Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 25.04.2022, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 25.04.2022, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2022 Mikilvægasti þátturinn í því að beina íslenskum fiskvinnslufyrir- tækjum að hraðfrystingu eftir stríðið voru breytingar á alþjóð- legum mörkuðum. Saltfiskmark- aðir í Evrópu voru ennþá í lægð og tvíhliða viðskiptasamningar og verndarstefna í innflutningslönd- unum torvelduðu Íslendingum að auka verulega við söluna. Við þetta bættist innflutningsbann á íslenskan ísfisk í Bretlandi á ár- unum frá 1952 til 1956 vegna fisk- veiðideilu Ís- lendinga og Breta út af út- færslu land- helginnar í fjórar sjómíl- ur. Strax eftir stríðið gerðu íslenskir fram- leiðendur ítrekaðar til- raunir til að selja frystan fisk á meginlandi Evrópu en erfitt var að ná fótfestu á þeim mörkuðum, meðal annars vegna þess að dreif- ingarkerfi og geymslurými fyrir frystar vörur var takmarkað. Tveir risastórir markaðir opn- uðust fyrir íslenskan freðfisk á sjötta áratugnum og áttu eftir að hafa varanleg áhrif á þróun fisk- iðnaðarins. Annar var Rússlands- markaður sem opnaðist með sögu- legum tvíhliða samningi milli Íslands og Sovétríkjanna árið 1953 og leiddi til þess að þangað var selt mikið af þorsk- og karfaflök- um. Hinn var Bandaríkjamark- aður þar sem íslenskir framleið- endur höfðu selt nokkuð af fryst- um fiski síðan 1936, en þó með hléi á stríðsárunum. Bandaríski markaðurinn var vissulega ábata- samari en sá rússneski en út- heimti sérhæft vinnuafl, vandaðar staðlaðar afurðir og „nútímalega“ markaðssetningu. Á þessum fram- andi og kvika markaði hösluðu ís- lenskir framleiðendur sér völl og færðu sig miklu lengra yfir í smá- sölugeira fiskmarkaða en þeir höfðu áður gert. Breytingin úr saltfisk- yfir í freðfiskframleiðslu markaði þátta- skil í þróun íslensks sjávarútvegs. Henni fylgdu margvísleg tæknileg, skipulagsleg og pólitísk vandamál, en hún reyndist heilladrjúg þegar til lengdar lét og varð til þess að framleiðni fiskiðnaðarins jókst að miklum mun fyrir tilverknað há- þróaðrar tækni og markaðs- setningar. Íslendingar voru ein af fyrstu Evrópuþjóðunum til að not- færa sér bandaríska frystitækni og þróa hana á árangursríkan hátt. Um 1960 var frysting orðin mikilvægasta vinnsluaðferðin í ís- lenskum fiskiðnaði og nam útflutn- ingur freðfisks ríflega þriðjungi af heildarverðmæti útflutnings… Margt stuðlaði að velgengni ís- lenska freðfiskiðnaðarins í Banda- ríkjunum. Ein ástæðan var að framleiðendur voru opnir fyrir nýrri tækni. Stjórnvöld hófu í samvinnu við fiskframleiðendur að þróa hraðfrystiaðferðir þegar á miðjum fjórða áratugnum og í kjölfarið risu frystihús þar sem nýja tæknin var notuð með góðum árangri. Með því að hagnýta sér frystitæknina svo snemma fengu íslenskir framleiðendur forskot á aðra fiskinnflytjendur í Bandaríkj- unum þegar markaðurinn tók að stækka eftir stríðið. Önnur ástæða var myndun verð- samtaka (kartela) í freðfiskútflutn- ingi til Bandaríkjanna þar sem stjórnvöld úthlutuðu útflutnings- leyfum til aðeins tveggja sölusam- taka. Forustu á markaðnum hafði Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, sem samanstóð af tugum einka- rekinna frystihúsa auk þess sem hún stofnaði hlutafélag í Banda- ríkjunum, Coldwater Seafood Corporation, til að stunda sölu- starfsemi og reka fiskvinnslu- stöðvar. Hitt sölufyrirtækið, Ice- land Products Ltd., var í eigu Sambands íslenskra samvinnu- félaga og starfaði á svipaðan hátt og Coldwater. Fákeppnin skapaði þessum samtökum afar sterka stöðu bæði í framleiðslu og á markaðinum, tryggði stöðugt hrá- efnisframboð, útilokaði í reynd samkeppni og auðveldaði þeim að stýra framleiðslu frystihúsanna. Fyrstu árin kepptu samtökin tvö sjaldan innbyrðis á Bandaríkja- markaði, en það átti eftir að breytast á sjöunda áratugnum. Fyrirtækin tvö höfðu gott hrá- efni til að vinna úr en aðalvandinn var að þróa afurðir sem stæðust kröfur vandlátustu neytenda í heimi. Mikil fjárfesting var lögð í vöruþróun og gæðastjórnun og fengu íslenskar afurðir gott orð í markaðslöndum. Í byrjun stóðu ís- lensk frystihús þeim bandarísku þó langt að baki í tækni og vöru- vöndun. Vélvæðing og sjálfvirkni var skammt á veg komin, frágang- ur húsnæðis og frystigeymslur ófullkomnar og hreinlæti stórlega ábótavant. En þetta horfði til betri vegar eftir stríð þegar komið var á laggirnar tveggja þrepa kerfi gæðastjórnunar, annars veg- ar lögskipuðu opinberu mati á freðfiski og hins vegar gæða- stjórnunarkerfi á vegum sölu- samtakanna og vinnslustöðvanna. Með því forskoti sem íslenskir innflytjendur náðu í Bandaríkj- unum vannst þeim tími til að end- urbæta afurðir sínar – þeir öfluðu sér í fyrstu þekkingar með því að læra af samkeppnisaðilum og herma eftir afurðum þeirra, en með tímanum byggðu þeir meir og meir á eigin reynslu. Tæknifram- farir takmörkuðust einkum við hina vel þekktu pönnufrystitækni og umbætur á flökunarferlinu. Framleiðsluaðferðir voru betrum- bættar með því að hagræða skipu- lagi, auka færni starfsfólks við handflökun og öðlast betri skiln- ing á örverufræðilegum þáttum í rotnunarferli afurðanna. Megin- áhersla var lögð á að framleiða staðlaðar afurðir í miklu magni og af viðurkenndum gæðum fyrir smásöluverslunina og stofnana- kaupendur í Bandaríkjunum. Til þess þurfti meðal annars að snyrta flökin og fjarlægja bein sem var vinnuaflsfrekt ferli. Tvær helstu afurðirnar voru fiskblokkir og flök. Þar sem þetta voru viðurkenndar hágæðavörur gátu söluaðilarnir selt æ stærri hluta framleiðslunnar undir eigin vörumerkjum, Coldwater með því að nota ICELANDIC BRAND (áður ICELANDIC og FROZEN FISH) og Iceland Seafood SAMBA-vörumerkið. Vörumerkin auðvelduðu sölu afurðanna, á um- talsvert hærra verði en afurðir helstu keppinauta þeirra, Kanada- manna. Á fyrstu árunum eftir stríð beindu íslenskir fiskframleið- endur sölustarfsemi sinni einkum að bandaríska hernum og seldu fiskinn í frumstæðum umbúðum sem notaðar voru fyrir Evrópu- markað, þ.e. sjö punda fiskblokkir (með beinum) sem pakkaðar voru inn í pergamenteða sellófanpappír. Næsta afurð var þróaðri – bein- laus þorskog ýsuflök tilbúin til matreiðslu í litríkum öskjum sem vógu eitt pund, en síðan komu roðflett flök í sellófani í fimm og tíu punda öskjum. Þetta voru eftirlíkingar af þróuðustu afurðum keppinautanna en þó með þeirri nýjung að öll bein voru hreinsuð úr flakinu og þar með náði ís- lenskur fiskur samkeppnisforskoti sem hélst um langt árabil. Íslensku fyrirtækin höfðu fylgst grannt með fiskstautaframleiðslu í Bandaríkjunum á árunum 1952– 1953 og þegar í febrúar 1953 voru fyrstu fiskblokkirnar sem ætlaðar voru bandarískum fiskstautaverk- smiðjum fluttar út frá Íslandi. Árið eftir hóf Coldwater starfsemi eigin vinnslustöðvar í Maryland til framleiðslu á fiskstautum og öðr- um freðfiskafurðum. Fiskblokkin varð aðalafurðin í íslenskum frystihúsum þótt sölusamtökin þrýstu á þau að auka framleiðslu á flökum sem voru verðmætari en að vísu vinnuaflsfrekari. Á sjö- unda áratugnum ruddu flökin sér smám saman til rúms eftir því sem vinsældir fiskstautanna dvín- uðu. Árið 1966 varð verðfall á frystum fiskafurðum í Bandaríkj- unum og komst sölutregðan á al- varlegt stig árið 1967 þegar páfinn aflétti banni við kjötneyslu á föstudögum. Olli þetta enn frekari samdrætti í eftirspurn og verð- lækkun á freðfiski. Árið eftir fór að birta yfir markaðinum þegar fish and chips-veitingahúsakeðjur, sem seldu djúpsteiktan fisk með frönskum kartöflum, tóku að spretta upp eins og gorkúlur og hentuðu íslensk freðfiskflök vel þörfum slíkra matsölustaða. Markaðs- og sölustefna sölu- samtakanna átti án efa mikinn þátt í velgengni freðfiskútflutn- ings til Bandaríkjanna og skilaði hún brátt góðri veltu og háu verði eftir nokkrar misheppnaðar til- raunir í upphafi. Fyrirtækin tvö tóku sér kanadískar söluaðferðir til fyrirmyndar og komu sér upp neti umboðsmanna víðs vegar um Bandaríkin sem stjórnuðu mest- allri sölunni til dreifingaraðila og smásala. Umboðsmennirnir fylgd- ust með breytingum á smekk og matarvenjum og miðluðu til fyr- irtækjanna. Flök voru seld frá ís- lensku frystihúsunum fyrir milli- göngu sölusamtakanna til stofn- anakaupenda og stórnotenda svo sem hótela, veitingahúsa og skóla. Tilraunir til að leita lengra inn á smásölumarkaðinn með því að selja tilbúnar afurðir beint til hús- mæðra skiluðu misjöfnum árangri; til dæmis tókst ekki að vekja áhuga á soðnum fiski með bráðnu smjöri, en 350 g „steik“, sem var pökkuð í öskju fyrir fjóra, náði talsverðum vinsældum. Árið 1961 var um 65% af framleiðslu Cold- water selt stofnanakaupendum og 35% voru seld smærri smásölu- aðilum sem tilbúnar afurðir til neyslu. Fiskblokkir voru notaðar í fiskstautaverksmiðjum félaganna. Loks má nefna að pólitískur stuðningur hafði úrslitaþýðingu fyrir velgengni freðfiskiðnaðarins í Bandaríkjunum. Litið var á út- flutningsmarkað freðfisks sem mikilvægustu vaxtargrein þjóð- arbúskaparins eftir stríð og ís- lensk stjórnvöld voru því reiðubú- in að styðja hann í hvívetna. Þegar fiskframleiðsla náði sér á strik að nýju í Evrópu féll fiskur í verði á alþjóðamörkuðum. Vegna þrýstings frá framleiðendum voru samþykkt lög á Alþingi sem tryggðu lágmarksverð á útfluttum freðfiski til Bandaríkjanna frá 1946 til 1949. Aðstoð bandarískra stjórnvalda við íslenska fisk- innflytjendur hafði jafnvel enn meiri þýðingu. Þegar Rússar hættu að stunda viðskipti við Ís- lendinga árið 1948 ákváðu banda- rísk stjórnvöld, sem voru áfjáð í að viðhalda góðum pólitískum tengslum við Íslendinga vegna hernaðarlegra hagsmuna, að styðja freðfiskútflutning frá Ís- landi til Vestur-Þýskalands með Marshall-áætluninni. En banda- rískir sjómenn voru ekki sáttir og kröfðust þess að Bandaríkjastjórn setti toll á fiskinnflutning frá Ís- landi. Vísuðu þeir til bandarískra laga um að leggja bæri 10–15% innflutningstoll á fiskinnflutning frá löndum þar sem fiskiðnaður naut ríkisaðstoðar. Bandarísk stjórnvöld voru ekki tilbúin til að stofna pólitískum og hernaðar- legum hagsmunum sínum á Ís- landi í hættu og málinu var vísað frá. Tollamálið kom upp aftur 1954–1956 og var ekki leyst fyrr en eftir inngrip Bandaríkjaforseta sem hafnaði því „að leggja höft á viðskipti vinveittra þjóða, er hér ættu hlut að máli […] en efna- hagslegur þróttur þeirra væri mikilvægur í baráttunni gegn hættum heimskommúnismans“. Þannig var mikið fjárhagslegt verðmæti fólgið í hernaðarlegu mikilvægi Íslands í kalda stríðinu og nýttu íslensk stjórnvöld sér það út í ystu æsar í því skyni að auka ávinninginn af viðskiptum bæði við Bandaríkin og Sovétríkin. Tollfrjáls aðgangur freðfisks í Bandaríkjunum veitti íslenskum innflytjendum umtalsvert sam- keppnisforskot gagnvart keppi- nautunum, einkum Kanada og Noregi, en í báðum ríkjum var sjávarútvegur ríkisstyrktur. (Tilvísunum og innskotsgreinum er sleppt.) Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon SH Frá fundi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í janúar árið 1972 en hún hafði forystu á markaðinum. Velgengni freðfiskiðnaðarins á Íslandi Bókarkafli | Í greina- safninu Til hnífs og skeiðar er íslensk matarmenning skoðuð í sögulegu ljósi og á þverfaglegan hátt. Á meðal greinanna er „Fiskistauturinn – Skyndiréttur sem lagði grundvöll að freðfiskiðnaði á Íslandi og í Noregi“ eftir Guðmund Jónsson og Örn D. Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.