Morgunblaðið - 25.04.2022, Side 14

Morgunblaðið - 25.04.2022, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Árið 2014, eft- ir að Rúss- ar innlim- uðu Krímskagann, setti Evrópusam- bandið viðskipta- bann á Rússland og hefur hald- ið því síðan og bætt í nokkrum sinnum eftir innrás Rússlands í Úkraínu. Íslandi var boðið að taka þátt í viðskiptabanninu árið 2014 og ákvörðun um að segja já við því boði rann í gegn umræðulaust og án nokk- urrar gagnlegrar athugunar á banninu, hvort sem er þegar þátttakan var fyrst samþykkt eða síðar. Hvernig er hægt að fullyrða þetta? Jú, þær upplýsingar sem fram hafa komið um bann- ið frá árinu 2014 greina frá því að það hafi náð til einstaklinga og tiltekins hóps fyrirtækja, frystingu fjármuna, banns við ákveðnum þjónustuviðskiptum og vissum fjárfestingum, auk þess sem bannað var að flytja vopn og búnað fyrir olíuiðnað til Rússlands, svo nokkuð sé nefnt. Nú um helgina upplýsti breska dagblaðið The Tele- graph svo að þessu hefði ekki verið framfylgt, sem kemur út af fyrir sig ekki á óvart því að bannið virtist hafa verið hrip- lekt, eins og bent hefur verið á, en það kemur þó á óvart að ríki Evrópusambandsins, einkum Þýskaland og Frakkland, sem stóðu fyrir viðskiptabanninu, hafa selt mikið magn vopna- búnaðar til Rússlands allt frá því bannið var sett á. Og ekki nóg með að vopnin hafi verið sent til Rússlands fram að inn- rásinni í Úkraínu, vopnaút- flutningurinn hélt áfram til 8. apríl síðastliðins! Innrásin dugði sem sagt ekki til að Evrópusambands- ríkin lokuðu glufunum sem þau höfðu skilið eftir fyrir vopna- framleiðendur sína – og fjölda annarra auðvitað – það var ekki fyrr en þrýstingurinn frá Eystrasaltsríkjunum og öðrum Evrópusambandsríkjum í austurhluta Evrópu varð óbærilegur sem Þýskaland og Frakkland sáu að sér og hættu að senda vopnabúnað til Pút- íns. Hluta þessa búnaðar er líka hægt að nota í borgaralegum tilgangi og það er meðal þess sem vopnaframleiðendunum var leyft að nota til að lauma búnaðinum til Rússlands. En sprengjurnar og eldflaugarnar sem einnig voru sendar til Rússlands frá árinu 2014 til 8. apríl síðastliðins og gera má ráð fyrir að séu nú notaðar til voðaverka í Úkraínu verður seint hægt að réttlæta. Íslensk stjórn- völd hafa engar fullnægjandi skýr- ingar gefið á þátt- töku sinni í við- skiptabanninu á Rússland vegna innlimunar Krímskagans, hvernig það kom til eða hvernig það var hugsað. Hvert var markmiðið? Hvernig átti að ná því mark- miði? Hvað lögðu þjóðirnar af mörkum? Hvernig gættu aðrar þjóðir hagsmuna sinna? Hvernig gætti Ísland hags- muna sinna? Síðastnefndu spurningunni er auðsvarað en því er líka auð- svarað hvernig ríki Evrópu- sambandsins, einkum þau tvö stærstu, gættu hagsmuna sinna. Þau gættu þess vel að verða sjálf fyrir sem minnstum skakkaföllum vegna viðskipta- bannsins. Nú stendur heimurinn frammi fyrir skelfilegri innrás Rússlands í Úkraínu þar sem fjöldi almennra borgara hefur fallið, auk ungra hermanna beggja vegna víglínu sem ef- laust vildu flestir annars stað- ar vera, og borgir hafa verið jafnaðar við jörðu í brjálæðis- legum bardögum. Ekki verður fullyrt að það gatasigti sem kallað var viðskiptabann vegna Krímskagans hafi valdið inn- rásinni, en í því fólust hins veg- ar þau röngu skilaboð til Pút- íns að ríki Evrópusambandsins og þau sem elta athugasemda- laust meini ekki það sem þau segja. Sýndarmennskan sé allsráðandi og alvaran fjarri. Pútín fékk raunar fleiri slík skilaboð, til dæmis með hrak- smánarlegri brottför banda- ríska hersins frá Afganistan eftir fyrirmæli Bidens forseta, og niðurstaðan varð sú að Pút- ín taldi sig komast upp með ódæðið gagnvart Úkraínu. Og hann fær enn að halda opnum þeim viðskiptum sem skipta hann mestu, olíu- og gassöl- unni til ríkja ESB, sem skila honum um einum milljarði evra á dag. Hann hlýtur enn að efast um að ríkjum Evrópu- sambandsins sé full alvara. Vitaskuld réttlætir það ekki verk Pútíns en þessi atburða- rás kallar á skýringar á Vest- urlöndum. Það sem að okkur snýr í þeim efnum er hið göt- ótta viðskiptabann sem Ísland samþykkti að taka þátt í, ber- sýnilega án þess að kanna framkvæmdina, enda verður því ekki trúað að íslenskum stjórnvöld hafi verið kunnugt um það frá árinu 2014 til 8. apríl síðastliðins að ríki Evr- ópusambandsins væru að laumast við vopnasendingar til Rússlands. ESB seldi vopn til Rússlands allt til 8. apríl síðastliðins} Vopn til Rússa þrátt fyrir viðskiptabann Þ að hefur verið athyglisvert að fylgjast með viðbrögðum ráð- herra vegna harðrar gagnrýni á framkvæmd sölu á hlut almenn- ings í Íslandsbanka. Afstaða ráð- herra, allra nema innviðaráðherra sem ekki hefur náðst í síðustu vikur, hefur breyst frá degi til dags og er nú um það rætt að fram fari gaslýsing af áður óþekktri stærðargráðu af þeirra hálfu. Auðmjúk birtust þau Katrín og Bjarni eftir birtingu kaupendalista, sögðust vilja velta við hverjum steini, að salan yrði rannsökuð að forskrift fjármálaráðherra og að þangað til niðurstaða fengist yrði beðið með frekari aðgerðir. Á þriðjudegi eftir páska birtist frétta- tilkynning frá formönnum stjórnarflokkanna um að framkvæmd sölunnar hafi ekki staðið undir væntingum stjórnvalda og að ríkisstjórnin hafi ákveðið að leggja til við Alþingi að Bankasýsla ríkisins verði lögð niður. Verði frumvarp þess efnis lagt fram svo fjótt sem auðið er. Þá verði ekki ráðist í frekari sölu að sinni. Það var ekki ríkisstjórnin sem ákvað þetta enda hafði ekki verið haldinn ríkisstjórnarfundur í tvær vikur. Það er því beinlínis ósatt að ríkisstjórnin hafi ákveðið þetta. Þá er það líka ósatt að tekin hafi verið ákvörðun um að ráðast ekki í frekari sölu að sinni, enda hafði verið gefið út löngu áður að síðasti hluti sölunnar yrði árið 2023. Þá verðum við líka að hafa það á hreinu að armslengd- arsjónarmið á milli Bankasýslu ríkisins og ráðherra snýr að daglegum rekstri ríkisbankanna en alls ekki sölu þeirra, enda beinlínis skráð í sérlög um sölu á fjármálafyrirtækjum í eigu ríkisins hver aðkoma fjármálaráðherra er í hverju skrefi sölunnar fyrir sig. Þar er ekki um neina armslengd að ræða og það því einnig ósatt. Í viðtali í Sprengisandi í gær örlaði svo ekki á auðmýkt hjá fjármálaráðherra sem sagði þvert á móti að ríkisstjórnin hefði náð öllum markmiðum sínum með sölunni, sagði hann upplifun almennings vera að gera sér erfitt fyrir og spurði loks hvort pabba hans hefði verið bannað að kaupa, þegar bent var á að það þætti merki um spillingu. Forsætisráðherra vill að við vöndum okk- ur, hlaupum ekki til og drögum ályktanir um- fram þau gögn sem við höfum, en gera verður þá kröfu að gaslýsing sé ekki viðhöfð gagn- vart þeim sem gagnrýna þessa sölu. Þá hljótum við að gera þá kröfu að forsætisráðherra fari eftir skýru ákvæði 17. gr. stjórnarskrár um að haldinn sé rík- isstjórnarfundur um mikilvæg stjórnarmálefni, en Landsdómur dæmdi þáverandi forsætisráðherra, Geir H. Haarde, fyrir brot á einmitt þessu ákvæði í aðdrag- anda bankahrunsins 2008. Það er ekki hægt að komast undan þessari skyldu með því að segjast hafa haldið fund ef hann var ekki haldinn. Ríkisstjórn er ekki þrír ráð- herrar heldur ríkisstjórnin öll. Við hljótum að vera sam- mála um það. helgavala@althingi.is Helga Vala Helgadóttir Pistill Er upplifunin vandamálið? Höfundur er þingflokksformaður Samfylkingar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is B orgaryfirvöld í kínversku stórborginni Shanghaí greindu frá því að 39 hefðu látist þar af völdum kórónuveirunnar á laugardag. Er það mesti fjöldi andláta í fimm vik- ur, frá því að útgöngubann var sett á í borginni. Kínverjar hafa haldið sig við núll- stefnu í baráttunni við veiruna, ólíkt flestum öðrum löndum, með ströngu útgöngubanni. Sú leið virðist lítið ganga í baráttunni við Ómíkron- afbrigði veirunnar og er þolinmæði margra íbúa fyrir löngu á þrotum. Þúsundir smita hafa komið upp í Shanghaí undanfarnar vikur en fyrstu dauðsföllin voru ekki tilkynnt fyrr en 18. apríl. Alls hafa 87 ein- staklingar látist með Covid-19 síðan þá. Vestrænir sérfræðingar hafa lýst efasemdum með áreiðanleika Covid- tölfræðinnar í Kína, sér í lagi með tilkomu Ómikron-afbrigiðins og telja smit og andlát mun fleiri en op- inberar tölur segja til um. Matarskortur í borginni Margir upplifa nú matarskort í Shanghaí, vegna skerts aðgengis að mat og dæmi er um að fólk hafi greitt 400 júan, eða um átta þúsund íslenskar krónur, fyrir pakka af núðlum og eina gosflösku. Út- göngubannið þýðir að flestir þurfa að fá sendan mat og vatn með heim- sendingarþjónustu en ríkið útvegar þannig grænmeti, kjöt og egg. Þá er einnig skortur á heilbrigðisþjón- ustu. Yfirvöld hafa reynt að banna myndband sem hefur dreifst víða um samfélagsmiðla sem sýnir frá ástandinu í borginni. „Við höfum ekki borðað í marga daga,“ sagði einn viðmælandi í myndbandinu. „Þessi veira getur ekki drepið okk- ur. Hungursneyð getur þó gert það,“ sagði annar. Andóf gegn yf- irvöld er sjaldgæft í Kína en und- anfarna daga hafa íbúar Shanghaí lýst óánægju sinni á samfélags- miðlum. Reisa háar girðingar Borgaryfirvöld hafa reist tveggja metra háar girðingar fyrir utan íbúðarhús og sett viðvörunarkerfi á útidyr sýktra einstaklinga til þess að koma í veg fyrir að þeir yfirgefi heimili sín. Þeim sem búa á þessum heimilum, en eru ekki sýktir, er einnig bannað að yfirgefa heimilið. „Enginn sagði okkur ástæðuna fyrir því að girðingin var reist. Það kemst enginn út. Mér finnst ég vera hjálparlaus. Ég veit ekki hvenær út- göngubanninu mun ljúka,“ sagði íbúi í samtali við BBC. Þá benti hann á að fólk væri innikróað ef eld- ur brytist út. Íbúðarhús hafi einnig verið rýmd til þess að sótthreinsa rýmin. Allir sem greinast með veiruna, og þeir sem hafa verið í nánu samneyti við sýkta, þurfa að sæta einangrun í húsnæði borgaryfirvalda. Um 100 slík húsnæði má finna í borginni. Í hverju og einu má finna um 50 þús- und rúm. Hægt á hagvexti Shanghaí er þéttbýlasta borg Kína en 25 milljón manns búa þar. Borgin gegnir mikilvægu hlutverki í viðskipta- og efnhagslífi landsins. Vegna útgöngubannsins hefur mikið hægst á hagkerfinu. Verg lands- framleiðsla í borginni óx um 3,1% á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Sem er umtalsvert minna en 4,8% vöxt- urinn á landsvísu. Á síðasta ári óx landsframleiðslan í Shanghaí um 8,1% á sama tíma. Þolinmæði íbúa Shanghaí á þrotum AFP Kína Óttast er að útbreiðsla kórónuveirunnar sé að aukast í ríkinu. Hópur sérfræðinga á vegum Al- þjóðaheilbrigðsmálastofnunar- innar (WHO) telur að um síðustu áramót hafi tala þeirra sem lát- ist hafa með Covid-19 verið kom- in í 15 milljónir. Það eru rúmlega helmingi fleiri dauðsföll en kem- ur fram á vef Johns Hopkins- háskólans. Skýrsla hópsins hefur þó ekki verið birt vegna þess að Indverjar neita að gefa upp dán- artölurnar. Narendra Modi, for- sætisráðherra Indlands, heldur því fram að 520 þúsund manns hafi orðið veirunni að bráð. Sér- fræðingar WHO reikna út að rúmar 4 milljónir hafi látist með sjúkdóminn þar í landi. Helmingi fleiri dauðsföll Á HEIMSVÍSU AFP Covid-19 Óvíst er hversu margir hafa látist af völdum veirunnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.