Morgunblaðið - 17.05.2022, Síða 26

Morgunblaðið - 17.05.2022, Síða 26
BESTA DEILDIN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Það virðist fátt geta stoppað Breiða- blik í efstu deild karla í knattspyrnu, Bestu deildinni, en liðið fór illa með Íslands- og bikarmeistara Víkings úr Reykjavík á Víkingsvelli í Foss- vogi í 6. umferð deildarinnar í gær. Fyrri hálfleikurinn var í járnum en Ísak Snær Þorvaldsson kom Breiðabliki yfir í upphafi síðari hálf- leiks og Blikar litu aldrei um öxl eft- ir það. Breiðablik er með fullt hús stiga eða 18 stig í efsta sæti deild- arinnar en liðið hefur lagt Keflavík, KR, FH, ÍA, Stjörnuna og nú Vík- inga að velli í fyrstu umferðunum. Víkingar eru hins vegar ekki sama lið og þeir voru í fyrra og minna þessir fyrstu leikir liðsins í sumar óneitanlega mikið á tímabilið 2020 þar sem lítið sem ekkert féll með lið- inu. _ Ísak Snær skoraði sitt sjöunda mark í sex leikjum og er markahæsti leikmaður deildarinnar. _ Oliver Ekroth, varnarmaður Víkinga, fór meiddur af velli á 58. mínútu og við það hrundi varn- arleikur Víkinga alveg, og var hann tæpur fyrir. _ Jason Daði Svanþórsson skor- aði sitt fjórða mark í deildinni í sum- ar og er 3.-5. sæti yfir markahæstu menn. Þorsteinn bjargvættur KR Þorsteinn Már Ragnarsson bjarg- aði KR þegar liðið tók á móti Kefla- vík á Meistaravöllum í Vesturbæ. KR-ingar hafa gert vel í að vinna liðin sem spáð er í neðri hluta deild- arinnar á meðan Vesturbæingar hafa tapað gegn liðum sem spáð er í efri hlutanum. Keflvíkingar mættu með sjálfs- traust í leikinn í Vesturbæ eftir tvo leiki í röð án ósigurs en þeim tókst ekki að halda út gegn KR-ingum. _ Þorsteinn Már, sem gekk til liðs við KR á dögunum frá Stjörnunni, skoraði síðast fyrir KR í efstu deild gegn Fylki í ágúst 2015. _ Þetta var annar leikur sumars- ins þar sem Keflavík mistekst að skora en liðið hefur skorað 10 mörk það sem af er sumri. _ Mark Þorsteins var fyrsta markið sem KR skorar á heimavelli í deildinni í sumar. Fyrsti sigur Framara Nýliðar Fram unnu sinn fyrsta leik í deildinni í sumar þegar liðið heimsótti Leikni úr Reykjavík á Do- musnova-völlinn í Breiðholti. Guðmundur Magnússon reyndist hetja Framara en hann skoraði sig- urmark leiksins á 72. mínútu. Framarar hafa komið þó nokkuð á óvart í deildinni í sumar og virðast ekki vera það fallbyssufóður sem flestir spámenn höfðu reiknað með. Á sama tíma gengur lítið upp hjá Leikni sem hefur einungis skorað tvö mörk í sumar sem getur ekki tal- ist vænlegt til árangurs. _ Guðmundur Magnússon skoraði sitt þriðja mark á tímabilinu og hef- ur nú þrefaldað markafjölda sinn frá tímabilinu 2010 þar sem hann skor- aði eitt mark í 15 leikjum. Breiðablik lék sér að meisturunum Morgunblaðið/Árni Sæberg Mark Leikmenn Breiðabliks fagna þriðja marki Kristins Steindórssonar á Víkingsvelli í gær en Blikar eru með fullt hús stiga á toppi deildarinnar. - KR slapp fyrir horn gegn Keflavík - Fyrsti sigur Fram kom í Breiðholti 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 2022 Besta deild karla KR – Keflavík ........................................... 1:0 Víkingur R. – Breiðablik.......................... 0:3 Leiknir R. – Fram .................................... 1:2 Staðan: Breiðablik 6 6 0 0 19:4 18 KA 6 5 1 0 11:2 16 Valur 6 4 1 1 11:5 13 Stjarnan 6 3 2 1 14:10 11 KR 6 3 1 2 8:5 10 Víkingur R. 7 3 1 3 14:14 10 FH 6 2 1 3 9:10 7 Fram 6 1 2 3 8:15 5 ÍA 6 1 2 3 7:15 5 Keflavík 7 1 1 5 10:16 4 ÍBV 6 0 2 4 6:13 2 Leiknir R. 6 0 2 4 2:10 2 UEFA-mót U16 karla Leikið í Svíþjóð: Írland – Ísland .......................................... 1:2 Galdur Guðmundsson skoraði mark Ís- lands sem endaði í efsta sæti mótsins eftir sigra gegn Svíþjóð og Sviss. England Newcastle – Arsenal ................................ 2:0 Staðan: Manch. City 37 28 6 3 96:24 90 Liverpool 36 26 8 2 89:24 86 Chelsea 36 20 10 6 73:31 70 Tottenham 37 21 5 11 64:40 68 Arsenal 37 21 3 13 56:47 66 Manch. Utd 37 16 10 11 57:56 58 West Ham 37 16 8 13 59:48 56 Wolves 37 15 6 16 37:40 51 Leicester 36 13 9 14 57:57 48 Brighton 37 11 15 11 39:43 48 Brentford 37 13 7 17 47:54 46 Newcastle 37 12 10 15 42:61 46 Crystal Palace 36 10 15 11 47:43 45 Aston Villa 36 13 5 18 49:50 44 Southampton 36 9 13 14 41:61 40 Everton 36 10 6 20 39:59 36 Leeds 37 8 11 18 40:78 35 Burnley 36 7 13 16 32:50 34 Watford 37 6 5 26 33:75 23 Norwich City 37 5 7 25 23:79 22 Svíþjóð Rosengård – Örebro................................ 2:0 - Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn með Rosengård. - Berglind Rós Ágústsdóttir lék allan leik- inn með Örebro. Häcken – Kalmar..................................... 3:1 - Diljá Ýr Zomers kom inn á sem vara- maður hjá Häcken á 72. mínútu. Agla María Albertsdóttir var ónotaður varamað- ur. - Hallbera Guðný Gísladóttir var ekki í leikmannahópi Kalmar. Hammarby – Kristianstad...................... 0:2 - Amanda Andradóttir kom inn á sem varamaður á 69. mínútu hjá Kristianstad. Emelía Óskarsdóttir var ónotaður vara- maður. Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar lið- ið. Staðan: Rosengård 9 6 3 0 22:8 21 Häcken 9 6 3 0 19:6 21 Linköping 9 6 1 2 15:7 19 Eskilstuna United 9 6 1 2 14:8 19 Vittsjö 9 4 4 1 11:9 16 Kristianstad 9 4 3 2 17:10 15 Piteå 9 4 1 4 14:11 13 Djurgarden 9 4 0 5 14:16 12 Örebro 9 4 0 5 11:13 12 Hammarby 9 3 1 5 10:18 10 Umeå 9 2 1 6 8:16 7 Brommapojkarna 9 2 0 7 7:15 6 Kalmar 9 2 0 7 8:19 6 AIK 9 1 0 8 6:20 3 Noregur Bodö/Glimt – Tromsö ............................. 1:1 - Alfons Sampsted lék allan leikinn með Bodö/Glimt. Kristiansund – Strömsgodset ................ 0:3 - Brynjólfur Willumsson kom inn á sem varamaður í hálfleik hjá Kristiansund. - Ari Leifsson lék allan leikinn með Strömsgodset. Lilleström – Sarpsborg........................... 1:0 - Hólmbert Aron Friðjónsson kom inn á sem varamaður hjá Lilleström á 85. mín- útu. Aalesund – Molde .................................... 0:2 - Björn Bergmann Sigurðarson er frá keppni vegna meiðsla hjá Molde. Vålerenga – HamKam ............................ 1:1 - Brynjar Ingi Bjarnason lék fyrstu 85 mínúturnar með Vålerenga og Viðar Örn Kjartansson fyrstu 61 mínútuna. Viking – Jerv............................................ 3:0 - Patrik Sigurður Gunnarsson varði mark Viking og Samúel Kári Friðjónsson lék fyrstu 78 mínúturnar. Staðan: Viking 8 6 1 1 17:6 19 Lillestrøm 7 5 2 0 13:4 17 Molde 7 4 1 2 13:7 13 Sarpsborg 6 3 1 2 10:7 10 Strømsgodset 7 3 1 3 8:9 10 Vålerenga 7 3 1 3 8:10 10 Bodø/Glimt 6 2 3 1 11:8 9 Rosenborg 6 2 3 1 7:6 9 Tromsø 7 2 3 2 9:12 9 Aalesund 7 2 2 3 6:9 8 HamKam 6 1 4 1 9:7 7 Jerv 6 2 1 3 3:9 7 Sandefjord 6 2 0 4 10:12 6 Haugesund 7 2 0 5 9:12 6 Odd 7 2 0 5 6:13 6 Kristiansund 6 0 1 5 4:12 1 4.$--3795.$ Knattspyrnudómarinn Helgi Mika- el Jónasson og aðstoðardómarinn Gylfi Már Sigurðsson eru á meðal dómara á lokamóti Evrópumóts U17 ára landsliða karla í knatt- spyrnu sem hófst í Ísrael í gær. Helgi Mikael og Gylfi dæma leik Serbíu og Belgíu síðar í dag í C-riðli keppninnar en mótinu lýkur hinn 1. júní með úrslitaleik í Netanya. Helgi hefur verið á meðal fremstu dómara landsins undan- farin ár og Gylfi Már er á meðal reyndustu aðstoðardómara lands- ins. Dæma á lokamóti EM Ljósmynd/Þórir Tryggvason EM Knattspyrnudómarinn Helgi Mikael er á meðal dómara í Ísrael. Knattspyrnumaðurinn Rúnar Már Sigurjónsson hefur yfirgefið rúm- enska félagið CFR Cluj. Rúnar kom til CFR Cluj frá Ast- ana í Kasakstan árið 2020, lék 24 deildarleiki með liðinu og skoraði sex mörk. Varð liðið rúmenskur meistari bæði tímabil Rúnars hjá félaginu. Miðjumaðurinn lék hins vegar lítið með liðinu á nýliðnu tímabili og kom aðeins við sögu í tveimur leikjum eftir áramót. Hann hefur einnig leikið með Grashopper, St. Gallen og Sunds- vall á atvinnumannaferlinum. Yfirgefur meistarana Ljósmynd/CFR Cluj Meistari Rúnar Már hefur leikið í Rúmeníu frá því í febrúar 2021. VÍKINGUR – BREIÐABLIK 0:3 0:1 Ísak Snær Þorvaldsson 56. 0:2 Jason Daði Svanþórsson 73. 0:3 Kristinn Steindórsson 76. MM Jason Daði Svanþórsson (Breiðabliki) M Anton Ari Einarsson (Breiðabliki) Dagur Dan Þórhallsson (Breiðabliki) Damir Muminovic (Breiðabliki) Kristinn Steindórsson (Breiðabliki) Oliver Sigurjónsson (Breiðabliki) Viktor Örn Margeirsson (Breiðabliki) Pablo Punyed (Víkingi R.) Rautt spjald: Kristall Máni Ingason (Víkingi R.) 90. Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 8. Áhorfendur: Um 1.700. KR – KEFLAVÍK 1:0 1:0 Þorsteinn Már Ragnarsson 67. M Beitir Ólafsson (KR) Hallur Hansson (KR) Finnur Tómas Pálmason (KR) Kennie Chopart (KR) Theodór Elmar Bjarnason (KR) Sindri Kristinn Ólafsson (Keflavík) Ígnacio Heras (Keflavík) Rúnar Þór Sigurgeirsson (Keflavík) Ivan Kaliuzhnyi (Keflavík) Adam Ægir Pálsson (Keflavík) Dómari: Pétur Guðmundsson – 8. Áhorfendur: 850. LEIKNIR R. – FRAM 1:2 0:1 Fred Saraiva 11. 1:1 Emil Berger 64. 1:2 Guðmundur Magnússon 72. M Maciej Makuszewski (Leikni R.) Mikkel Elbæk Jakobsen (Leikni R.) Emil Berger (Leikni R.) Frederico Saraiva (Fram) Már Ægisson (Fram) Alexander Már Þorláksson (Fram) Ólafur Íshólm (Fram) Albert Hafsteinsson (Fram) Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson – 7. Áhorfendur: 565. _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot- bolti. Víðir Sigurðsson í Lyon vs@mbl.is Sara Björk Gunnarsdóttir, lands- liðsfyrirliði í knattspyrnu til margra ára, spilar í mesta lagi þrjá leiki í viðbót með franska stórliðinu Lyon en fyrir liggur að hún yfirgef- ur félagið í sumar þegar samningur hennar rennur út. Lyon spilar úrslitaleik Meistara- deildarinnar gegn Barcelona á laugardaginn og á síðan eftir tvo leiki í frönsku 1. deildinni þar sem liðinu dugir eitt stig í tveimur leikj- um gegn París SG og Issy til að gulltryggja sér meistaratitilinn. „Já, þetta er ákveðið mál, ég fer frá Lyon eftir tímabilið, og eins og staðan er í dag er margt sem kemur til greina,“ sagði Sara Björk þegar Morgunblaðið ræddi við hana í Lyon í gærkvöld. Margt sem er í boði „Ég hef ekki tekið neina ákvörð- un, enda er ég ekki lengur bara að hugsa um sjálfa mig heldur fjöl- skylduna líka,“ sagði Sara en hún og Árni Vilhjálmsson sambýlis- maður hennar eignuðust soninn Ragnar Frank í nóvember 2021. Árni leikur með franska B-deildar- liðinu Rodez og er samningsbund- inn því í tvö ár til viðbótar. „Nú erum við bara að þreifa okk- ur áfram og sjá hvað sé best í stöð- unni. Það er margt í boði og spurn- ingin er hvað hentar best á þessum tímapunkti. Deildirnar á Englandi, Frakklandi, Þýskalandi og á Spáni eru allar mjög spennandi og ég vil halda mig á þeim slóðum,“ sagði Sara Björk Gunnarsdóttir við Morgunblaðið í gær. Sara yfirgefur Lyon Morgunblaðið/Eggert Frakkland Samningur Söru Bjarkar við Lyon rennur út í sumar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.