Morgunblaðið - 06.05.2022, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 06.05.2022, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2022 Sjómannadagsráð og Hrafnista, sem hafa frá því í maí 2019 annast stjórn hjúkrunarheimilisins Skógarbæjar í samstarfi við Reykjavíkurborg, tóku formlega að fullu við stjórn heimilisins 1. maí sl. Í mars 2019 undirritaði sjálfseignarstofnunin Skógarbær, sem átti og rak samnefnt hjúkrunar- heimili við Árskóga, skammt frá Mjódd í Reykja- vík, samning við sjómannadagsráð, eiganda Hrafnistu, um að Hrafnista tæki við rekstri hjúkr- unarheimilisins hinn 2. maí 2019. Rekstur og skuldbindingar starfseminnar hvíldu áfram hjá Skógarbæ, en Hrafnista tók yfir stjórn og rekstur. Á samningstímabilinu, sem var til að byrja með til ársloka 2020, var Skógarbær sjálfstæður hluti rekstrarsamstæðu sjómannadagsráðs. Í samn- ingnum fólst einnig nýting og rekstur á hluta af húsnæði félagsmiðstöðvarinnar Árskóga, sem samtengd er hjúkrunarheimilinu og rekin af Reykjavíkurborg. Hrafnista tekur við Skógarbæ að fullu Skógarbær Gengið frá samkomulaginu, sem tók gildi í byrjun maí, frá vinstri: Ari Karlsson, Heiða Björg Hilmisdóttir, Ellý Alda Þor- steinsdóttir, Dagur B. Eggertsson, Örn Þórðarson, Aríel Pétursson, María Fjóla Harðardóttir, Rebekka Ingadóttir og Oddur Magnússon. 913 einstaklingar með tengsl við Úkraínu hafa sótt um alþjóðlega vernd hér á landi frá áramótum, þar af 63 á síðastliðinni viku. Alls hefur 1.391 einstaklingur sótt um vernd hérlendis það sem af er ári og eru Úkraínumenn því í miklum meirihluta hvað umsóknir varðar. Þetta kemur fram í stöðu- skýrslu landamærasviðs ríkislög- reglustjóra. Næstflestir eru ein- staklingar með tengsl við Venesúela. Þeir eru 274 talsins. Alls hafa einstaklingar frá 36 löndum sótt um alþjóðlega vernd hér á landi á árinu. Samkvæmt skýrslunni hefur fjöldi fólks á flótta frá Úkraínu til landa Evr- ópusambandsins dregist saman á síðustu vikum. „Fyrstu tíu dagana eftir að átökin í Úkraínu hófust var fjöld- inn 180.000 manns á dag sem síð- an fækkaði niður í að meðaltali 50.000 manns á dag. Undanfarnar tvær vikur hefur sá fjöldi minnkað niður í um 30.000 manns að með- altali á dag,“ segir í skýrslunni. 3. maí síðastliðinn sneru um 29.000 manns aftur til Úkraínu frá löndum innan Evrópu, þar af 26.000 úkraínskir ríkisborgarar. „Frá upphafi átakanna í Úkraínu til 26.04.2022 hafa 242.705 rík- isborgarar Rússlands farið yfir til ESB-landa og að stærstum hluta til Finnlands og Eistlands eða 154.756 manns,“ segir í skýrsl- unni. Tæplega þúsund frá Úkraínu - Fólk frá 36 löndum sótt um vernd á árinu Hæstiréttur hefur samþykkt áfrýj- unarbeiðni karlmanns sem dæmdur var í sex ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps og brot í nánu sam- bandi. Í héraðsdómi var karlmaðurinn sakfelldur fyrir líkamsárás en ekki var fallist á að háttsemin yrði heim- færð undir ákvæði laga um tilraun til manndráps þar sem ásetningur til þess var ekki talinn sannaður. Með dómi Landsréttar var karl- maðurinn aftur á móti sakfelldur fyrir tilraun til manndráps og stór- fellt brot í nánu sambandi. Refsing hans var ákveðin fangelsi í sex ár og honum gert að greiða brotaþola 2.500.000 krónur í miskabætur. Samkvæmt lögum skal Hæsti- réttur verða við ósk ákærða um leyfi til áfrýjunar hafi ákærði verið sýknaður af ákæruefni í héraðs- dómi en sakfelldur fyrir Landsrétti, nema Hæstiréttur telji ljóst að dómi Landsréttar verði ekki breytt. Manndrápstilraun fer fyrir Hæstarétt HJÁLMADAGAR HJÓLAÐU Í VINNUNAMEÐÖRUGGANHJÁLM Skoðaðu úrvalið á orninn.is ME I R I H R E Y F I NG - ME I R I ÁNÆG JA 20% FSLÁTTUR TVEIR HJÁLMARÁ 25% AFSLÆTTI ÞRÍRHJÁLMARÁ 30% AFSLÆTTI MARGARGERÐIR OG LITIR TIL FAXAFEN 8 - SÍMI 588 9890

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.