Morgunblaðið - 06.05.2022, Side 13

Morgunblaðið - 06.05.2022, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2022 Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO áætlar að á bilinu 13,3 til 16,6 milljónir manna hafi farist af völdum kórónuveirufaraldursins á árunum 2020-2021. Er það um þrefalt hærri tala en opinberar dánartölur hafa gefið til kynna. Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri WHO, sagði að gögnin sýndu ekki bara áhrif heims- faraldursins, heldur einnig þörfina fyrir öll ríki heims til að fjárfesta í heilbrigðiskerfum sem gætu staðið betur af sér slík högg. Áætlun WHO byggir á dauðs- föllum umfram það sem vænta hefði mátt í eðlilegu árferði, ef enginn far- aldur hefði orðið. Talan inniheldur því bæði þá, sem létust beint af völd- um Covid-19-sjúkdómsins, sem og þá sem létust óbeint vegna áhrifa faraldursins á heilbrigðiskerfið og samfélagið. Þá er einnig reiknað með dauðsföllum sem ekki urðu, meðal annars vegna þess að minni líkur voru á að fólk létist í vinnu- staðaslysum eða umferðarslysum. Umdeildar tölur Ef marka má tölurnar felldi heimsfaraldurinn um einn af hverj- um 500 manns, en faraldrinum er ekki enn lokið. Tölurnar þykja hins vegar viðkvæmar, þar sem lesa má út úr þeim gagnrýni á það hvernig stjórnvöld í sumum ríkjum brugðust við heimsfaraldrinum. Hafa stjórnvöld á Indlandi til dæmis gagnrýnt mjög áætlun WHO, þar sem stofnunin segir að á bilinu 3,3-6,5 milljónir manns hafi farist á Indlandi, en stjórnvöld þar segja að 481.000 manns hafi farist. Morgunblaðið/Eggert Bólusetningar Heimsfaraldurinn hefur valdið miklum búsifjum. Dauðsföllin sögð þrefalt fleiri - Indverjar ósáttir við aðferðir WHO Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, bauð í gær Frank-Walter Stein- meier, forseta Þýskalands, og Olaf Scholz Þýskalandskanslara í opin- bera heimsókn til Kænugarðs. Kom boðið í kjölfar símtals á milli forset- anna, sem ætlað var að hreinsa loft- ið í samskiptum Úkraínu og Þýska- lands. Tregða þýskra stjórnvalda til þess að senda þungavopn hafði valdið pirringi meðal Úkraínu- manna, sem töldu Þjóðverja ganga fulllangt til þess að reita ekki Rússa til reiði. Hafði sá pirringur meðal annars leitt til þess að boð Stein- meiers um að heimsækja Kænugarð var afþakkað, sem aftur leiddi til kergju meðal forystumanna í þýska Sósíaldemókrataflokknum SPD. Steinmeier hefur hlotið nokkra gagnrýni frá því að innrásin hófst í lok febrúar, en hann var utanrík- isráðherra þegar Rússar innlimuðu Krímskagann, og hafði meðal ann- ars lagt til að erjurnar í Donetsk- og Lúhansk-héruðunum yrðu leyst- ar með þjóðaratkvæðagreiðslu, líkt og þeirri sem haldin var á Krím- skaga. Þá beitti Steinmeier sér einnig fyrir lagningu Nord Stream 2-jarðgasleiðslunnar. Steinmeier hefur viðurkennt að hann hafi gert mistök með stefnu sinni gagnvart Rússlandi, og í sím- talinu í gær lýsti hann yfir „sam- stöðu, virðingu og stuðningi“ við Úkraínu. Þá sagði hann að Þjóð- verjar stæðu einhuga við hlið Úkra- ínumanna. „Móðguð lifrarkæfa“ Sættir Steinmeiers og Selenskís opnuðu einnig leiðina fyrir Scholz til að heimsækja Kænugarð, en hann var gagnrýndur í vikunni fyrir að hafa ekki lagt leið sína til höfuð- borgar Úkraínu til að sýna sam- stöðu sína. Þótti það ekki síst neyðarlegt í ljósi þess að Friedrich Merz, leið- togi kristilegra demókrata og stjórnarandstöðunnar, heimsótti Kænugarð fyrr í vikunni, en Scholz sagði þá að hann vildi ekki heim- sækja Úkraínu fyrr en búið væri að greiða úr deilum Úkraínumanna við Steinmeier vegna heimboðsins af- þakkaða. Sú afstaða var einnig gagnrýnd og sagði Andrí Melník, sendiherra Úkraínu, að það væri ekki merki um að stjórnskörungur væri á ferð- inni þegar hann hegðaði sér eins og „móðguð lifrarkæfa“, (þ. beleidigte Leberwurst), en það er þýskt tungutak yfir einstakling sem móðgast auðveldlega. „Þetta er grimmilegasta útrým- ingarstríð sem háð hefur verið frá innrás Nasista í Úkraínu. Þetta er ekki leikskóli,“ sagði Melník enn fremur og hvatti þýsk stjórnvöld til þess að uppfylla sem fyrst ákvæði þingsályktunar sem samþykkt var í síðustu viku, um að Þýskaland myndi flýta sendingum á þunga- vopnum til Úkraínu. Í síðustu viku var greint frá því að Þjóðverjar myndu senda Gep- ard-loftvarnadreka til Úkraínu, auk þess sem ríkisstjórnin íhugar að senda sjö Panzerhaubitze 2000- bryndreka til landsins. Þeir eru búnir öflugum hábyssum (e. Howit- zer) sem geta hitt skotmörk allt að 60 kílómetra í burtu, og eru auk þess á beltum, sem gefa byssunum mikinn hreyfanleika. Hábyssurnar yrðu því öflug við- bót í vopnabúr Úkraínumanna, sér í lagi þar sem þeir leggja nú áherslur á að fá öflugar fall- og hábyssur til þess að berjast á móti stórskotaliði Rússa í Donbass-héruðunum. Reyna brottflutning aftur Úkraínumenn sökuðu í gær Rússa um að hafa gengið á bak orða sinna um þriggja daga vopnahlé við Asovstal-stálverksmiðjuna í Maríu- pol, en tilgangur þess var að tryggja að óbreyttir borgarar gætu flúið þaðan. Sameinuðu þjóðirnar og Rauði krossinn sendu fólksflutningabíla til borgarinnar í gær, og var vonast til að bílalestin myndi flytja þá óbreyttu borgara sem enn væru staddir í verksmiðjunni á brott í dag. Borgaryfirvöld í Maríupol áætla að enn séu um 200 óbreyttir borgarar í verksmiðjunni, en 101 var fluttur þaðan á þriðjudaginn. Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagði í gær að rússneski herinn væri enn til reiðu búinn að leyfa al- menningi að yfirgefa stálverksmiðj- una. Sagði Pútín í símtali við Naftali Bennett, forsætisráðherra Ísraels að óbreyttir borgarar myndu fá að fara, en þeir hermenn sem enn væru til staðar yrðu að gefast upp. Ísraelska forsætisráðuneytið greindi frá því eftir samtal leiðtog- anna að Pútín hefði beðið Bennett afsökunar á ummælum Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rúss- lands, sem lýsti því yfir í byrjun vikunnar að Adolf Hitler kynni að hafa haft „gyðingablóð“, og að gyð- ingar væru oft sjálfir mestu gyð- ingahatararnir. Ræddu leiðtogarnir minningu Helfararinnar gegn gyðingum og lýstu yfir áhuga á að þróa áfram „nytsamleg“ samskipti milli leiðtog- anna. Stríðið hafi dregist á langinn Alexander Lúkasjenkó, forseti Hvíta-Rússlands og einn helsti bandamaður Pútíns, viðurkenndi í gær að stríðið hefði „dregist á lang- inn“, en hann ræddi þá við AP- fréttastofuna. Lúkasjenkó varði hins vegar Pútín og sagði hann ekki hafa átt annarra kosta völ en að ráðast inn í Úkraínu vegna „ögr- ana“ Úkraínumanna. Sagði Lúkasjenkó að hann væri að gera allt sem hann gæti til að stöðva átökin og þvertók fyrir að heræfingar sem hvítrússneski her- inn hóf í vikunni væru yfirskin fyrir þátttöku Hvít-Rússa í innrásinni. „Við ógnum engum og við munum ekki ógna neinum,“ sagði Lúkasj- enkó og bætti við að það væri ekki í hag hvítrússneska ríkisins að hefja átök. „Þannig að vesturveldin geta sofið rótt.“ Fá heimboð til Kænugarðs - Sögulegar sættir milli Steinmeiers og Selenskís - Scholz og Steinmeier boðið í opinbera heimsókn - Pútín bað Ísraelsmenn afsökunar á ummælum Lavrovs - Segir Hvít-Rússa ekki hyggja á innrás AFP/Sergei Supinsky Flak Úkraínskur hermaður virðir fyrir sér flak flutningavélarinnar Mríja á flugvellinum í Hostomel. Mríja var af gerðinni Antonov An-225, og var á sínum tíma stærsta flugvél í heimi miðað við vænghaf, en það var 88 metrar. FORNUBÚÐIR 12, HAFNARFIRÐI | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS WWW. S IGN . I S

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.