Morgunblaðið - 25.04.2022, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2022
ÍBV – KA 0:3
0:1 Sveinn Margeir Hauksson 45.
0:2 Nökkvi Þeyr Þórisson 72.
0:3 Hallgrímur Mar Steingrímsson 78.
M
Felix Örn Friðriksson (ÍBV)
Sveinn Margeir Hauksson (KA)
Nökkvi Þeyr Þórisson (KA)
Daníel Hafsteinsson (KA)
Ívar Örn Árnason (KA)
Oleksiy Bykov (KA)
Bryan Van Den Bogaert (KA)
Elfar Árni Aðalsteinsson (KA)
Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 6.
Áhorfendur: 522.
STJARNAN – LEIKNIR R. 0:3
0:1 Jóhann Árni Gunnarsson 3.(v)
0:2 Adolf Daði Birgisson 22.
0:3 Emil Atlason 69.
M
Daníel Finns Matthíasson (Leikni)
Óli Valur Ómarsson (Stjörnunni)
Björn Berg Bryde (Stjörnunni)
Adolf Daði Birgisson (Stjörnunni)
Emil Atlason (Stjörnunni)
Ísak Andri Sigurgeirsson (Stjörnunni)
Rautt spjald: Emil Berger (Leikni) 63.
Dómari: Vilhjálmur A. Þórarinsson – 8.
Áhorfendur: 734.
ÍA – VÍKINGUR R. 3:0
1:0 Gísli Laxdal Unnarsson 36.
2:0 Sjálfsmark 43.
3:0 Aron Bjarki Jósepsson 56.
M
Aron Bjarki Jósepsson (ÍA)
Hlynur Sævar Jónsson (ÍA)
Oliver Stefánsson (ÍA)
Christian Köhler (ÍA)
Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)
Kaj Leo i Bartalsstovu (ÍA)
Oliver Ekroth (Víkingi)
Erlingur Agnarsson (Víkingi)
Júlíus Magnússon (Víkingi)
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson – 7.
Áhorfendur: 1.147.
KEFLAVÍK – VALUR 0:1
0:1 Birkir Már Sævarsson 41.
MM
Rúnar Þór Sigurgeirsson (Keflavík)
M
Ásgeir Páll Magnússon (Keflavík)
Sindri Þór Guðmundsson (Keflavík)
Dani Hatakka (Keflavík)
Hólmar Örn Eyjólfsson (Val)
Birkir Már Sævarsson (Val)
Patrick Pedersen (Val)
Jesper Juelsgård (Val)
Dómari: Sigurður H. Þrastarson – 7.
Áhorfendur: 504.
BESTA DEILDIN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Skagamenn slógu heldur betur í
gegn í gærkvöld þegar þeir léku Ís-
lands- og bikarmeistara Víkings
grátt í annarri umferð Íslandsmóts-
ins á Akranesi. Óhætt er að segja að
þeir gulu og glöðu hafi kvittað fyrir
3:0 ósigurinn gegn Víkingum í bik-
arúrslitaleiknum síðasta haust því
þeir lögðu þá að velli með nákvæm-
lega sömu markatölu, 3:0.
Sú stemning sem var með Skaga-
mönnum á lokaspretti mótsins í
fyrra, þegar þeir björguðu sér frá
falli á ótrúlegan hátt, hefur heldur
betur lifað veturinn af. Þeir fengu
magnaðan stuðning áhorfenda í
slagnum við Íslandsmeistarana og
ljóst er að stuðningsfólk ÍA á eftir að
setja svip sinn á þetta Íslandsmót
með svona áframhaldi.
_ Gísli Laxdal Unnarsson kom ÍA
yfir gegn Víkingi og hefur skorað í
tveimur fyrstu umferðum Íslands-
mótsins.
_ Sjálfsmark Ingvars Jónssonar
markvarðar Víkings sem kom ÍA í
2:0 var 1.800. mark Skagamanna í
efstu deildinni frá upphafi.
_ Aron Bjarki Jósepsson, mið-
vörðurinn reyndi sem Skagamenn
fengu frá KR í vetur, skoraði sitt
fyrsta mark fyrir félagið og innsigl-
aði sigurinn.
KA og Steinþór halda hreinu
KA er í efsta sætinu eftir leiki
gærdagsins og með 3:0 sigri á nýlið-
um ÍBV í Vestmannaeyjum heldur
Akureyrarliðið áfram marki sínu
hreinu. Eina liðið sem gerði það í
fyrri umferðinni og Steinþór Már
Auðunsson heldur uppteknum
hætti. Hann hefur nú haldið marki
KA hreinu í tíu af fyrstu 24 leikjum
sínum í efstu deild en þar þreytti
hann frumraun sína á „gamals aldri“
í fyrravor.
Eyjamenn eru stigalausir eftir
tvær fyrstu umferðirnar og áttu
mun minna í þessum leik en í frum-
rauninni gegn Val í fyrstu umferð-
inni.
_ Sveinn Margeir Hauksson, sem
skoraði fyrsta mark KA, kom inn í
lið KA í stað fyrirliðans, Ásgeirs
Sigurgeirssonar, sem lék ekki með
vegna meiðsla.
_ Hallgrímur Mar Steingrímsson
bætti markamet sitt fyrir KA þegar
hann kom Akureyrarliðinu í 3:0. Það
var hans 38. mark fyrir félagið í
deildinni.
Sannfærandi Stjörnumenn
Stjarnan vann afar sannfærandi
sigur á Leikni í Breiðholtinu, 3:0, og
Garðbæingar koma frískir til leiks á
þessu Íslandsmóti.
Leiknismenn virðast hinsvegar
eiga í sama vanda með að skora
mörk og á lokakafla Íslandsmótsins í
fyrra. Þeir eru eina liðið sem hefur
ekki skorað mark í fyrstu tveimur
umferðum deildarinnar í vor.
_ Jóhann Árni Gunnarsson kom
Stjörnunni yfir úr vítaspyrnu strax á
þriðju mínútu og hann hefur því
skorað í fyrstu tveimur leikjum sín-
um með liðinu í deildinni. Jóhann
kom frá Fjölni í vetur.
_ Adolf Daði Birgisson, 17 ára,
skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild
þegar hann kom Stjörnunni í 2:0 en
það var einmitt hann sem krækti í
vítaspyrnuna í byrjun leiks.
_ Sænski miðjumaðurinn Emil
Berger hjá Leikni fékk fyrsta rauða
spjaldið í deildinni. Hann verður í
banni gegn ÍBV næsta sunnudag.
_ Óskar Örn Hauksson miðju-
maður Stjörnunnar varð í gær fyrst-
ur til þess að spila 350 leiki í efstu
deild hér á landi. Langfyrstur
reyndar því næstu menn sem enn
spila í deildinni þurfa fjögur ár í við-
bót til að ná þeim áfanga.
Annar sigur án tilþrifa
Valsmenn voru ekki sérstaklega
sannfærandi þegar þeir knúðu fram
1:0 útisigur á Keflvíkingum. Þeir
hafa hinsvegar náð sér í sex stig í
tveimur fyrstu umferðum án þess að
sýna mikil tilþrif. Minnir dálítið á
byrjun þeirra á síðasta tímabili.
Valsmenn eru með sigrinum
komnir yfir 1.900 stigin samtals í
efstu deild frá upphafi. Aðeins KR
hefur fengið fleiri stig frá árinu
1912, eða 2.014 samtals.
_ Birkir Már Sævarsson skoraði
sigurmark Valsmanna í Keflavík en
þetta er annað árið í röð sem Birkir
skorar í sigurleik Hlíðarendaliðsins
á þessum velli. Hann gerði annað
mark Vals í 2:1 sigri í Keflavík síð-
asta vor.
_ Rúnar Þór Sigurgeirsson var
besti maður vallarins að mati Morg-
unblaðsins og mikill fengur fyrir
Keflvíkinga að fá hann aftur í sitt lið.
Rúnar missti af mestum hluta síð-
asta tímabils vegna meiðsla.
Svöruðu fyrir bikarúrslitin
Ljósmynd/Haukur Gunnarsson
Skoraði Emil Atlason innsiglaði sigur Stjörnunnar með þriðja markinu og
skýlir hér boltanum frá Bjarka Aðalsteinssyni fyrirliða Leiknis.
- Stuð og stemning hjá Skagamönnum þegar Íslandsmeistararnir steinlágu á
Akranesi - Leiknir í vandræðum með að skora - KA og Valur með fullt hús
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Færi Daníel Hafsteinsson miðjumaður KA leikur á Halldór Pál Geirsson
markvörð ÍBV á Hásteinsvelli. Eyjamenn náðu að bjarga á marklínu.
England
Burnley – Wolves..................................... 1:0
- Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með
Burnley vegna meiðsla.
Arsenal – Manchester United................. 3:1
Leicester – Aston Villa ............................ 0:0
Manchester City – Watford .................... 5:1
Norwich – Newcastle ............................... 0:3
Brentford – Tottenham ........................... 0:0
Brighton – Southampton ......................... 2:2
Chelsea – West Ham................................ 1:0
Liverpool – Everton................................. 2:0
Staða efstu liða:
Manch. City 33 25 5 3 80:21 80
Liverpool 33 24 7 2 85:22 79
Chelsea 32 19 8 5 67:27 65
Arsenal 33 19 3 11 52:40 60
Tottenham 33 18 4 11 56:38 58
Manch. Utd 34 15 9 10 53:51 54
West Ham 34 15 7 12 52:44 52
Reading – West Ham............................... 1:2
- Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn
með West Ham.
Þýskaland
Bochum – Augsburg ............................... 0:2
- Alfreð Finnbogason var á varamanna-
bekk Augsburg allan tímann.
B-deild:
Schalke – Werder Bremen ..................... 1:4
- Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik-
inn með Schalke.
Ítalía
Genoa – Cagliari ...................................... 1:0
- Albert Guðmundsson kom inn á hjá Ge-
noa á 59. mínútu.
AC Milan – Pomigliano ........................... 6:2
- Guðný Árnadóttir lék allan leikinn með
AC Milan.
Verona – Inter Mílanó............................. 0:4
- Anna Björk Kristjánsdóttir kom inn á
hjá Inter á 29. mínútu.
C-deild:
Padova – Virtus Verona ......................... 1:2
- Emil Hallfreðsson lék allan leikinn með
Virtus og lagði upp fyrra markið. Virtus
endaði í 13. sæti af 20 liðum í A-riðli.
Danmörk
Köbenhavn – Randers............................. 0:1
- Hákon Arnar Haraldsson kom inn á hjá
Köbenhavn á 67. mínútu.
AaB – Silkeborg....................................... 1:2
- Guðmundur Þórarinsson kom inn á hjá
AaB á 65. mínútu.
- Stefán Teitur Þórðarson kom inn á hjá
Silkeborg á 80. mínútu.
AGF – OB.................................................. 1:2
- Mikael Anderson lék í 82 mínútur með
AGF og Aron Elís Þrándarson í 85 mínútur
með OB.
Bandaríkin
Dallas – Houston Dynamo ...................... 2:1
- Þorleifur Úlfarsson kom inn á hjá Hou-
ston á 77. mínútu.
Svíþjóð
Helsingborg – Häcken ............................ 1:1
- Valgeir Lunddal Friðriksson lék í 87
mínútur með Häcken.
Varberg – Mjällby ................................... 0:0
- Óskar Tor Sverrisson lék fyrstu 80 mín-
úturnar með Varberg.
Piteå – Örebro.......................................... 4:1
- Hlín Eiríksdóttir lék í 67 mínútur með
Piteå og Berglind Rós Ágústsdóttir síðari
hálfleikinn með Örebro.
Noregur
Vålerenga – Jerv ..................................... 1:0
- Brynjar Ingi Bjarnason lék allan leikinn
með Vålerenga og Viðar Örn Kjartansson
lék í 72 mínútur.
Viking – Bodö/Glimt............................... 2:0
- Patrik Sigurður Gunnarsson og Samúel
Kári Friðjónsson léku allan leikinn með
Viking og Alfons Sampsted í 84 mínútur
með Bodö/Glimt.
Stabæk – Brann ....................................... 1:2
- Svava Rós Guðmundsdóttir lék í 88 mín-
útur með Brann en Berglind Björg Þor-
valdsdóttir var ekki í hópnum.
Rosenborg – Arna-Björnar .................... 4:1
- Selma Sól Magnúsdóttir lék síðari hálf-
leikinn með Rosenborg.
Vålerenga – Kolbotn ............................... 2:0
- Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik-
inn með Vålerenga.
Besta deild karla
KA 2 2 0 0 4:0 6
Valur 2 2 0 0 3:1 6
ÍA 2 1 1 0 5:2 4
Stjarnan 2 1 1 0 5:2 4
Breiðablik 1 1 0 0 4:1 3
KR 1 1 0 0 4:1 3
Víkingur R. 2 1 0 1 2:4 3
FH 1 0 0 1 1:2 0
Fram 1 0 0 1 1:4 0
ÍBV 2 0 0 2 1:5 0
Keflavík 2 0 0 2 1:5 0
Leiknir R. 2 0 0 2 0:4 0
Mjólkurbikar karla
2. umferð:
Hamar – Selfoss ....................................... 0:2
Sindri – KFA............................................. 2:0
KV – Grindavík......................................... 2:3
Völsungur – Dalvík/Reynir ..................... 2:5
Þróttur R. – HK........................................ 0:3
KÁ – Haukar............................................. 0:5
Vestri – Víðir............................................. 2:0
Kári – Víkingur Ó..................................... 2:1
50$99(/:+0$
_ Bayern München varð þýskur meist-
ari í knattspyrnu tíunda árið í röð með
því að sigra Dortmund, 3:1, í fyrrakvöld.
Með þessum úrslitum skilja tólf stig lið-
in að í efstu sætunum þegar þremur
umferðum er ólokið. Serge Gnabry, Ro-
bert Lewandowski og Jamal Musiala
skoruðu fyrir Bayern sem komst í 2:0
áður en Emre Can minnkaði muninn
fyrir Dortmund úr vítaspyrnu.
_ Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, lands-
liðsfyrirliði í knattspyrnu, skoraði mark
Orlando Pride þeg-
ar liðið gerði jafn-
tefli, 1:1, við Got-
ham í bandaríska
deildabikarnum í
fyrrinótt. Þetta var
lokaleikur Orlando
sem endaði í
neðsta sæti í sín-
um riðli, án sigurs,
en liðið mætir Gotham í fyrstu umferð
NWSL-deildarinnar um næstu helgi.
_ París SG varð franskur meistari í tí-
unda skipti í sögunni þegar liðið gerði
jafntefli, 1:1, við Lens, í fyrrakvöld. Lio-
nel Messi skoraði stórglæsilegt mark
fyrir PSG og ekki kom að sök þó Lens
jafnaði metin undir lokin. PSG er sex-
tán stigum á undan Marseille, sem er í
öðru sæti, þegar fjórum umferðum er
ólokið í frönsku 1. deildinni.
_ Jónatan Ingi Jónsson skoraði sitt
fyrsta mark fyrir Sogndal í norsku B-
deildinni í knattspyrnu á laugardag.
Hann kom inn á fyrir Hörð Inga Gunn-
arsson á 76. mínútu gegn Brann og
jafnaði, 1:1, fjórum mínútum síðar.
Valdimar Þór Ingimundarson lék allan
leikinn með Sogndal.
_ Böðvar Böðvarsson skoraði sitt
fyrsta mark fyrir Trelleborg í sænsku B-
deildinni í knattspyrnu á laugardag.
Hann lék allan leikinn í útisigri á Jön-
köping, 3:2, og skoraði fyrsta mark
leiksins á 27. mínútu.
_ Hólmbert Aron Friðjónsson tryggði
Lilleström sigur á
Haugesund, 1:0, í
norsku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu í
gær. Hann kom inn
á sem varamaður á
75. mínútu og
skoraði sig-
urmarkið á 87.
mínútu leiksins.
_ Íslands- og bikarmeistarar Hamars
lögðu HK að velli, 3:1, í fyrsta úrslitaleik
Íslandsmóts karla í blaki sem fram fór í
Hveragerði á laugardaginn. Hrinurnar
enduðu 28:30, 27:25, 25:16 og 25:21.
Liðin mætast í annað sinn í Digranesi í
kvöld en þrjá sigra þarf til að verða Ís-
landsmeistari.
KA vann Aftureldingu 3:0 í fyrsta úr-
Eitt
ogannað