Morgunblaðið - 06.05.2022, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 06.05.2022, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2022 30 ÁRA Jónas er frá Egilsstöðum en býr í Garðabæ. Hann lauk laganámi frá Háskóla Íslands og starfar sem lög- fræðingur hjá Íslandsbanka. Áhuga- málin eru íþróttir og ferðalög. Jónas lék knattspyrnu með Hetti á Egils- stöðum til ársins 2017 ásamt því að leika körfuknattleik á sínum yngri árum. FJÖLSKYLDA Eiginkona Jónasar er Lejla Cardaklija, f. 1993, með meist- aragráðu í alþjóðasamskiptum og starfar sem einstaklingsráðgjafi hjá Ís- landsbanka. Dóttir þeirra er Esma Dís, f. 2021. Foreldrar Jónasar eru Ágústa Björnsdóttir, f. 1962, fv. útibússtjóri á Egilsstöðum, og Hafsteinn Jónasson, f. 1959, húsasmíðameistari með eigin rekstur. Þau eru búsett á Egilsstöðum. Jónas Ástþór Hafsteinsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú ert ekki gift/ur eigin skoðana- heimi, og hefðir gott af því að kíkja inn í skoðanaheim einhvers annars. Himinn og jörð eru ekki að farast þótt dráttur verði á afgreiðslu á hlut sem þú hefur beðið eftir. 20. apríl - 20. maí + Naut Í dag ætti að rækta vinskap og blanda geði við aðra. Farið á kaffihús eða bjóðið vin- um ykkar heim. Þú færð boð í brúðkaup. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Í samstarfi hefst ekkert án mála- miðlana. Reyndu að beina unglingi inn á nýja braut. Margt smátt gerir eitt stórt. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú ert ástfangin/n. Vertu opin/n fyr- ir breytingum sem eru fram undan í þínu lífi. Þú gerir allt sem þú getur til að gleðja aðra. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Samkeppnisandinn er mikill og biðin eftir langþráðum sigri ýtir undir eirðarleysi. Axlaðu ábyrgð þína í vissu máli, þér líður betur á eftir. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú íhugar atburði sem gerast fyrir framan þig, en líka tilfinningarnar á bak við þá. Láttu það ekkert á þig fá þótt þú sért milli tannanna á fólki. 23. sept. - 22. okt. k Vog Margir taka mark á draumum og þú ert á þeim buxunum. Góðir vinir eru þeir sem snúa aldrei við þér baki. Þú átt nokkra þann- ig. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þér verður gert tilboð sem hljómar þannig að það sé of gott til að vera satt. Reyndu að gefa þér tíma til svolítillar einveru í dag. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Vandinn hverfur ekki þótt þú lítir framhjá honum. Þér verður bent á úrbætur og þú tekur þeim hugmyndum fegins hendi. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Láttu ekki aðra hrifsa til sín það sem í raun er þitt. Vertu óhrædd/ur við að ganga í smiðju hjá öðrum til þess að klára verkið. Hlustaðu á ráðleggingar annarra. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú gætir staðið frammi fyrir erf- iðum málum á vinnustað en þú hefur alla burði til að takast á við þau. Ræddu sameig- inlega ábyrgð við maka, fínpússaðu og gakktu frá smáatriðum. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Til að endurheimta kraftana skaltu njóta einveru og rólegheita í dag. Sumarið verður skemmtilegt, fullt af ferðalögum og gleði. námskeið í nokkur kvöld hvert.“ Margrét var skólastjóri húsmæðra- skólans 1971-1984, en þá rann hann saman við aðra framhaldsskóla í Verkmenntaskóla Akureyrar (VMA). Átti Margrét mikinn þátt í Til þess þurfti að eiga samstarf við Matsveina- og hótelskólann í Reykjavík. Svo buðum við upp á al- mennt fimm mánaða hússtjórnar- nám eftir áramótin. Auk þess fórum við að bjóða upp á alls konar styttri M argrét Sigríður Kristinsdóttir fæddist 6. maí 1937 í Reykjavík og ólst þar upp til níu ára aldurs þegar fjölskyldan flutti í Kópavog. „Við urðum þar hálfgerðir frumbyggjar í ört stækkandi bæj- arfélagi. Ég var í sveit á sumrin frá sex ára aldri eins og tíðkaðist í þá daga. Fyrstu fjögur sumrin voru í miklu eftirlæti í Junkaragerði sunn- an við Hafnir á Reykjanesi.“ Margrét var þrjú ár í Ísaksskóla áður en fjölskyldan fluttist í Kópa- vog. Þar voru skólamálin á byrj- unarstigi og fluttist skólinn til á hverju ári þar til Digraneskóli tók til starfa á fjórða ári Margrétar í skóla í Kópavogi. Frá 13 ára aldri var hún síðan í heimavistarskólum. Fyrst fór hún í Reykjanesskóla við Ísafjarðardjúp, en frá 1951-1955 var hún á Laugarvatni og lauk þaðan gagnfræðaprófi. „Ég átti frábæran tíma á Laugarvatni, þar var mikið sönglíf og þar lærðum við körfu- bolta, sem var alveg nýtt fyrir okkur sem varð til þess að allir voru í körfubolta.“ Eftir Laugarvatn þurfti Margrét að vinna fyrir sér og sjá um móður sína, sem átti við veikindi að stríða. Margrét vann í þvottahúsi á veturna og var kaupakona í Borgarfirði á sumrin. Hún réð sig síðan sem mat- ráðskonu í vegavinnu og komst eftir það sumar í Húsmæðraskólann á Blönduósi, átján ára. Hún vann síð- ar sem matráðskona í Kleppjárns- reykjaskóla og kokkur í Samvinnu- skólanum á Bifröst áður en hún gekk í Hússtjórnarkennaraskóla Ís- lands, 28 ára gömul. Hún lauk hús- mæðrakennaraprófi 1969 og síðar stúdentsprófi frá MA 1976. Eftir útskriftina 1969 fékkst Margrét við kynningar hjá Osta- og smjörsölunni í nokkur ár ásamt matreiðsluþáttum fyrir sjónvarpið. Hún rak einnig Edduhótelið á Varmalandi í tvö sumur. Margrét flutti síðan til Akureyrar til að taka við og endurnýja Húsmæðraskóla Akureyrar. „Eitt mitt fyrsta verk var að setja upp námskeið fyrir mat- sveina á fiski- og flutningaskipum. því að koma VMA á legg. „Þetta voru mikil mótunarár sem gaman var að taka þátt í.“ Í VMA var hún síðan kennslustjóri til 2003, og sinnti fjarkennslu til sjötugs. Margrét sat í bæjarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn í nokkur ár og sat í fjölda nefnda. „Það var krefj- andi og gefandi starf.“ Margrét kynntist Gunnari Sólnes á Akureyri og gengu þau í hjóna- band 1976. „Við bjuggum 21 ár í húsi í yndislega Innbænum á Akur- eyri en fluttum þaðan á Brekkuna þar sem við bjuggum þar til Gunnar dó. Gunnar var lengi formaður Golf- klúbbs Akureyrar og með því fylgdi meðal annars að taka á móti fjölda gesta frá öðrum löndum þegar Arctic Open var haldið árum saman um Jónsmessuleytið, var því oft mikið fjör í Aðalstrætinu. Helstu áhugamál okkar voru laxveiði, golf og ferðalög, sem kallar á fjölda fé- laga og vina sem eru ómetanlegir Margrét Kristinsdóttir, fv. skólastjóri og framhaldsskólakennari – 85 ára Fjórar kynslóðir Hulda, Helga, Saga Marie, Margrét og Selma í áttræðisafmæli Margrétar. Mótunarár í menntun á Akureyri Fyrsti langömmustrákurinn Gunnar, Marina með Bastian og Margrét. Til hamingju með daginn Garðabær Esma Dís Cardaklija Jónasdóttir fæddist 27. október 2021 kl. 04.18. Hún vó 3.798 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Jónas Ástþór Hafsteinsson og Lejla Cardaklija. Nýr borgari SÉRBLAÐ NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Fjallað er um tískuna 2022 í förðun, snyrtingu, útliti og fatnaði auk umhirðu húðarinnar, heilsu, dekur o.fl. SMARTLAND BLAÐIÐ Kemur út 20. maí – meira fyrir lesendur AUGLÝSENDUR ATHUGIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.