Morgunblaðið - 17.05.2022, Side 25

Morgunblaðið - 17.05.2022, Side 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 2022 „ÉG HEF HEYRT AÐ FISKURINN HÉR SÉ SÁ FERSKASTI SEM HÆGT ER AÐ ÚTVEGA.“ „ÉG ÞARF AÐ VERA Í ÞESSUM SÉRSMÍÐAÐA SKÓ ÞAR TIL BÓLGAN HJAÐNAR.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að bíða í eftirvæntingu. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG ER MEÐ ÞÚSUND MYNDIR Á SÍMANUM MÍNUM ÞÚ ERT SVO VÆMINN Í ALVÖRU? 999 MYNDIR AFOSTUM… OG EINA AF MÖMMU HVAÐ GERIR ÞÚ? HVERJU SKIPTIR ÞAÐ? ÞÚ HEFUR ENGAN ÁHUGA Á MÉR HVORT EÐ ER. HVAÐ GERIR HANN? HANN LES HUGSANIR! og um það varð góð samstaða. Ég sat á kirkjuþingi í átta ár og þar af fjögur í kirkjuráði. Og táknrænt fyrir kven- ríkið sem hefur mótað mig, þá var traust vinkona mín og skólasystir, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, kjörin biskup Íslands, þegar ég sat í kirkju- ráði.“ Í dag er Gunnlaugur aftur kominn á bernskuslóðir í Hafnarfirði, en hann skildi við Heydali og embætti 1.11. 2019. „Ég nýt frelsis og lífsins, ríð út með góðu fólki, ferðast um heiminn, stend á árbökkum á sumrin og kasta flugu fyrir fisk. Ég er formaður náttúruverndarsamtakanna Laxinn lifir í sjálfboðnu starfi sem helgar sig baráttunni gegn opnu sjókvíaeldi, er einnig í stjórn Nýs takmarks, áfanga- heimilis í Reykjavík, og í stjórn Landssambands veiðifélaga.“ Fjölskylda Gunnlaugur kvæntist 1.12. 1973 Sjöfn Jóhannesdóttur, f. 20.10. 1953, prests við Kópavogskirkju og fv. sóknarprests við Djúpavogs- prestakall. Sonur þeirra er Stefán Már, f. 25.5. 1973, héraðsprestur í Kjalar- nesprófatsdæmi. Eiginkona hans er Lilja Kristjánsdóttir hjúkrunar- fræðingur og synir þeirra eru Gunn- laugur Örn, tvíburarnir Hermann Ingi og Kristján Hrafn, og Þorkell Fannar. Systkini Gunnlaugs: Finnur Torfi, f. 1947, Snjólaug, f. 1951, d. 2004, Guðmundur Árni, f. 1955, og Ásgeir Gunnar, f. 1969. „Snjólaugar er sárt saknað, en dætur hennar, Brynja Dan og Líney Dan, bera henni lif- andi vitni ásamt fjölskyldum sín- um.“ Foreldrar Gunnlaugs voru hjónin Stefán Sigurður Gunnlaugsson, f. 16.12. 1925, d. 23.3. 2016, bæjarstjóri og alþingismaður, og Margrét Guð- mundsdóttir ,f. 18.7. 1927, d. 13.3. 2013, húsfreyja og dómritari. Gunnlaugur Stefánsson Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Eyri, frá Norðurfirði í Árneshreppi Guðmundur Arngrímsson bóndi á Eyri við Ingólfsfjörð, frá Reykjanesi í Árneshr., Strand. Guðrún G. Guðmundsdóttir húsfreyja á Ísafirði og í Reykjavík Guðmundur Magnússon skipstjóri og útgerðarmaður á Ísafirði og í Reykjavík Margrét Guðmundsdóttir dómritari og húsfreyja í Hafnarfirði Margrét Sigurðardóttir húsfreyja í Kálfavík, frá Hörgshlíð í Reykjarfjarðarhreppi, N-Ís. Magnús Bárðarson bóndi í Kálfavík í Skötufirði, frá Kálfavík Líney Sigurjónsdóttir húsfreyja í Görðum, frá Laxamýri í Mývatnssveit Sr. Árni Björnsson prófastur í Görðum á Álftanesi, frá Tjörn á Skaga Snjólaug Guðrún Árnadóttir húsfreyja í Hafnarfirði Gunnlaugur Stefánsson kaupmaður í Hafnarfirði og Reykjavík Sólveig Gunnlaugsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði, frá Veghúsum í Reykjavík Stefán Sigurðsson trésmiður í Hafnarfirði, frá Saurbæ í Áshreppi, A-Hún. Ætt Gunnlaugs Stefánssonar Stefán Sigurður Gunnlaugsson bæjarstjóri í Hafnarfirði og alþingismaður Guðmundur Arnfinnsson sagði á föstudag „vori seinkar“ og orti: Norðanáttin næðir köld, nístir inn að beini, ennþá hefur vetur völd, vorið dvelst í leyni Á Boðnarmiði segir Davíð Hjálm- ar Haraldsson að þetta hafi komið upp úr kjörkassa á Akureyri: Í framboði er fjöldi kattavina, frekar vil ég styðja þá en hina ef þeir senda kettina til Kína. Kínverjarnir hafa étið sína. Gunnar J. Straumland orti á föstudag: Frambjóðendum fagna skal, farnir þeirra lestir. Æ, hvað þetta er erfitt val, allir virðast bestir. Á kjördag orti hann: Sitthvað er að vita og vilja, vefst það fyrir kauðunum. Helst við ættum hér að skilja hafrana frá sauðunum. Eyjólfur J. Eyjólfsson orti þegar hann gekk frá kjörstað snemma morguns, – þá flaug lítil limra inn í reikulan huga hans: Náhyggjan nístandi svarta? eða draumhyggjan blíða og bjarta? Nei, fleygiði nú ykkar fjötrum og trú og kjósið með heila og hjarta. Kristján Gaukur Kristjánsson kvað: Ég kaus í dag, og kannski var það rétt, en kjörseðillinn breytist ekki úr þessu. Í kassann fór hann, kannski telst það frétt: á kjörstað fer ég oftar en í messu. Anton Helgi Jónsson yrkir „framboðsvísu dagsins“: Ég vil lóðaframboð fá því fólk þarf hús að byggja en líka vil ég lista þá sem ljóðaframboð tryggja. Jón Jens Kristjánsson skrifar: „E-listinn falsaði Birgittu Jóns- dóttur á lista hjá sér og situr hún þar gegn eigin vilja“: Kasper, Jesper og Jónatan sem jaga inn mannskap á E-listann Soffíu frænku settu á hann. Hún sofandi var á meðan. Nú vill hún ekki vera um kjurt og vælir um það að komast burt; einhlítt er svar þegar að er spurt „aldregi kemstu héðan“. Hallmundur Guðmundsson tók úr vísnabingnum sínum: Nú reynir á réttlætisþolið þó refirnir hámarki volið. Því launa er þörf fyrir lýjandi störf þó launum sé jafnóðum stolið. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Upp úr kjörkassanum UMHVERFISVÆNI RUSLAPOKINN Umhverfisvæna ruslapokann má nálgast í öllum helstu verslunum Hugsum áður en við hendum! Umhverfisvæni ruslapokinn er úr maíssterkju sem brotnar niður á nokkrum vikum án þess að valda skaða í náttúrunni. Umhverfisvæni ruslapokinn er með handföngum og passar vel í ruslatunnur á heimilum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.