Morgunblaðið - 17.05.2022, Síða 15

Morgunblaðið - 17.05.2022, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 2022 Vorverkin Það er vor í lofti og ýmislegt sem þarf að dytta að eftir veturinn og undirbúa fyrir sumarið. Á Frakkastígnum í Reykjavík var þetta fólk að mála hús í vorblíðunni í gær. Eggert Út er komin á veg- um Landsnets skýrsl- an „Frontier Econo- mics: Töpuð tækifæri vegna takmarkana í flutningskerfinu. Greining á samfélags- legu tapi sem stafar af takmarkaðri afhend- ingargetu rafmagns“. 8. apríl 2022. Ætla ég að minnast á nokkur atriði sem koma fram í skýrslunni og mér þykir vert að nefna. Eitt finnst mér skipta máli á þessu stigi, en það er að fyrirtækið Frontier Economics er ráðið til verksins sem málsvari Landsnets í að sverta ástand núverandi flutn- ingskerfis til að búa í haginn fyrir frekari framkvæmdir í flutnings- kerfinu. Sem sagt huglæg nálgun á viðfangsefnið, sem gæti verið vegna vanreynslu af málefninu. Orkugeta og dreifing Orkugeta raforkukerfisins er áætluð 21.175 GWh/ári og er þar tekið tillit til takmarkana í flutn- ingskerfi Landsnets, samanber grein mína í Morgunblaðinu 1. apríl sl. Þetta er sá markaður sem hægt væri að anna með ákveðnu viðmiði um hagkvæmni, meðvitaðri áhættu í rekstri og öðrum al- mennum rekstr- arviðhorfum. Í rekstri gæti annars vegar áhættufælni rekstr- araðila skipt miklu máli og hins vegar gætu sumir jafnvel verið áhættusæknir. Ef skoðuð eru ein- stök ár af 55 sögu- legum vatnsárum og gert ráð fyrir fullum miðlunum í upphafi hvers vatnsárs, þá rokkar orkugeta einstakra vatnsára á bilinu [18.825: 22.950] GWh/ári eftir framboði vatnsorku við virkj- anir og miðlanir. Frávik frá með- altali eru allt að [-2.350; +1.775] GWh/ári eða [-11,0%; +8,4%]. Yfirstandandi vatnsár er svipað og versta ár í sögulegum rennsl- isröðum en það telst því hafa haft orkugetu upp á 18.825 GWh/ári. Umfjöllun í skýrslu Frontier Economics virðist mótuð af þessu eina slæma ári, sem væri þá röng aðkoma. Raforkunotkun á Íslandi hefur verið að aukast aftur lítillega eftir Covid-farsóttina. Samkvæmt Orku- stofnun reyndist raforkunotkun ár- ið 2021 vera 19.614 GWh, sem er 1.561 GWh lægra en skilgreind orkugeta og getur því landskerfið varla talist aðþrengt eins og sumir hafa haldið fram að undanförnu í ljósi lakrar stöðu vatnsmiðlana. Sú staða hefur reyndar skánað mikið síðustu daga og vikur. Samkvæmt Landsvirkjun hefur fyrirtækið talið kerfi sitt vera fullnýtt og því knýj- andi þörf á að setja í gang byggingu næstu vatnsaflsvirkjunar, en þar hefur Hvammsvirkjun í Neðri- Þjórsá verið nefnd. Samkvæmt fyrrgreindum nið- urstöðum er kerfið ekki enn fullnýtt og töluverður möguleiki á að það muni ráða við aukinn markað á næstu árum sem nemur liðlega tveimur Hvammsvirkjunum. Nema þá að til komi sérstök markaðs- aukning, t.d. vegna fyrirhugaðra orkuskipta, sem reyndar enn hafa ekki verið fastsett tæknilega séð. Skilgreining orkugetu Hin hefðbundna skilgreining á hugtakinu „orkugeta“ raforkukerfis er sú stærð raforkumarkaðar sem kerfið er talið geta annað að með- altali, með ásættanlegri arðsemi og áhættu. Vert er að geta þess að hér á landi hefur jafnan verið notuð að- ferð sniðgöngukostnaðar sem ég hef kallað svo (á ensku „Avoided Cost of Energy“), en aðrir mögu- leikar eru framleiðslukostnaður („Cost of Production“) og miðl- unarkostnaður („Cost of Storage“). Með því að nota sniðgöngukostnað er hægt að verðleggja bæði ein- ingakostnað virkjunar þar sem framleiðsla á sér stað og einnig að- gerðir í flutningskerfinu sem leiða til framleiðsluaukningar í öðrum virkjunum kerfisins. Aðferðin hefur verið notuð allt frá byggingu Búr- fellsvirkjunar á sjöunda áratug síð- ustu aldar. Flutningstakmarkanir Þá segir í skýrslunni: „Sam- kvæmt Landsvirkjun hefði verið mögulegt að framleiða og selja í kringum 500 GWst til viðbótar árið 2021 úr virkjunum sem nú þegar eru í notkun ef flutningskerfið væri sterkara.“ Þessi tala ein sér segir ekki mikið enda er hún með mikilli dreifingu. Lítil eða jafnvel núll í vatnsmiklum árum og hærri í vatnsrýrum árum eða þegar mis- mikið er í miðlunum, en þá gæti verið þörf á að stjórna notkun þeirra öðruvísi en þeim sem nátt- úrulegar aðstæður bjóða upp á. Þessu hefði mátt gera betri skil í skýrslunni, t.d. fjalla um dreifingu á nefndum 500 GWst eftir vatnsárum, hvort sem sú greining kæmi frá Landsvirkjun, Landsneti eða Fron- tier Economics. Ein svona stakstæð tala er út í bláinn, en þó eru í skýrslunni heilmiklar ályktanir dregnar af henni, m.a. reiknað út tap þjóðfélagsins með einföldum margföldunum og ég veit ekki hvað. Er þá Landsvirkjun með sínum matstölum að meina mesta eða meðalorkutap? Það þarf að útskýra. Annað mál er að ég skoðaði minnkun orkugetu vegna þrenginga í flutningskerfinu fyrir nokkrum ár- um og áætlaði þá töluvert minni lækkun orkugetu kerfisins en nið- urstaða Landsvirkjunar núna gefur í skyn. Almennt Við lestur skýrslunnar virðist sem flutningskerfið ráði öllu í ákvörðunum um byggingu virkj- unar og tilheyrandi tengingu. Þann- ig er þetta bara alls ekki. Þar ræð- ur virkjunarkostnaður langmestu, en vitaskuld þarf að vera hægt að tengja virkjunina við stofnkerfi Landsnets. Það liggur í augum uppi. Þess vegna hefði átt að styðjast við fullkomnari skilgreiningu á töp- uðum tækifærum vegna takmark- ana í flutningskerfinu en fram kem- ur í skýrslunni. Eftir Skúla Jóhannsson » Fyrirtækið Frontier Economics beitir huglægri nálgun á við- fangsefnið, sem gæti verið vegna vanreynslu af málefninu. Skúli Jóhannsson Höfundur er verkfræðingur. skuli@veldi.is Takmarkanir í flutningskerfi Landsnets

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.