Morgunblaðið - 17.05.2022, Side 20

Morgunblaðið - 17.05.2022, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 2022 ✝ Inga Aðal- heiður Valdi- marsdóttir hjúkr- unarfræðingur fæddist í Reykjavík 27. desember 1955. Hún lést á krabba- meinsdeild Land- spítalans við Hring- braut 9. apríl 2022. Foreldrar henn- ar voru Valdimar Jónsson heildsali, f. 1921, d. 1989, og Dóra Ragn- heiður Guðnadóttir húsmóðir, f. 1924, d. 2007. Systkini Ingu eru Sigríður, f. 1946, Steinunn María, f. 1948, Sara Regína, f. 1954, og Guðjón Viðar, f. 1961. Inga ólst upp í Smáíbúða- starfsferilinn ákvað hún að bæta við sig námi og lauk BS- prófi í hjúkrunarfræði frá Há- skóla Íslands 1999. Hún lét ekki þar við sitja heldur tók stúd- entspróf frá FÁ árið 2012 og þá viðbótardiplómunám í lýðheilsu- vísindum frá Háskóla Íslands árið 2014. Inga giftist hinn 17. maí 1980 Ólafi Erni Klemenssyni hag- fræðingi. Börn þeirra eru: 1) Guðrún, f. 1982, maður hennar er Bjarni Þór Gíslason, þau eiga þrjú börn, Ingunni Erlu, Ólaf Kára og Davíð Þór. 2) Valdís, f. 1986, maður hennar er Thomas Lorentzen, þau eiga tvo syni, þá Sölva og Sindra. 3) Valdimar Klemens, f. 1989. Fyrir átti Ólafur Örn soninn Sigurð Jökul, f. 1973, kona hans er Kristbjörg Hildur Guðmundsdóttir og börn eru Alex Þór og Andrea Lúsía. Útför Ingu Aðalheiðar fór fram frá Neskirkju 22. apríl sl. í kyrrþey að ósk hinnar látnu. hverfinu og Laug- ardalnum, gekk í Breiðagerðis- og Laugalækjarskóla, þá í Lindargötu- skóla til undirbún- ings hjúkrunar- námi, sem hún lauk frá Hjúkrunarskóla Íslands árið 1977. Inga hóf störf við Landspítalann 1975 sem hjúkrunarnemi og síðan frá 1977 sem hjúkr- unarfræðingur. Þá starfaði hún einnig á Borgarspítalanum og Landakotsspítala. Lengst starf- aði hún á Landspítalanum við Hringbraut, allt þar til hún lét af störfum 2017. Þegar leið á Elsku Inga systir, hversu erfitt er að kveðja þig. Þú varst mér yndisleg litla systir og óspör að tjá mér væntumþykju þína. Dýrmætar minningar rifjast upp. Það var stór og spræk stelpa sem mamma kom með heim af fæðingardeildinni um hávetur og allt á kafi í snjó. Þú hélst okkur öllum við efnið á Sogaveginum, vaknaðir alltaf fyrst af öllum og lést alveg hafa fyrir þér. Ég var tæplega 10 ára og fékk því oft næstu árin á eftir að passa ykkur Söru úti í kerru eða úti á róló. Kannski ekki alltaf vinsælt hjá elstu heimasætunni enda mátti ekki líta af þér og þú snögg að koma þér í klandur. Seinna meir varð Inga mín mikil rólyndis- manneskja eins og allir vita sem þekktu hana. Ég á minninguna um fallegu ungu konuna í stofunni í Norður- brún nýútskrifuð sem hjúkrunar- fræðingur og líka sem ung brúð- ur. Mikið vorum við öll stolt. Ég á minningu sem mér er svo kær þegar þú á fyrsta ári í hjúkrun varst viðstödd fæðingu Raggýjar minnar og ljómaðir af gleði með litlu frænku. Minningar um ynd- islegu börnin þín og hversu ynd- isleg móðir, amma og eiginkona. Alltaf á vakt. Minning um hversu vænt þér þótti um foreldra þína, systkini og frændgarðinn allan. Þú varst límið sem hélt okkur saman þegar með þurfti. Líka minning um stórt faðmlag á sorg- arstundu. Þú áttir svo auðvelt með að sýna okkur endalausa ást. Þú varst frábær hjúkrunar- fræðingur og vannst allan þinn starfsaldur við að hlúa að, hjúkra og annast veikt fólk og gerðir það af hógværð, virðingu og fag- mennsku. Það eru búnar að vera erfiðar stundir undanfarið að sjá þig falla fyrir óvægnum sjúkdómi og geta lítið gert. Þú krafðist ekki neins og hugsaðir meira um að allir hefðu það gott í kringum þig. Minningar um yndislegar systraferðir sem við fórum í með- an heilsa þín leyfði eru mér svo dýrmætar. Líka ferðir í Skaga- fjörð til Söru og Mæju með ung- ana okkar. Jólaferðin til BNA með Raggý sem ekki bara flaug með okkur út heldur keyrði með okkur allt í fjóra daga svo við gæt- um slappað af og notið lífsins. Elsku Óli, Krúsa, Valdís, Valdi- mar, tengdasynir og barnabörn, minningar um ykkar ástkæru Ingu lifir áfram. Tilveran verður aldrei eins aftur en minningin um hana mun lifa í hjarta okkar um ókomna tíð. Sigríður (Sirrý) systir. Við vinkonurnar ætluðum að verða gamlar saman á elliheim- ilinu. Nú sitjum við tvær og syrgj- um hjartkæra vinkonu. Fátt er dýrmætara en ævilöng vinátta. Við erum lánsamar, þakklátar og auðmjúkar að hafa átt vináttu þína. Þú varst traustur og góður vinur, þú varst allra best. Við kynntumst í barnaskóla. Síðan höfum við þrjár verið bestu vinkonur. Unglingsárin voru ljúf og liðu við hlátur, spil, tónlist og góða samveru. Við unnum saman í sjoppu og bárum út blöð. Allar fengum við sumarvinnu sem gangastúlkur á Landspítalanum þegar við urðum 17 ára. Inga ólst upp við góð kjör og kunni alla tíð að njóta lífsins gæða. Hún elskaði sólina, góðan mat og gott dekur. Þegar hún var 17 ára hafði hún dvalið tvö sumur í Lúxemborg og búin að eignast rauðan Datsun. Kærleikurinn á milli okkar hef- ur haldið gegnum lífið og við deildum gleði og sorgum saman alla tíð, einnig eftir að við stofn- uðum okkar eigin fjölskyldur. Síminn óspart notaður og símtöl- in voru mörg og löng. Inga var stórglæsileg kona, há- vaxin og dökk á brún og brá. Smekkleg og fáguð, allir hlutir valdir af kostgæfni, hvort sem var fatnaður, húsmunir eða gjafir. Allt sem hún gerði lék í höndun- um á henni. Heimilið og fjölskyld- an báru því vitni. Hún bakaði dásamlegar kökur og brauðrétti og prjónaði listavel. Margir í stór- fjölskyldunni eiga fallega lopa- peysu frá Ingu. Inga var alla tíð hæglát og hóg- vær og var mjög fróð og vel lesin um menn og málefni. Hún unni tónlist, lestri og góðu sjónvarps- efni og henni leiddist ekki með sjálfri sér. Inga þurfti stundum á einveru að halda og þá biðum við hinar rólegar á meðan. Inga var með einstaklega sterka og góða nærveru. Það geislaði frá henni góðvild. Hún hafði áhuga á fólki og var næm á líðan þess. Fjölskyldan var henni mjög dýrmæt og alltaf í fyrir- rúmi. Hún var ættstór og bar mikinn kærleik til systkina sinna og niðja þeirra. Hún var mikill dýravinur og hlakkaði alltaf til að fara í sauð- burðinn til systur sinnar í Skaga- firðinum á vorin. Galdur, fjöl- skylduhundurinn, var henni mjög kær. Hún naut þess að passa og dekra við hann og fylgdi hann gjarnan með í heimsóknir til okk- ar. Hún mundi líka eftir smáfugl- unum yfir veturinn. Hún var allt- af að hugsa um aðra. Við stofnuðum ungar bridgeklúbb ásamt tveimur vinkonum okkar. Klúbburinn hefur verið mjög virkur alla tíð og alltaf glatt á hjalla og höfum við farið í ógleym- anlegar ferðir erlendis og hér- lendis ásamt mökum okkar. Inga var hjúkrunarfræðingur að mennt og starfaði alla tíð á Landspítalanum. Hún naut mik- illar virðingar og væntumþykju meðal starfsfólks. Það var unun að starfa með henni og skjólstæð- ingarnir elskuðu hana. Hún var fagleg, úrræðagóð, traust og blíð. Elsku besta Inga, við erum harmi slegnar. Í veikindunum sýndir þú svo mikinn styrk, æðru- leysi, þroska og umhyggju og þið hjónin voruð svo samhent. Harmurinn er mestur hjá fjöl- skyldunni sem þú elskaðir svo heitt. Elsku Óli, Krúsa, Valdís, Valdimar og ömmubörn. Okkar innilegustu samúðarkveðjur. Minningin um hana Ingu okkar lifir áfram í hjarta okkar. Jórunn og Gunnjóna. Söknuður er það sem hefur einkennt þessa fallegu páskadaga undanfarið. Söknuður yfir því að geta aldr- ei framar hringt í elsku Ingu syst- ur mína og sagt: Hvað segirðu í dag, Inga mín? Söknuður yfir að sjá þau Óla aldrei framar renna í hlaðið hér á Frostastöðum og stinga sér inn í hús, ævinlega með fulla innkaupapoka af alls kyns góðgæti. Yfir að munu aldrei framar sitja og spjalla við Ingu yf- ir prjónaskapnum, horfandi öðru auganu á sjónvarpið, meðan Óli lokkar fram dýrlegan kvöldmat í eldhúsinu og deilir góðlátlega um pólitík við Tóta. Að geta aldrei framar hlakkað til að fara með þeim í sumarhús eða ferðalög inn- anlands eða utan. Að eiga aldrei eftir að deila með henni gleði- stundum vegna afmælis, skírnar, fermingar eða brúðkaupa í fjöl- skyldunni. Að fá ekki fleiri hvers- dagslegar en ljúfar samveru- stundir sem gera tilveruna svo innihaldsríka og nærandi. Við átt- um eftir að gera svo margt saman og það er svo sárt að svo verður ekki. Að missa systur mína sem ég hef fylgt frá fæðingu er eins og að missa hluta af sjálfum sér. Við áttum þessa sameiginlegu barn- æsku, lífssýn og gildismat úr upp- eldinu, samband okkar við for- eldra og systkini, öll þessi gengnu spor sem eru og voru þáttur af okkur, mótuðu okkur og gerðu að þeim manneskjum sem við vor- um. Sameiginleg reynsla og órjúf- anleg bönd sem aldrei þurfti að ræða en voru svo dýrmæt. Ég finn svo sterkt fyrir þessum missi, þessum hluta af mér sem er far- inn. Allt frá barnæsku vorum við samrýndar systur, enda skildi okkur aðeins að rúmt ár í aldri. Hún var þessi góða og trausta, ekki margmál en meinti það sem hún sagði og var heiðarleg. Hún var umhyggjusöm og lét sig líðan og velferð annarra varða. Það var engin tilviljun að hjúkrun varð hennar ævistarf og hún naut sín vel í því starfi. Þar birtist hennar góða og hlýja nærvera auk sam- viskusemi og nákvæmni. Það sáum við líka í því hvernig hún hugsaði um börnin sín þrjú og seinna barnabörnin. Þótt ég ætti heima fyrir norðan en hún fyrir sunnan slitnuðu aldr- ei þessi systrabönd. Hún var ein- staklega dugleg að koma hingað norður með fjölskylduna sína og ég og mitt fólk áttum alltaf at- hvarf og gistingu vísa hjá henni. Ég get varla horfst í augu við að þessar ljúfu og áreynslulausu samverustundir okkar systranna verði ekki fleiri en ég veit líka að það sem vekur manni sorg hefur líka verið gleði manns. Ég ætla að ylja mér við minningarnar um hjartkæra systur mína, hún var svo gegnheil og góð manneskja og hún horfðist sterk og óttalaus í augu við það sem koma skyldi. Ég ætla að minnast með gleði síðustu heimsóknar hennar norður, sem hún treysti sér í, það er dýrmæt minning. Ég er svo þakklát fyrir að ég fékk að vera við hlið hennar og halda í höndina hennar þegar hún kvaddi þetta jarðlíf. Ég hugsa mér að hún sé hérna einhvers staðar nálægt mér, aftur orðin frísk og glöð eins og áður fyrr og haldi áfram að vaka yfir okkur öllum. Sara Regína. Ég horfi svona tuttugu ár aftur í tímann. Inga frænka er í heim- sókn fyrir norðan og hefur skotist með okkur krakkana í sund í Varmahlíð, hálfskýjaðan og mild- an sumardag. Valdimar frændi og Þóra Kristín eru þotin í grunnu laugina, ég og hún tökum því ró- lega í pottinum í smá stund áður en við sláumst í hópinn. Kankvís lítur hún á mig og með mjúku ljósu fallegu röddinni sinni laum- ast hún til að spyrja hvort ég sé kannski skotin í einhverjum núna. Þetta er ekki í fyrsta skipti og heldur ekki það síðasta sem hún Inga frænka mín spyr að þessu, og þó að ég, rétt rúmlega tíu ára gömul, falli hálfpartinn í yfirlið af feimni í hvert sinn þá verð ég líka innst inni upp með mér að eiga þessa góðu og skemmtilegu móð- ursystur sem vill spjalla við mig eins og fullorðna manneskju. Þetta er með mínum fyrstu skýru minningum af elsku Ingu frænku og ein af þeim sem koma upp í hugann þessa sorglegu daga þar sem maður rifjar upp og tár- ast til skiptis og reynir að með- taka að hún Inga okkar hafi þurft að kveðja í bili. Eftir situr minn- ingin um yndislega konu. Ég sakna hennar meira en ég get með orðum lýst og missir stórfjöl- skyldunnar, sem hún hugsaði svo vel um og sá til að hittist reglu- lega, er mikill. Það eru ekki allir tilbúnir að bæta við sig unglingi á heimilið en það voru gæðafólkið Inga og Óli haustið 2007 þegar ég fékk að búa með þeim og Valdimar á Keilugr- andanum fyrsta árið mitt í Kvennó. Það má segja að hún og þau hafi með því gefið mér borg- arlífið sem hefur heillað sveita- barnið síðan þá og Inga mín hvatti mig til að njóta þess; hitta fólk, fara í leikhús, kíkja á kaffihús og hafa það gott. Ég er þeim ævin- lega þakklát fyrir að þau tóku á móti mér, það hefur skipt miklu í hvernig allt varð seinna í lífinu. Þegar ég síðan hélt áfram að búa í borgum erlendis þá hefur það síðustu árin verið fastur liður að líta við í kaffi hjá Ingu og Óla þegar ég er í bænum. Það er huggun harmi gegn að ég fékk að hitta hana Ingu mína núna síðast um jólin, en það er svo sárt að hugsa til þess að hún verði ekki þar í næstu heimsókn. Ég gæfi svo mikið fyrir að fá að sitja og spjalla við hana einu sinni enn; af henni stafaði svo mikil umhyggja, djúpur mannskilningur og ein- lægur áhugi og það var alltaf gott að vera með henni. Það er skrítið að kveðja ein- hvern sem hefur þekkt mann og þótt vænt um mann alla tíð en mikið er ég þakklát fyrir þann kærleik – ástin frá móðursystur er gjöf sem gengur í arf og ég held að Inga ásamt systkinum sínum hafi kennt mér og mínum systkinum svo margt um að eiga og elska fjölskylduna sína. Dreymi þig ljósið og sofðu rótt elsku Inga frænka. Við sjáumst aftur. Þín frænka, Brynhildur. Fyrir mörgum árum tók ég saman albúm af myndum, fyrir fjölskyldumót á Frostastöðum. Við vorum að minnast afa Valdi- mars sem hefði átt afmæli um þær mundir. Myndirnar rúlluðu hver á eftir annarri á flatskjá heima hjá foreldrum mínum; allt saman myndir af móðurfjölskyld- unni minni í gegnum árin. Ég man eftir að við vorum á endanum flestöll komin saman fyrir framan skjáinn og hlógum dátt að göml- um múnderingum og hár- greiðslum (ég er að tala um þig á fermingardaginn, Siddó), æjuð- um og óuðum yfir myndum af ný- fæddum systkinabörnum eða barnabörnum, fór eftir því hver átti í hlut – og brostum hvert til annars yfir dýrmætum sameigin- legum minningum um jól, áramót, fermingar, afmæli, 17. júní-há- tíðahöld og skírnarveislur. Öll til- efnin þar sem við höfðum komið saman. Daginn sem Inga kvaddi settist ég niður og skoðaði allar þessar myndir aftur, í fyrsta skipti í lang- an tíma. Inga var á svo mörgum af þeim. Á eldri myndunum var hún með skvísulæti með mömmu. Seinna meir yfirleitt með barn í fangi, mjög oft ekki að horfa í myndavélina, heldur á barnið. Stundum var það ég, Inga Dóra eða Steinunn – en langoftast Krúsa, Valdís eða Valdimar. Ég er svo þakklát fyrir allar minningarnar um Ingu móður- systur mína. Hún var stór hluti af barnæsku minni og hennar smit- andi hlátur og róandi nærvera og lágstemmda fallega röddin henn- ar munu lifa í huga mínum að ei- lífu. Núna í seinni tíð varð lengra á milli þess sem við sáumst, haf á milli okkar og ég upptekin við að koma fjölskyldu á legg í annarri heimsálfu. En ekkert hafði breyst þar, Inga fylgdist grannt með litlu börnunum í fjölskyldunni og sendi mér reglulega skilaboð um litlu strákana mína. Stundum á dögum sem ég þurfti svo sannar- lega að láta stappa aðeins í mig stálinu. Kannski fann hún það á sér. Bið að heilsa Raggý, elsku Inga mín. Dreymi þig ljósið og sofðu rótt. Þín Guðný Ebba Þórarinsdóttir. Árið 1995 tókum við Inga Vald. saman við stjórn deildar 12G á Landspítalanum. Við vorum ólíkir persónuleikar en bættum hvor aðra svo sannarlega upp. Hún þessi rólega fagmanneskja sem haggaðist ekki sama hvað gekk á, en meiri fyrirgangur í mér. Við Inga vorum kannski ekki alltaf sammála, en náðum að vinna úr hlutunum. Við ásamt hópi af góðu samstarfsfólki unnum saman á 12G yfir 20 ár. Yfir þetta tímabil kom fjöldi nema til okkar og nýtt starfsfólk, sem Inga tók að sér og leiðbeindi af sinni alkunnu snilld. Hún einhvern veginn umvafði fólk og lét því líða vel í öllum að- stæðum. Allir bera henni vel sög- una og eru slegnir yfir ótímabæru andláti hennar. Hún var mikil fyr- irmynd í hjúkrun og elskuð bæði af samstarfsfólki og sjúklingum. Inga með sín brúnu augu, fallega brosið og alltaf svo blíð og góð. Eins frábært og það var að vinna með henni Ingu var ekki síðra að gera sér glaðan dag fyrir utan amstur dagsins. Við sem hópur héldum partí í heimahús- um, skelltum okkur í sumarbú- stað eða hótel yfir nótt og þá færðist nú fjör í leikinn, farið í pottinn, mikið hlegið og spjallað. Þetta eru ljúfar minningar, en fjölskyldan var Ingu allt, mikið sem hún var stolt af hópnum sín- Inga Aðalheiður Valdimarsdóttir Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og kær vinur, KRISTJÁN JÓHANNESSON, Austurvegi 51, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands fimmtudaginn 12. maí. Útförin fer fram frá Selfosskirkju miðvikudaginn 1. júní klukkan 14. Jóhannes Kristjánsson Sólveig Sigurðardóttir Brynja Kristjánsdóttir Örn Bergsson barnabörn og barnabarnabörn Bertha Sigurðardóttir Tryggvi Karl Magnússon og fjölskyldur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, PÁLÍNA HELGA KRISTJANA THORVALDSDÓTTIR IMSLAND, lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn 7. maí. Útförin fer fram frá Breiðholtskirkju föstudaginn 20. maí klukkan 10. Thorvald Imsland Guðrún Sigríður Hilmarsd. Haukur Guðjónsson Helga Eygló Hilmarsdóttir Hreinn Ágúst Óskarsson Hildur Hilmarsdóttir Imsland Ingi Þór Oddsson Lars Jóhann Imsland Ósk Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, KRISTJÁN JÓNSSON, Árbyrgi, áður til heimilis á Heiðvangi 3, Hellu, verður jarðsunginn frá Breiðabólsstaðarkirkju í Fljótshlíð föstudaginn 20. maí klukkan 14. Andrés Kristjánsson Ingveldur Pétursdóttir Rúnar Kristjánsson Inga K. Sveinsdóttir Kristjón L. Kristjánsson Guðríður Hauksdóttir Magnús Kristjánsson Oddrún M. Pálsdóttir Dýrfinna Kristjánsdóttir Þórir Björn Kolbeinsson Hjálmar Trausti Kristjánsson Eygló Huld Jóhannesdóttir Þorgerður Kristjánsdóttir Þorgeir Axelsson Gréta Björk Þorsteinsdóttir Magnús Ingvarsson og aðrir aðstandendur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.