Morgunblaðið - 06.05.2022, Side 16

Morgunblaðið - 06.05.2022, Side 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2022 Lítið hefur verið fjallað um skipulags- stöðu borgarlínu sem er ekki góð og áhrif hennar óviss. Svæð- isskipulag höfuðborg- arsvæðisins sýnir ekki legu hennar, aðeins hluti hennar er sýndur í aðalskipulagi Reykja- víkur, í aðalskipulagi Kópavogs og Garða- bæjar er hún aðeins sýnd eftir Hafnarfjarð- arvegi og hvergi í að- alskipulagi Hafnar- fjarðar eða Mosfells- bæjar. Afgangurinn er aðeins línur á blaði í skýrslum um borg- arlínuna. Skipulag borgarlínu uppfyllir ekki kröfur til aðal- skipulags að liggja fyr- ir í heild sinni sem áætlun þar sem fjöl- margir samfélags- þættir eru lagðir til grundvallar. Aðal- skipulag skal auglýsa, taka afstöðu til athugasemda og hvort gera skuli breytingar á því. Eftir staðfestingu Skipulagsstofnunar er það lögbind- andi. Skipulag borgarlínu hefur ekki hlotið lögboðna meðferð sem heild. Í umhverfismati svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins og aðal- skipulags Reykjavíkur er nokkuð fjallað um áhrif borgarlínu, en minna í aðalskipulagi Kópavogs og Garða- bæjar. Nær eingöngu er fjallað um áhrif bílaumferðar á loftmengun, en samkvæmt lögum um umhverfismat skal meta áhrif skipulags í heild, m.a. á íbúa, heilbrigði, landslag, jarðveg, loftslag og efnisleg verðmæti. Í þessu felst náttúrulegt og byggt umhverfi, ásýnd, félagslegt umhverfi, fjárhags- legt og hagrænt umhverfi. Flest af þessu vantar í umhverfismat borg- arlínu og hvergi er fjallað um heildar- áhrif af henni. Áhrif á loftslag Í umhverfismatinu er talið að bíla- umferð og loftmengun muni minnka. Loftmengun mun þó hvort eð er minnka með aukinni notkun rafbíla. Allir armar borgarlínu liggja að mið- borginni og líklegt er að notkun henn- ar miðist mest við ferðir þangað til og frá vinnu og skóla kringum kl. 9 og 16. Skrifstofustörfum og þjónustu- og afgreiðslustörfum í miðborginni mun enn fækka með aukinni tölvuvæðingu og fjarvinnu og undirlag fyrir borg- arlínuna minnka. Umferðarkerfi eru þjónustukerfi sem flytja fólk til og frá vinnu, til inn- kaupa, þjónustu, náms og fleira. Borgarlínan hentar ekki vel fyrir all- ar þessar ferðir. Reynslan sýnir að fólk gengur almennt ekki lengra en 200 metra að biðstöðvum og finnst neikvætt að skipta um vagn. Það tek- ur því tæplega strætó til að komast í borgarlínuna. Auk þess er ekki auð- velt að fara milli strætisvagna og borgarlínu með innkaupapoka og börn í leiðinni og ekki verður allt leyst með verslun á netinu. Fyrirtæki flytja hráefni, vörur og fleira og borg- arlína hentar ekki heldur fyrir þær ferðir. Í forsendum borgarlínu er reiknað með að 12% samgangna á höf- uðborgarsvæðinu fari um hana. Það er ofmet- ið, langmestur hluti ferða með henni verður til og frá sjálfri mið- borginni, sem er aðeins lítill hluti allra ferða á höfuðborgarsvæðinu. Samgönguskipulag á að miða að því að skapa rýmd í kerfinu, forðast þrengsli og umferðar- teppur og bæta aðgengi. Borgarlína mun aftur á móti þrengja að götum og auka umferðarteppur með aukinni mengun. Það kemur ekki fram í umhverfismatinu. Óvíst er hvort umferð bíla muni minnka og áhrif borgarlínu á loftslag eru óviss. Við umhverfismat á samgönguleiðum þarf einnig að skoða áhrif á þá sem ferðast eftir þeim. Með borgarlín- unni á að setja Miklu- braut í stokk eða jarð- göng á 1,5 km kafla. Þar eru meiri líkur á mengun, ökumenn og farþeg- ar horfa aðeins á veggi og áhrifin yrðu þau sömu og að aka Hvalfjarð- argöngin, sem engum finnst víst já- kvæð upplifun. Rask af framkvæmdum Mikið rask verður þar sem byggð á að víkja. Í Ártúnshöfðanum þarf t.d. að kaupa og rífa iðnaðarhúsnæði sem margt er heilt og í fullri notkun. Af niðurrifi húsanna hlýst loftmengun og kolefnislosun, farga þarf bygging- arefninu, sem er líklega mengað, hreinsa mengaðan jarðveg og farga. Skipta þarf um jarðveg í breyttu gatnakerfi og flytja allar lagnir með tilheyrandi kolefnislosun. Umhverfis- áhrifin eru hér verulega neikvæð. Fjárhagslegur ávinningur af nýbygg- ingum lendir á höndum verktaka og fjárfesta og ólíklegt er að þeir fari í slík verkefni án verulegs hagnaðar. Íbúðarverðið verður tæplega í lægri kantinum og ekki er víst að tekjulítið fólk hafi efni á húsnæðinu. Félagsleg áhrif verða því hugsanlega neikvæð. Niðurstaða Skipulag borgarlínu í heild sinni er án lögbundinnar stöðu, það uppfyllir ekki skilyrði þess að kallast aðal- skipulag og hefur ekki hlotið lög- boðna meðferð. Það er sett fram í bútum í aðalskipulagi sveitarfélag- anna án þess að allir hlutar þess séu sýndir í neinu þeirra og íbúum hefur aldrei gefist kostur á að tjá sig um það í heild sinni né afleiðingar þess. Notkun þess, arðsemi og áhrif þess að draga úr notkun einkabílsins virð- ast mjög ofmetin. Ekki hafa öll áhrif á samfélagið verið metin eða sýnt fram á jákvæð umhverfisáhrif og það þarf verulega auknar rannsóknir á heild- aráhrifum borgarlínunnar. Skipulag má ekki setja fram í bútum með óljós- um áhrifum, heldur þarf það að vera birt íbúum í heild sinni með fullunnu umhverfismati. Borgarlínuskipulagið uppfyllir það ekki og er því aðeins hálfklárað í núverandi mynd. Hálfklárað skipulag borgarlínu Eftir Bjarka Jóhannesson » Skipulag borgarlínu í heild sinni er án lögbundinnar stöðu, það upp- fyllir ekki skil- yrði þess að kall- ast aðalskipulag og hefur ekki hlotið lögboðna meðferð. Bjarki Jóhannesson Höfundur er skipulagsfræðingur. Rússar viður- kenndu sjálfstjórn Luhansk og Donetsk í byrjun þessa árs. Árið 1999 stóðu Serbar í sporum Úkraínu- manna, þegar Albanir í Kósóvó-hjeraði lýstu yfir sjálfstæði. Serb- nesk stjórnvöld brugðust við til að varðveita einingu rík- isins. Af hlutust hrottaleg átök og morðvíg. Þrátt fyrir fátkennd afskipti Evrópusam- bandsins lauk þeim ekki fyrr en Bandaríkin beittu sjer fyrir hern- aðaríhlutun NATO. Samkvæmt þá- gildandi samþykktum bandalagsins var aðgerðin ekki heimil. Fram að þessu hafði bandalagið verið varnarbandalag vestrænna þjóða, en breyttist nú í hreinræktað hernaðarbandalag. Að loknum kosningum í Kósóvó í boði banda- lagsins varð hjeraðið sjálfstætt ríki. Síðan hefur NATO verið beitt til árása á Afganistan og Líbíu og „hin viljugu“ ríki herjað í Írak, allt lönd- um utan Evrópu. BNA og NATO hafa borið hróður Vesturveldanna á vettvangi þjóðanna í afkastamikilli eyðileggingu þessara landa og tæknivæddum morðvígum sem raunar tekur fram framferði Rússa í Tjetseníu og Sýrlandi og nú í Úkraínu. Fljótlega eftir fall Sovjetríkjanna leystist Varsjárbandalagið upp. Friðarsinninn Gorbasjof bannaði valdbeitingu til að halda saman hrynjandi Sovjetríkjum, treysti fyr- irheitum um, að NATO kæmi ekki upp herstöðvum í ríkjum Varsjár- bandalagsins, enda hafði hann fall- izt á sameiningu Þýzkalands upp á þau fyrirheit. Einar forsetakosningar vestan hafs þurfti til að þetta liði hjá. Árið 1999 gengu Pólland, Tjekkneska sambandsríkið og Ungverjaland í NATO. Eistland, Lett- land og Lithaugaland, Rúmenía og Búlgaría gengu í hernaðar- samtökin árið 2004 í boði Bandaríkjanna. Rússar ljetu þetta yfir sig ganga, enda við ær- in verkefni að etja heima fyrir. Á fundi NATO- ríkjanna í Búkarest hinn 3. apríl árið 2008 bauð Bandaríkjaforseti Albaníu og Króatíu að- ild og fagnaði áhuga Úkraínu og Georgíu á að eignast hlutdeild í Vesturevrópska ríkjabandalaginu og inngöngu í NATO. Frakkar og Þjóðverjar mölduðu í móinn, en þrátt fyrir það var þeim boðuð að- ild. Viðbrögð Rússa voru skýr: Pútín kallaði þessa aðgerð NATO beina ögrun við öryggi Rússlands. Örvaðir af hinu nýja vinfengi af- námu Georgíumenn heimastjórn Suður-Ossetíu, sjálfstjórnarhjeraðs þjóðarminnihluta innan Georgíu, og rjeðust á þá. Rússar brugðust við með því að viðurkenna sjálfstæði Suður-Ossetíu og Abkasíu. Úkraína fór sjer hægt að sinni. Bylting var gerð í Úkraínu í febrúar árið 2014. Aðdragandinn var sá, að Evrópusambandið bauð fúlgur fjár til endurreistar landsins. Rússar lögðu til alþjóðlegt átak í þessu skyni með aðkomu sjálfra sín og hjetu háum lánum. Hinn 21. nóvember 2013 afþakkaði Janúkó- vits Úkraínuforseti lán Evrópusam- bandsins. 1. desember hófust upp- þot gegn ríkisstjórn landsins. 17. desember bauð Pútín 15 milljarða dollara lán. 22. janúar 2014 urðu uppþot í Kænugarði. Mannfall varð. Í febr- úarmánuði drápu leyniskyttur um sjö tugi manna í Kænugarði. Rúss- um var kennt um manndrápin. Í ljós kom síðar, að úkraínskir aðgerðasinnar myndu hafa staðið að þeim. Þetta mun utanríkis- ráðherra Eista hafa staðfest. Varð þá hljótt um ásakanir um hríð. Á sama ári brenndu úkraínskir aðger- ðasinnar, kenndir við Azov, tugi manna inni í Odessa. Enginn hefur fylgt þeim glæp eftir. Hins vegar bauð forsetinn, að flýtt yrði for- setakosningum. Yrðu þær haldnar í maí. Valdarán varð í landinu og forsetinn flúði land hinn 22. febr- úar. Bráðabirgðastjórn, sem þingið kaus, tók við stjórn landsins. Var skammt að bíða þess, að látið var til skarar skríða gegn Rússum í austurhjeruðum landsins sem notið höfðu heimastjórnar um ýmis mál- efni svo sem sveitarstjórn og skóla- mál. Stjórnarskrá landsins var breytt og heimastjórn þeirra af- numin. Þetta gerðist í maí. Síðan 2014 hafa Azov-liðar barið á Rúss- um í Luhansk og Donetsk. Rúss- neskir aðgerðasinnar með stuðningi Rússa hafa svarað í sömu mynt. Stríð hefur staðið þarna æ síðan. Friðarsamningunum frá Minsk var aldrei fylgt eftir. Hinn 7. marz höfðu íbúar Krím- skaga kosið um það, hvort þeir vildu heldur vera hluti Rússlands eða Úkraínu. Þorri kjósenda vildi vera Rússar. Daginn eftir samein- aðist Krím Rússlandi á ný. Íslendingar studdu sjálfsákvörð- unarrjett Eista, Letta og Litháa til sjálfstæðis; höfðu vitaskuld áður stutt Albanina í Kósóvó til hins sama. Eru Rússarnir á Krím og í austurhjeruðum Úkraínu óverðugri til þess að ráða sjer sjálfir en þeir? Til upprifjunar Eftir Geir Waage Geir Waage » Viðbrögð Rússa voru skýr: Pútín kallaði þessa aðgerð NATO beina ögrun við öryggi Rússlands. Höfundur er pastor emeritus. Eitt af stærstu sam- félagslegu verkefnum næstu ára er að búa vel að eldra fólki. Málefni eldri borg- ara í Fjarðabyggð eru mikilvægur grunnur að sterku og blómlegu samfélagi. Á kjörtíma- bilinu hófst stefnu- mótun um málefni aldraðra, enda teljum við nauðsynlegt að móta skýra framtíðarsýn í málaflokknum og vinna markvisst að framþróun á breiðum vettvangi sem snýr að því að auka lífsgæði eldri borgara. Stefnan verður að vera lifandi og taka mið af samfélagslegri þróun og þörfum íbúa hverju sinni. Mikil- vægt er að vinna stefnumótunina í samvinnu við eldri borgara, þannig að áhersla í þjónustu sé í takt við þarfir og óskir þeirra sem hana nota. Þjóðin er að eldast og brýnt að stefnumótun og undirbúningsvinna taki mið af því. Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands árið 2020 var hlut- fall landsmanna 65 ára og eldri 14,4%. Hlutfall eldra fólks í Fjarða- byggð er í takt við landið allt. Hag- stofa Íslands hefur gefið út miðspá um mannfjölda Íslendinga til fram- tíðar og ef spár ganga eftir verður hlutfall landsmanna 65 ára og eldri orðið 25% árið 2064. Á síðasta ári sagði Fjarðabyggð upp samningi við SÍ um rekstur hjúkrunarheimilanna Uppsala og Hulduhlíðar. Það var gert í kjölfar árangurslausra viðræðna við ríkisvaldið vegna viðvarandi halla- reksturs hjúkrunar- heimila sem sveitarfélag- ið sat uppi með. Við þessi skil stendur eftir að Fjarðabyggð hefur greitt um 270 milljónir með þeim rekstri. Bæjaryfir- völdum í Fjarðabyggð þótti miður að þurfa að fara í þessar aðgerðir, en skýringin er sú að dag- gjöldin sem standa eiga undir rekstrinum endurspegluðu ekki raunverulegan kostnað og ekki var vilji hjá ríkisvaldinu til að koma á móts við Fjarðabyggð vegna þessa, en heilbrigðismál eru á forsjá ríkisins. Í Fjarðabyggð er engu að síður enn þörf á hjúkrunarrýmum og þörfin á bara eftir að aukast. Fjarðalistinn hefur barist fyrir því að ríkið uppfylli þá þörf og það mun- um við halda áfram að gera þar til öllum eldri borgurum í Fjarðabyggð býðst sú þjónusta sem ríkinu er ætl- að að veita. Fólk á að hafa val um búsetu óháð aldri og þjónustuþörf- um og það er mikilvægt að ríkis- valdið dragi ekki úr tækifærum fólks til að eldast í heimabyggð. Til þess að búa vel að öldruðum þarf að bjóða upp á búsetuform við hæfi hvers og eins með einstaklings- miðaðri þjónustu. Aukin uppbygg- ing á húsnæði hefur sjaldan verið mikilvægari og þá sérstaklega þeg- ar litið er til framboðs á húsnæði sem hentar eldri kynslóðum. Lögð verður áhersla á að fjölga litlum og meðalstórum íbúðum. Auka þarf úr- ræði sem stuðla að því að eldra fólk geti búið sem lengst heima og það er gert til dæmis með rekstri á dagdvalar/dagþjónustu í samvinnu við ríkið. Dagdvöl er stuðnings- úrræði fyrir eldra fólk sem býr í heimahúsum en þarf á meiri þjón- ustu og stuðningi að halda. Við telj- um einnig brýnt að auka aðgengi að velferðartækni, bæði í þjónustu og inni á heimilum eldri borgara. Tekjuviðmið og afsláttur eldri borgara og öryrkja af fasteigna- skatti var hækkaður svo um munar á kjörtímabilinu. Einnig er nú í fyrsta sinn boðið upp á garðslátt og snjómokstur fyrir þann hóp og er sú þjónusta gjaldfrjáls fyrir tekju- lág heimili. Við eigum og verðum að byggja upp samfélag þar sem er gott að eldast. Við í Fjarðabyggð erum svo lánsöm að hér býr fjölbreyttur hóp- ur eldri borgara og mikilvægt að við sníðum þjónustuna með það fyr- ir augum. Við ætlum áfram að skapa öldruðum fjölbreytt tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu. Eftir Hjördísi H. Seljan Þóroddsdóttur »Mikilvægt er að vinna stefnumót- unina í samvinnu við eldri borgara, þannig að áhersla í þjónustu sé í takt við þarfir og óskir þeirra sem hana nota. Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 2. sæti Fjarðalistans – lista félags- hyggjufólks í Fjarðabyggð. hjordisseljan@gmail.com Það á að vera gott að eldast í Fjarðabyggð ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VANTAR ÞIG PÍPARA?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.