Morgunblaðið - 25.04.2022, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.04.2022, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2022 40 ÁRA Hrafn ólst upp í Kópavogi og Dan- mörku en býr í Mosfellsbæ. Hann er stjórn- málafræðingur frá HÍ og með MBA frá Við- skiptaháskólanum í Kaupmannahöfn. Hrafn er vörustjóri hjá Controlant. „Við framleiðum mælitæki og vöktum hitastig matvæla og lyfja í rauntíma,“ en Controlant þjónustar m.a. Pfi- zer og hefur verið í veldisvexti undanfarin ár. „Ég kláraði öll félagsstörfin þegar ég var 15-30 ára,“ segir Hrafn aðspurður. „Við vor- um að byggja hús og núna er ég að lifa draum úthverfapabbans og hjóla þegar ég hef tíma til, bæði á götuhjóli og fjallahjóli.“ FJÖLSKYLDA Sambýliskona Hrafns er Rakel Sveinsdóttir, f. 1984, rekstr- arstjóri hjá Avis bílaleigu. Börn þeirra eru Bjarki, f. 2013, og Vera, f. 2017. Foreldrar Hrafns eru Árný Inga Pálsdóttir, f. 1956, skólastjóri í Borgaskóla, og Stefán Guðmundsson, f. 1956, bóndi í Ásaskóla í Skeiða- og Gnúpverja- hreppi. Hrafn Stefánsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Það færi best á því að þú sýndir hlutleysi í deilu vina þinna. Í kvöld væri upplagt að gera sér glaðan dag í góðra vina hópi. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú gerir þér grein fyrir því að samband þitt við einhvern þarf að breyt- ast. Skoðanir þínar taka nýja stefnu. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú verður að taka að þér stjórnina á ákveðnu verkefni, því annars verður það aldrei til lykta leitt. Styrkur þinn mun leiða þig áfram og ryðja öllum hindrunum úr vegi. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Ástvinir þarfnast aðstoðar til þess að yfirvinna neikvæðni. Hreyfingin er holl og samvistin við náttúruna gef- andi og græðandi. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Einhver sem stærir sig af mætti sínum, efast um hann innst inni. Taktu upp hanskann fyrir vin sem á erfitt. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú nýtur þess að versla núna, ekki síst þess að kaupa eitthvað handa þér. Gerðu gott úr því sem fyrir er. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þótt þér séu allir vegir færir þarft þú eins og aðrir að fá hrós og uppörvun af og til. Settu markið nógu hátt. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Stundum eru það aðeins smáatriði sem standa í veginum fyrir því að árangur náist. Tilfinningar þínar eiga það til að gjósa upp þegar síst skyldi. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú þarft á hvíld að halda. Láttu alla hlutaðeigandi í vissu verkefni koma með hugmyndir og finndu svo lausn sem allir geta sætt sig við. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú skynjar að eitthvað hefur komið upp á milli þín og góðs vinar. Hættu að gera lítið úr sjálfum/sjálfri þér. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú kemst ekki hjá því að hagræða í lífi þínu á næstunni. Minntu aðra á þig og þína hæfileika. Þú stenst prófraun sem einhver leggur fyrir þig. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú ert í aðstöðu til að dæma, en ekki gera það. Hlustaðu á fólk með opn- um huga. Öll óveðursský sem höfðu hrannast upp hverfa og þú lítur tilveruna björtum augum. bankanum og hóf störf hjá Lands- bankanum í desember árið 2003 og vann þar sem aðstoðarmaður banka- stjóra, sérfræðingur og deildarstjóri og forstöðumaður á einstaklingssviði þar til hún varð útibússtjóri í útibúi Landsbankans í Hamraborg í maí 2018. „Þessi ár sem ég hef unnið í banka- geiranum hafa verið mjög lærdóms- rík en gífurlegar breytingar hafa orð- ið á bankaþjónustu á þessum tíma. Ég hef gegnt stjórnunarstöðu í um 15 ár og kröfur til stjórnenda hafa einnig breyst mikið samhliða og hafa undan- farin ár snúist að mestu leyti um breytingastjórnun og að leiða sam- starfsmenn í gegnum breytingar. Þrátt fyrir að stjórnunarstarfið hafi og ég væri þá ekki að eyða óþarfa tíma ef ég skyldi svo uppgötva að áhuginn lægi annars staðar. Við keyptum okkar fyrstu íbúð í Grafar- voginum á 6,7 milljónir þegar ég byrj- aði í Tækniskólanum, en íbúðaverð hefur víst hækkað örlítið síðan þá.“ Í 25 ár í fjármálageiranum „Ég útskrifaðist sem iðnrekstrar- fræðingur af framleiðslusviði í janúar 1996, þá ólétt af fyrra barninu okkar. Ég byrjaði svo í Búnaðarbankanum árið 1997 sem sérfræðingur þegar fæðingarorlofinu lauk og hef síðan þá alltaf unnið í fjármálageiranum og á einmitt 25 ára starfsafmæli á þessu ári.“ Sigrún hætti störfum í Búnaðar- S igrún Sæmundsdóttir er fædd 25. apríl 1972 á Höfn í Hornafirði og ólst þar upp. „Ég fæddist í Brautarholti, heima hjá ömmu og afa, en við bjuggum þar fyrstu mánuðina þar til við fluttum á Norðurbrautina þar sem ég bjó þar til ég flutti að heiman. Pabbi hafði að mestu byggt húsið sjálfur og þá var ekkert verið að stressa sig á máln- ingu, gólfefnum eða hurðum. Þetta kom allt með kalda vatninu og eftir því sem efni leyfðu. Það var frábært að alast upp á Höfn, í litlu samfélagi þar sem allir þekktu alla. Frelsið var algert og allt í göngufæri. Ég á góðar minningar frá sumrunum þar sem krakkarnir hóp- uðust út í ýmsa leiki, svo sem eina krónu, brennó og skotbolta. Þá var leikið úti frá morgni til kvölds en eng- ar leikjatölvur voru að trufla og ekk- ert sjónvarp var á fimmtudögum.“ Á sumrin var Sigrún í unglinga- vinnunni og svo á humarvertíð hjá frystihúsi Kaupfélags Austur-Skaft- fellinga (KASK) á fermingarárinu. „Ég vann svo eftir það lengst af hjá KASK á Vesturbrautinni og leysti þar verslunarstjórann af á sumrin sem var fyrsta reynslan mín af stjórnunarstörfum. Ég var aldrei brjálaður djammari en það var mikið í boði fyrir ungt fólk á þessum árum og sveitaböllin í Sindrabæ og Lóns- ball í Lóninu eru sérstaklega minnis- stæð. Ég og Bjössi, maðurinn minn, kynntumst einmitt á balli í Sindrabæ þegar ég var 15 að verða 16 og höfum verið saman síðan eða í um 34 ár og gift í 27.“ Sigrún gekk í Grunnskóla Horna- fjarðar, tók unglingastigið í Heppu- skóla, gagnfræðaskólanum á Höfn, og fór svo um haustið til Reykjavíkur í Menntaskólann við Sund og útskrif- aðist þaðan af stærðfræði/eðlisfræði- braut vorið 1992. „Ég átti mjög erfitt með að ákveða hvað ég vildi verða þegar ég yrði stór en ég taldi að við- skiptatengt nám myndi henta mér. Ég hef alltaf verið frekar praktísk og ákvað því að fara frekar í iðnrekstrar- fræðina í Tækniskólanum en í Há- skólann og var það aðallega þar sem námið var bara tvö ár í stað fjögurra oft verið krefjandi þá veit ég ekkert skemmtilegra en að styðja frábært fólk í að vaxa og dafna í starfi svo ég virðist hafa fundið mína hillu í lífinu sem stjórnandi.“ Sigrún útskrifaðist frá Háskólanum í Reykjavík vorið 2006 með BS-próf í viðskiptafræðum og sem markþjálfi með áherslu á stjórnendamarkþjálfun frá HR 2017. „Ég stunda nú meist- aranám við Háskólann á Bifröst í for- ystu og stjórnun, stefni að útskrift í febrúar 2023 og er þá hætt í bili. Mér líður langbest þegar ég er með marga bolta á lofti og þegar það er mikið að gera en boltarnir virðast þó stundum verða of margir af einhverri ástæðu. Ég hef fengið nokkrar ábend- ingar, svo sem frá mínum nánustu, um að ég gæti verið með ADHD en ég held að það sé bara vitleysa. Ég myndi segja að ég væri mjög skipulögð sem hjálpar til þegar margt er í gangi og tímastjórnunin þarf að vera í lagi. Minn helsti galli er mikil fullkomn- unarárátta sem ég hef þó náð að dempa aðeins með árunum. Þegar ég hef gengið aðeins of mikið á orku- birgðirnar veit ég ekkert betra en að henda mér upp í sófa og horfa á góða mynd eða þátt, já og borða fullt af nammi, en ég hef alltaf verið mikill nammigrís. Ég er mikil fjölskyldumanneskja og það eina sem er betra en að vera mamma er að vera amma. Ég hef allt- af haft mikinn áhuga á innanhúss- hönnun og veit ekkert skemmtilegra Sigrún Sæmundsdóttir, útibússtjóri í Landsbankanum í Hamraborg – 50 ára Fjölskyldan Sigrún, Anna Lilja, Sigurður Gylfi og Björn. Líður best með marga bolta á lofti Bankalífið Sigrún hefur verið útibússtjóri í Hamraborg frá 2018. Amman Sigrún og Melkorka Blær. Til hamingju með daginn Grenivík Eldey Amelía Jónsdóttir fæddist 5. september 2021 kl. 0.28. Hún vó 3.660 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Steinunn Laufey Kristjánsdóttir og Jón Kjartansson. Nýr borgari Góð heyrn glæðir samskipti Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Pantaðu tíma í HEYRNAR GREININGU Nánari upplýsingar í síma 534 9600 eða á heyrn.is Allar helstu rekstrarvörur og aukahlutir fyrir heyrnartæki fást í vefverslun heyrn.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.