Morgunblaðið - 17.05.2022, Síða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 2022
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur
eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi
innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til
og með 16. maí 2022, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. maí 2022 og
önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 16. maí
2022, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti
í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á
skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi,
gistináttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi
af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir,
fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra,
ofgreiddri uppbót á eftirlaun, ofgreiðslu stuðnings úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta
launakostnaðar á uppsagnarfresti, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa
markaðsleyfis, veiðigjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald,
gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa,
auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á
ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt
álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki,
jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum
gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að
leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir
gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 25.000 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald
er 2.500 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem
fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald,
afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt,
búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda
bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum
þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega
búast við að send verð út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin
hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu
áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 17. maí 2022
Ríkisskattstjóri
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
Sýslumaðurinn á Austurlandi
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Dagur. B. Eggertsson borgarstjóri
Reykjavíkur afhenti í gær Ástu
Þórdísi Skjalddal Guðjónsdóttur,
fulltrúa Pepp Ísland, grasrótar
fólks í fátækt, mannréttinda-
verðlaun Reykjavíkurborgar 2022.
Samtökin Pepp Ísland berjast
gegn fátækt og verja hagsmuni
þeirra sem við hana búa.
Handhafi verðlaunanna hlýtur að
launum 600 þúsund krónur en verð-
launin eru veitt árlega til ein-
staklinga, hópa, félagasamtaka eða
stofnana sem á eftirtektarverðan
hátt hafa staðið vörð um mannrétt-
indi.
Þá fékk Liðsauki í sjálfstæðri bú-
setu hvatningarverðlaun mannrétt-
inda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs
og tók Þóra Kristín Reinharðs-
dóttir við verðlaununum
Liðsauki í sjálfstæðri búsetu er
sólarhringsþjónusta á vegum vel-
ferðarsviðs Reykjavíkurborgar fyr-
ir ungt fólk með flóknar þjón-
ustuþarfir.
Verðlaun Fulltrúar verðlaunahafa og Reykjavíkurborgar við Höfða.
Mannréttindaverð-
laun til Pepp Ísland
- Liðsauki fékk hvatningarverðlaun
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Björgun hf. hefur fest kaup á nýju
sanddæluskipi og er afkastageta
þess mun meiri en skipsins Dísu,
sem m.a. hefur annast dýpkun í
Landeyjahöfn síðustu ár. Ráðgert
er að nýja skipið haldi af stað frá
Cadiz á Spáni til Íslands síðari
hluta vikunnar. Það ber nafnið Gig-
ante og var smíðað á Spáni árið
2011.
Eysteinn Dofrason, fram-
kvæmdastjóri hjá Björgun, segir að
afkastageta nýja skipsins sé 15-20
þúsund rúmmetrar á sólarhring við
kjöraðstæður. Auk afkastagetu sé
munurinn á skipunum meðal ann-
ars fólginn í því að nýja skipið
sleppi efni í gegnum botnloka. Um
borð í Dísu þurfi að dæla efninu út-
byrðis, sem sé seinlegra ferli.
Vegagerðin birti í síðust viku for-
auglýsingu vegna viðhaldsdýpkunar
í Landeyjahöfn 2022 til 2025. Þar
kemur m.a. fram að bjóðandi skal
leggja til dýpkunarskip sem upp-
fyllir m.a. skilyrði um minnst 15
þúsund rúmmetra hámarksafkasta-
getu á dag. Dýpkunarskipið þarf að
geta dýpkað í hafnarmynninu á litlu
dýpi í ölduhæð undir 1,7 m. Stjórn-
hæfni skips skal vera mjög góð og
þarf að gera ráð fyrir að nýta
stutta veðurglugga yfir vetrartím-
ann til dýpkunar í hafnarmynninu.
Útboðið verður auglýst á Evrópska
efnahagssvæðinu og verða útboðs-
gögn aðgengileg frá 27. maí.
Eysteinn segir ekki liggja fyrir
hvort Dísa verði seld eða fari í
brotajárn. Hún var upphaflega
smíðuð í Álaborg 1968, en keypt
hingað til lands 2011 og voru verk-
efnin m.a. í Landeyjahöfn. Fram
kom í Morgunblaðinu í vetur að
Dísa getur dælt 3-5.000 rúmmetr-
um á sólarhring við bestu aðstæð-
ur. Árin 2015-2018 var skipið Gali-
lei 2000 notað í Landeyjahöfn á
vegum Jan De Nul, belgísks fyrir-
tækis sem starfar víða um heim.
Það skip gat afkastað um tólf þús-
und tonnum á dag við kjöraðstæð-
ur.
Eysteinn segir að verkefnastaða
Björgunar sé góð, nefnir meðal
annars dælingu á 500 þúsund rúm-
metrum á Ísafirði og regluleg verk-
efni fyrir Kalkþörungafélagið í
Arnarfirði.
Björgun kaupir nýtt
sanddæluskip á Spáni
- Vegagerðin kynnir útboð þar sem gerðar eru auknar kröfur
Gigante Ráðgert er að skipið haldi frá Spáni til Íslands í lok vikunnar.
DAGMÁL
Andrés Magnússon
Stefán E. Stefánsson
Viðreisn kaus að efna til viðræðu-
bandalags með Samfylkingu og Pí-
rötum að afloknum kosningum til
borgarstjórnar til þess að minnka
líkurnar á því að flokkurinn yrði jað-
arsettur í meirihlutaviðræðum sem
nú eru í farvatninu. Þetta má lesa úr
orðum Pawels Bartoszeks, fráfar-
andi borgarfulltrúa, en flokkur hans,
Viðreisn náði ekki að tryggja stöðu
sína með tvo borgarfulltrúa í kosn-
ingunum.
„Ef talningin hefur ekki klikkað
hjá mér þá erum við bara með einn
borgarfulltrúa og það er talsvert
auðveldara að hundsa okkur ef við
stöndum ein heldur en ef við stönd-
um með öðrum,“ segir Pawel í sam-
tali í Dagmálum en hann er gestur
þáttarins ásamt Katrínu Atladóttur
sem senn hverfur af vettvangi borg-
arstjórnar. Hún ákvað að gefa ekki
kost á sér í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins fyrir kosningarnar nú í
vor. Pawel segir að hann hafi að
loknum kosningum lesið kosn-
ingastefnuskrá Framsóknarflokks-
ins og að það hafi ekki tekið langan
tíma. Þar komi hins vegar í ljós að
ekki beri mikið í milli hjá þeim flokk-
um sem misstu meirihluta sinn í
kosningunum á laugardag og sig-
urvegurunum í Framsókn.
Katrín segir að Einar Þor-
steinsson, oddviti Framsókn-
arflokksins, hafi farið fram undir
slagorðum um breytingar. Hann
muni illa geta staðið við slíkt loforð,
ákveði hann að falla í faðm Dags B.
Eggertssonar, ekki síst í ljósi þess
að oddvitinn sjálfur, auk þeirra
þriggja frambjóðenda sem náðu
kjöri á lista með honum sé óreynt
fólk á vettvangi borgarstjórnar.
Katrín er nú komin að nýju í
tæknigeirann, þaðan sem hún kom
inn í pólitíkina. Hún er sátt við tím-
ann í borgarstjórn en viðurkennir að
henni hafi ekki orðið um sel á fyrsta
fundi á þessum vettvangi.
„Ég hugsaði. Ég er búin að eyði-
leggja líf mitt.“ Annað hafi þó komið
á daginn.
Morgunblaðið/Kristófer
Eftirleikurinn Katrín Atladóttir og Pawel Bartoszek mættu í Dagmálasettið
og ræddu um stöðuna sem uppi er í kjölfar kosninganna á laugardaginn.
Segir að Viðreisn
njóti samflotsins
- Reynsluleysi gæti háð Framsókn