Lee Lewis. Waters til halds og trausts verða Beggi Smári & Bex Band. Hress Ben Waters leikur á um 250 tónleikum á ári. Blús og búgívúgí með Ben Waters Ákveðið var fyrr í vikunni að setja upp á Feneyja- tvíæringnum í myndlist sérstaka sýningu til stuðn- ings úkraínsku þjóðinni sem Rússar hafa ráðist á. Var sýningin sett upp á torgi á aðalsýningarsvæð- inu, Giardini, en tvíæringurinn verður opnaður í dag. Sýningin er meðal annars skipulögð af sýning- arstjórum úkraínska skálans á tvíæringnum, þar sem Pavlo Kakov sýnir, en þess má geta að engin sýning verður í rússneska skálanum og hann lok- aður. Listakonan og arkitektinn Dana Kosmina skipulagði sýningarsvæðið á torginu þar sem fyrirhugað er að skipta reglulega um listaverk meðan á tvíæringnum stendur. Sýningarstjórar segja listaverkin verða að vitn- isburði um þrautir og kjark Úkraínumanna. Sýning til stuðnings Úkraínu Pavlo Makov, fulltrúi Úkraínu á tvíæringnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.