Morgunblaðið - 25.04.2022, Side 9

Morgunblaðið - 25.04.2022, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2022 RAFHJÓL BREKKA? Ekkertmál. Þú klárar hana á rafhjóli frá okkur Faxafen 8 - www.orninn.is ME I R I H R E Y F I NG - ME I R I ÁNÆG JA Nýr kyrtill fyrir fjallkonu Skaga- fjarðar var vígður með formlegri athöfn í Menningarhúsinu Miðgarði sl. föstudag. Félagið Pilsaþytur í Skagafirði saumaði búninginn en við sama tækifæri var undirritaður samningur milli sveitarfélagsins og Pilsaþyts um afnot af kyrtlinum og varðveislu hans. Við athöfnina sungu Kvennakórinn Sóldís og Karlakórinn Heimir en Heba Guð- mundsdóttir brá sér í búninginn í gervi fjallkonunnar og flutti ljóðið Mælifellshnjúkur, eftir Jóhann Guð- mundsson í Stapa. Kyrtillinn verð- ur til sýnis í Safnahúsinu á Sauð- árkróki þegar smíði á sýningarskáp lýkur. Félagið Pilsaþytur í Skagafirði ar formlega stofnað í baðstofunni í Glaumbæ árið 2019 en níu ár eru liðin síðan hópur kvenna hittist reglulega í prjónakaffi að ræða um þjóðbúninga. Hafa konurnar m.a. mætt í þjóðbúningum sínum við setningu Sæluviku Skagfirðinga. Tilgangur Pilsaþyts er að efla notk- un þjóðbúninga og hvetja fólk til að nota þá. Félagskonur eru í dag 27 talsins. Pilsaþytur frumsýndi nýjan fjallkonubúning Morgunblaðið/Björn Björnsson Þjóðbúningur Nýi fjallkonubúningurinn frumsýndur en Heba Guðmundsdóttir brá sér í gervi fjallkonunnar. Á myndinni t.h. eru Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri og Ásta Ólöf Jónsdóttir, formaður Pilsaþyts í Skagafirði. Konan sem lög- reglan lýsti eftir fyrir helgina fannst látin sl. laugardagskvöld eftir umfangs- mikla leit lög- reglu, björgunar- sveita og að- standenda. Var þyrla Landhelgis- gæslunnar einnig kölluð til aðstoðar en á laugardegin- um var m.a. leitað við Krýsuvíkur- veg. Konan hét Svanhvít Harðardóttir, 37 ára og búsett í Hafnarfirði. Hún lætur eftir sig tvö börn. Í tilkynn- ingu lögreglu var tekið fram að ekki væri talið að andlát Svanhvítar hafi borið að með saknæmum hætti. Fannst látin eftir umfangsmikla leit Svanhvít Harðardóttir Stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson og Hjörvar Steinn Grét- arsson eru efstir og jafnir á Skák- þingi Íslands, Íslandsmótinu í skák, sem fram fer á Selfossi. Fjórða um- ferð fór fram í gær en efstu menn eru með þrjá vinninga. Hannes Hlífar vann seiglusigur í gær á Alexander Oliver Mai, að því er fram kemur á skak.is. Skiptust þeir á að vilja ekki vera skiptamun yfir og Hannes stóð höllum fæti áð- ur en hann sneri taflinu við í enda- tafli. Þar segir einnig að Hjörvar Steinn, ríkjandi Íslandsmeistari, hafi teflt flókna skák gegn Símoni Þórhallssyni og þurft mikið að hafa fyrir vinningnum. Vignir Vatnar Stefánsson vann sína fyrstu skák er hann lagði Þröst Þórhallsson að velli. Þrír stórmeistarar eru jafnir í 3.-5. sæti með 2,5 vinninga. Hannes Hlífar og Hjörvar Steinn efstir Ljósmynd/Skak.is Íslandsmót Hannes Hlífar og Hjörvar Steinn að tafli á Selfossi í gær. Ekið var á tíu ára dreng á reiðhjóli skömmu fyrir klukkan 15 í gær á höfuðborgar- svæðinu. Fram kemur í dagbók lögreglu að drengurinn hafi slasast á fæti, en annars ekki hlotið skaða af. Þá var maður handtekinn fyrir eignaspjöll í Grafarvogi skömmu fyrir klukkan 14 í gær, auk þess sem ökumaður var stöðvaður grun- aður um akstur undir áhrifum vímuefna. Ekið á dreng á hjóli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.