Morgunblaðið - 06.05.2022, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.05.2022, Blaðsíða 6
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Rúmlega sex þúsund frambjóðendur reyna nú að ganga í augun á þeim lið- lega 277 þúsund íbúum landsins sem eru á kjörskrá í sveitarfélögum landsins. Svarar það til þess að 2,4% kosningabærra manna séu í framboði eða 1,7% landsmanna þar sem hvert mannsbarn er talið. Kosið verður til sveitarstjórna í 62 sveitarstjórnum eftir níu daga, laug- ardaginn 14. maí. Sú breyting hefur orðið eftir gildistöku nýrra kosninga- laga að kjósa skal annan laugardag í maí en áður var kosið fjórða laugar- dag í maí, í báðum tilvikum miðað við að kjördag bæri ekki upp á laugar- dag fyrir hvítasunnu. Ástæðan fyrir því að kjördagurinn var fluttur fram um tvær vikur er sú að það þótti of seint að láta nýjar sveitarstjórnir taka við völdum um miðjan júnímán- uð, með tilliti til sumarleyfa. Sá tíma- frestur er óbreyttur, það er að segja 15 dögum eftir kjördag, sem þýðir að valdaskiptin munu fara fram 29. maí í ár. Sveitarfélögin í landinu verða 64 eftir kosningar. Ástæðan fyrir því að aðeins verður kosið í 62 er sú að aðeins einn listi kom fram í Sveitar- félaginu Skagaströnd og Tjörnes- hreppi og var fólkið á honum því sjálfkjörið. Er því ljóst hverjir muni taka sæti í þeim sveitarstjórnum 29. maí. Bundið og laust Lögin kveða á um að almennt skuli fara fram bundnar kosningar til sveitarstjórna, það er að segja að kosið verði á milli lista. Ef ekki kem- ur fram listi verði kosið óbundið. Það þýðir að allir íbúar viðkomandi sveit- arfélags eru í framboði, nema þeir sem setið hafa í sveitarstjórn og skorast undan kjöri. Þeir sem þannig eru kjörnir eru því skyldugir til að taka sæti í sveitarstjórn, hvort sem þeir hafa sóst eftir því eða ekki. Rétt er að geta þess að ekki er hægt að setja neinn á framboðslista án hans samþykkis. Við þessar kosningar fara listakosningar fram í 51 sveitar- félagi en sjálfkjörið er í tveimur þeirra, eins og fyrr segir. Í framboði eru 3.209 einstaklingar á 179 fram- boðslistum. Aðeins 401 sæti er í boði. Óbundnar kosningar verða í 13 sveit- arfélögum og þar er 3.191 íbúi. 34 þeirra hafa skorast undan kjöri, sam- kvæmt heimild í lögum, og eru því 3.157 í kjöri. Flótti í kjörstjórnum Vegna strangra hæfisreglna í nýju kosningalögunum, sérstaklega ákvæði um tengsl við frambjóðendur, hafa margir reyndir kjörstjórn- armenn hætt að starfa við kosning- arnar þótt í sumum tilvikum séu tengslin afar lítil. Var þetta talið sér- staklega viðkvæmt í minni sveitar- félögum þar sem óbundnar kosn- ingar fara fram og allir íbúar eru því í framboði. Landskjörstjórn túlkaði lögin þannig að hæfisskilyrðin ættu ekki við þar. Það dró úr vandamálum, í bili að minnsta kosti, en ef mjótt verður á munum er hugsanlegt að á þessa túlkun verði látið reyna fyrir dómstólum eftir kosningar. Þegar þessi mál komu upp var talið of seint að breyta lögunum. Nýtt fólk var kosið í kjörstjórnir. Dæmi er um að menn séu enn að segja af sér vegna þessara ákvæða laganna. »10 Sex þúsund manns í framboði - Kosið verður í 62 sveitarfélögum 14. maí en sjálfkjörið er í tveimur - 2,4% kosningabærra manna í landinu eru í framboði í raun þótt aðeins hluti þeirra hafi samþykkt að taka sæti á framboðslista Sveitarstjórnarkosningar 2022 Vestfirðir Norðurland vestra Austur- land Vestur- land Suðurnes Norðurland eystra Suðurland Höfuðborgar- svæðið 5.259 5.514 7.944 12.450 20.943 23.447 23.754 177.816 Fjöldi kjósenda á kjörskrá eftir landshlutum 277.127 kjósendur eru á kjörskrá í sveitarstjórnarkosningunum 14.maí Þar af 31.703 erlendir ríkisborgarar, sem svarar til 11,4% Karlar Konur Kynsegin/ annað 140.688 136.365 74 Tjörnesingar í framboði Tjörnesingar sem eu ekki í framboði 1,7% þjóðarinnar er í framboði, hlut- fallslega flestir í Tjörneshreppi eða 16% þeirra sem eru á kjörskrá Einn listi barst í Tjörneshreppi og er hann sjálfkjörinn Sömuleiðis er sjálfkjörið á Skagaströnd Heimild: Samband íslenskra sveitarfélaga, Þjóðskrá 25 listabókstafir af 33 bókstöfum í stafrófinu eru í notkun í kosningunum Þeir bókstafir sem eru ekki í notkun í kosningunum núna eru: Listakosningar Sveitarfélög 51 Framboðslistar 179 Frambjóðendur 3.209 Sæti í boði 401 Óbundnar kosningar Sveitarfélög 13 Íbúar 3.191 Ekki í framboði 34 Frambjóðendur 3.157 Sæti í boði 69 6.366 frambjóð- endur alls 470 sæti í boði 64 sveitarfélög alls Ð É Ó R Ú X ÝÆ 6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2022 www.gamafelagid.is Kosning utan kjörfundar gengur vel, samkvæmt upplýsingum sýslu- mannsins á höfuðborgarsvæðinu. Um hádegisbil í gær höfðu 3.507 kos- ið hjá sýslumanninum og tæplega 5.300 á landinu öllu. Er það heldur minna í heildina en var þegar níu dagar voru til síðustu almennu kosn- inga til sveitarstjórna. Sigríður Kristinsdóttir, sýslumað- ur á höfuðborgarsvæðinu, segir að stígandi sé í fjölda þeirra sem greiða atkvæði þar. Fyrsta daginn hafi um 30 kosið en 530 í fyrradag. Á árinu 2018 kusu 13.484 utan kjörfundar hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Þá stóð utan- kjörfundaratkvæðagreiðslan í átta vikur en nú stendur hún í fjórar vik- ur. Segir Sigríður að svo virðist sem stytting tímans hafi ekki áhrif í heildina en fleiri komi til að kjósa á hverjum degi en þá. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hjá sýslumanninum á höfuðborgar- svæðinu fer fram í Holtagörðum, á annarri hæð, og verður opið þar til daginn fyrir kjördag. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Holtagarðar Hægt er að greiða atkvæði utan kjörfundar kl. 10 til 22. Stígandi í kosningu utan kjörfundar - Kosið í Holtagörðum fram að kjördegi 2022 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.