Morgunblaðið - 06.05.2022, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 06.05.2022, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2022 GUAVA LÍNAN Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni, Hagkaup & á Heimkaup.is Organic Guava ávöxturinn inniheldur fjórfalt meira C-vítamín en appelsínur Gefur húðinni raka, ljóma og orku Léttur og ferskur sumarilmur Endurvinnsla er eftirsóknarverð en hún á sér þó einhver tak- mörk. Endurvinnsla á óefndum kosningaloforðum er dæmi um end- urvinnslu sem seint verður talin til fyrirmyndar en þó hefur Samfylk- ingin í Reykjavík ákveðið að fara þá leið. - - - Í leiðara Viðskipta- blaðsins í gær var rifjuð upp ræða Dags. B. Eggerts- sonar frá því fyrir fjórum árum og hefði engum dottið annað í hug en að ræðan hefði verið flutt fyrir þessar kosningar. Þar sagði borgarstjóri meðal annars: „Borgarlína, Mikla- braut í stokk, leikskóli fyrir 12-18 mánaða og húsnæði fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur eru meðal kosningamála Samfylkingarinnar í vor.“ - - - Viðskiptablaðið segir: „Borgar- stjórinn sagði á þessum fundi vorið 2018 að aldrei hefðu fleiri íbúðir farið í uppbyggingu á nokkru öðru kjörtímabili í sögu borgarinnar og átti þá við kjör- tímabilið 2014 til 2018. Í þessu sam- bandi má benda á að ástandið á fasteignamarkaðnum á kjör- tímabilinu, sem borgarstjóri vísaði í, var svipað og það er í dag. Við- varandi skortur á íbúðum á þessum árum varð til þess að íbúðaverð hækkaði gríðarlega.“ - - - Samfylkingin er með stuðningi ýmissa vinstriflokka búin að stýra borginni nánast samfellt frá árinu 1995. Á hverju kjörtímabili sígur meira á ógæfuhliðina og í hverjum kosningum er lofað að gera betur. Árangurinn er húsnæð- isskortur, umferðartafir og skulda- söfnun, svo nokkuð sé nefnt. Er ástæða til að láta reyna aftur á end- urvinnsluna? Dagur B. Eggertsson Endurvinnslu- pólitík STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Bæjarráð Hornafjarðar fagnaði flutningi formlegs aðseturs og lög- heimilis Vatnajökulsþjóðgarðs til Hafnar á síðasta fundi sínum. Nú eru höfuðstöðvarnar í Garðabæ og starfa þar fimm manns, en þær verða fluttar næsta haust, samkvæmt ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um- hverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Ákvörðunin var tekin í samráði við stjórn þjóðgarðsins. Hjá Vatnajökulsþjóðgarði starfa 37 fastir starfsmenn og eru 32 þeirra á starfsstöðvum á landsbyggðinni. Á sumrin bætast við um 80 starfsmenn sem sinna landvörslu, þjónustu og fræðslu og eru þau störf öll unnin á landsbyggðinni. Í frétt á vef ráðuneytisins segir að meginstarfsstöðvar þjóðgarðsins séu á Höfn, Kirkjubæjarklaustri, Skriðu- klaustri, í Ásbyrgi, Mývatnssveit og Skaftafelli. Með flutningnum er gert ráð fyrir að starfsstöðin á Höfn verði efld þar sem framkvæmdastjóri muni hafa þar aðalstarfsstöð. Magnús Guðmundsson, núverandi framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóð- garðs, mun 1. september nk. flytjast í starf sérfræðings í ráðuneytinu. Ingi- björg Halldórsdóttir, staðgengill framkvæmdastjóra og sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Vatnajökulsþjóð- garðs, hefur verið sett í embætti framkvæmdastjóra frá sama tíma þar til skipað hefur verið í embættið. „Vatnajökull er ekki á höfuðborg- arsvæðinu og ég hef aldrei skilið hvers vegna lögheimili þjóðgarðsins er á höfuðborgarsvæðinu. Nú þegar ég er í aðstöðu til að breyta þessu þá geri ég það og flyt með því mikilvæg störf á landsbyggðina,“ er haft eftir ráðherra á heimasíðunni. Fagna flutningi þjóðgarðsins - Höfuðstöðvar Vatnajökulsþjóðgarðs til Hafnar - Mikilvæg störf á landsbyggðina Um 100 manns koma á dag á heilsu- gæslustöðvarnar á höfuðborgar- svæðinu til að fá bólusetningu gegn Covid-19. Um 200 manns, 80 ára og eldri, hafa þegið aðra örvunarbólu- setningu, fjórðu sprautuna á heilsu- gæslustöðvunum. Slíkar bólusetn- ingar eru nú að hefjast um allt land. Hjúkrunarheimilin bólusetja sitt heimilisfólk með fjórðu sprautunni og er reiknað með að þær bólusetn- ingar hefjist nú í maí. Flestir sem eru með bælt ónæmis- kerfi eða ónæmissjúkdóma hafa þeg- ar verið kallaðir inn til að fá fjórðu sprautuna, að sögn Ragnheiðar Ósk- ar Erlendsdóttur, framkvæmda- stjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Fjórir mán- uðir þurfa að vera liðnir frá síðustu sprautu áður en fólk fær fjórðu bólu- setninguna. Það hefur ekki áhrif þótt fólk hafi nýlega smitast af Covid-19. „Við viljum endilega að viðkomandi fái fjórðu sprautuna þótt hann hafi nýlega fengið Covid,“ seg- ir Ragnheiður. Töluvert er um að fólk í öðrum aldurshópum komi í bólusetningu. „Það er kominn ferðahugur í fólk og þá áttar það sig á því að það vantar örvunarskammtinn til að komast til annarra landa. Svo kemur alltaf einn og einn sem er óbólusettur. Mér sýnist að það sé vel bókað hjá okkur næstu vikurnar í bólusetningu.“ Hægt er að hringja í heilsugæslu- stöðvar til að panta tíma eða hafa samband í gegnum netspjall Heilsu- veru og bóka bólusetningu. Um 70 manns koma daglega í PCR-próf í anddyri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í Álfabakka. Hraðpróf eru aðeins í boði á einka- reknum prófunarstöðvum. Það eru aðallega ferðamenn sem koma í PCR-prófin. Þeir eru þá á leið til landa sem krefjast nýlegrar niður- stöðu úr slíku prófi. gudni@mbl.is Áfram bólusett gegn kórónuveiru - 80 ára og eldri fá annan örvunar- skammt Morgunblaðið/Eggert Bólusetning Ferðamenn eru oft beðnir um bólusetningarvottorð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.