Morgunblaðið - 06.05.2022, Qupperneq 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2022
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Við höfum mjög mikinn áhuga á
því að vinna með fólki sem er
kannski ekki oft sýnilegt á sviðinu,
við viljum leyfa ólíka röddum að
heyrast. Við höfum gert mikið af
því að vinna með ólíkum hópum
fólks, sérstaklega ungu fólki en líka
fólki á öllum aldri sem á eitthvað
sameiginlegt, Við kynntumst fyrir
tíu árum og fórum að vinna saman
og höfum síðan þá unnið saman að
ólíkum verkefnum sem öll tengjast
dansi og kóreógrafíu á einhvern
hátt,“ segja þau Ásrún Magn-
úsdóttir og Alexander Roberts, höf-
undar nýs dansverks sem frumsýnt
verður í kvöld. Ball heitir verkið
þeirra sem sýnt er í samstarfi við
Íslenska dansflokkinn.
„Þegar okkur var boðið að koma
og gera verk fyrir Íslenska dans-
flokkinn, sem okkur fannst frábært
tækifæri, fórum við strax að velta
fyrir okkur hvað við gætum gert til
að stækka þann flokk. Við fengum
frjálsar hendur og því var tekið vel
þegar við vörpuðum fram þeirri
hugmynd að leiða saman á dans-
sviðið fólk á ólíkum aldri með ólík-
an bakgrunn sem ætti sameiginlega
ástina á dansi, alls konar dansi. Í
hópnum sem dansar saman á Ball-
inu eru nokkrir atvinnudansarar úr
Íslenska dansflokknum en líka ges-
tadansarar sem koma úr allt öðrum
áttum; Íslandsmeistari í breikdansi
frá níunda áratugnum, ballerína á
eftirlaunum, tólf ára samkvæmis-
dansstjarna, freestyle-goðsögn,
bollywood-dansari, street-dansari,
gógódansari, dansnemandi og
nútímadansari sem elskar að dansa
við tónlist Bobs Marleys. Þetta eru
því danselskendur á öllum aldri
með ólíka líkama og reynslu sem
stíga upp á svið og dansa.
Við vildum hafa hópinn sem
breiðastan bæði í aldri og dans-
bakgrunni og við höfum ekki unnið
áður með flestu þessu fólki, af því
við vildum einmitt setja saman hóp
af fólki sem væri nýr fyrir okkur og
með reynslu og sérhæfingu í döns-
um sem við þekktum ekki svo mik-
ið.“
Á böllum dansa allir saman
Þau segja að æfingaferlið hafi
verið skemmtilegt og aldursbil
hópsins spanni næstum heila
mannsævi.
„Okkur finnst það einmitt svo
skemmtilegt. Sá yngsti í hópnum er
samkvæmisdansari sem er tólf ára
og elsta manneskjan er um áttrætt,
fyrrverandi ballerína. Við buðum
gestadönsurunum að koma einn í
einu og hitta okkur tvö og dansara
dansflokksins, þar sem hver gesta-
dansari var með danstíma, kenndi
okkur og dönsurum dansflokksins
sinn dans. Þannig var fyrsta skref-
ið; að fá hvern og einn inn í ferlið
og seinna hittust svo allir. Þannig
komumst við að niðurstöðuna með
dramatúrgíuna, þar sem hver og
einn stígur fram, kynnir sig og sinn
dans og dansar sóló, en fær svo
hópinn til að dansa með sér. Hóp-
urinn stekkur inn í og dansar með
sínum hætti þótt þau kunni ekki ná-
kvæmlega dans viðkomandi. Þannig
deilir sólódansarinn ást sinni á
ákveðnum dansi með hópnum sem
á sama tíma lærir eitthvað um nýj-
an dansstíl. Kannski ekki ósvipað
því þegar fólk hittist á venjulegu
balli og dansar saman, hver og einn
með sinn dansstíl. Þaðan kemur
einmitt titill verksins, Ball, af því að
á böllum brestur fólk á ólíkum aldri
í alls konar dansa við alls konar
tónlist. Á böllum kemur fólk úr
ólíkum áttum saman á dansgólfi,
fólk frá ólíkum svæðum, skólum,
störfum o.s.frv. en það nær saman
á dansgólfinu því þar verða allir
jafnir. Hugsunin hjá okkur með
þessari sýningu er að dans eigi ekki
aðeins að snúast um afburðatækni
eða ómælda hæfileika, heldur þá
upplifun að dansa alla þessa dansa
saman.“
Bjó með Íslendingum í London
Danshöfundarnir Alex og Ásrún
hafa oft starfað saman áður við
kóreógrafíu og uppsetningu dans-
verka, en Alex er fæddur og uppal-
inn á Bretlandi.
„Tengsl mín við Ísland eiga upp-
haf sitt í því að ég bjó í London
með nokkrum Íslendingum og árið
2008 setti ég þar upp sýningu með
einum þeirra sem við komum svo
með til Íslands. Í framhaldinu fór
ég að starfa hér á landi sem sýning-
arstjóri við ýmis sjálfstæð verkefni.
Auk þess er kærastan mín ís-
lensk, Ásgerður G. Gunnarsdóttir,
og það er auðvitað hluti af því að ég
hélt áfram að koma hingað. Árið
2012 fluttum við Ásgerður hingað
til lands frá Hollandi, þar sem við
bjuggum þá. Ég hitti svo Ásrúnu í
fyrsta sinn það sama ár þegar við
þvældumst saman um Reykjavík
dansfestival. Ári seinna spurðu
Erna Ómarsdóttir, núverandi list-
dansstjóri Íslenska dansflokksins,
og Valdimar Jóhannsson hvort við
Ásgerður vildum vera meðstjórn-
endur á Reykjavík dansfestival sem
við tókum að okkur með glöðu geði
og gerðum í nokkur ár, frá 2014 til
2020,“ segir Alex og bætir við að
þar fyrir utan hafi hann sett upp
sín eigin verk, unnið að ýmsum
verkum með Ásrúnu og verið með
verkefni í Háskóla Íslands.
Frumsýning á dansverkinu Balli
er í kvöld, föstudagskvöldið 6. maí,
á Nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu.
Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Dansverkið BALL Þar dansa sóló og saman danselskandi einstaklingar á ólíkum aldri og með ólíka líkama, sá yngsti er 12 ára en elsti um áttrætt.
Fólk á ólíkum aldri dansar saman
- Ball, glænýtt dansverk, frumsýnt í kvöld - Breikdans, bollywood, gó-gó-dans, ballett, samkvæmis-
dans, freestyle, nútímadans og streetdans - Ást á dansi er sameiginleg öllum sem koma fram
Alexander
Roberts
Ásrún
Magnúsdóttir
Ljósmyndir/Víðir Björnsson
Nína Óskarsdóttir opnar sýningu
sína Iðkun/Practice í Listvali á
Hólmaslóð 6 úti á Granda í dag,
föstudag, kl. 17. Nína sýnir röð
nýrra skúlptúra þar sem hún veltir
fyrir sér hugmyndum um heil-
agleika í menningarlegum skiln-
ingi, eins og segir í tilkynningu.
„Hvernig er heimili okkar heil-
agt ef það er það yfirhöfuð og
hvaða merkingu hefur heilagleiki
fyrir okkur í nútímasamfélagi?“
spyr Nína. Skúlptúrana vinnur hún
í keramík og er hver og einn hand-
mótaður og unninn út frá þeirri
hönnun og fagurfræði sem birtist í
trúarlegri iðkun. Handverkið er
þannig tvinnað saman við hug-
myndir okkar um menningarlegan
uppruna og trú, hinn efnislega
heim og þá iðkun sem sjálft hand-
verkið felur í sér, segir í tilkynn-
ingu.
Hugmyndir um heilagleika
Einkasýning Nína Óskarsdóttir opnar
sýningu á skúlptúrum í Listvali í dag.
Vorsýningin okkar nefnist samsýn-
ing Sólveigar Dagmarar Þóris-
dóttur og Grétu Berg Bergsveins-
dóttur sem opnuð verður í dag kl.
17 í Galleríi göngum í Háteigs-
kirkju og er gengið inn frá safn-
aðarheimilinu. Sólveig og Gréta
sýna málverk og segir í tilkynningu
að þær séu báðar listagyðjur og
tengdar dáleiðslumeðferðum og
náttúru en samt ólíkar á áhuga-
verðan hátt. Þær eiga báðar langan
feril að baki sem listakonur.
Sólveig Dagmar tengir listsköp-
un sína við sköpunarkraft í ró og
flæði í náttúrunni og málar oftast á
staðnum. Verkin eru flest unnin síð-
astliðin fjögur ár. Hún er jafnframt
eigandi Creative Iceland- Travel
ehf. Gréta málar, teiknar sögur og
hlustar á innsæið, að því er segir í
tilkynningu og hennar sköp-
unarþrá er andleg tenging við fólk.
Sýningin verður opin til 1. júní.
Vorsýning Sólveigar og Grétu
Vinkonur Sólveig Dagmar og Gréta.
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til og með 9. maí
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Í blaðinu verða kynntir margir möguleikar sem í boði eru fyrir þá
sem vilja hafa fallegt í kringum sig, breyta og bæta heimilið.
Skoðuð verða húsgögn og innréttingar, skrautmunir og fylgihlutir
fyrir heimilið, litir og lýsing ásamt mörgu öðru.
Heimili&
hönnun
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 13. maí