Morgunblaðið - 25.04.2022, Side 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2022
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Boccia með Guðmundi
kl. 10. Handavinna kl. 12.30-16. Félagsvist kl. 12:45. Glervinnustofa kl.
13 - 16. Hjólað á æfingahjóli fyrir framan skjá um borg og bý kl. 14.
Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Heitt á könnunni. Kaffisala kl. 14.45-
15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600.
Boðinn Leikfimi Qi Gong kl. 10:30. Félagsvist kl. 13:00. Myndlist kl.
13:00. Sundlaugin er opin frá kl. 13:30-16:00.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7:00-8:00. Kaffisopi og
spjall kl. 8:30-11:00. Postulínsmálun kl. 9:00-12:00. Morgunleikfimi
með Halldóru á RUV kl. 9:45-10:00. Ganga kl. 10:00. Hádegismatur kl.
11:30-12:30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 13:00-13:10. Félagsvist kl. 13.
Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30.
Garðabær 9.00 Pool-hópur í Jónshúsi 10.00. Gönguhópur frá
Jónshúsi 11.00. Stóla-jóga í Kirkjuhvoli 12.30-15.40. Bridds í Jónshúsi
12.40 Bónusrúta frá Jónshúsi 13.00. Gönguhópur frá Smiðju 13.00
Glernámskeið í Smiðju 15.00/15.40/16.20. Vatnsleikfimi í Sjál. 16.30
Zumba Gold í Kirkjuhvoli
Gjábakki Kl. 8.30 til 11.30 - opin handavinnustofa Kl. 9 til 10.30 -
Bocciaæfing. Kl. 9 til 11.30 - postulínsmálun. Kl. 10.50 til ca 12.15 -
Jóga. Kl. 13 til 16 - opin handavinnustofa og verkstæði. Kl. 13.15 til
15.00 - Canasta. Kl. 16.30 til 18.30 - kóræfing hjá Söngvinum.
Grafarvogskirkja Þriðjudaginn 26. apríl verður opið hús fyrir eldri
borgara í Grafarvogskirkju. Opna húsið er kl. 13:00-15:00. Margt er til
gamans gert s.s. spilað, spjallað og sungið. Að opna húsinu loknu er
boðið uppá kaffi og meðlæti. Umsjón hefur Sigrún Eggertsdóttir.
Kyrrðarstund hefst kl. 12:00. Að kyrrðarstundinni lokinni er boðið
uppá léttan hádegisverð gegn vægu gjaldi. Verið öll velkomin!
Gullsmári 13 Opin handavinnustofa kl.09:00-16:00. Qigong heilsuef-
landi æfingar kl.09:00. Bridge kl.13:00. Jóga kl.17:00.
Félagsvist kl.20:00.
Hraunsel Billjard kl. 8-16. Myndlistarklúbbur kl. 9:00. Stóla yoga kl.
10. Félagsvist kl. 13:00. Gaflarakórinn: Kl. 11:00.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Minning-
ahópur kl. 10:30. Jóga með Ragnheiði Ýr kl. 12:20.Tálgun – opinn
hópur kl. 13:00-16:00. Bridge kl.13:00. Zumba með Carynu kl. 13:10.
Hádegismatur kl. 11:30 – 12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður.
Korpúlfar Borgum Hugleiðsla og létt yoga kl. 8:30. Gönguhópar frá
Borgum, Grafarvogskirkju og inni í Egilshöll.Tveir styrkleikaflokkar
svo að allir finna göngu við sitt hæfi kl. 10:00. Félagsvist í Borgum kl.
12:30. Prjónað til góðs kl.13:00.Tréútskurður á Korpúlfsstöðum
kl.13:00. Línudans kl. 15:00. Kóræfing Korpusystkina kl.16:00.
Gleðin býr í Borgum.
Seltjarnarnes Kaffikrókur alla morgna á Skólabraut frá kl. 9.00. Leir
á Skólabraut kl. 9.00. Billjard Selinu kl. 10.00. Jóga/leikfimi í salnum á
Skólabraut kl. 11.00. Handavinna, sammvera og kaffi í salnum á
Skólabraut kl. 13.00. Gler á neðri hæð félagsheimilisins kl. 13.00.
Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30.
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
RollUp&
BannerUp
Prentun
Plöstun
Húsviðhald
Húsa-
viðgerðir
www.husco.is
alltaf
allstaðar
mbl.is
✝
Inga Eiríks-
dóttir fæddist í
Reykjavík 2. ágúst
1936. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurlands á Sel-
fossi 12. apríl 2022.
Foreldrar hennar
voru Jónína Guð-
mundsdóttir f. 27.
september 1910, d.
13. júní 1999, og Ei-
ríkur Bjarnason, f.
22. febrúar 1907, d. 2. febrúar
1998. Systkini Ingu eru Áslaug
Eiríksdóttir, f. 1942, maki Krist-
ján Jónsson; Guðmundur Helgi
Eiríksson, f. 1946, maki Guðfinna
Ólafsdóttir. Eiginmaður Ingu var
Sigurður Ómar Þorkelsson, f.
1937, en hann lést árið 1986 og
bjuggu þau lengst af í Garðabæ.
hans er Sædís Kristjánsdóttir og
börn þeirra eru: Arnór Darri, f.
2010, Sölvi Freyr, f. 2013, Eydís,
f. 2015; Anna Rut Tryggvadóttir,
f. 1989, sambýlismaður hennar er
Sigurður Eyberg Guðlaugsson og
börn þeirra eru: Tryggvi Eyberg,
f. 2013, Erik Eyberg, f. 2020.
Inga bjó á Selfossi uppvaxtar-
ár sín en flutti átján ára gömul til
Reykjavíkur. Hún starfaði um
nokkurt skeið í apóteki og gerð-
ist síðan flugfreyja hjá Loftleið-
um 1962 og síðar
Flugleiðum/Icelandair þar til
hún lét af störfum 2003 fyrir ald-
urssakir. Inga undi hag sínum vel
í Garðabæ og átti þar fallegt
heimili og ræktaði upp fallegan
garð. Hún var mikil hannyrða-
kona. Hún naut þess að ferðast
og urðu sólrík lönd og stórborgir
yfirleitt fyrir valinu.
Útför Ingu fer fram frá Sel-
fosskirkju í dag, 25. apríl 2022,
kl. 13.30.
Sambýlismaður
Ingu frá 1988 er
Kristján Jóhann-
esson, f. 1931. Dóttir
Ingu og Sigurðar
Ómars er Bertha
Sigurðardóttir, f.
1956, eiginmaður
hennar er Tryggvi
Karl Magnússon, f.
1949. Börn þeirra
eru: Þórir Tryggva-
son, f. 1974, sam-
býliskona hans er Kristbjörg Sig-
tryggsdóttir. Börn Þóris og
Aðalbjargar Kristinsdóttur eru:
Aron Karl, f. 1998, Birgitta
Mekkín, f. 2001, Dagbjört Inga, f.
2007, dóttir Þóris og Krist-
bjargar Sigtryggsdóttur er Mel-
korka Silfá, f. 2020; Ómar Ingi
Tryggvason, f. 1980, eiginkona
Mamma mín.
Ertu horfin? Ertu dáin!
Er nú lokuð glaða bráin?
Angurs horfi ég út í bláinn,
autt er rúm og stofan þín,
elskulega mamma mín.
Gesturinn með grimma ljáinn
glöggt hefur unnið verkin sín.
Ég hef þinni leiðsögn lotið,
líka þinnar ástar notið,
finn, hve allt er beiskt og brotið,
burt er víkur aðstoð þín,
elsku góða mamma mín. -
Allt sem gott ég hefi hlotið,
hefir eflst við ráðin þín.
Þó skal ekki víla og vola,
veröld þótt oss brjóti í mola,
starfa, hjálpa, þjóna, þola,
það var alltaf hugsun þín,
elsku góða mamma mín. -
Og úr rústum kaldra kola
kveiktirðu skærust blysin þín.
Flýg ég heim úr fjarlægðinni,
fylgi þér í hinsta sinni,
krýp með þökk að kistu þinni,
kyssi í anda sporin þín,
elsku góða mamma mín. -
Okkur seinna í eilífðinni
eilíft ljós frá guði skín.
(Árni Helgason)
Þín dóttir
Bertha.
Það er komið að kveðjustund,
amma í Garðó, eins og við köll-
uðum hana alltaf, hefur haldið í
sitt hinsta ferðlag. Hún elskaði
að ferðast, enda sést það best í
því að hún réð sig sem flug-
freyju hjá Loftleiðum 1962 og
síðar Flugleiðum og svo Ice-
landair, allt þar til hún lét af
störfum fyrir aldurs sakir 2003.
Það kom sér oft vel fyrir gutta
eins og mig, að eiga ömmu sem
var á flandri um erlendar
grundir og báru afmælis- og
jólagjafir þess oftast merki.
Pakkarnir frá henni voru ávallt
opnaðir síðast, því þeir þurftu
yfirleitt meiri tíma og voru
mjög spennandi. Samt þótti það
agalegt þegar komu föt upp úr
hörðum pökkum, en alltaf var
þó um fyrsta flokks fatnað að
ræða beint frá Ameríku. Hún
var hrókur alls fagnaðar þegar
fólk kom saman og naut hún
þess að elda og borða góðan
mat. Ekki spillti fyrir að hafa
einn G&T í fordrykk og svo var
spjallað fram eftir, hún alltaf í
sviðsljósinu, enda stórglæsileg
kona sem kunni margar sögur
úr bransanum. Hennar fyrrum
samstarfsfólki hefur fækkað
hratt síðustu ár, þar sem elli
kerling hefur bankað víða. Það
er hætt við að margar sögurnar
hafi farið forgörðum, en þó
fékkst amma til að segja frá
einu og einu brasi sem flugfólk-
ið tókst á við erlendis. Amma og
afi byggðu sér fallegt heimili á
Móaflöt 22 árið 1973, þar áttu
þau góðan tíma saman og var afi
duglegur við að tæknivæða
heimilið, stundum við lítinn
skilning ömmu. Glæsilegt heim-
ilið vakti jafnan undrun og að-
dáun gesta sem þangað komu.
Þegar afi lést 1986 komu fleiri
áföll í kjölfarið sem amma losn-
aði aldrei frá. Það varð henni þó
til heilla þegar leiðir hennar og
Kristjáns lágu saman og áttu
þau góð ár saman. Þau fluttu
svo á endanum á Selfoss þar
sem þau nutu síðustu áranna
sinna saman. Það var ávallt gott
að koma til ömmu, alltaf varð til
gott spjall um lífið og tilveruna.
Hún var kannski ekki sú dug-
legasta í að hafa samband en þó
fylgdist hún vel með börnum og
barnabörnum. Við áttum samt
eftir að ræða svo margt, sem
heilsubrestir hennar komu í veg
fyrir að við næðum að klára.
Einnig vorum við alltaf á leið-
inni í flugtúr saman, sem verður
nú ekki úr þessu hér á jörð en
kannski náum við því á nýjum
áfangastað síðar.
Þakklæti er mér efst í huga á
þessum tímapunkti. Þakklæti
fyrir að hafa fengið að kynnast
þessari konu. Konu sem tókst á
við lífið af æðruleysi og fór sín-
ar eigin leiðir. Síðustu mánuðir
hafa verið erfiðir þar sem heils-
an hennar varð sífellt lélegri.
Amma vissi alveg í hvað stefndi
þó það væri lítið rætt en hún
varði síðustu mánuðunum á
Hsu á Selfossi og naut þar
góðrar umönnunar. Við sjáumst
síðar amma mín. Hafðu þökk
fyrir samveruna.
Þórir Tryggvason.
Elsku amma.
Við kveðjustund koma ósjálf-
rátt upp í hugann allar þær
góðu og dýrmætu minningar
sem við, barnabörnin þín erum
svo lánsöm að eiga. Minningar
um glæsilega konu sem naut
lífsins svo sannarlega í botn á
meðan heilsan leyfði og vissi
fátt skemmtilegra en að
ferðast, hvort sem það var í
starfi eða frítíma. Það var alltaf
svo notalegt að koma í heim-
sókn til þín, hvort sem það var á
Móaflötina, blokkina á Selfossi
eða í sumarbústaðinn á Flúðum
og allar þær dýrmætu minning-
ar sem við eigum þaðan munum
við varðveita og ylja okkur við
um ókomna tíð. Að þú hafir haft
tækifæri til að dvelja síðustu
árin á Selfossi var ómetanlegt,
nærri stórfjölskyldunni í hlýj-
um faðmi.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífs þíns nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði nú sorg mitt og hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfin úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Þín verður sárt saknað elsku
amma, takk fyrir allt.
Ómar Ingi og Anna Rut.
Inga Eiríksdóttir
✝
Pálmi Guð-
mundsson
fæddist á Patreks-
firði 12. ágúst 1929.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun Suð-
urnesja 6. apríl
2022.
Foreldrar hans
voru Ingibjörg Guð-
rún Magnúsdóttir,
f. 5.5. 1887, d. 29.5.
1966, og Guð-
mundur Sumarliði Guðmunds-
son, f. 13.4. 1890, d. 24.7. 1977.
Pálmi var yngstur átta systk-
ina sem öll eru látin: Sigurást
18.7. 1932, síðasta vetrardag
1951.
Eftir eitt ár í Reykjavík og
fjögur ár á Bergi við Keflavík
fluttu þau á Hringbraut 52 í
Keflavík þar sem þau bjuggu eft-
ir það.
Börn Pálma og Jófríðar eru:
Ingibjörg, f. 21.6. 1952, maki
Axel Gísli Sigurbjörnsson, þau
eiga 3 börn og 8 barnabörn. Jón
Ágúst, f. 21.12. 1954, hann á tvö
börn, sex barnabörn og eitt
barnabarnabarn. Guðmundur, f.
9.10. 1957, hann á tvö börn og
þrjú barnabörn. Kristinn Már, f.
2.4. 1967, maki Ólöf Thoroddsen,
þau eiga fimm börn. Sigurður Óli
Pálmason, f. 25.9. 1970, maki
Laura Rasmussen, þau eiga fjög-
ur börn.
Pálmi verður jarðsettur frá
Keflavíkurkirkju í dag, 25. apríl
2022, og hefst athöfnin kl. 13.
Magnea, f. 9.7.
1914, d. 13.2. 1928;
Ingibjörg, f. 25.12.
1915, d. 10.3. 1972;
Kristinn, f. 21.1.
1917, d. 30.11. 1963;
Guðmundur Óli, f.
24.8. 1918, d. 29.5.
1969; Sigríður Pál-
ína, f. 6.7. 1920, d.
8.12. 1979; Sig-
urður, f. 26.6. 1924,
d. 31.12. 1968 og
Magnús, f. 9.6. 1928, d. 30.8.
2004.
Pálmi kvæntist Jófríði Jónu
Jónsdóttur frá Reykjanesi, f.
Pálma Guðmundsson leit ég
fyrst augum þegar hann var að
aðstoða son sinn Guðmund við
að bora fyrir nöglum í þakjárnið
á svokölluðu Siglufjarðarhúsi
sem var einingahús sem hinn
áræðni sonur var að reisa.
Greinilegt var að vel fór á með
þeim feðgum og að þar voru á
ferðinni laghentir menn. Nokkru
seinna upplifði ég eftirminnilega
fjölskyldumáltíð á Hringbraut-
inni þar sem fjölskyldufaðirinn
töfraði fram gómsæta rétti
ásamt eiginkonu sinni. Var það í
fyrsta sinn sem ég sá fjölskyldu-
föður í þessu hlutverki og fannst
mér afar skemmtilegt að sjá hve
vel hann undi sér innan um hóp-
inn sinn. Hef ég reynt að taka
hann mér til fyrirmyndar að
þessu leyti sem og mörgu öðru.
Aldrei hef ég samt náð viðlíka
leikni t.d. í sósugerð og fyr-
irmyndin enda þar við ramman
reip að draga.
Rétt rúmlega tvítugur var
Pálmi Guðmundsson kominn
með menntun sem fáir samtíma-
manna hans höfðu náð að
krækja sér í. Aðstæður höguðu
því þannig til á Patró að hann
sat uppi með mikilvæga reynslu
bæði sem bakari og kokkur af
því vinnuveitendur hans í þess-
um greinum tóku óvænta dýfu í
lífsins ólgusjó sem varð til þess
að reksturinn lenti á ungum
herðum sem stóðu undir hinni
óvæntu ábyrgð. Margar
skemmtilegar sögur bæði af
sjónum og úr landi mun ég varð-
veita um tengdapabba minn til
áratuga sem einmitt tengdust
störfum úr áðurnefndum starfs-
greinum.
Þegar kveðjustundin nálgað-
ist þá streymdu ástvinirnir að
og þegar ég leit yfir stóra hóp-
inn þá stafaði hlýju frá hverjum
einasta manni. Hlýja er nokkuð
sem ég mun alltaf tengja við
tengdapabba minn og reyna eft-
ir fremsta megni að hafa hann
sem fyrirmynd. Varla er hægt
að hugsa sér neitt merkilegra til
að skilja eftir sig en fjölskyldu
með slíka útgeislun.
Leiðir skilur að sinni en leiðir
okkar eiga oft eftir að skarast á
ný þegar upp rifjast eftirminni-
legar sögur úr lífshlaupi fyrir-
myndarmanns sem á margan
hátt var langt á undan sinni
samtíð.
Axel Gísli Sigurbjörnsson.
Pálmi
Guðmundsson
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr
minningargreinum til birt-
ingar í öðrum miðlum nema
að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi lið-
ur, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr felliglugg-
anum. Einnig er hægt að slá
inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu
ekki lengri en 3.000 slög. Ekki
er unnt að senda lengri grein.
Lengri greinar eru eingöngu
birtar á vefnum. Hægt er að
senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar
koma fram upplýsingar um
hvar og hvenær sá sem fjallað
er um fæddist, hvar og hvenær
hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram.
Þar mega einnig koma fram
upplýsingar um foreldra, systk-
ini, maka og börn. Ætlast er til
að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður,
en ekki í minningargreinunum.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Minningargreinar