Morgunblaðið - 06.05.2022, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2022
Lengjudeild karla
Fylkir – KV ............................................... 3:1
HK – Selfoss ............................................. 2:3
Lengjudeild kvenna
Haukar – FH ............................................ 0:4
Víkingur R. – Augnablik.......................... 3:2
Evrópudeild karla
Undanúrslit, seinni leikir:
Eintracht Frankfurt – West Ham .......... 1:0
_ Frankfurt í úrslit, 3:1 samanlagt.
Rangers – RB Leipzig ............................. 3:1
_ Rangers í úrslit, 3:2 samanlagt.
Sambandsdeild karla
Undanúrslit, seinni leikir:
Roma – Leicester ..................................... 1:0
_ Roma í úrslit, 2:1 samanlagt.
Marseille – Feyenoord............................. 0:0
_ Feyenoord í úrslit, 3:2 samanlagt.
Ítalía
Salernitana – Venezia............................. 2:1
- Arnór Sigurðsson lék ekki með Venezia
vegna meiðsla og Jakob Franz Pálsson var
ekki í hópnum.
Staða neðstu liða:
Sampdoria 35 9 6 20 42:57 33
Spezia 35 9 6 20 37:63 33
Salernitana 35 7 8 20 31:72 29
Cagliari 35 6 10 19 32:64 28
Genoa 35 3 16 16 25:55 25
Venezia 35 5 7 23 29:65 22
_ Þrjár umferðir eru eftir og þrjú neðstu
liðin falla.
Danmörk
Bikarkeppnin, undanúrslit, seinni leikur:
OB – SönderjyskE ................................... 3:0
- Aron Elís Þrándarson lék ekki með OB
vegna meiðsla.
- Atli Barkarson kom inn á sem varamað-
ur á 65. mínútu hjá SönderjyskE en Krist-
ófer Ingi Kristinsson var ekki í hópnum.
_ OB áfram, 5:1 samanlagt, og mætir Midt-
jylland í úrslitaleiknum.
>;(//24)3;(
Olísdeild karla
Undanúrslit, annar leikur:
Selfoss – Valur ...................................... 29:35
_ Staðan er 2:0 fyrir Val.
Grill 66 deild karla
Umspil, þriðji úrslitaleikur:
ÍR – Fjölnir ........................................... 37:28
_ Staðan er 2:1 fyrir ÍR.
Þýskaland
Flensburg – Göppingen...................... 26:21
- Teitur Örn Einarsson skoraði þrjú mörk
fyrir Flensburg.
- Janus Daði Smárason skoraði fimm
mörk fyrir Göppingen.
Melsungen – Hannover-Burgdorf..... 22:29
- Arnar Freyr Arnarsson og Alexander
Petersson komust ekki á blað hjá Melsun-
gen og Elvar Örn Jónsson er frá keppni
vegna meiðsla.
- Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari
Hannover-Burgdorf.
Staðan:
Magdeburg 50, Kiel 48, Flensburg 44,
Füchse Berlín 42, Göppingen 33, Wetzlar
31, Leipzig 30, Melsungen 29, RN Löwen
28, Lemgo 24, Erlangen 23, Bergischer 23,
Hamburg 22, Hannover-Burgdorf 21,
Stuttgart 18, Balingen 15, Minden 13, N-
Lübbecke 10. Liðin eiga eftir fimm til sjö
leiki hvert.
Svíþjóð
Undanúrslit, þriðji leikur:
Skövde – Kristianstad......................... 24:28
- Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 6
mörk fyrir Skövde sem leiðir 2:1 í einvíg-
inu.
Pólland
Kielce – Piotrków................................ 39:21
- Haukur Þrastarson var ekki í leik-
mannahópi Kielce og Sigvaldi Björn Guð-
jónsson er frá keppni vegna meiðsla.
E(;R&:=/D
KÖRFUKNATTLEIKUR
Fyrsti úrslitaleikur karla:
Hlíðarendi: Valur – Tindastóll ............ 20.30
HANDKNATTLEIKUR
Undanúrslit kvenna, fyrsti leikur:
Hlíðarendi: Valur – KA/Þór ..................... 18
Framhús: Fram – ÍBV......................... 19.40
KNATTSPYRNA
Besta deild karla:
Kaplakriki: FH – Valur............................. 18
1. deild karla, Lengjudeildin:
Boginn: Þór – Kórdrengir ........................ 18
Varmá: Afturelding – Grindavík ......... 19.15
Vogar: Þróttur V. – Fjölnir ................. 19.15
2. deild karla:
Sandgerði: Reynir S. – Haukar........... 19.15
3. deild karla:
Fjölnisv.: Vængir J. – Kormákur/Hvöt... 19
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Sauðárkr.: Tindastóll – Grindavík ...... 18.30
Árbær: Fylkir – HK ............................. 19.15
Í KVÖLD!
HANDBOLTINN
Gunnar Egill Daníelsson
Guðmundur Karl
Valur vann öruggan 35:29-sigur á
Selfossi í annarri viðureign liðanna í
undanúrslitum Íslandsmóts karla í
handknattleik á Selfossi í gærkvöldi.
Valur er þar með kominn í 2:0 í ein-
víginu og þarf því aðeins einn sig-
urleik til viðbótar til þess að tryggja
sér sæti í úrslitaeinvíginu. Það geta
Valsmenn gert á sunnudagskvöld á
heimavelli sínum og þar með sópað
Selfyssingum í snemmbúið sumarfrí.
Selfoss er hins vegar kominn með
bakið upp við vegg og þarf nauðsyn-
lega á sigri að halda þá til þess að
halda sér inni í einvíginu.
Leikurinn í gærkvöldi var jafn og
spennandi í fyrri hálfleik þar sem
bæði lið lögðu mikið í leikinn. Selfyss-
ingar töpuðu illa í fyrsta leiknum og
ætluðu greinilega að sanna sig á
heimavelli. Staðan í leikhléi var 16:15,
Valsmönnum í vil, og því allt opið fyr-
ir síðari hálfleikinn. Deildarmeist-
ararnir komu hins vegar mun betur
stemmdir í síðari hálfleikinn og gerðu
nánast út um leikinn á upphafsmín-
útum hans þegar þeir komust í 22:17.
Þó að Selfyssingar hafi reynt allt til
að svara fyrir sig í síðari hálfleik voru
Valsmenn miklu öflugri, enda eru
þeir illviðráðanlegir á góðum degi
eins og í gær.
„Þetta var svipað og í fyrsta leikn-
um, þeir komu með svakalegt áhlaup
í upphafi seinni hálfleiks og það tók
rosalega mikið úr okkur. Við eigum
að koma af miklu meiri krafti úr klef-
anum í hálfleik,“ sagði Hergeir
Grímsson, leikmaður Selfoss, í sam-
tali við mbl.is í gær.
„Við þurfum bara að halda okkar
plani og skerpa á nokkrum hlutum.
Við vorum aðeins slitnir á tímabili í
kvöld en þegar leið á leikinn þá vor-
um við með þetta,“ sagði Róbert Ar-
on Hostert, leikmaður Vals, við mbl.is
í gær.
Markvarslan var fín hjá Selfossi í
gærkvöldi þar sem Vilius Rasimas
varði 17 skot. Richard Sæþór Sig-
urðsson var markahæstur Selfyss-
inga með 7 mörk og Atli Ævar Ing-
ólfsson skoraði 6 mörk.
Hjá Val var Arnór Snær Ósk-
arsson markahæstur með 6 mörk og
þeir Stiven Tobar Valencia og Finnur
Ingi Stefánsson skoruðu 5 mörk hvor.
Finnur Ingi var sérlega öflugur á
lokakaflanum. Landsliðsmarkvörð-
urinn Björgvin Páll Gústavsson varði
þá 12 skot í marki Vals.
Valur hafði
aftur betur
- Leiðir 2:0 í einvíginu gegn Selfossi
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Liðugur Stiven Tobar Valencia í þann mund að skora eitt af fimm mörkum
sínum fyrir Val í öðrum leik liðsins gegn Selfossi í gærkvöldi.
ÍR er komið í 2:1 í einvígi sínu við
Fjölni í umspili um laust sæti í úr-
valsdeild karla í handknattleik
eftir öruggan 37:28-sigur í þriðja
leik liðanna í Breiðholti í gær-
kvöldi.
ÍR-ingar voru með yfirhöndina
stærstan hluta leiksins og leiddu
með sjö mörkum, 20:13, í leikhléi.
Dagur Sverrir Kristjánsson var
markahæstur í liði ÍR með átta
mörk og þar á eftir komu Viktor
Sigurðsson með sex mörk og
Kristján Orri Jóhannsson og Ey-
þór Waage með fimm mörk hvor.
Í liði Fjölnis var Björgvin Páll
Rúnarsson markahæstur með sex
mörk og Elvar Otri Hjálmarsson
kom þar næstur með fimm mörk.
Í umspilinu þarf þrjá sigra til
þess að tryggja sér sæti í úrvals-
deildinni og því getur ÍR tryggt
það á ný með sigri í fjórða leik lið-
anna í Grafarvogi á sunnudag.
Fjölnismenn verða á hinn bóginn
að vinna þann leik til þess að knýja
fram oddaleik í Breiðholti á mið-
vikudaginn í næstu viku.
ÍR þarf einn sigur til viðbót-
ar til að endurheimta sætið
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Barátta Viktor Sigurðsson og Elvar Otri Hjálmarsson í baráttunni í fyrsta
leik ÍR og Fjölnis í umspilinu um laust sæti í úrvalsdeild á dögunum.
Fylkir og HK, liðin sem féllu úr
efstu deild karla í knattspyrnu á
síðasta tímabili, áttu ólíku gengi að
fagna í 1. umferð 1. deildar,
Lengjudeildarinnar, í gærkvöldi.
Fylkir fékk KV í heimsókn í
Árbæinn og náði forystunni
snemma leiks þegar Ásgeir Eyþórs-
son skoraði á áttundu mínútu. Daði
Ólafsson tvöfaldaði forystuna áður
en Grímur Ingi Jakobsson minnk-
aði muninn skömmu fyrir leikhlé.
Seint í síðari hálfleik skoraði svo
danski sóknarmaðurinn Mathias
Laursen í sínum fyrsta keppnisleik
fyrir Árbæjarliðið og tryggði þann-
ig 3:1-sigur.
Í leik HK og Selfoss í Kórnum var
staðan orðin 2:2 eftir aðeins 12 mín-
útna leik. Gary Martin kom Selfossi
í tveggja marka forystu eftir átta
mínútur áður en Ásgeir Marteins-
son og Hassan Jalloh svöruðu um
hæl fyrir HK. Í síðari hálfleik
tryggði Gonzalo Zamorano svo 3:2-
sigur Selfoss.
Morgunblaðið/Eggert
Tvenna Gary Martin fer afskaplega vel af stað á nýju tímabil. Í gærkvöldi
skoraði hann tvö mörk fyrir Selfoss í sterkum útisigri á HK í 1. deild.
Ólíkt hlutskipti Fylkis
og HK í fyrstu umferð
FH vann öruggan 4:0-sigur á ná-
grönnum sínum í Haukum í 1. um-
ferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu,
Lengjudeildarinnar, á Ásvöllum í
gærkvöldi.
Kristin Schnurr kom gestunum í
FH yfir strax á 7. mínútu mínútu og
Shaina Ashouri bætti við öðru mark-
inu eftir rúmlega hálftíma leik. As-
houri skoraði annað mark sitt og
þriðja mark FH á 64. mínútu og
Telma Þrastardóttir bætti svo við
fjórða markinu áður en yfir lauk.
Á sama tíma vann Víkingur úr
Reykjavík 3:2-sigur á Augnabliki á
Víkingsvelli. Sara Jóhannsdóttir
kom Augnabliki yfir strax í upphafi
leiks áður en Christabel Oduro jafn-
aði metin fyrir Víkinga um miðjan
fyrri hálfleik. Skömmu fyrir leikhlé
kom Hrafnhildur Halldórsdóttir
gestunum yfir á ný en Oduro jafnaði
metin öðru sinni um miðjan síðari
hálfleikinn. Hún fullkomnaði svo
þrennuna í uppbótartíma og tryggði
nauman sigur Víkings.
Öruggt hjá FH og
þrenna hjá Oduro
Morgunblaðið/Eggert
Öruggt Sigríður Lára Garðarsdóttir, fyrirliði FH, rennir sér í boltann í
öruggum fjögurra marka sigri liðsins gegn Haukum í gærkvöldi.