Morgunblaðið - 17.05.2022, Side 18

Morgunblaðið - 17.05.2022, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 2022 ✝ Gróa Jóels- dóttir fæddist í Hafnarfirði 6. jan- úar 1925. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 7. maí 2022. For- eldrar hennar voru Jóel Friðrik Ingv- arsson, f. 3. nóv- ember 1889, d. 9. júní 1975, og Val- gerður Erlends- dóttir, f. 17. september 1894, d. 8. apríl 1986. Systkini Gróu: Ingibjörg, f. 26. mars 1919, d. 29. maí 2008; Geir, f. 17. desember 1920, d. 13. júlí 2003; Friðrik, f. 15. apr- íl 1922, d. 2. júní 2013 og Her- dís, f. 25. ágúst 1930, d. 16. febrúar 1941. Hinn 1. nóvember 1947 gift- ist Gróa Jóni Pétri Jónssyni, f. 21. ágúst 1922, d. 10. júní 1992. Börn þeirra eru: 1) Valgerður, f. 4. apríl 1949. 2) Jóel Friðrik, f. 2. janúar 1952, maki Þuríður Steinþórsdóttir, f. 5. september 1958. Synir Jóels frá fyrra 2012. 3) Jón Magnús, f. 9. apríl 1954, maki Stefanía Gunn- arsdóttir, f. 30. júlí 1956. Börn þeirra eru a) Hjördís, f. 13. apríl 1974, maki Ole Raskmark Rönne, f. 13. ágúst 1970. Synir þeirra eru Magnús, f. 22. sept- ember 2002, og Daníel, f. 7. desember 2007. b) Jón Pétur, f. 16. júlí 1979, maki Gerður Guð- mundsdóttir, f. 10. júní 1979. Dætur þeirra eru Sigríður Petra, f. 9. ágúst 2011, og Arn- gunnur Vala, f. 6. október 2016. Gróa ólst upp í Hafnarfirði. Hún sótti húsmæðraskóla og vann ýmis störf, t.a.m. í Kald- árseli með foreldrum sínum og á Ljósmyndastofu í Hafnarfirði en var mestan hluta ævinnar húsmóðir. Heimili Gróu og Jóns Péturs var lengst af í Hegra- nesi 28 þar sem Gróa naut sín vel að sinna garðinum þeirra. Hún var virk í félagsstarfi KFUM og KFUK. Þau hjónin stunduðu einnig saman hesta- mennsku um tíma. Gróa hafði ætíð mikinn áhuga á tónlist og var dugleg að sækja tónleika. Gróa verður jarðsungin frá Garðakirkju í dag, 17. maí 2022, og hefst athöfnin kl. 13. hjónabandi eru a) Ólafur Þór, f. 1. nóvember 1972, maki Margrét Sif Hákonardóttir, f. 9. mars 1968. Sonur Ólafs frá fyrra hjónabandi er Frið- rik Þór, f. 6. ágúst 2001. b) Jón Pétur, f. 30. maí 1978. Börn Jóns eru Freyja, f. 26. júlí 2009, Iðunn, f. 2. janúar 2011, og Krummi Þór, f. 6. október 2010. Dóttir Jóels og Þuríðar er Gróa Sif, f. 16. mars 1988, sambýlismaður Sigurmon Hart- mann Sigurðsson, f. 30. ágúst 1989. Börn þeirra eru Karítas Björk, f. 1. janúar 2015, og Jóel Hartmann, f. 31. október 2019. Stjúpdóttir Jóels og dóttir Þur- íðar er Alma Björk Ástþórs- dóttir, f. 13. september 1977, maki Einar Pétursson, f. 22. mars 1976. Börn þeirra eru Pétur Þór, f. 1. júní 2000, Gabríela, f. 2. apríl 2002, og Jón Emil, f. 15. september Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (Sálmur 23) Í dag kveð ég ömmu Gróu í hinsta sinn og um leið þakka ég fyrir dýrmætar og góðar sam- verustundir í gegnum tíðina. Minningar eru dýrmætar og ég deili þeim mörgum með ömmu Gróu. Ég hugsa hlýlega til hennar og afa Jóns sem voru bæði mér miklar fyrirmyndir í lífinu. Amma var fagurkeri og list- unnandi. Alltaf svo vel tilhöfð og glæsileg. Hún átti fallegt heim- ili og þar vorum við strákarnir mínir alltaf velkomin. Hún kom reglulega til okkar í heimsókn í Hafnarfjörðinn og það var alltaf gaman að fá hana í mat. Amma hafði upplifað miklar breytingar á þeim tæpu 100 ár- um sem hún lifði. Hún ólst upp við guðsótta og góða siði í Hafn- arfirði og að alltaf ætti að hjálpa náunganum. Hún eignaðist þrjú börn og hjónaband hennar og afa var langt og hamingjuríkt. Ömmu þótti líka afar vænt um barnabörnin og langömmubörn- in sín. Það sem amma Gróa kenndi mér í gegnum tíðina mun lifa með mér til æviloka. Takk elsku amma mín fyrir samfylgdina í gegnum lífið. Minning þín lifir. Þín Hjördís. Í dag kveðjum við góða konu sem ég var svo heppinn að hafa fengið sem ömmu mína. Konu sem upplifði margt á langri ævi og náði að sigrast á alls kyns áskorunum með jákvæðni að vopni. Ein mikilvægasta gjöfin sem amma Gróa gaf mér er að sjá það góða í hlutunum og vera með jákvætt viðhorf til lífsins og þeirra áskorana sem þar liggja. Þetta gerði hún með því að sýna gott fordæmi í eigin raunum. Mér er minnisstætt samtal sem við áttum þegar sjónin hjá henni var verulega farin að daprast. Í stað þess að grafa sig í neikvæðni út af sjón- leysi talaði hún um hvað hún væri heppin með dagskrána í útvarpinu á Rás 1 sem væri ein- staklega góð og áhugaverð og einnig hvað úrval af hljóðbókum væri gott hjá Blindrabókasafn- inu. Þannig að ég þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur af sjón- leysinu. Annað dæmi er í kringum símtölin okkar. Stundum þegar langt var á milli þeirra, þá skammaði hún mig aldrei fyrir hversu sjaldan ég hringdi, held- ur byrjaði hún símtalið alltaf á það segja: „Gaman að heyra í þér“ og setti þar tóninn fyrir já- kvæð og góð samskipti. Amma var einstaklega dug- leg að bjarga sér og sást það best eftir að afi dó og eftir að sjónin fór að versna. Helsta vandamálið sem sneri að mér í seinni tíð var þegar hún óvart ýtti á rangan takka á fjarstýr- ingunni og breytti einhverju í sjónvarpinu, þá mætti ég á stað- inn til að skoða málin með henni, fá kaffi og spjalla í leið- inni. Þessar stundir ylja mér í dag og er ég stoltur að hafa fengið þetta hlutverk og þessar stundir. Amma Gróa átti stóran hlut í mínum uppvexti, en frá mínum fyrstu árum átti ég einstakar stundir með henni og afa Jóni í Hegranesinu, stundir sem ég minnist með einstakri hlýju og ást. Til dæmis þegar þau komu heim frá sínum fjölmörgu utan- landsferðum með fangið fullt af gjöfum og sögum fyrir okkur barnabörnin, en amma Gróa og afi Jón gerðu alltaf sitt besta í að gleðja okkur og gefa okkur allskyns, meðal annars „Toble- rone“ úr fríhöfninni sem var auðvitað algjör munaðarvara á þessum tíma. Þegar ég hitti hana í síðasta skipti á spítalanum sátum við á rúminu hennar og ræddum um daginn og veginn og rifjuðum upp góðar stundir. Meðal þeirra stunda var ferðin okkar til Benidorm með Gamla kompaní- inu þar sem amma bjó til marg- ar ógleymanlegar upplifanir. Ein slík var til dæmis þegar all- ir ferðafélagarnir voru í góðum gír hér og þar, þá settist hún með mér út á svalir á hótelinu og spilaði „Emil í Kattholti“- spilið. Þetta lýsir vel hvernig okkar samband var og hversu natin hún var við okkur barna- börnin og barnabarnabörnin. Mér er þakklæti efst í huga á þessari kveðjustund. Þakklæti fyrir allar góðu stundirnar, fyr- ir allan lærdóminn og alla hlýjuna sem amma Gróa veitti mér. Guð geymi þig, elsku amma mín, áhrifin sem þú hafðir á okkur öll munu vara um langa tíð. Ólafur Þór Jóelsson. Gróa Jóelsdóttir ✝ Guðmundur Andrésson fæddist 28. nóv- ember 1947 á Ak- ureyri. Hann lést 6. maí 2022 á líkn- ardeild Landspít- alans í Kópavogi. Foreldrar hans voru hjónin Ásta Sigríður Williams- dóttir, f. 8. okt. 1927, d. 5. feb. 2016, og Andrés Þ. Guðmunds- son, f. 29. maí 1925. Hann var elstur barna þeirra hjóna. Systkini hans eru Inga Jóna, f. 7. jan. 1949. Ásta, f. 2. okt. 1950. Andrés, f. 9. maí 1954, og Jón William, f. 10. mars 1959, d. 26. júlí 2016. Guðmundur kvæntist Ásthildi Davíðsdóttur, f. 12. nóv. 1951 þann 1. sept. 1973. Foreldrar hennar voru Davíð Her- mann Þorsteinsson, f. 13. apríl 1918, d. 24. nóv. 1971, og Katrín Oddsdóttir, f. 12. des. 1917, d. 18. apríl 1966. Börn þeirra eru: 1) Eva Katrín, f. 17. maí 1973. 2) Erla Björk, f. 26. okt. 1975. Sambýlismaður hennar er Eiríkur Ingi Kristinsson, f. 17. okt. 1970. Börn þeirra eru Sara, f. 26. júlí 1997, Eyþór, f. 22. mars 2001, og Lilja, f. 13. nóv. 2005. Guðmundur verður jarðsung- inn frá Digraneskirkju í dag, 17. maí 2022, og hefst athöfnin kl. 11. Elsku pabbi ég vil þakka þér og mömmu fyrir allt það góða sem þið hafið skapað á ykkar 50 árum saman. Þið hafið með óeigingirni, dugnaði og hlýju skapað okkur fjölskyldunni gott líf. Þær eru ófáar góðu stundirnar sem við áttum heima hjá ykkur, við vorum nefnilega svo heppin að búa öll í göngufæri hvert við annað svo samgangurinn var mikill og heimili ykkar var aðal- staðurinn til þess að hittast. Ég sé þig svo oft fyrir mér sitj- andi á móti mér við eldhúsborðið heima hjá ykkur brosandi. Minninguna um þig hraustan, brosandi út að eyrum og heima með mömmu þar sem þér leið best ætla ég að varveita um ókomna tíð. Þið mamma sýnduð hversu samrýnd og sterk þið voruð í gegnum þessi erfiðu veikindi. Þið voruð svo heppin hvort með annað. Mamma hugsaði svo vel um þig alveg fram á síðustu stundu. Saman í blíðu og stríðu tókust þið á við þau verkefni sem féllu í ykkar hendur. Pabbi takk fyrir allt, alla hlýjuna, öryggið, ástina sem þú sýndir manni alla tíð. Þú hefur alltaf stutt mann og verið til staðar fyrir mann sama hversu erfið veikindi þín voru. Það er stórt skarð sem mynd- ast í lítilli fjölskyldu þegar eitt okkar kveður, þín verður sárt saknað elsku pabbi. Þó sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý, því burt varst þú kallaður á örskammri stundu, í huganum hrannast upp sorgarský Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða svo fallegur, ein- lægur og hlýr. En örlög þín ráðin – mig setur hljóða, við hittumst samt aftur á ný. Megi algóður guð þína sálu nú geyma gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Höf. ók.) Þín dóttir, Erla Björk Guðmundsdóttir. Elsku afi það er skrýtið að eyða ekki meira tíma með þér en núna ertu kominn á betri stað. Við munum sakna þín og sakna þess að ræða við þig um lífið og tilveruna , og þá sérstaklega um stjórnmál þar sem skoðanir þínar voru sterkar. Sögurnar sem amma segir okkur af þér veita okkur hlýju og gleði á þessum erfiðu tímum en við erum afskaplega þakklát fyrir að hafa átt þig sem afa. Minningarnar eru margar og góðar og munu þær fylgja okkur í gegnum lífið. Elsku afi, við þökkum þér fyrir samfylgdina. Við erum rík að hafa átt þig. p.s. Bangsi er loksins farinn að borða matinn sinn almennilega því hann fær ekki lengur svona mikið hundanammi. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem) Þín barnabörn, Sara, Eyþór og Lilja. Elsku pabbi nú hefur þú kvatt okkur. Eftir löng og erfið veikindi veit ég að þú ert á betri stað og þjáist ekki. Þú sýndir mikinn styrk og dugnað í veikindum þínum, en þrátt fyrir allt varstu alltaf að hugsa um að það væri í lagi hjá okkur. Takk fyrir að vera alltaf til staðar. Takk fyrir stríðnina og þinn góða húmor, gott að brosa af og til. Í dag kveð ég þig með söknuði og sorg í hjarta en er svo þakklát fyrir þig. Elsku pabbi, ást og þakkir fyr- ir hlýju, kærleika og bjartar minningar. Allar stundir okkar hér er mér ljúft að muna. Fyllstu þakkir flyt ég þér fyrir samveruna. (Har. S. Mag.) Elska þig pabbi. Eva Katrín Guðmundsdóttir. Guðmundur Andrésson Elsku litla syst- ir mín, mitt uppá- halds eilífðar trippi. Ég trúi ekki að ég sitji hér og skrifi minningarorð um þig. Ég sem hélt að við ættum framtíðina saman. Mikið vildi ég óska þess að ég gæti spólað tímann til baka og gripið þig, gripið sársaukann þinn og þá byrði sem þú burðaðist með alein. Ég vildi óska að ég hefði vitað hversu illa þér leið því ég hefði gert allt til að bera þig áfram. Þegar þú komst í þennan heim þá fyrst byrjaði partíið. Þú varst hávær og glaðlynd og það lék ekki vafi á því þegar þú varst á staðnum. Hlátur þinn og stríðni einkenndu þig frá því að þú varst lítil enda hafðir þú sérstakt dálæti á því að hrekkja okkur systkinin. Ég er auðvitað sjö árum eldri Svanhvít Harðardóttir ✝ Svanhvít Harð- ardóttir fædd- ist 7. nóvember 1984. Hún lést 23. apríl 2022. Útför Svanhvítar fór fram 4. maí 2022. en þú og ég verð að viðurkenna að dálæti þitt á þín- um dúkkum var ekkert endilega minn tebolli en ég lét mig hafa það að leika við þig því það var mér lífsins ómögulegt að segja nei við þig. Þegar þú varðst unglingur þá var minna partí þar sem þú toppaðir gelgjuna fyrir okkur öll. En enn á ný gastu notað fallega brosið þitt og þína fal- legu útgeislun sem bræddi hjarta mitt alltaf og allur okk- ar ágreiningur hvarf eins og dögg fyrir sólu. Ég flutti svo til Danmerkur með litlu Rakel okkar, dóttur mína sem þú sagðist alltaf eiga með mér. Þegar þú komst í heimsókn til okkar áttum við alltaf ómetanlegan tíma saman og þegar yndislega María Lind dóttir þín kom í heiminn fékk hún að fylgja með í stelpuferð á meðan gaurinn okkar hann Hörður Ingi, frumburðurinn þinn, varð eftir hjá pabba sínum og átti strákatíma með honum. Þegar ég mætti á klakann áttum við frábærar stundir saman og alltaf var mikið hlegið. Auðvit- að pirraðir þú mig oft enda fá- ir sem þekktu mína punkta jafn vel og þú en aftur notaðir þú brosið og útgeislun þína til að bræða hjartað mitt, það var bara ekki hægt að vera lengi pirraður út í þig, hjartans litla systir mín. Húmorinn þinn var einstak- lega svartur og ég á eftir að sakna hans óendanlega mikið. Oft gastu komið mér í vand- ræði með því sem þú lést út úr þér en þér var alveg sama og hlóst þínum dásemdarhlátri og þeir sem í kringum þig voru gátu ekki annað en hlegið með þér. Þú varst dásamleg mann- eskja og með eindæmum góð- hjörtuð. Ég sit eftir með mölbrotið hjarta og sáran söknuð sem mun fylgja mér það sem eftir er eða þar til við hittumst næst. Ég veit að þú ert komin á betri stað og geymir þar sæti fyrir okkur, fólkið þitt, sem munum ylja okkur við minningu þína alla daga um ókomna tíð. Það er svo erfitt að vera án þín elsku Svanhvít mín, en þangað til næst: Góða ferð og megi hið æðra passa þig á meðan. Ég elska þig af öllu mínu hjarta. Þín systir, Erica María. Kæri afi. Þú ert eflaust kominn á betri stað núna. Mikið er ég þakklátur fyrir allar minningar sem ég á með þér og ömmu Ástu. Ég er svo heppinn að hafa átt Sveinn Aðalbergsson ✝ Sveinn Að- albergsson fæddist 2. sept- ember 1936. Hann lést 26. apríl 2022. Útför Sveins fór fram 5. maí 2022. þessa dýrmætu stund með þér á þín- um síðustu dögum rétt áður en ég fór út á sjó. Ég verð á sjónum þegar þú verður jarðsunginn. Það er leitt að missa af jarðarförinni en þú gamli sjóarinn skilur vel mína að- stöðu. Þú varst flottast- ur, afi. Hjalti Sveinn Viktorsson. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.