Morgunblaðið - 25.04.2022, Side 4

Morgunblaðið - 25.04.2022, Side 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. A del Sol At h. að o 30. apríl í 9 nætur C Malaga 595 1000 www.heimsferdir.is 59.900 Flug báðar leiðir frá Flugsæti Flug & hótel frá 99.950 9nætur Verð frá kr. 89.950 Hún segist ekki finna fyrir því að brotum sem þessum hafi fjölgað og að eðli atvika sé misjafnt. Alvarleg- ustu sárin verða í mosajarðvegi að sögn Sigrúnar og getur verið gríð- arlega erfitt að laga þau. „Stundum eru þetta ferðamenn sem eru eitthvað smeykir við að fara ofan í bleytu eða ef vegirnir eru lé- legir, en síðan eru dæmi um hreinan leikaraskap, svo þetta er frekar breytilegt.“ Hún segir einnig að innviðir skipti máli og þegar betur er búið að veg- um, þá fækki brotum á borð við ut- anvegaakstur í kjölfarið. felist aðallega í fræðslu. Einnig leggi stofnunin gríðarlega áherslu á frið- lýst svæði, en þar fylgist landverðir vel með. Fjöldi brota á sér þó stað utan slíkra svæða og ýmist fær stofnunin ábendingar eða verður var við þau sjálf. Alla jafna tilkynnir stofnunin hvers kyns náttúruspjöll til lögreglu. Ferðamenn stundum smeykir „Förin geta setið ansi lengi í land- inu og öll jörð er mjög viðkvæm núna, þegar frostið fer á vorin. Þetta er ansi viðkvæmur tími,“ segir Sig- rún. Logi Sigurðarson logis@mbl.is „Það eru alltaf hálfvitar þarna inni á milli en ég myndi segja að flestir beri virðingu fyrir landinu,“ segir Þorbjörn Gestsson í samtali við Morgunblaðið, um náttúruspjöll sem hann gekk fram á er hann var á göngu um Sveifluháls á Reykjanesi. Þorbjörn telur líklegt að mót- orkrosskappar hafi keyrt út af göngustígnum við Sveifluháls, en mótorkrossbraut er í grennd við hálsinn. Aðspurður segir hann að þessi háttsemi komi sér ekki óvart þar sem á göngum sínum síðustu ár hafi hann gengið fram á fjölda nátt- úruspjalla. Hann kveðst telja það eina í stöð- unni að koma upp myndavélaeftirliti og að Umhverfisstofnun noti dróna til þess að kortleggja náttúruspjöll á Reykjanesi. „Ég held að það sé eina vitið, myndavélavöktun.“ Erfitt að velja svæði Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunnar, segir að því miður sé alltaf eitthvað um svona brot. Aðspurð segir hún stofnunina ekki hafa skoðað það að setja upp myndavélaeftirlit þar sem það yrði of umfangsmikið. „Ég held það yrði nokkuð erfitt að velja svæðin, það er svo víða sem þetta getur gerst.“ Spurð út í fyrirbyggjandi aðgerðir stofnunarinnar segir Sigrún að þær Ljósmynd/Þorbjörn Gestsson Tillitsleysi Þorbjörn hefur einnig gengið fram á náttúruspjöll á svæðinu sem virðast vera eftir fjórhjól. Gekk fram á náttúru- spjöll við Sveifluháls - Vill myndavélaeftirlit við svæðið og kortlagningu Ljósmynd/Þorbjörn Gestsson Náttúruspjöll Þorbirni blöskraði á göngu sinni um Sveifluháls þegar hann sá umfangsmikil náttúruspjöll, líklega eftir ferðir manna á mótorhjólum. Fuglaflensuveirur af gerðinni H5 greindust í átta sýnum af fimmtán sem tekin voru úr villtum fuglum í síðustu viku og rannsökuð. Af þeim voru þrjú úr súlum sem fundust í Njarðvík og Grindavík, þrjú úr súlum á Búðum á Snæfellsnesi, eitt úr grá- gæs á Akureyri og eitt úr svartbak á Húsavík. Brigitte Brugger, sérgreinadýra- læknir alifugla hjá Matvælastofnun (MAST), segir að þessi tilfelli bendi til þess að flensan sé útbreidd um allt land og í mörgum fuglategundum. „Við erum í augnablikinu að vakta fuglaflensu bara í þeim tegundum sem verða veikir og drepast af veir- unni,“ segir hún og bætir við að fjöldi fuglategunda geti borið veiruna með sér án þess að tekið sé eftir því. Því séu þeir heilbrigðir smitberar. „Við þurfum því að hafa í huga að þetta getur verið í fleiri villtum fugl- um en við finnum. Þess vegna skiptir svo miklu máli að viðhafðar séu strangar smitvarnir alls staðar þar sem alifuglar eru, þar sem þetta snýst fyrst og fremst núna um að vernda þá.“ Birgitte segir að hingað til hafi ekki greinst smit á alifuglabúum en ef það gerist á búi þurfi að aflífa alla fuglana. Annars vegar vegna dýravelferðar, þar sem fuglarnir muni hvort sem er drepast, og hins vegar í varúðarskyni til að fyrirbyggja að smit breiðist út. Birgitte segir að MAST vinni nú náið með alþjóðlegum stofnunum. „Við fylgjumst með í hvaða fuglateg- undum þetta greinist á Norðurhveli,“ segir hún og bætir við að gögnin bendi nú til að smithætta hér á landi sé mögulega minni en í Evrópu. urdur@mbl.is Mjög erfitt að kort- leggja útbreiðslu fuglaflensunnar - Átta smit greindust í villtum fuglum - Stöðugar og strangar sóttvarnir Morgunblaðið/Eggert Alifugl Veiran hefur greinst í heim- ilishænum en ekki á stóru fuglabúi. Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Stjórn Eflingar boðaði seint í gær- kvöldi til félagsfundar á miðvikudag, að loknum fundi stjórnarinnar. Anna Sigurlína Tómasdóttir, trún- aðarmaður Eflingar hjá Kjörís, kveðst munu leggja til á fundinum að Sólveig Anna Jónsdóttir formaður fé- lagsins dragi til baka hópuppsögn sem gripið var til á skrifstofu þess fyrir skemmstu. Kveðst hún telja fáa betri en Sólveigu til þess að leiða kjaraviðræður en hópuppsögnin hafi komið félags- mönnum í opna skjöldu. Hún kveðst ekki vita til þess að lagt verði til að lýsa yfir van- trausti á Sólveigu. Anna er á meðal þeirra trúnaðar- manna sem skrif- uðu bréf til stjórn- ar Eflingar þar sem krafist var félagsfundar, í krafti 493 undirskrifta félagsmanna. „Þetta er mjög mikið hjartans mál fyrir svo marga. Ég er fylgjandi skipulagsbreytingum og breytingum á skrifstofu Eflingar en í þær hefði mátt fara með öðrum hætti,“ segir hún. Stjórn Eflingar fundaði í gærkvöldi eins og áður sagði, þar sem ákveðið var að halda félagsfund á miðvikudag. Agniezka Ewa Ziólkowska, varafor- maður Eflingar, skaut föstum skotum að Sólveigu þar sem hún hefði ekki fallist áður á að félagsfundurinn yrði haldinn þann 22. apríl. Anna telur skiljanlegt að stjórnin taki sér tíma til þess að boða fundinn, sem verður að vera haldinn samkvæmt lögum fé- lagsins. „Það er náttúrulega skylda stjórn- ar að halda félagsfund, óski fé- lagsmenn eftir slíku. Ég skil vel að þau þurfi svigrúm til þess að ákveða stað og stund. Fólki er heitt í hamsi og það verða örugglega margir sem mæta,“ segir Anna. En telur hún að félagsmönnum verði smalað á fund- inn? „Ég hef enga vitund um það. En hver og einn félagsmaður fer á fund á sínum forsendum, með sína hagsmuni að leiðarljósi.“ Lýsir ekki vantrausti á Sólveigu - Vilji til að krefjast þess að Sólveig dragi til baka hópuppsögn - Stjórnin fundaði í gær - Félagsfund- ur á næstu grösum eftir að trúnaðarmenn sendu erindi á stjórn þar sem 493 félagsmenn kröfðust fundar Anna Sigurlína Tómasdóttir Efling Aðgerðir Sólveigar hafa vak- ið ólgu á meðal félagsmanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.