Morgunblaðið - 06.05.2022, Side 11
11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2022
Dagskrá
2
Skýrsla stjórnar
Ársreikningur
Tryggingafræðileg úttekt
Fjárfestingarstefna
Tillaga stjórnar til breytinga
á samþykktum sjóðsins
Stjórnarkjör
Skipun stjórnarmanna sem ekki eru
kjörnir á ársfundi og laun stjórnarmanna
Kjör endurskoðanda
Önnur mál
Ársfundur Eftirlaunasjóðs
FÍA verður haldinn
föstudaginn 20. maí kl. 13
í Hlíðasmára 8 í Kópavogi.
Allir sjóðfélagar eiga rétt
til setu á fundinum með
umræðu- og tillögurétti.
Fundargögn má nálgast á
vefsíðu sjóðsins, efia.is.
Kosningaumfjöllun í Dagmálum,
frétta- og dægurmálaþætti Morg-
unblaðsins og mbl.is, hefur verið
umfangsmikil undanfarnar vikur og
fram að kosningum verður bætt enn
frekar í. Daglega mun birtast um-
fjöllun í Morgunblaðinu og á mbl.is
með viðtölum við fulltrúa flokka í
sveitarfélögum á höfuðborgarsvæð-
inu, auk viðtala í myndveri Dagmála
við oddvita flokkanna í Reykjavík.
Blaðamenninir Andrés Magn-
ússon, Stefán Einar Stefánsson og
Karítas Ríkharðsdóttir hafa ferðast
um landið, ásamt tæknifólki, og tek-
ið upp þætti með viðtölum við fram-
bjóðendur í þrettán sveitarfélögum
á landsbyggðinni.
Nálgast má þessa umfjöllun á
mbl.is á slóðinni mbl.is/dagmal, auk
þess sem flestir þættirnir eru á
helstu hlaðvarpsveitum.
Sveitarfélögin eru:
. Múlaþing
. Fjarðabyggð
. Norðurþing
. Akureyrarbær
. Fjallabyggð
. Svf. Skagafjörður
. Borgarbyggð
. Akranes
. Stykkishólmur
. Vesturbyggð
. Ísafjarðarbær
. Árborg
. Vestmannaeyjar
5.000 kílómetrar að baki
„Við erum búin að aka í tengslum
við þessi ferðalög ríflega 5.000 kíló-
metra, auk þess að taka okkur far
með Breiðafjarðarferjunni Baldri og
nýja Herjólfi,“ segir Stefán Einar en
þeir Andrés flugu einnig til Akur-
eyrar í vikunni og tóku upp einn þátt
í myndveri með oddvitum flokkanna
þar í bæ. Er sá þáttur nú aðgengi-
legur á mbl.is.
Upptökur hófust í gær með flokk-
unum á höfuðborgarsvæðinu, þar
sem byrjað var á Garðabæ og Sel-
tjarnarnesi, sem fjallað er um hér til
hliðar í opnunni.
Sams konar umfjöllun verður svo
fram að kosningum um Mosfellsbæ,
Kópavog, Hafnarfjörð og Reykjavík.
Morgunblaðið/Brynjólfur Löve
Dagmál Frá upptökum í Norðurþingi með frambjóðendunum Benóný Val
Jakobssyni, Hjálmari Boga Hafliðasyni og Helenu Eydísi Ingólfsdóttur.
Dagmál á ferð og
flugi um landið
- Höfuðborgarsvæðið fram undan
Spyrlar Stefán Einar Stefánsson og
Andrés Magnússon í upptöku.
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
Miðflokkurinn í Reykjavík leggst
gegn því að Reykjavíkurflugvöllur
víki úr Vatnsmýrinni. „Þetta er
hagsmunamál, ekki bara fyrir borg-
arbúa heldur einnig fyrir alla lands-
menn og gríðarlega mikilvægur
samgöngumáti; að geta valið úr
Reykjavík og út á land og einnig
fyrir það fólk sem býr úti á landi og
þarf að koma með börnin sín hingað
til læknis eða í öðrum erindum að
getað notað flugvöllinn okkar í
Reykjavík. Þarna er allt til staðar
og það væri algjör synd að kasta
þessum fjármunum, sem eru í flug-
vellinum í Reykavík út um
gluggann,“ segir Ómar Már Jóns-
son, oddviti Miðflokksins í Reykja-
vík, sem er gestur í Dagmálum.
Innanlandsflug leggist af
Ómar segir ef að fram haldi sem
horfi í skipulagsmálum í kringum
flugvöllinn þurfi innanlandsflug að
öllum líkindum að víkja til Keflavík-
ur. „Þá hef ég verulegar áhyggur af
því að innanlandsflug leggist af á
Íslandi.“
Miðflokkurinn í Reykjavík vill að
ráðningar til borgarinnar verði
stöðvaðar.
„Það er stórmerkilegt að fara yfir
ársreikninga borgarinnar vegna
þess að Reykjavíkurborg er í
hömlulausu sukki, það verður bara
að segjast eins og er,“ segir Ómar
og bætir því við að borgin hafi
margfaldað skuldir sínar á síðast-
liðnum tuttugu árum og skuldir á
hvern íbúa séu of háar. „Ef við
horfum bara á A-hlutann, þá er
borgin að borga um 300 milljónir á
mánuði í vexti og afborganir. Hún
er auka skuldir sínar statt og stöð-
ugt.“
Vill meira eftirlit
Ómar gagnrýnir að slakað hafi
verið á eftirliti með skuldaviðmiði
sveitarfélaga í kjölfar heimsfarald-
urs Covid-19 og vill að eftirlit með
eyslu þeirra sé hert.
„Það er látið eins og við höfum öll
vaknað einn daginn og það vanti
fjögur þúsund íbúðir, eins og eng-
inn hafi séð þetta fyrir,“ segir Ómar
og vill að skipulagt sé hraðar og
þannig fleiri lóðum úthlutað.
Eftir sem áður leggst Miðflokk-
urinn gegn uppbyggingu borg-
arlínu. Spurður hvað Miðflokkurinn
vilji gera í umferðamálum segist
Ómar vilja taka upp Samgöngu-
sáttmálann og velja úr honum.
Ómar kallar eftir meira frelsi á
leigubílamarkaði og telur vera stutt
í snjallalusnir á borð við Uber en
vill þó að þeir sem fyrir eru í leigu-
bílakerfinu eigi forgang í nýtt kerfi.
Aftur á móti vill Ómar beita
leiguþaki vegna ofþenslu á fast-
eignamarkaði. „Þegar maður horfir
á að það er komið í algjört óefni og
það bitnar á íbúunum.[...] Þetta er í
rauninni bjargráð, eina leiðin til að
ná tökum á þessu er að setja leigu-
þak. Það hefur verið gert mjög víða
í Evrópu,“ segir Ómar.
Hann sér þó fyrir sér að því yrði
beitt til skamms tíma.
„Stundum þarf að bregðast við.
Þegar í óefni er komið getur þurft
að grípa inn í þegar aðstæður á
markaði eru orðnar óeðlilegar og
þetta er ábyrgðarhlutverk, hjá ríki
og sveitarfélagi, að taka á þessu.“
Ómar segist gera sér grein fyrir
að á brattann sé að sækja fyrir sig
og Miðflokkinn í borginni en að
hann hafi heldur aldrei ráðist á
garðinn þar sem hann er lægstur.
„Mitt verkefni núna hefur verið
að kynna mig í borginni. Þegar ég
geng úti á götu á Ísafirði eðs Súða-
vík þekkja mig allir, en þegar ég
geng um Laugaveginn þekkir mig
enginn.“
Morgunblaðið/Ágúst Ólíver
Dagmál Ómar Már Jónsson er nýr oddviti Miðflokksins í Reykjavík. Hann var áður sveitarstjóri á Súðavík.
Vill flugvöllinn áfram í
Vatnsmýri og leiguþak
- Oddviti Miðflokksins segir „hömlulaust sukk“ í Reykjavík