Morgunblaðið - 21.04.2022, Qupperneq 60
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022
LOGN Barna hettupeysa
Kr. 6.990.-
SEYÐISFJÖRÐUR
Hettupeysa
Kr. 11.990.-
KLETTUR húfa
Kr. 2.490 -.
Vinir
fá sérkjör
Skráning á icewear.is
LOGAN Bolur
Kr. 2.990.-
SKRÚÐUR Ullarsokkar
Kr. 2.990
Gleðilegt sumar
REYKJANES
Ullarjakki með íslenskri ull
Kr. 33.990.-
RANGÁ
Ullarjakki með íslenskri ull
Kr. 33.990.-
HELLA Sundpoki
Kr. 2.590.-
DÖGG Regnkápa
Kr. 11.990.-
.-
Þ
að eru líkin í lestinni sem
knýja gamanleikina, með
dyggri aðstoð frá beina-
grindunum í skápunum.
Það eina sem þarf til að virkja elds-
neytið er að láta eins og það sé ekki
þarna, og ljúga ef einhver spyr. Svo
skemmtilega vill til að þetta er ekki
síður hagnýtur orkugjafi fyrir
drama og harmleiki. Fyrir vikið er
oft hægt að sleppa bæði og halda:
láta glitta í grímu grátsins bak við
fíflalæti hlátursgrímunnar. Verra
auðvitað þegar það er á hinn veginn:
að háalvarlegur harmleikur kveikir
fliss yfir kjánaganginum sem býr að
baki ógæfunni.
Þetta snýr allt rétt í Fyrrverandi.
Skopið í forgrunni, harmurinn und-
ir, og að mestu á ábyrgð áhorfenda
að koma auga á hann og velta fyrir
sér. Sýningin byggist á viðtölum og
annarri rannsóknarvinnu handrits-
höfundar og leikstjóra, Vals Freys
Einarssonar, sem hverfðist um
hjónaskilnaði, eftirköst þeirra og
áhrif á það líf sem tekur við. Tísku-
straumar leikhússins hafa á und-
anförnum árum skilað okkur sýn-
ingum þar sem rannsóknarvinnan
sjálf er í forgrunni framsetning-
arinnar, jafnvel hreinlega umfjöll-
unarefnið. Vel hefði mátt ímynda
sér þannig afrakstur, sérstaklega
þar sem Common Nonsense-
hópurinn sem stendur að baki sýn-
ingunni hefur frá upphafi verið leit-
andi og óhræddur í verkefnum sín-
um. En kannski ber það einmitt vott
um listrænt hugrekki að synda gegn
„rannsóknarstraumnum“ og nýta
forvinnuna sem efnivið í handrit
sem fer ansi nærri því að vera ein-
faldlega formfastur, hefðbundinn og
jafnvel pínu gamaldags gaman-
leikur.
Líklega er óhjákvæmilegt að
árétta að þetta meina ég sem hrein-
ræktað hrós. Því bæði er Fyrrver-
andi vel heppnað dæmi um slíkan
gamanleik, leikandi létt og hæfilega
fléttubundið, og um leið fullt af grát-
hlægilegum sannleika um þetta
sjálfselska og grunnhyggna, en sér-
kennilega sjarmerandi dýr sem nú-
tímamanneskjan er. Og það kemur í
ljós að það er hægt að segja heil-
mikið um þetta allt í þessu langjask-
aða og hálf-fyrirlitna formi þrátt
fyrir allt. Veldur hver á heldur,
greinilega.
Í klassískum gamanleikjaanda
gerist Fyrrverandi i partíi. Vinahóp-
ur (þrjú pör) kemur saman á heimili
eins parsins, mögulega í tilefni af
yfirvofandi trúlofun gestgjafanna.
Þær áætlanir fara fljótlega af tein-
unum, og þótt ætlunin sé ekki endi-
lega að helga kvöldið vangaveltum
um fyrri maka og stöðu mála hvað
þá varðar hjá pörunum í partíinu
kemst á endanum fátt annað að.
Óhjákvæmilega leysast alls kyns
vandamál og núningar úr læðingi,
leyndarmál eru afhjúpuð og inni-
stæðulaus sjálfsöryggi brenna yfir.
Áhorfendur hlæja og flissa. En finna
líka til og hugsa sitt. Allt eins og það
á að vera.
Þetta er kostulegur mannsöfnuð-
ur. Það er mestur raunsæisblær á
húsfreyjunni Unu í flottum og
öruggum meðförum Kötlu Mar-
grétar Þorgeirsdóttur, sem er sett-
leg og mögulega langþreytt á að
reyna að stilla til friðar í borgara-
styrjöldinni sem geisar milli
barnanna hennar og þeirra sem
fylgdu nýja kærastanum, hálf-
mislukkaða jakkafatajógagúrúnum
Togga, sem Þorsteinn Bachmann
gerir sannfærandi og pínu hrollvekj-
andi skil. Óneitanlega skilur maður
að syninum Bjarti, lítið hlutverk
sem Árni Þór Pálsson leysir með
prýði, lítist ekki meira en svo á ráða-
haginn og setji fléttuna í gang með
andmælum sínum. Þorsteinn er síð-
an á heimavelli í smámynd af fyrr-
verandi eiginmanni Unu, sem er
greinilega skapaður til að skilja við
hann. Annars kynnumst við þessum
miklu örlagavöldum, fyrrverandi
mökum, aðeins í lýsingum þeirra
sem við mætum á sviðinu.
Gróteskan í persónugalleríinu rís
mögulega hæst hjá Karli og Gígju,
krabbameinslækninum og sjúk-
lingnum sem hann læknaði og tók
síðan saman við. Halldór Gylfason
og Þórunn Arna Kristjánsdóttir eru
flinkir týpusmiðir, sem er nákvæm-
lega það sem þarf til að skapa per-
sónur eins og þau hjónin. Vala
Kristín Eiríksdóttir er löngu búin að
ná meistaratökum á sjálfhverfum
einfeldningum eins og sjónvarps-
stjörnunni Huldu og Jörundur
Ragnarsson er manna flinkastur
með nett-taugaveiklaða lúða í að-
stæðum sem þeir ráða ekki við, en
það er nákvæmlega staðan sem
Bjarni er lentur í, í sínu opna sam-
bandi við Huldu, sem ljóst er að nýt-
ur sín betur í þannig fyrirkomulagi.
Eða hvað? Fyrir utan fyndnina og
fáránleikann tekst Vali Frey að gefa
öllum persónunum sínum sannfær-
andi fortíðarsár, eitthvað sem er
dregið fram í dagsljósið í gangverki
sýningarinnar. Sama hvað þetta er
fráleitt fólk fer aldrei á milli mála að
þetta er fólk. Meira að segja hinir
dýrðlega sundurgerðarlegu bún-
ingar Ilmar Stefánsdóttur ná ekki
að gera þetta að hreinræktuðu
skrípói, þótt þeir ýti vissulega undir
tilfinninguna fyrir að þetta sé leik-
hús en ekki hrár samtímaveruleiki
sem hér er til sýnis. Sama með hina
smekklegu en skemmtilega fortíðar-
legu – og leikmyndalegu – stofu á
heimili Unu og Togga. Tónlist og
hljóðmynd Davíðs Þórs Jónssonar
og Sölku Valsdóttur var ágæt og
viðbót við stemninguna, að sjálf-
sögðu þarf að brjóta þetta hefð-
bundna drama upp með smá dansi,
svona til að þetta verði ekki alveg
eins og hefðbundið stofuleikrit.
Besta uppbrotið er án efa dálítið
groddaleg a cappella-útgáfa af
Mezzoforte-slagaranum Garden
Party sem rímaði fullkomlega við
áferð sýningarinnar.
Fyrrverandi er þrælskemmti-
legur gamanleikur. Ekki djúprist
greining eða djörf.
Fortíðarvandinn
Ljósmynd/Íris Dögg Einarsdóttir
Fortíðarsár Fyrir utan fyndnina og fáránleikann tekst Vali Frey að gefa öllum persónunum sínum sannfærandi for-
tíðarsár, eitthvað sem er dregið fram í dagsljósið í gangverki sýningarinnar, skrifar gagnrýnandi um Fyrrverandi.
Borgarleikhúsið
Fyrrverandi bbbbn
Handrit og leikstjórn: Valur Freyr
Einarsson. Leikmynd og búningar: Ilmur
Stefánsdóttir. Tónlist og hljóðheimur:
Davíð Þór Jónsson og Salka Valsdóttir.
Lýsing: Ingi Bekk. Myndband: Ingi Bekk
og Elmar Þórarinsson. Leikgervi: Elín S.
Gísladóttir og Ilmur Stefánsdóttir.
Sviðshreyfingar: Anna Kolfinna Kuran.
Leikendur: Árni Þór Pálsson, Halldór
Gylfason, Jörundur Ragnarsson, Katla
Margrét Þorgeirsdóttir, Vala Kristín Ei-
ríksdóttir, Þorsteinn Bachmann og Þór-
unn Arna Kristjánsdóttir. Frumsýning á
Nýja sviði Borgarleikhúsinu laugardag-
inn 9. apríl 2022, rýnir sá 2. sýningu,
sunnudaginn 10. apríl.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
Hljómsveitin Of Monsters and Men
gaf út nýtt lag í fyrradag, „This
Happiness“, sem finna má á EP-
plötunni TÍU sem gefin er út sam-
hliða samnefndri heimildarmynd
sem var tekin upp hér á landi á
síðasta ári, að því er fram kemur í
tilkynningu. Leikstjóri hennar er
Kanadamaðurinn Dean Deblois
sem á m.a. að baki tónlistarmynd
Sigur Rósar, Heima, og teikni-
myndirnar Lilo & Stitch og How to
Train Your Dragon. Fylgdi hann
hljómsveitinni um Ísland eftir að
alheimstónleikaferð hennar var
stytt vegna Covid-faraldursins.
Flutti hljómsveitin ný lög víða um
landið og úr varð heimildarmyndin
TÍU sem og fyrrnefnd EP-plata.
Myndin verður frumsýnd á Tri-
beca-kvikmyndahátíðinni í New
York 9. júní næstkomandi og kem-
ur platan út degi síðar.
10 ára afmælisútgáfa hinnar vin-
sælu breiðskífu hljómsveitarinnar,
My Head Is an Animal, kom út í
lok síðasta árs og er vínilútgáfa
væntanleg í verslanir á næstu dög-
um. Loks má geta þess að mynd-
band við lagið „This Happiness“
kemur út samhliða útgáfu lagsins
og er það fyrsta myndbandið sem
Arnar Rósenkranz, trommuleikari
sveitarinnar, leikstýrir. Hlusta má
á lagið á Spotify og sjá mynd-
bandið á YouTube.
OMAM Hljómsveitin í blíðviðri á Íslandi þar sem TÍU var tekin upp.
Heimildarmynd á Tribeca og plata gefin út