Morgunblaðið - 17.05.2022, Side 21

Morgunblaðið - 17.05.2022, Side 21
um. Við samstarfsfólkið hennar til margra ára söknum hennar, en missir fjölskyldunnar er mestur, og votta ég Óla, Krúsu, Valdísi, Valdimar og fjölskyldum innilega samúð. Blessuð sé minning Ingu Valdimarsdóttur. Elín María. „Njótið lífsins stelpur mínar og drífið ykkur til Tene.“ Þetta voru síðustu orðin hennar Ingu til okk- ar vinkvennanna eða Saumó- systra eins og við köllum okkur. Orðin voru dæmigerð fyrir hana; alltaf að hugsa um velferð ann- arra og veita góð ráð um það sem hún vissi að hefði góð áhrif á lík- ama og sál. Sjálfri fannst henni svo gott að fara í sólina og hitann yfir dimmasta og kalda tímann á Íslandi og hvatti okkur óspart til að gera það sama. Það er ekki erfitt að finna orð sem lýsa Ingu en fyrst koma upp í hugann orð eins og gegnheil góð- mennska, ósérhlífni, staðfesta og dugnaður sem og vilji til að gera það besta úr því sem lífið færir okkur. Alls þessa fengum við vin- konurnar að njóta í samvistum við Ingu. Væntanlega einnig allir sem hún hjúkraði og vann með öll árin sem hún starfaði sem hjúkr- unarfræðingur á Landspítalan- um. Minningarnar um Ingu eru svo ótal margar; allt frá litlu fallegu systur hennar Söru menntaskóla- systur okkar til ungu lífsglöðu stúlkunnar sem leigði fyrstu íbúð- ina með vinkonum sínum, fallegu brúðarinnar sem giftist honum Óla sínum í Dómkirkjunni og barnanna þeirra sem hún elskaði svo óendanlega mikið. Svo minningarnar um öll ferða- lögin sem við fórum í saman; með og án sameiginlega barnaskarans okkar – og með og án eiginmann- anna. Það hefur nefnilega verið siður að fara einu sinni á ári í hús- mæðraorlof einhvers staðar á landinu, án barna og maka. Þar elduðum við góðan mat, borðuð- um mikið nammi og spiluðum langt fram eftir nóttu. Ingu þótti mjög gaman að spila og var líka í spilaklúbbi þar sem vinkonur hittust reglulega og spiluðu brids. Við söfnuðum svo peningum í ferðasjóð sem við nýttum til að fara saman til útlanda. Þessar samkomur voru ómetanlegur gleðigjafi í tilverunni og minning- arnar yndislegar, ekki síst núna þegar við minnumst þess hversu vel Inga naut sín í ferðunum okk- ar. Inga hafði líka yndi af því að prjóna og var iðulega með fallega lopapeysu á prjónunum. „Hver á að fá þessa?“ spurðum við – og svarið var oft: „Æ, ég veit það ekki – einhver.“ Hún prjónaði peysur á alla í fjölskyldunni, vini og fjarskylda ættingja einhverra – og gaf! Svona var Inga. Inga var yngst okkar og aldrei hefði okkur grunað að hún yrði sú fyrsta til að kveðja og það svona fljótt. Hún háði langa og hetju- lega baráttu við krabbamein og við fylgdumst með þegar lyfin virkuðu vel og allir fögnuðu. Svo komu bakslögin. Á sama tíma geisaði Covid svo við gátum ekki hitt hana eins oft og við hefðum viljað. En um leið og færi gafst héldum við okkar reglulega saumó og Inga var með þegar heilsan leyfði – líka á zoom. Hún vildi ekki verja tímanum í að tala um veikindi sín en sagði okkur þó alltaf frá meðferðunum sem hún var að fá og hvernig þær virkuðu. Allir héldu í vonina um að nú væri hún að fá kraftaverkalyfið sem eyddi vágestinum – en svo fór sem fór. Orð eins og „þeir deyja ungir sem guðirnir elska“ hugga ekki neitt á þessari stundu. Við vottum Óla og allri fjöl- skyldunni okkar dýpstu samúð vegna fráfalls hennar Ingu okkar. Missirinn er svo mikill. Anna Vilborg, Bryndís, Helga Lilja, Jórunn, Kristjana, Rannveig, Soffía, Sara Regína, Vala og makar. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 2022 ✝ Ásgeir Jónsson hljómlistar- maður fæddist á Akureyri 22. nóv- ember 1962. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 3. maí 2022. Ásgeir var yngstur fjögurra barna Jóns Kristins Vilhjálmssonar, f. 1929, d. 1998, og Sigrúnar Ernu Ásgeirsdóttur, f. 1932, d. 1992. Eldri systkini hans eru Fríða Margrét, f. 1952, Vilhjálmur, f. 1953, og Val- gerður, f. 1959. Ásgeir ólst upp á Akureyri og þar byrjaði hann tónlistarferil sinn. Hann var einn af stofnendum hljóm- sveitarinnar Bara- flokksins, sem gerði garðinn frægan í byrjun átt- unda áratugarins. Seinna meir fluttist Ásgeir til Reykja- víkur og bjó þar ævilangt. Hann vann sem hljóðmaður í mörg ár og vann með mörgu góðu fólki við þá grein. Ásgeir verður jarðsunginn í Fossvogskirkju í dag, 17. maí 2022, klukkan 13. Söngvari Baraflokksins, Ásgeir Jónsson, féll frá núna 3. maí. Hann var 59 ára. Baraflokkurinn stimplaði Akureyri rækilega inn í rokksöguna á nýbylgjuárunum upp úr 1980, árunum sem kennd eru við „Rokk í Reykjavík“. Ásgeir var laga- og textahöf- undur hljómsveitarinnar og allt í öllu. Frábær söngvari og frábær tónlistarmaður. Hann var gaurinn sem allt vissi og kunni í músík. Hljómsveitin átti sinn auðþekkj- anlega hljóm; blöndu af pönkuðu nýróman-kuldarokki. Ég kynntist Ásgeiri þegar hann var hljóðmaður Broadway á Hótel Íslandi um aldamótin (þekkti hann reyndar lítillega áð- ur til margra ára). Ég bjó í næsta húsi. Þar á milli var hverfispöbb- inn Wall Street. Þegar færi gafst frá hljóðstjórn brá Ásgeir sér yfir á Wall Street. Þar var bjórinn ódýrari og félagsskapurinn skemmtilegri. Vegna sameiginlegrar músík- ástríðu varð okkur vel til vina. Stundum slæddist Ásgeir heim til mín eftir lokun skemmtistaða. Þá hélt skemmtidagskrá áfram. Það var sungið og spilað. Einnig spjölluðum við um músík tímun- um saman. Einstaka sinnum fékk Ásgeir að leggja sig heima hjá mér þegar stutt var á milli vinnu- tarna hjá honum, skjótast í sturtu og raka sig. Ásgeir var snillingur í röddun. Sem slíkur kom hann við á mörg- um hljómplötum. Hann var einnig snillingur í að túlka aðra söngv- ara. Það var dálítið merkilegt. Talrödd hans var hás (að hans sögn „House of the Rising Sun“). Engu að síður gat hann léttilega sungið nákvæmlega eins og „ædolin“ David Bowie og Freddie Mercury. Eitt sinn fór Bubbi Morthens í meðferð. Upptaka af hluta úr söng hans á plötunni „Konu“ glat- aðist. Búið var að bóka pressu í Englandi en ekki mátti ræsa Bubba út. Ásgeir hljóp í skarðið. Söng það sem á vantaði. Það er ekki séns að heyra mun á söngv- urunum. Þetta er vel varðveitt leyndarmál. Ásgeir var einstaklega ljúfur og þægilegur náungi. Eftir að Broadway var lokað vann Ásgeir á Bítlapöbbnum Ob-La-Di. Það var alltaf gaman að heimsækja hann þar. Hann lék ætíð við hvurn sinn fingur. Fyrir nokkrum árum urðum við Ásgeir samferða í geislameð- ferð vegna krabbameins. Ég vegna blöðruhálskirtils. Hann vegna krabbameins í raddbönd- um og síðar einnig í eitlum. Við kipptum okkur lítið upp við það. Við töluðum bara um músík. Ekki um veikindi. Enda skemmtilegra umræðuefni. Jens Kristján Guðmundsson. Ásgeir Jónsson, söngvari í Baraflokknum, er fallinn frá. Ég kynntist honum fyrst á Akureyri 1978. Ég var þá að ljúka mennta- skóla. Meðal áhugamála minna var tónlist, og árið áður fór að bera á tónlistarstefnu sem ég hafði áhuga á að kynna mér betur, pönktónlist. Ég hitti nokkra pönk- ara á förnum vegi á Akureyri, meðal þeirra Braga Halldórsson og Ólaf Magnússon. Þeir Óli og Ásgeir, eða Geiri eins og hann var oft kallaður, voru miklir vinir og tónlistaráhugamenn. Seinna bættust fleiri í hópinn, eins og Steinþór heitinn Stefánsson. Við héldum okkur í miðbæ Ak- ureyrar. Ég bjó í Hafnarstræti 79. Geiri var ásamt með Steinþóri og Braga einn af þeim sem komu oft- ast í Hafnarstrætið. Staðurinn var fjölsóttur og m.a. af því að við vissum að Einingarsamtök kommúnista (m-l) höfðu haft þarna skrifstofu, og líka vegna þess að ég var í þeim samtökum, þá fékk staðurinn nafnið Rauða torgið. Þó var þar lítið um lestur á ritum kommúnista, en þeim mun meira um róttækar tónlistar- og menningarpælingar. Við spáðum mikið í útlit og fatnað, hvernig ætti að vera pönkari, finna sinn stíl. Steinþór og ég vorum líklega hörðustu pönkararnir, en Bragi og þó sérstaklega Ásgeir voru hallari undir örlítið aðra tónlist- arstefnu. Ásgeir var mikill aðdá- andi Davids Bowies, en líka kynntu þeir félagar Geiri og Bragi mér tónlist sem ég þekkti ekki áður, eins og ensku hljóm- sveitina Japan. Ásgeir kunni líka vel að meta poppaðri partinn af pönki, eins og Manchester-hljóm- sveitina Buzzcocks. Ásgeir kenndi mér fleira, hann kenndi mér gítargrip, og leiddi mig fyrstu skrefin í að fara að semja tónlist. Hann var þá sextán ára, en ég átján. Það er margt minnisstætt frá þessum tíma í Hafnarstrætinu. Einhvern tímann var mara- þondiskó í Dynheimum, fé- lagsmiðstöð unga fólksins á Ak- ureyri. Þá datt okkur fjórum í hug að fara á diskóhátíðina klæddir upp sem pönkarar, hver í sinni persónu, eins og lítill leik- hópur. Þetta vakti verulega at- hygli hjá diskóliðinu. Ásgeir var í hljómsveit. Hún var í mótun og bauð Ásgeir okkur Steinþóri að koma á æfingu. Skömmu síðar var þó ákveðið að við Steinþór færum suður og freistuðum gæfunnar í höfuð- borgarpönkinu. Ásgeir og Bragi urðu eftir fyrir norðan. Við höfð- um lítinn tíma til að fylgjast með því sem var í gangi fyrir norðan, pönktíminn var í hámarki í höf- uðborginni og mikið fjör. Vorið 1981 birtist svo Ásgeir í bænum með hljómsveitina sína, Bara- flokkinn. Hljómsveitin var frá upphafi alveg frábær og jók mjög á breiddina í þeirri miklu pönk- og rokkbylgju sem þá var í gangi. Svipað og hjá hljómsveitinni Jap- an var grunnurinn í glysrokki en bæði Japan og Baraflokkurinn urðu langþekktastar sem ný- bylgju- og kannski nýrómantísk- ar hljómsveitir. Bragi hannaði umslagið á LP-plötu þeirra, Lizt. Ásgeir var ljúfur og húmorísk- ur í viðkynningu. Við héldum sambandi löngu eftir að pönk- tímabilinu var lokið, m.a. á þeim ágæta stað Grand Rokk. Vertu sæll, kæri vinur, bið að heilsa David, Lou og Steinþóri. Árni Daníel Júlíusson. Ásgeir Jónsson Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Á minningar- og andlátsvef mbl.is getur þú lesið minningargreinar, fengið upplýsingar úr þjónustuskrá auk þess að fá greiðari aðgang að þeirri þjónustu sem Morgunblaðið hefur veitt í áratugi þegar andlát ber að höndum. Andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar eru aðgengilegar öllum. www.mbl.is/andlát Minningargreinar Hægt er að lesa minningargreinar, skrifa minningargrein og æviágrip. Þjónustuskrá Listi yfir aðila og fyrirtæki sem aðstoða þegar andlát ber að höndum. Gagnlegar upplýsingar Upplýsingar og gátlisti fyrir aðstandendur við fráfall ástvina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.