Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 25.04.2022, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 25.04.2022, Blaðsíða 32
FERMINGAR TILBOÐ GÓÐUR STUÐNINGUR VIÐMJÓBAK ÝMIR HÁGÆÐA SJÖ SVÆÐASKIPT POKAGORMAKERFI Styður mun betur við líkamann en venjuleg %ECG4!'C=, 8E!4%ECG4CF#C 'C@ G'QG#B0 L3!!@G ?*C '&A#C L?* $?4C L'#C 'C@ BA4QB'AA#C * (MF@FF#,9"N!#C ?#Q 4>R4B?-Q#2 BA*=C ?#Q G"P)4!BB?-Q#2G#RR#BA*=C * G#Q"@FF#, 330 gormar per fm2, 7?*$'CA BA.R, VERÐ ÁÐURSTÆRÐ VERÐ NÚ 120×200 140×200 150×200 99.900 kr. 114.900 kr. 129.900 kr. 89.900 kr. 104.900 kr. 119.900 kr. 1RR ?'CQ G'Q 86 )EAF# E% &PA@G, J7:, I'#C# BA-Q#C * )EQ#, V e rð b ir t m e ð fy ri rv a ra u m in n sl á tt a rv il lu r o g /e ð a b re yt in g a r. FRIGG, ÓÐINN OG IÐUNN: 1RR ?'CQ 'C@ G'Q 86 )EAF# E% &PA@G, J7:, I'#C# BA-Q#C * )EQ#, STÆRÐ VERÐ ÁÐUR VERÐ NÚ 120×200 140×200 150×200 139.900 kr. 159.900 kr. 179.900 kr. 119.900 kr. 139.900 kr. 159.900 kr. IÐUNN GÓÐ SJÖ SVÆÐASKIPT HEILSUDÝNA SEM STYÐUR RÉTT VIÐ LÍKAMANN HEER '&F4)R4F(4F 4QR4%4BA R*!4G4F@GE% %'&@C )'AC# OF(@F,;PQLCMBA#"O&F@FE% C+AA@C BA@QF#F%@C AC3%%#C )'AC4 )RPQI-Q# E%)'AC# R*Q4F2 LN &-CQ(MDC# E%)'AC# B?'&F, FRIGG HÁGÆÐA SJÖ SVÆÐASKIPT HEILSUDÝNAÁ FRÆBÆRUVERÐI 9'QK B?-Q4B!#DA@ DE!4%ECG4!'C=,;PQ@C G"P)4!BBA@QF#F%@C, 9M!C4 E% )'AC4 4>R4B?-Q#, /CMBA#"O&F@F4C'&F# * )PRBAC@F, 54F(4Q4C !4FABA3C!#F%4C, <@RR!EG#F FMA#F% . B?'&FI'A#, ÓÐINN HÁGÆÐA SJÖ SVÆÐASKIPT HEILSUDÝNAÁ FRÆBÆRUVERÐI 9'QK B?-Q4B!#DA@ DE!4%ECG4!'C=,;PQ@C G"P)4!BBA@QF#F%@C,9M!C4 E%)'AC4 4>R4B?-Q#, /CMBA#"O&F@F4C'&F# * )PRBAC@F,54F(4Q4C !4FABA3C!#F%4C,<@RR!EG#FFMA#F% . B?'&FI'A#, – MILLISTÍF – STÍF 25% AFSLÁTTUR AF FYLGIHLUTUM VIÐ DÝNUKAUP VERÐ SEM KOMA Á ÓVART Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu „Mín fagra sól – barokkaríur og söngvar“ er yfirskrift kúnstpásu-tónleika sem verða í Norðurljósasal Hörpu í hádeginu á morgun, þriðjudag, klukkan 12.15. Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzosópran flytur þar nokkrar af sínum eftirlætisaríum frá barokk-tímabilinu ásamt Láru Bryndísi Eggertsdóttur semballeikara, Laufeyju Jensdóttur fiðluleikara og Steinunni A. Stefánsdóttur sellóleikara. Verkin eru eftir tónskáldin Porpora, Pur- cell og Handel. Efnisskráin er sögð tileinkuð birtunni og hvernig tónlistin léttir lífið og nærir sálina. Sigríður Ósk syngur eftirlætisaríur á kúnstpásu-tónleikum í Hörpu MÁNUDAGUR 25. APRÍL 115. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Karlalandslið Íslands í íshokkí stóð uppi sem sigurveg- ari í B-riðli 2. deildar heimsmeistaramótsins sem lauk í Skautahöllinni í Laugardal í fyrrakvöld. Ísland lagði Belgíu 3:2 í hörkuspennandi úrslitaleik og vann þar með alla fjóra leiki sína á mótinu og leikur í 2. deild A á næsta ári. »27 Íshokkílandsliðið vann alla leikina ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Gönguhópurinn Komum af fjöllum var stofnaður í ársbyrjun 2021 í þeim tilgangi að auka kraft og þol göngumanna og vel hefur tekist til, að sögn Hauks Valdimarssonar, læknis á öldrunarlæknadeild Land- spítala. „Við settum saman fámenn- an hóp til þess að æfa okkur á út- mánuðum í þeim tilgangi að vera sprækir þegar vorið kæmi og gætum þá gengið á fjöll.“ Hópurinn var til upp úr umræðum lækna á sameiginlegum vinnustað. „Við Jens Magnússon byrjuðum að tala um að við ættum að stofna gönguhóp og eftir að Böðvar Örn Sigurjónsson tók undir með okkur varð ekki aftur snúið.“ Vilja reyna á sig Félagarnir ganga saman vikulega, aðra hverja helgi og annan hvern mánudag, fyrst og fremst á fellum og fjöllum í grennd við höfuðborg- arsvæðið. „Við viljum hafa smá bratta til þess að menn reyni aðeins á sig,“ segir Haukur og bætir við að reikna megi með að þrír til fjórir tímar fari í hverja göngu frá því menn fari að heiman frá sér og þar til þeir komi aftur heim. Í Dymbilvikunni hafi þeir til dæmis gengið á Esjuna, farið upp að Steini, og útivistin hafi varað í um þrjá tíma. Í kvöld er stefnan sett á Grímannsfell í Mosfellssveit og gengið verður á Hvalfell á laug- ardaginn. Félagarnir eru almennt í góðu formi en misjafnlega góðu eins og gengur. Flestir eru vanir göngu- menn en Haukur segir að hver og einn velji sér sinn hraða. „Stundum teygist á hópnum en það er allt í lagi því við förum þannig leiðir að menn rata.“ Haukur er sjálfur mikill göngu- garpur og er í nokkrum gönguhóp- um auk þess sem hann gengur oft einn. Hann segist alltaf hafa verið í einhverju sprikli en gangan hafi ver- ið fastur liður undanfarna áratugi. „Mér finnst alltaf gaman að ganga einn úti í náttúrunni en hef auk þess verið í skipulögðum gönguhópum undanfarin 25 ár, þar skiptir fé- lagsskapurinn miklu máli,“ segir hann. „Ég held mér í þjálfun og besta líkamsræktin er að fara í fjall- göngu. Ég geng reglulega og hef til dæmis verið lengi í einum gönghópi, MEH eða missum ekki hæð, sem fer alltaf í góða göngu á hverju sumri.“ Hópurinn hafi farið víða um land og hver ferð taki nokkra daga. Þá geri menn vel við sig, gisti í góðum skál- um og gangi þar sem séu góðar að- stæður. „Menn eru orðnir frekar þroskaðir, komnir á þann aldur að þeir vilja hafa þetta huggulegt og nenna orðið síður að vera í tjöldum.“ Allir í hópnum Komum af fjöllum eru einnig í gönguhópnum Vor- mönnum, sem Böðvar Örn heldur utan um. Næsta ferð síðarnefnda hópsins hefst 20. maí, en þá verður gengið í grennd við Heklu. „Við hitt- umst á Leirubakka í Landssveit þar sem við gistum og göngum svo dag- inn eftir.“ Vormenn og fleiri koma af fjöllum - Haukur Valdimarsson er í nokkrum gönguhópum Í Grindarskörðum Frá vinstri: Göngugarparnir Magnús Ingimundarson, Skúli Már Sigurðsson, Böðvar Örn Sigurjónsson, Þórarinn Harðarson, Haraldur Gunnarsson, Jón Steinar Jónsson og Jens Magnússon. Á Höttu í Mýrdal Frá vinstri: Félagarnir Jón Steindór Valdimarsson, Þórð- ur Gísli Ólafsson, Haraldur Gunnarsson og Haukur Valdimarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.