Morgunblaðið - 06.05.2022, Side 22

Morgunblaðið - 06.05.2022, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2022 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Zumba Gold 60+ kl. 10.30. Kraftur í KR kl. 10.30, rútan fer frá Vesturgötu 7 kl. 10.10, Grandavegi 47 kl. 10.15 og Aflagranda 40 kl. 10.20. Upphitun fyrir Söngvakeppnina, spurningakeppni, 2 lið, kl. 13.30, hvetjum alla til að taka þátt, kostar ekkert. Kaffi kl. 14.30-15.20. Nánari upplýsingar í síma 411-2702. Allir velkomnir. Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Leikfimi með Milan kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. Sími 411-2600. Boðinn Pílukast kl. 9. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Opin Listasmiðja kl. 9-12.Thai Chi kl. 9-10. Hádegismatur kl. 11.30- 12.30. Bíósýning kvikmyndahóps Hæðargarðs kl. 13. Opin Listasmiðja kl. 13-15.45. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Garðabær Kl. 10 gönguhópur frá Jónshúsi, kl. 13-16 Vorsýning í Jónshúsi, kl. 13-15.30 kaffiveitingar, kl. 14 Zumba-danssýning heldri borgara, kl. 13-16 smiðjan opin, allir velkomnir. Gjábakki Kl. 8.30-11.30 opin handavinnustofa, kl. 9-11.15 botsía- æfing, kl. 9-11.30 postulínsmálun, kl. 13-15.30 tréskurður, kl. 13-15.30 opið í pílukast, kl. 20-22 félagsvist. Hraunsel Billjard kl. 8-16. Línudans kl.10. Brids kl. 13. Dansleikur kl. 20, Dansbandið spilar. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Handa- vinna, opin vinnustofa frá kl. 10. Brids kl. 13. Hádegismatur kl. 11.30– 12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Borgum Pílukast í Borgum kl. 9.30. Gönguhópar frá Borg- um og inni í Egilshöll, tveir styrkleikaflokkar svo að allir finna göngu við sitt hæfi kl. 10. Brids kl. 12.30. Hannyrðahópur kl. 12.30.Tréút- skurður á Korpúlfsstöðum kl. 13. Góða helgi. Gleðin býr í Borgum. Seltjarnarnes Kaffikrókur opinn frá kl. 9. Mætum öll í SUMARSALSA í dag salnum á Skólabraut kl. 11-11.30. Hildigunnur salsa- og zumba- dansari leiðir dansinn. Mætum í einhverju litaglöðu og léttum íþrótta- skóm. Dönsum salsa inn í sumarið með suðrænni tónlist. Allir vel- komnir. Kl. 13 verður svo söngstund í salnum á Skólabraut undir stjórn Bjarma Hreinssonar. Allir velkomnir og kaffi á eftir. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar aukahlutir Ferðabox til sölu Thule Pacific 700. Verð 50.000 kr. Uppl. í síma: 697-9192 alltaf allstaðar mbl.is ✝ Sigríður Sig- urðardóttir fæddist í Reykjavík 28. janúar 1945. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Suð- urlands 18. apríl 2022. Foreldrar henn- ar voru Ingibjörg Einarsdóttir bók- sali, f. 9. ágúst 1915, d. 23. júní 1999, og Sigurður Sveinsson sjó- maður, f. 17. september 1916, hann fórst með Goðafossi 10. nóvember 1944. Sigríður var elst systkina sinna. Sammæðra eru Áslaug Jóhannesdóttir, f. 3. janúar 1950, og Einar Már Jó- hannesson, f. 6. desember 1951. Sigríður giftist eftirlifandi eig- inmanni sínum, Kjartani Björns- syni, f. 14. mars 1945, hinn 26. desember 1965. Börn þeirra eru: 1) Ingibjörg, f. 8. október 1965, gift Rúnari Sigurðssyni, synir þeirra eru a) Kjartan ráðskona. Þaðan fluttu þær að Merkisteini á Eyrarbakka þar sem þær bjuggu til 1956 en fluttu þá til Reykjavíkur þar sem þær bjuggu ásamt yngri systkinum Sigríðar. Eftir grunnskóla lærði Sigríður til fóstru í Fóstruskólanum og starfaði á leikskólum á Seyðis- firði og í Reykjavík. Sigríður og Kjartan hófu búskap á Njáls- götu 40 í Reykjavík. Þau bjuggu í Reykjavík til 1970, en fluttu þá austur í Hveragerði og bjuggu þar til 1980 en þá tóku þau við búi foreldra Kjartans á Völlum í Ölfusi. Þau byggðu sér nýbýli á Grásteini í Ölfusi 1995 þar sem þau bjuggu þar til hún lést. Sigríður vann í leikskólanum Undralandi í Hveragerði, en lengst starfaði hún á Heilsu- stofnun NLFÍ og starfaði hún þar til starfsloka. Sigríður var söng- og listelsk og söng lengi með kirkjukór Hveragerðis og Kotstrandar- sóknar og Söngsveit Hvera- gerðis. Sigríður var félagi í Leikfélagi Hveragerðis og starf- aði með því um árabil. Útför Sigríðar fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu frá Kotstrandarkirkju 29. apríl 2022. Helgi, í sambúð með Eyrúnu Sif Kragh, þau eiga eina dóttur, b) Sigurður Björn, í sambúð með Sigríði Jóhannesdóttir Danner, þau eiga tvö börn. 2) Björn, f. 17. janúar 1968, giftur Sigrúnu Jónsdóttur, börn þeirra eru a) Sig- ríður María, gift Jóel Salomon Hjálmarssyni, þau eiga einn son, b) Guðmundur Pétursson, í sam- búð með Ernu Sigurðardóttur, fyrir á hann á þrjú börn, c) Hanna Tara, framhaldsskóla- nemi. 3) Helena, f. 19. ágúst 1972, gift Guðmari Jóni Tóm- assyni, börn þeirra eru a) Tómas Ingi, hann á eina dóttur, b) Kar- en Dís söngnemi. Sigríður bjó með móður sinni í Reykjavík til fimm ára aldurs er þær fluttu að Þórustöðum í Ölfusi þar sem Ingibjörg var Minning um móður Í hjarta mínu er lítið ljós, sem logar svo skært og rótt. Í gegnum torleiði tíma og rúms það tindrar þar hverja nótt. Það ljósið kveiktir þú, móðir mín, af mildi, sem hljóðlát var. Það hefur lifað í öll þessi ár, þótt annað slokknaði þar. Og þó þú sért horfin héðan burt og hönd þín sé dauðakyrr, í ljósi þessu er líf þitt geymt, – það logar þar eins og fyrr. Í skini þess sífellt sé ég þig þá sömu og þú forðum varst, er eins og ljósið hvern lífsins kross með ljúfu geði þú barst. Af fátækt þinni þú gafst það glöð, – þess geislar vermdu mig strax og fátækt minni það litla ljós mun lýsa til hinsta dags. (Jóhannes úr Kötlum) Guð geymi þig, elsku mamma, hafðu þökk fyrir allt og allt. Ingibjörg (Inga), Björn og Helena. Þrátt fyrir þá miklu sorg sem fráfall ömmu hefur valdið lýsir ljós hennar skært í gegnum alla þá sem hún snerti. Ljósið sem lifir áfram í mér og öllum þeim sem fengu að upplifa ást, styrk, visku og fegurð sálar hennar. Amma átti stóran þátt í æsku minni og uppeldi og er ég einstaklega þakklát fyrir að hafa átt hana að. Hún var stoð mín og stytta í gegnum erf- iðleika allt fram á síðasta dag. Þegar ég lít til baka sé ég aug- ljóslega þá óbilandi þolinmæði og styrk sem hún bjó yfir og heim til hennar og afa hef ég ávallt getað leitað. Við fórum alltaf með bænirnar saman áð- ur en hún bauð góða nótt og ræktaði hún með mér þá trú sem ég er skírð til, því var það henni afar kært þegar ég hóf nám í guðfræði. Sumar af uppá- haldsminningum mínum úr sveitinni voru ferðir okkar í gróðrarstöðina þar sem við völdum sumarblóm sem við settum svo niður saman í garð- inum. Hún hafði óteljandi kosti, hélt fallegt heimili og átti allra fallegustu garðana. En aldrei kom henni til hugar að trana sjálfri sér fram, ekki frekar en að mismuna fólki, hún var ein- faldlega ekki þannig mann- eskja. Það var einmitt það sem var svo heillandi við ömmu og þá einstöku hæfni sem hún hafði til þess að umvefja allt og alla kærleik. Sorg og kærleikur eru ná- tengd fyrirbæri, svo tengd að annað getur vart þrifist án hins. Því er það mín ósk að allir þeir sem nú upplifa sorg vegna fráfalls ömmu minnist þess kærleiks sem þeir áður fundu. Minningarnar um elsku kær- leiksríku og hjartahlýju ömmu verða okkur huggun um ókomna tíð. Ég verð ævinlega þakklát fyrir þig, amma mín. Megi ljós og friður fylgja þér. Sigríður María Björnsdóttir Fortescue. Sigga var stóra systir mín. Hálfsystir. Þegar mamma gekk með Siggu drukknaði pabbi hennar á Gamla Goðafossi. Mamma var einstæð móðir og árið var 1945. Sigga var á vöggustofu fyrsta árið en var svo í góðu atlæti hjá ömmu og afa. Þar leið henni vel. Umvafin stórfjölskyldunni. Því er haldið fram að atlætið fyrstu árin móti manneskjuna. Sigga var stór- fjölskyldumanneskja. Hún hélt utan börnin sín og barnabörn og ekki síður börnin mín sem hún reyndist svo vel. Sigga var fimm ára þegar ég fæddist á Þórustöðum í Ölfusi þar sem mamma kynntist pabba mínum. Mamma og pabbi fluttu á Eyr- arbakka þar sem Sigga tók sín fyrstu skref í skóla. Henni leið ekki vel, hjónaband pabba og mömmu alltaf í upplausn og ör- yggið sem hún upplifði hjá ömmu var hrifsað burt. Sigga var 11 ára þegar við fluttum til Reykjavíkur og pabbi og mamma skildu. Fyrst bjuggum við hjá ömmu og afa en svo fluttum við á Langholtsveginn og mamma fór að vinna á vökt- um sem þjónn á Kaffi Höll og Hressingarskálanum. Þá hófust tengsl okkar Siggu fyrir alvöru því hún passaði okkur, mig og Einsa sem er sjö árum yngri en Sigga. Hún var 12 ára, var í ballett og hafði mikinn áhuga fyrir dansi. Hún kenndi mér að dansa. Tjútt og djæf. Um leið og mamma lokaði hurðinni og fór í vinnuna stillti Sigga á kanaútvarpið og kallaði stik- korðið: „Ása, komdu að dansa!“ Þetta var besti tíminn og við nutum þess báðar. Svo verður Sigga unglingur og eignast fullt af vinkonum sem túberuðu hár- ið og sóttu Vetrargarðinn. Þá kynnti hún mig fyrir Ellu Fitz- gerald, Neil Sedaka og öllum þeim. Hún gaf mér líka Porgy and Bess. Fór með mig litlu systur í bíó. Ég var sem lömuð, hafði aldrei upplifað blús fyrr, en síðan er hún uppáhalds- tónlistin mín. Sigga var 17-19 ára þegar hún flutti að heiman. Fékk vinnu á Hrafnistu og leigði her- bergi með Ólínu vinkonu sinni. Þegar hún fékk fyrstu launin útborguð keypti hún gjafir og færði okkur, mér, mömmu og Einsa bróður. Þá sá ég hvers konar höfðingi hún var. Stór manneskja full af margs konar tilfinningum og snillingur í að umgangast börn. Þegar Sigga hitti hann Kjartan sinn var ekki nokkur vafi á að ástin hafði knúið dyra. „Hefur einhver hringt?“ spurði hún iðulega þegar hún kom heim og ég skynjaði eftirvænt- inguna og spennuna sem fylgir fyrstu ástinni. Við áttum börn á svipuðum tíma og ég varð fljótlega ein með mín og flutti norður en Sigga flutti austur. Sigga var mér stoð og stytta og börnin mín voru alltaf velkomin. Ég er henni ævinlega þakklát fyrir það og alla aðra hjálp. Við vor- um alla tíð ólíkar en á þessum tíma fór að myndast gjá á milli okkar. Fórum hvor í sína átt- ina. Ég var aldrei eins og ég átti að vera og hún ekki heldur. En þakklæti og væntumþykja eru einu tilfinningarnar sem ég ber til hennar. Elsku hjartans systir mín, góða ferð til draumalandsins. Ég veit að afi og amma tóku á móti þér og að þú ert umvafin ljósi og kærleika. Ég sendi Kjartani, börnum þeirra, barnabörnum og barna- barnabörnum mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Ása systir, Áslaug Jóhannesdóttir. Sigríður Sigurðardóttir Gott er sjúkum að sofna, meðan sólin er aftanrjóð, og mjallhvítir svanir syngja sorgblíð vögguljóð. Gott er sjúkum að sofa, meðan sólin í djúpinu er, og ef til vill dreymir þá eitthvað, sem enginn í vöku sér. (Davíð Stefánsson) Ég vil kveðja bestu ömmu sem hægt er að hugsa sér, bestu ömmu í heimi, með örfáum orð- um. Við fengum aðeins 4 ár sam- an. Amma mín var alltaf vakin og sofin yfir velferð minni. Þó hún væri orðin veik var hún Birgit Henriksen ✝ Birgit Henrik- sen (Bigga) fæddist 12. ágúst 1942. Hún lést 12. apríl 2022. Útför Birgitar var gerð 28. apríl 2022. óþreytandi að leika við mig. Minningar eru blessun. Og ég á margar minning- ar í formi óteljandi mynda af okkur saman og bókanna sem amma las fyrir mig. Ég vil þakka fyrir ást, um- hyggju, gjafmildi og handleiðslu ömmu. Ég sakna þín. Guð blessi ömmu mína, Birgit Henriksen. Jón Sæmundur Alfreðsson. Í uppvextinum á Siglufirði hlakkaði ég alltaf til þegar Bigga frænka kom í heimsókn. Þau Jón Sæmundur komu með tískufatnað til okkar systkin- anna frá Þýskalandi sem mér þótti mjög flott að fá. Seinna kom Ragnheiður í heimsókn líka og þótti mér gaman að kynnast litlu frænku minni. Þegar ég flutti suður í nám var gott að eiga Biggu frænku og hennar fjölskyldu að. Mér þótti alltaf gaman að heimsækja þau því það var svo létt yfir heimilis- haldinu. Hjá þeim fékk ég at- hygli og umhyggju og spennandi mat að borða. Bigga var upptekin af fjöl- skyldurótunum í Haugasundi í Noregi og þegar ég flutti til Noregs var gaman að ræða við hana um dvöl hennar í Hauga- sundi á unglingsárunum. Hún sagði mér oft frá sínum tíma þar og við skoðuðum gömul fjöl- skyldualbúm. Í seinni tíð var sambandið mest tengt heim- sóknum mínum og minnar fjöl- skyldu til Íslands. Allaf var tekið vel á móti okkur í Hafnarfirð- inum og mikið var spjallað. Við Petter og fjölskyldan í Noregi minnumst Biggu frænku með söknuði, hlýhug og kærleika. Þó hljótt sé nú orðið um hauður og sjá, eg hjarta míns óróa kenni. Þá kemur hún til mín, hin hvikula þrá, eg kemst ekki burtu frá henni. Og ósjálfrátt hvarflar þá hugur minn heim, þar hrannir við ströndina drottna. Eg saknandi þrái að sameinast þeim, – í sál minni öldurnar brotna. Og þar eru fjöllin svo hátignar há, svo hljómfagurt lækirnir niða. Og þar eru útmiðin blikandi blá með bjargráð – og öldurnar kliða. Þar hef eg lifað og leikið mér dátt með lífsglöðum vinum á kveldin. Við trúðum á sjálfra’ okkar megin og mátt. Eg man, það var leikið með eldinn. Og hvert sem fleyið mitt flækist um mar, þótt fram undan engin sé ströndin, eg varðveiti allt, sem eg eignaðist þar, meðan eygði í draumsjóna-löndin. Og þegar leiðin mín loksins er öll og leystur úr fjötrum er andinn, þá bergmálið yfir mér, bláskyggðu fjöll, og bárur gjálpið við sandinn. (Siglufjörður eftir Signýju Hjálmarsdóttur) Við sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur til Jóns Sæ- mundar, Ragnheiðar og Jóns Sæmundar jr. Sigrún og fjölskylda. Það sem skiptir máli er að lifa í núinu, lifðu núna, því hvert augnablik er núna. Hugsanir þínar og gjörðir á hverju augnabliki skapa framtíð þína. Útlínur leiðar þinnar í framtíðinni eru þegar til, því þú skapaðir mynstur hennar með fortíð þinni. (Sai Baba) Það er ekki alltaf tímalengd viðkynningar við fólk sem skiptir máli, heldur innihald þess tíma, sem kynnin veita. Ég var á mannræktarfundum með Þórarni í nokkurn tíma, en hitti hann svo ekki aftur fyrr en nokkrum árum síðar og þá var með honum einhver sú fríð- asta og svipbesta stúlka sem ég hef hitt á þessum vettvangi. Ég hef aldrei gleymt henni og varð mjög illa við þegar ég frétti að hún væri dáin. Það er svo sann- arlega ekki sama gæfa og gjörvileiki. Síðan hef ég ekki séð hann, en þegar ég frétti um Þórarinn Baldursson ✝ Þórarinn Bald- ursson fæddist 7. ágúst 1951. Hann lést 5. mars 2022. Útför Þórarins hefur farið fram í kyrrþey. dauða hans fann ég fyrir löngun til að minnast þessa vinsamlega manns og þakka fyrir kynni sem voru ekki mikil en að öllu leyti góð. Ég held að hann hafi stundum verið þreyttur vegna þess að hann virt- ist eiga svo erfitt með að skilja starfið eftir fyrir utan dyrnar, en við hin nutum svo sannarlega góðs af þeim viðræðum. Það þarf meiri kjark til að segja satt en ljúga, sjálfstraust til að efast, er aðrir trúa djörfung til að mæla gegn múgsins boðum, manndóm til að hafa eigin skoðun. Því þarf magnað þor til að vera sannur maður, meta sinn vilja fremur en fjöldans daður, fylgja í verki sannfæringu sinni, sigurviss, þó freistingarnar ginni. (Árni Grétar Finnsson) Ég sendi ykkur fólkinu hans mínar bestu samúðarkveðjur og bið þess að góðar minningar um hann og Sigurveigu megi ylja ykkur um ókomna tíð. Blessuð sé minning þeirra. Rúna Knútsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.