Morgunblaðið - 25.04.2022, Qupperneq 27
slitaleik kvenna á Akureyri í gær. Hrin-
urnar enduðu 25:22, 25:16 og 25:17.
_ Kiel lagði Magdeburg að velli, 28:21,
í úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar í
handknattleik í gær. Sander Sagosen
var í aðalhlutverki hjá Kiel og skoraði 8
mörk og Ómar Ingi Magnússon var
markahæstur hjá Magdeburg með 7
mörk en Gísli Þorgeir Kristjánsson
skoraði eitt. Magdeburg var yfir í hálf-
leik, 13:12, en skoraði aðeins átta mörk
í síðari hálfleiknum.
_ Bjarki Már Elísson skoraði 7 mörk
fyrir Lemgo á laugardag þegar bik-
armeistarar síðasta árs töpuðu 26:28
fyrir Kiel í undanúrslitum bikarsins. Þá
skoraði Ómar Ingi 6 mörk fyrir Magde-
burg og Gísli Þorgeir 5 þegar lið þeirra
vann Erlangen
30:22 í hinum und-
anúrslitaleiknum.
_ Andrea Jacob-
sen, landsliðskona
í handknattleik,
hefur samið við
danska B-
deildarfélagið EH
Aalborg fyrir næsta tímabil en hún hef-
ur leikið með Kristianstad í Svíþjóð síð-
ustu fjögur ár. Aalborg endaði í fimmta
sæti dönsku B-deildarinnar í vetur.
Sandra Erlingsdóttir landsliðskona lék
með liðinu en er á förum til Metzingen í
Þýskalandi.
_ Fjölnir og ÍR mætast í úrslitum um-
spilsins um sæti í úrvalsdeild karla í
handknattleik. ÍR vann Kórdrengi 25:19
í Kópavogi og Fjölnir vann Þór 36:30 á
Akureyri og þar með enduðu bæði ein-
vígin 2:0, Reykjavíkurliðunum í hag.
_ Manchester City er áfram með eins
stigs forskot á Liverpool í einvíginu um
enska meistaratitilinn í knattspyrnu
eftir auðveldan 5:1 sigur gegn Watford
á laugardaginn. Gabriel Jesús var í
miklum ham og skoraði fjögur mark-
anna og þá gerði Rodri glæsilegt mark.
_ Liverpool þurfti að hafa meira fyrir
því að vinna Everton 2:0 í grannaslagn-
um í gær. Andy Robertson og Divock
Origi skoruðu í síðari hálfleiknum og
tryggðu Liverpool sigur. Everton er nú
komið í fallsæti því Burnley lagði Wolv-
es, 1:0, með marki frá Matej Vydra og
er komið upp úr
fallsæti í fyrsta
sinn síðan
snemma í haust.
_ Arsenal styrkti
verulega stöðu
sína í fjórða sætinu
með því að sigra
Manchester United
3:1 í London. Nuno Tavares, Bukayo
Saka og Granit Xhaka skoruðu fyrir
Arsenal en Cristiano Ronaldo fyrir
Manchester United. Chelsea er áfram í
góðri stöðu í þriðja sætinu eftir sigur á
West Ham í gær, 1:0. Það stóð tæpt því
Christian Pulisic skoraði sigurmarkið í
uppbótartíma leiksins, rétt eftir að Lu-
kasz Fabianski í marki West Ham varði
vítaspyrnu frá Jorginho.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2022
Tindastóll er kominn í 2:0 í einvíg-
inu við Njarðvík í undanúrslitum Ís-
landsmóts karla í körfubolta eftir
sigur í æsispennandi og tvífram-
lengdum leik liðanna á Sauð-
árkróki í gærkvöld, 116:107.
Njarðvíkingar virtust lengi vel
stefna í sigur því þeir voru með
átján stiga forystu í byrjun fjórða
leikhluta. Skagfirðingar jöfnuðu og
síðan tók við spennutryllir sem ent-
ist í tvær framlengingar.
Javon Bess skoraði 37 stig fyrir
Tindastól, Taiwo Badmus 35 og
Pétur Rúnar Birgisson 20. Dedrick
Basile skoraði 29 stig fyrir Njarð-
vík og Fotios Lampropoulos 22.
_ Valsmenn komust í 2:0 gegn Ís-
landsmeisturum Þórs frá Þorláks-
höfn í fyrrakvöld með sigri á Hlíð-
arenda, 87:75. Þeir geta því gert út
um einvígið í þriðja leik í Þorláks-
höfn annað kvöld. Jacob Dalton
Calloway skoraði 24 stig fyrir Val,
Kári Jónsson 19 og Callum Lawson
19. Luciano Massarelli og Glynn
Watson skoruðu 19 stig hvor fyrir
Þór og Daniel Mortensen 15.
Ljósmynd/Jóhann Helgi Sigmarsson
Góður Javon Bess skoraði 37 stig fyrir Tindastól gegn Njarðvík.
Tindastóll vann eftir
tvær framlengingar
Valur og ÍBV eru komin í undan-
úrslitin á Íslandsmóti karla í hand-
knattleik en Fram og Stjarnan eru
komin í sumarfrí.
Valsmenn unnu Framara á alls-
annfærandi hátt í Safamýri, 36:31,
en Eyjamenn þurftu að hafa tals-
vert fyrir því að vinna Stjörnuna í
Garðabæ, 25:22.
Í kvöld eiga síðan Selfoss og KA
möguleika á að ná tveimur síðari
sætunum þegar landsbyggðarliðin
fá Hafnarfjarðarliðin FH og Hauka
í heimsókn.
Viðureign Stjörnunnar og ÍBV
var í járnum lengi vel. Stjarnan
var yfir í hálfleik, 12:11, og síðan
20:18 þegar langt var liðið á leik-
inn. Þá skoruðu Eyjamenn sex
mörk í röð og náðu undirtökum
sem þeir létu ekki af hendi á loka-
kaflanum.
_ Arnór Viðarsson skoraði 7
mörk fyrir ÍBV og Friðrik Hólm
Jónsson 5.
_ Starri Friðriksson skoraði 5
mörk fyrir Stjörnuna og Leó Snær
Pétursson 4.
Valsmenn náðu fjögurra marka
forskoti gegn Fram fyrir hlé,
15:11, og juku það fljótlega í síðari
hálfleik. Eftir að staðan var orðin
25:17 um hann miðjan var sigri Ís-
landsmeistaranna ekki ógnað.
_ Magnús Óli Magnússon skor-
aði 7 mörk fyrir Val, Finnur Ingi
Stefánsson 5, Arnór Snær Ósk-
arsson 5 og Benedikt Gunnar Ósk-
arsson 5. Björgvin Páll Gústavsson
varði 13 skot.
_ Þorsteinn Gauti Hjálmarsson
skoraði 10 mörk fyrir Fram og
Breki Dagsson 8. Lárus Helgi
Ólafsson varði 14 skot.
Valur og ÍBV sigldu
inn í undanúrslitin
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
7 Arnór Viðarsson stöðvaður en
hann skoraði mest fyrir ÍBV.
Ísland þarf að bíða í a.m.k. tvö ár í
viðbót með að komast aftur í loka-
keppni Evrópumóts kvenna í hand-
knattleik eftir ósigur gegn Serbum,
28:22, í hreinum úrslitaleik liðanna
um annað sæti 6. undanriðils í
Zrenjanin í Serbíu á laugardaginn
og keppnisrétt á lokamóti EM í nóv-
ember 2022.
Ísland þurfti sigur en Serbum
nægði jafntefli og leikurinn var í
járnum fram undir lok fyrri hálf-
leiks. Þá komust Serbar í 19:15 og
náðu síðan að halda að mestu því
forskoti í seinni hálfleiknum. Ísland
minnnaði muninn í 24:21 og eygði
enn von en þá skoruðu Serbar þrjú
mörk í röð og tryggðu sér sigurinn
og EM-sætið.
Sandra Erlingsdóttir, Rut Jóns-
dóttir og Steinunn Björnsdóttir
skoruðu 4 mörk hver fyrir Ísland
og Lovísa Thompson skoraði þrjú
mörk. Elín Jóna Þorsteinsdóttir
varði sex skot og Hafdís Renötu-
dóttir þrjú en Hafdís fékk skot í
höfuðið eftir 18 mínútna leik og
kom ekki meira við sögu eftir það.
Ljósmynd/Aleksandar Djorovic
Zrenjanin Steinunn Björnsdóttir í góðu færi í leiknum gegn Serbum.
Serbar reyndust sterkari
og náðu EM-sætinu
Ísland leikur á ný í A-riðli 2. deildar
heimsmeistaramóts karla í íshokkí
á næsta ári eftir fjögurra ára fjar-
veru. Íslenska liðið sigraði Belga,
3:2, í lokaumferð B-riðilsins í
Skautahöllinni í Laugardal í fyrra-
kvöld.
Ísland vann því B-riðilinn með
fullu húsi stiga, fékk 12 stig í fjór-
um leikjum. Georgía fékk 9 stig,
Belgía 6, Búlgaría 3 og Mexíkó ekk-
ert. Íslenska liðið lék áður í A-
riðlinum á árunum 2012 til 2018.
Belgar hefðu náð efsta sætinu
með tveggja marka sigri og komust
yfir eftir átta mínútur í öðrum leik-
hluta. Axel Snær Orongan jafnaði
þremur mínútum síðar og Halldór
Skúlason kom Íslandi í 2:1 rétt fyrir
lok leikhlutans.
Þegar fimm mínútur voru eftir
skoraði Axel Snær sitt annað mark,
3:1. Belgar minnkuðu muninn
tveimur mínútum fyrir leikslok en
íslenska liðið hélt fengnum hlut.
Jóhann Björgvin Ragnarsson,
sem er á leið í atvinnumennsku í
Tékklandi, var valinn maður leiks-
ins og besti markvörður mótsins og
þá var Jóhann Már Leifsson út-
nefndur besti leikmaður og besti
sóknarmaður mótsins.
Ísland í A-riðilinn
Ljósmynd/ÍHÍ
Sigurvegarar Róbert Pálsson fyrirliði Íslands lyftir bikarnum í mótslok.
KNATTSPYRNA
Besta deild karla:
Meistaravellir: KR – Breiðablik .............. 18
Kaplakriki: FH – Fram ............................ 18
Mjólkurbikar karla, 2. umferð:
Varmá: Hvíti riddarinn – RB ................... 20
HANDKNATTLEIKUR
8-liða úrslit karla, annar leikur:
KA-heimilið: KA – Haukar (1:0) ......... 18.30
Selfoss: Selfoss – FH (1:0) ................... 19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Þriðji úrslitaleikur kvenna:
Ásvellir: Haukar – Njarðvík (1:1) ....... 19.15
BLAK
Annar úrslitaleikur karla:
Digranes: HK – Hamar (0:1) .................... 19
Í KVÖLD!
Spánn
Breogan – Zaragoza ........................... 82:85
- Tryggvi Snær Hlinason skoraði 3 stig og
tók 2 fráköst fyrir Zaragoza á 12 mínútum.
B-deild:
Estudiantes – Gipuzkoa...................... 87:65
- Ægir Már Steinarsson skoraði 19 stig og
tók 3 fráköst fyrir Gipuzkoa á 19 mínútum.
Belgía/Holland
Mechelen – Landstede Hammers ...... 92:84
- Þórir Guðmundur Þorbjarnarson skor-
aði 15 stig, tók 4 fráköst og átti 3 stoðsend-
ingar fyrir Landstede á 31 mínútu.
Spirou Charleroi – Hague Royals ..... 95:58
- Snorri Vignisson skoraði 11 stig, tók 3
fráköst og átti eina stoðsendingu fyrir
Hague á 24 mínútum.
Þýskaland
Ludwigsburg – Crailsheim ................ 77:75
- Jón Axel Guðmundsson átti eina stoð-
sendingu og tók eitt frákast fyrir Crails-
heim á 9 mínútum.
Úrslitakeppni NBA
Atlanta – Miami ....................... 111:110 (1:2)
New Orleans – Phoenix ........... 111:114 (1:2)
Toronto – Philadelphia ............ 110:102 (1:3)
Utah – Dallas.............................. 100:99 (2:2)
Brooklyn – Boston ................... 103:109 (0:3)
Minnesota – Memphis ............. 119:118 (2:2)
Chicago – Milwaukee................. 95:119 (1:3)
Denver – Golden State ............ 126:121 (1:3)
>73G,&:=/D
Þýskaland
Göppingen – Hannover-Burgdorf..... 31:25
- Janus Daði Smárason skoraði 2 mörk
fyrir Göppingen.
Danmörk
Úrslitakeppnin:
GOG – Bjerringbro/Silkeborg .......... 33:30
- Viktor Gísli Hallgrímsson varði 15 skot í
marki GOG.
Pólland
Kielce – Tarnów .................................. 51:19
- Haukur Þrastarson skoraði 3 mörk fyrir
Kielce, Sigvaldi Guðjónsson er meiddur.
Noregur
8-liða úrslit, fyrsti leikur:
Elverum – Bækkelaget....................... 34:25
- Orri Þorkelsson skoraði eitt markfyrir
Elverum og Aron Dagur Pálsson eitt.
Evrópubikar karla
Undanúrslit, fyrri leikur:
Drammen – Nærbo.............................. 30:27
- Óskar Ólafsson skoraði eitt mark fyrir
Drammen.
Undankeppni EM kvenna
6. riðill:
Serbía – Ísland...................................... 28:22
Svíþjóð – Tyrkland ............................... 33:21
Lokastaðan:
Svíþjóð 6 5 0 1 177:133 10
Serbía 6 4 0 2 170:156 8
Ísland 6 2 0 4 143:160 4
Tyrkland 6 1 0 5 153:194 2
_ Svíþjóð og Serbía fara á EM.
E(;R&:=/D
Meistaradeild kvenna
Undanúrslit, fyrri leikur:
Lyon – París SG ....................................... 3:2
- Sara Björk Gunnarsdóttir var á vara-
mannabekk Lyon allan tímann.
Tyrkland
Adana Demirspor – Trabzonspor ......... 1:3
- Birkir Bjarnason lék í 88 mínútur með
Adana Demirspor.
Skotland
Hamilton – Celtic..................................... 0:6
- María Ólafsdóttir Gros kom inn á hjá
Celtic á 66. mínútu.
KNATTSPYRNA