Morgunblaðið - 17.05.2022, Page 27

Morgunblaðið - 17.05.2022, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 2022 Þótt fótbolti verði ávallt uppáhaldsíþrótt undirritaðs er engin íþróttakeppni hér á landi sem hefur roð við úrslitakeppn- inni í körfubolta. Valur og Tindastóll buðu upp á enn eina ótrúlegu skemmt- unina þegar þau mættust í fjórða sinn í úrslitaeinvígi á sunnudag. Bæði lið héldu eflaust að þau væru búin að vinna leikinn sjö sinnum áður en lokaflautið gall loksins og Tindastóll fagnaði. Það er ekki aðeins úrslita- einvígið sem hefur verið magnað í ár heldur hefur úrslitakeppnin í heild verið stórkostleg skemmt- un, allt frá átta liða úrslitunum. Á meðal hápunkta keppn- innar til þessa er ótrúlegur 86:85-sigur Grindavíkur á Þór frá Þorlákshöfn í átta liða úrslit- um þar sem sigurkarfan kom í blálokin. Magnaður 92:90- útisigur Vals á Stjörnunni í tví- framlengdum leik var einnig stórkostleg skemmtun, sem og öll sería Tindastóls og Keflavíkur sem endaði í oddaleik. Tindastóll gerði glæsilega í að vinna upp stórt forskot Njarð- víkur í fyrsta leik liðanna í und- anúrslitum og vinna að lokum í framlengingu. Einvígi Þórs frá Þorlákshöfn og Vals var því mið- ur ekki eins spennandi og fóru Valsmenn örugglega áfram. Úrslitarimma Vals og Tinda- stóls hefur verið stórglæsileg og dramatíkin í hámarki, nema kannski í leik tvö sem Tindastóll vann örugglega. Úrslitin réðust á síðustu sekúndunni í fyrsta og fjórða leik og Valur sneri töp- uðum þriðja leik sér í vil og vann glæsilegan sigur. Hvað gerist í oddaleik á morgun? BAKVÖRÐUR Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is ÞÝSKALAND Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Knattspyrnumaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson var í lykilhlutverki hjá þýska stórliðinu Schalke á ný- liðnu keppnistímabili þegar liðið fagnaði sigri í þýsku B-deildinni og tryggði sér um leið sæti í efstu deild Þýskalands. Guðlaugur Victor, sem er 31 árs gamall, var einn af fyrirliðum Schalke á tímabilinu og kom við sögu í 28 leikjum í B-deildinni en hann gekk til liðs við Schalke fyrir keppnistímabilið frá Darmstadt þar sem hann hafði leikið frá árinu 2019. „Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá fylgdi þessu tímabili mikill haus- verkur og maður er hálfbúinn á því andlega eftir þessa miklu rússíban- areið,“ sagði Guðlaugur Victor í samtali við Morgunblaðið. „Félagið féll úr efstu deild á síð- ustu leiktíð og það var mikið sjokk fyrir alla í kringum klúbbinn, bæði þá sem starfa innan hans og stuðn- ingsmennina líka. Fallinu fylgdi mik- il neikvæðni í kringum félagið og flestir gerðu ráð fyrir því að við myndum svo gott sem pakka þýsku B-deildinni saman. Alls fóru 45 félagaskipti í gegnum félagið síðasta sumar og hópurinn og liðið sem lék í B-deildinni í ár var nánast glænýr, að undanskildum einhverjum tveimur til þremur leik- mönnum. Þjálfarinn Dimitrios Grammozis, sem tók við liðinu í mars á síðasta ári, var með nýjar áherslur og það tók tíma að púsla þessu öllu saman,“ sagði Guðlaugur Victor en hann á að baki 29 A-landsleiki fyrir Ísland. Pressan reyndist erfið Schalke er eitt sögufrægasta félag Þýskalands en liðið hefur sjö sinnum orðið Þýskalandsmeistari og fimm sinnum bikarmeistari. „Það vantaði mikið upp á stöð- ugleikann hjá okkur fyrri hluta tíma- bilsins enda með nánast nýtt lið sem var bara að reyna finna taktinn. Fjölmiðlar hérna í Gelsenkirchen eru mjög grimmir og það fór ekki fram hjá neinum þegar við töpuðum stigum í deildinni. Stuðningsmenn- irnir hafa líka mikil völd hérna og pressan sem fylgir því að spila fyrir þetta félag reyndist okkur oft og tíð- um erfið. Í mars var þjálfaranum Grammoz- is sagt upp störfum og Mike Bü- skens, sem hafði verið aðstoðarþjálf- ari Grammozis, var fenginn til þess að stýra liðinu út keppnistímabilið. Hann breytti aðeins um taktík og náði upp ákveðnum stöðugleika. Við unnum sjö leiki af átta undir hans stjórn og enduðum tímabilið því frá- bærlega sem var mjög ánægjulegt.“ Guðlaugur Victor hefur komið víða við á ferlinum en hann hefur meðal annars leikið á Englandi, í Skotlandi, Bandaríkjunum, Hollandi, Svíþjóð, Danmörku og Sviss. Reynslunni ríkari „Ég lærði ótrúlega mikið á þessari leiktíð, bæði um sjálfan mig og líka sem knattspyrnumaður. Ég gerði mér ekki almennilega grein fyrir því hversu stór klúbbur þetta er fyrr en ég kom hingað. Heimavöllurinn okk- ar tekur rúmlega 62.000 manns í sæti og það er nánast uppselt á alla leiki hjá okkur. Það er ekkert annað í boði en sigur og ef þú tapar eða gerir jafntefli þá ertu bara jarðaður af bæði stuðningsmönnum og fjöl- miðlum. Það tók mig dágóðan tíma að venj- ast pressunni hérna. Leikmenn liðs- ins eru stöðugt undir smásjánni og það er fylgst mjög vel með öllu sem maður gerir, bæði innan og utan vallar. Maður var orðinn hálfgrá- hærður seinni hluta tímabilsins enda áreitið stöðugt. Við vorum að elta toppliðin nánast allt tímabilið og það var stanslaust verið að fjalla um það að við myndum springa á limminu og misstíga okkur í loka- leikjunum. Það var því fyrst og fremst léttir að ná að að klára þetta undir restina.“ Stoltur og spenntur Guðlaugur Victor gæti orðið eini Íslendingurinn í þýsku 1. deildinni á komandi keppnistímabili en samn- ingur Alfreðs Finnbogasonar, sem leikur með Augsburg, rennur út í sumar. „Schalke mun alltaf styrkja hóp- inn eitthvað í sumar og bæta við sig nýjum leikmönnum. Efsta deild Þýskalands er allt annar leikur en þýska B-deildin en flestir leikmenn liðsins eru samningsbundnir og ég á von á því að meirihlutinn verði hérna áfram. Félagið hefur hins vegar verið í ákveðnum fjárhags- vandræðum og það er því viðbúið að einhverjir muni hverfa á braut. Þegar ég kom hingað þá var ég settur í nánast nýja stöðu og ég spil- aði mikið einn í sexunni, eitthvað sem ég hafði ekki gert áður. Ég hef þurft að stíga upp og bæta mig á sviðum sem hafa kannski ekki alltaf verið minn helsti styrkleikur, eins og sóknarleikurinn, en ég er sáttur við mína frammistöðu á tímabilinu. Ég verð áfram í Schalke á næstu leiktíð og er mjög spenntur að spila í efstu deild Þýskalands á komandi keppnistímabili. Ég er hef gengið í gegnum ýmislegt á mínum ferli og í lífinu en það að fá tækifæri til þess að spila með Schalke í efstu deild er eitthvað sem ég er mjög stoltur af og hlakka mikið til,“ bætti Guð- laugur Victor við í samtali við mbl.is. Hálfgráhærður eftir erfitt tímabil - Guðlaugur Victor Pálsson leikur í þýsku 1. deildinni á komandi keppnistímabili Ljósmynd/Schalke Meistarar Guðlaugur Victor fagnar sigri í þýsku B-deildinni um helgina. 4. umferð í Bestu deild kvenna 2022 3-5-2 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 Íris Dögg Gunnarsdóttir Þróttur Brenna Lovera Selfoss Mist Edvardsdóttir Valur Christina Clara Settles Afturelding Arna Sif Ásgrímsdóttir Valur Danielle Marcano Þróttur Ásdís Karen Halldórsdóttir Valur Sólveig J. Larsen Afturelding Taylor Ziemer Breiðablik Hildur Antonsdóttir Breiðablik Karitas Tómasdóttir Breiðablik 2 2 23 Íris Dögg Gunnarsdóttir markvörður Þróttar var besti leikmaðurinn í fjórðu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Íris lék mjög vel í marki Þróttar þegar liðið lagði ÍBV á Hásteinsvelli í Vest- mannaeyjum á laugardaginn, 2:1. Hún var eini leikmaður deildarinnar sem fékk tvö M fyrir frammistöðu sína í fjórðu umferðinni og er að sjálfsögðu í liði umferðarinnar sem sjá má hér að ofan. Brenna Lovera framherji Selfyssinga er í úrvalsliðinu í þriðja sinn og þær Ásdís Karen Halldórsdóttir og Arna Sif Arngrímsdóttir úr Val og Danielle Marcano úr Þrótti eru valdar í annað skipti. Íris best í fjórðu umferðinni Arsenal missteig sig enn á ný þeg- ar liðið heimsótti Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu á St. James’s Park í New- castle í gær. Leiknum lauk með 2:0-sigri Newcastle þar sem Ben White, varnarmaður Arsenal, varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 55. mínútu áður en Bruno Guimaraes innsiglaði sigur Newcastle með marki á 85. mínútu. Arsenal er með 66 stig í fimmta sæti deildarinnar, tveimur stigum minna en Tottenham sem er í fjórða sætinu. Arsenal tekur á móti Everton í lokaumferðinni og verður að vinna til þess að eiga möguleika á því að enda í fjórða sætinu en Tottenham heimsækir botnlið Norwich sem er fallið úr deildinni. Tottenham er með mun betri markatölu en Arsenal og því þarf Arsenal að treysta á að Norwich vinni Tottenham til þess að eiga möguleika á sæti í Meistaradeild- inni á næstu leiktíð. AFP 5 Arsenal þarf að treysta á að Tottenham misstígi sig í lokaumferðinni. Arsenal að missa af Meistaradeildarsæti Danmörk Úrslitakeppnin: GOG – Ribe-Esbjerg............................ 33:29 - Viktor Gísli Hallgrímsson varði 11 skot í marki GOG sem er komið áfram í undan- úrslit. $'-39,/*" Úrslitakeppni NBA Vesturdeild, undanúrslit: Phoenix – Dallas ................................. 90:123 _ Dallas vann 4:3 og mætir Golden State í úrslitum. >73G,&:=/D KNATTSPYRNA Mjólkurbikar kvenna, 2. umferð: Kaplakrikavöllur: ÍH – FH ...................... 19 Kópavogsvöllur: Augnablik – Haukar..... 19 Í KVÖLD! England B-deild, umspil, seinni leikur: Huddersfield – Luton .............................. 1:0 _ Huddersfield vann samanlagt 2:1 og mætir annaðhvort Notthingham Forest eða Sheffield United í úrslitum. Tyrkland Galatasaray – Adana Demirspor........... 3:2 - Birkir Bjarnason lék allan leikinn með Adana Demirspor. Danmörk Úrslitakeppnin: Silkeborg – Midtjylland .......................... 1:4 - Stefán Teitur Þórðarson lék fyrstu 73 mínúturnar með Silkeborg. - Elías Rafn Ólafsson hjá Midtjylland er frá keppni vegna meiðsla. 4.$--3795.$

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.