Morgunblaðið - 21.04.2022, Side 64

Morgunblaðið - 21.04.2022, Side 64
TAX FREE afsláttur af öllum vörum í dag* Smáratorgi og Holtagörðum kl. 11-17 Extratilboð 30-40%afsláttur af völdumvörum** * Taxfree tilboðið jafngildir 19,35% afslætti og gildir af öllum vörum nema vörum frá Simba. Gildir ekki ofan á önnur tilboð eða af sérpöntunum. Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Dorma ** Extratilboð gilda til og með 25. apríl 2022 Verslanir Dorma á Akureyri og Ísafirði eru lokaðar í dag en vefverslun www.dorma.is er alltaf opin. Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Jazzhátíð Garðabæjar verður sett í dag, 21. apríl, og stendur hún yfir til og með 24. apríl. Hátíðin er haldin á vegum menningar- og safnanefndar Garða- bæjar og listrænn stjórnandi hefur frá upphafi verið Sigurður Flosason tónlistarmaður. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir og að þessu sinni fara flestir tónleikar hátíðarinnar fram í Sveinatungu, Garðatorgi 7. Hátíðin hefst með tónleikum í kvöld kl. 20.30 og kemur söngkonan Ell- en Kristjánsdóttir fram með tríói. Annað kvöld kemur danska djasssöngkonan Cathrine Legardh fram en þau Sigurður eiga að baki langt sam- starf. Dagskrá hátíðarinnar má finna á Facebook. Jazzhátíð Garðabæjar hefst í dag FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 111. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Karlalandslið Íslands í íshokkíi stendur vel að vígi í B-riðli 2. deildar heimsmeistaramótsins eftir sigur á sterku liði Georgíu, 5:2, í Skautahöllinni í Laugardal. Ís- lenska liðið hefur unnið tvo fyrstu leiki sína og er þegar eina liðið í riðlinum sem hefur ekki tapað leik. » 55 Góð staða hjá íslenska landsliðinu ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Trésmiðja Magnúsar hefur verið í höndum þriggja ættliða sömu fjöl- skyldu frá stofnun fyrir ríflega 75 árum. Hjónin Magnús Frímann Jónsson og Guðfinna Björnsdóttir hófu reksturinn, Ingimundur Bene- diktsson, dóttursonur þeirra og hús- gagnasmiður, tók við þegar Magnús lést 1975 og hann hafði síðan stóla- skipti við Magnús, son sinn og húsa- smið, sem byrjaði að vinna með föð- ur sínum 2006 og tók við rekstrinum 2016. „Lengst af hafa verið tveir að störfum hverju sinni og samfella hefur verið í framleiðslunni, yfirleitt nóg að gera þrátt fyrir sveiflur í samfélaginu,“ segir Ingimundur. Magnús og Guðfinna brugðu búi norður í Húnavatnssýslu, fluttu suður 1944 og stofnuðu fyrirtækið skömmu síðar. Þau bjuggu og voru fyrst með verkstæðið á Bjargi á Sel- tjarnarnesi en keyptu fljótlega býlið Mávahlíð, sem var austan við Kamp Knox, þar sem nú er parhús framan við blokkina sem er sambyggð Mela- búðinni við Hagamel í Reykjavík, og héldu þar áfram þar til yfir lauk. „Þau byrjuðu á því að framleiða hríf- ur og orf fyrir bændur,“ rifjar Ingi- mundur upp. Þess má geta að gest- kvæmt var í Mávahlíð og auk viðskiptavina hjá Magnúsi litu menn eins og Þórbergur Þórðarson skáld, Jóhannes Ásgeirsson innheimtu- maður og Ágúst Vigfússon kennari reglulega inn hjá hjónunum, en Ingimundur flutti verkstæðið í Súðarvog 54 1980 og þar hefur það verið síðan. Hanna eftir pöntun Fyrstu áratugina fólst fram- leiðslan einkum í hrífum og kúst- sköftum, en feðgarnir hafa síðan sérhæft sig í margs konar sívölum stöngum. „Við framleiðum mikið af ýmsum tegundum af handlistum, bæði beinum og bognum, fyrir stofn- anir, fyrirtæki og einstaklinga,“ seg- ir Ingimundur til nánari skýringar. Fyrirtækið er skráð við Súðar- vog en gengið er inn Kænuvogs- megin. Það á sína föstu viðskiptavini og feðgarnir segja að þótt það sé ekki vel sýnilegt og þeir láti lítið fyr- ir sér fara fjölgi kúnnum reglulega. Magnús segir að óskirnar séu mis- munandi og þeir leggi sig í líma við að uppfylla þær. Gjarnan þurfi að blanda saman trélistum, gleri og stáli og þá séu þeir í samstarfi við glerframleiðendur og járnsmiði. „Það eru ekki margir sem leggja fyrir sig svona stúss en það er gef- andi að sjá hlutina verða til og stöð- ugt fleiri eru meðvitaðri um fram- leiðsluna.“ Halda mætti að vinnan væri einhæf en það er öðru nær. „Mikið handverk felst í framleiðslunni,“ leggur Ingimundur áherslu á. Magnús tekur í sama streng og bæt- ir við að sérhæfingin haldi þeim gangandi því þeir geti ekki keppt við fyrirtæki í fjöldaframleiðslu. „Þetta er skemmtileg og fjölbreytt vinna, sem reynir oft á hugmyndaflugið.“ Úr hrífum í sérsmíði - Mikið handverk í Trésmiðju Magnúsar í Súðarvogi Morgunblaðið/Eggert Í trésmiðjunni Ingimundur Benediktsson með forláta hrífur smíðaðar með gamla laginu og með Magnúsi til hægri. Mávahlíð Húsnæði trésmiðjunnar var jafnframt heimili eigendanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.