Morgunblaðið - 17.05.2022, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.05.2022, Blaðsíða 6
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Náttúruverndarsamtökin Náttúru- grið telja ekki unnt að rökstyðja afl- aukningu þriggja virkjana Lands- virkjunar á Þjórsár-Tungnaár- svæðinu, sem gert er ráð fyrir í stjórnarfrumvarpi að verði heimiluð án þess að fara í gegn um ramma- áætlun. Telja félagasamtökin að sú viðbót við orkuframleiðslu sem fengist sé allt of lítil til að standa undir fjárfestingunni. Þess vegna telja þau að það hangi á spýtunni hjá Landsvirkjun að samhliða yrði farið í Kjalölduveitu úr Þjórsá. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis er með til umfjöllunar frumvarp umhverfis-, orku- og lofts- lagsráðherra um að breyta gildis- sviði laga um rammaáætlun þannig að hún taki ekki til stækkunar á þeim virkjunum sem þegar eru í rekstri, svo framarlega sem stækk- unin feli ekki í sér rask á óröskuðu svæði. Með því verði hægt að hraða framkvæmdum til að auka afkasta- getu þeirra virkjana sem þegar eru í rekstri. Meginrökin eru þau að þetta sé liður í því að Ísland nái markmiðum sínum í loftslags- málum. Framkvæmdin ekki arðbær Áður hefur komið fram að Lands- virkjun hefur áhuga á að ráðast í aflaukningu í þremur vatnsaflsvirkj- unum sínum á Þjórsár-Tungnaár- svæðinu og HS orka að auka afl jarðvarmavirkjunar sinnar í Svarts- engi. Aukið afl virkjana Landsvirkj- unar er ætlað til að nýta leysinga- vatn sem í núverandi ástandi fer ónýtt fram hjá vélum stöðvanna þegar mikið rennsli er í ánum og miðlunarlón full. Hins vegar mun orkuvinnslugeta virkjananna aukast lítið. Með því að auka uppsett afl þeirra um 210 megavött myndi sam- anlögð orkuvinnslugeta aðeins aukast um um 25-42 gígavattstundir á ári. Í samráði á fyrri stigum málsins komu fáar athugasemdir og um- hverfisverndarsamtök lögðust ekki gegn áformunum. Við annan tón kveður í umsögn Náttúrugriða sem umhverfis- og samgöngunefnd ósk- aði eftir. Í umsögninni, sem Snæ- björn og Sverrir Guðmundssynir hafa unnið, kemur fram það álit að stækkanir virkjana Landsvirkjunar geti ekki staðið sem sjálfstæðar framkvæmdir í skilningi laga um verndar- og orkunýtingaráætlun og fyrirhugaðra breytinga á þeim, þar sem fjárfestingin geti ekki skilað arði án þess að ganga á óraskað svæði með tengdum framkvæmd- um. Þær séu að þessu leyti í algerri andstöðu við efni og yfirlýst mark- mið frumvarpsins og þá stefnu sem kemur fram í stjórnarsáttmála um að nýta betur virkjanir. Vitnað er til útreikninga Hag- fræðistofnunar Háskóla Íslands þar sem framtíðartekjur af stækkun þriggja virkjana Landsvirkjunar eru núvirtar á 2,5 milljarða og er þá miðað við hámarks orkuframleiðslu og að orkan verði öll seld sem tryggt rafmagn. Kostnaðurinn er sagður trúnaðarmál en Náttúrugrið áætla hann, miðað við aðrar fram- kvæmdir, 15-20 milljarða eða 6-8 sinnum meiri en núvirtar heildar- tekjur. Því sé enginn fjárhagslegur grundvöllur fyrir stækkunum sem sjálfstæðum virkjanakostum. Vatn færi af fjórum fossum Náttúrugrið benda á að Lands- virkjun hafi lengi haft áform um að koma upp Norðlingaölduveitu með lóni í Þjórsárverum til þess að veita vatni í Þórisvatn, sem er aðalmiðl- unarlón virkjana Landsvirkjunar. Þegar það var slegið út af borðinu hafi fyrirtækið komið með nýja út- færslu, Kjalölduveitu, sem sé sam- bærileg að öllu leyti nema hvað stíflað yrði neðar í farvegi Þjórsár. Myndi framkvæmdin hafa mikið rask í för með sér og fjórir af merk- ustu fossum landsins, Kjálkavers- foss, Hrútshólmafoss, Dynkur og Gljúfurleitarfoss yrðu vatnslausir eða því sem næst. Niðurstaðan í umsögn Náttúru- griða er að ekki sé unnt að rök- styðja stækkun virkjananna þriggja án þess að farið yrði samhliða í Kjalölduveitu úr Þjórsá. „Lög sem veittu brautargengi framangreind- um stækkunum, eða öðrum viðlíka, gengju gegn almannahag, allsherj- arreglu og viðskiptasiðferði. Því má ekki samþykkja frumvarpið eins og það liggur fyrir nefndinni,“ segir þar. Telja að horft sé til Kjalölduveitu - Náttúrugrið vara við frumvarpi um að stækkanir virkjana verði undanþegnar rammaáætlun - Aflaukning virkjana of dýr til að standast nema gert sé ráð fyrir vatni úr Kjalölduveitu Þjórsár Morgunblaðið/Sigurður Bogi Dynkur Vatn myndi fara að mestu leyti af Dynk og þremur öðrum fossum í Þjórsá ef Kjalölduveita yrði byggð. Virkjanir sem Landsvirkjun hyggst stækka Heimild: Náttúrugrið Hrauneyjar Sigalda Vatnsfell Alls Bygging 1978-1981 1973-1978 2001 Afl MW 210 150 90 450 Orkugeta GWst/ár 1.300 920 490 2.710 Áætluð aflaukning MW 90 65 55 210 Framleiðsluaukning GWst/ár 9-12 6-10 10-20 25-42 Hlutfallsleg aukning 0,7-0,9 0,7-1,1 2-4,1 0,9-1,5 6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 2022 Erpur Snær Hansen, forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands, segir lund- ann í Vestmannaeyjum vera seinna á ferð en hann hefur verið í áratugi. „Lundinn er óvenjulega seinn í Eyjum og einkennilega lítið af fugli uppi, eitthvað sem menn hafa ekki séð í áratugi. Hvað það þýðir veit ég ekki,“ segir Erpur í samtali við Morg- unblaðið. „Ég var hræddur um að það væri komin fuglaflensa, hún er orðin mjög slæm hjá súlunni. Við greindum tvo lunda um daginn sem fundust dauðir en þeir voru ekki með fugla- flensu.“ Erpur segir að ekki hafi rekið á land mikið magn af dauðum lundum en nóg sé af síli og ættu fuglanir því að hafa nóg fæði. Hann vonast til þess að fuglaflensan sé á undanhaldi. Erp- ur segist mikið spurður hvað þetta þýði fyrir veiðar á lundanum. „Ég mæli með hófsamri veiði sam- hliða sölubanni,“ segir Erpur. Brigitte Brugger, sérgreinadýra- læknir hjá Matvælastofnun, segir óljóst hvort fuglaflensan hafi áhrif á hversu seinn lundinn sé á land í ár. „Það liggur ekki fyrir greining, en við höfum heyrt frá fuglaskoðunar- mönnum að það sé eitthvað í gangi hjá lundanum. Það er svolítið óljóst hvort það sé fuglaflensan eða hvað,“ segir Brigitte við blaðamann. „Það eru færri greiningar, en við metum hvort sýni séu tekin úr villtum fuglum. Við tökum ekki sýni úr öllum sem finnast,“ segir Brigitte. Hún segir enn gilda sömu varúðar- ráðstafanir vegna fuglaflensunnar og voru settar á í lok mars. „Við erum að bíða eftir niðurstöð- um úr greiningu frá síðustu viku og þá getum við endurmetið stöðuna hvort það sé hægt fljótlega að aflétta þessum varúðarráðstöfum eða hvort það sé ástæða til að hafa þær áfram í gildi,“ segir Brigitte. anton@mbl.is Lundinn ein- kennilega seinn - Veiði verði hófleg samhliða sölubanni Morgunblaðið/Sigurgeir Jónass. Eyjar Lundinn er óvenjulega seinn að setjast upp í Vestmannaeyjum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.