Morgunblaðið - 17.05.2022, Side 32

Morgunblaðið - 17.05.2022, Side 32
Edinborg er ein fegursta borg Skotlands og vagga skoskrar menningar. Það er mikil upplifun að heimsækja borgina og skoða sig um í „Old Town“ sem og nýrri borgarhlutanum. Gist er á hinu glæsilega Inter Continental Hotel við George Street, sem margir hafa kallað „Champs-Élýsée“ Edinborgar þar sem kaffihús, veitingastaðir og glæsilegar verslanir skarta sínu fegursta. Farið verður í skoðunarferðir um borg- ina og utan hennar og heimsóknir í Edinborgar- og Stirling kastala ásamt siglingu á Loch Katrine og heimsókn til Whisky-framleiðanda auk kvöldskemmtunar „Spirit of Scotland Show“. Innifalið í verði: Flug með Icelandair til Glasgow báðar leiðir, skattar og bókunargjald. 4ra nátta gisting á Inter Continental ásamt morgunverði og kvöldverði. Allur akstur ásamt skoðunarferðum og aðgangi að þeim stöðum sem heimsóttir verða. Fararstjóri: Sigurður K. Kolbeinsson. • Aukagjald fyrir einbýli er kr. 85.000 Edinborg fegursta borg Skotlands Sérferð fyrir eldri borgara 18.-22. september Verð 239.500 á mann m.v. gistingu í tvíbýli* Niko ehf | Austurvegi 6 | 800 Selfoss | kt. 590110-1750 Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðaskrifstofu eldri borgara í símum 783-9300 og 783-9301, einnig með tölvupósti í gegnum netfangið hotel@hotelbokanir.is og á www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is Leikgerð af bókinni Mun- aðarleysingjahælinu eftir úkraínska höfundinn Serhij Zadhan verður leiklesin á pólsku í leikstjórn Karolinu Szczypek í Kassanum í Þjóð- leikhúsinu í kvöld, þriðju- dagskvöld, kl. 20, í meðförum leikara frá Stefan Zeromski- leikhúsinu í Kielce í Póllandi. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðleikhúsinu markar leik- lesturinn upphafið á tveggja ára samstarfi leikhúsanna tveggja, sem felur í sér „gestasýningar í báðum leik- húsum, gagnkvæmar heimsóknir og samstarf á sviði þekkingarmiðlunar og síðast en ekki síst þróun nýs leikverks sem skrifað verður um stöðu Pólverja sem bú- settir eru á Íslandi“, eins og segir í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu. Þar kemur fram að Stefan Zeromski-leikhúsið sé meðal elstu leikhúsa Póllands og njóti mikillar virðingar. Lesturinn verður textaður á ensku og er aðgangur ókeypis. Leiklestur á pólsku öllum opinn ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 137. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Breiðablik er með fullt hús stiga á toppi efstu deildar karla í knattspyrnu, Bestu deildarinnar, en liðið vann afar sannfærandi sigur gegn Íslands- og bikarmeist- urum Víkings úr Reykjavík á Víkingsvelli í 6. umferð deildarinnar í gær. »26 Breiðablik með fullt hús stiga ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hilmar B. Jónsson var kjörinn heiðursfélagi Klúbbs mat- reiðslumeistara og Magnús Örn Friðriksson og Magnús Örn Guð- marsson voru sæmdir Cordon Bleu-orðunni á nýliðinni árshátíð klúbbsins í kjölfar aðalfundarins á Akureyri. „Þetta er algjör til- viljun,“ segir Þórir Erlingsson, forseti KM, um að nafnar hafi ver- ið heiðraðir með orðunni á sama tíma. „Cordon Bleu-orðan er veitt fyr- ir framúrskarandi starf í þágu matreiðslufagsins á Íslandi og er aðeins veitt félagsmönnum,“ held- ur Þórir áfram. Laga- og orðu- nefnd óski eftir tilnefningum og að þessu sinni hafi nafnarnir orðið fyrir valinu. Magnús Örn Guðmarsson eða Maddi, eins og hann er kallaður, lærði hjá Skúla Hansen og Guð- mundi Guðmundssyni á veitinga- húsinu Arnarhóli, byrjaði í sept- ember 1985 og útskrifaðist frá Hótel- og veitingaskóla Íslands 1989. Að námi loknu hélt hann til Amsterdam í Hollandi þar sem hann var matreiðslumaður hjá franska meistaranum Jean-Paul Simon á Pulitzer-hótelinu til 1991, þegar hann varð yfirmatreiðslu- maður Flughótels í Keflavík. Hann lauk meistaranámi í Hótel- og matvælaskólanum 1999 og hef- ur starfað víða sem yfir- matreiðslumaður á veitingahúsum og hótelum auk þess að hafa verið í mötuneytisrekstri, meðal annars hjá 365 miðlum 2006-2012. Nú er hann matreiðslumeistari og verk- stjóri matsala hjá Landspítal- anum, sinnir m.a. þjónustu í mat- sölu til starfsfólks og aðstandenda sjúklinga. Heiður og klapp á öxlina „Viðurkenningin er mikið klapp á öxlina,“ segir Maddi. Snemma hafi hann ákveðið að verða mat- reiðslumaður og eftir að hafa unn- ið við fagið og sinnt félagsmálum því tengdum í rúma þrjá áratugi geti hann ekki annað en verið stoltur. „Hún hvetur mig til þess að vinna áfram í sjálfboðavinnu í þágu fagsins á allan hátt og stuðla að framgangi og styrkingu fags- ins.“ Magnús Örn Friðriksson, eða Maggi eins og hann er kallaður, bendir á að klúbburinn sé um 50 ára og innan við 70 manns hafi verið heiðraðir með þessum hætti. „Þetta er ótrúlegur heiður.“ Faðir Magga er bakari að mennt og hann segir að áhuginn á matreiðslunni hafi kviknað í bak- aríinu. Hann hafi lært á Hótel Loftleiðum og útskrifað í maí 2005. „Ég starfaði samtals sem nemi og matreiðslumaður á Hótel Loftleiðum í um 11 ár, var á Hótel Rangá í nokkra mánuði áður en ég fór til Noregs og vann þar í eitt ár, var síðan yfirmatreiðslumaður á Gistihúsinu Egilsstöðum í eitt ár og hef verið yfirmatreiðslumeist- ari hér á Hlíð á Akureyri í um níu ár.“ Maggi er ánægður í vinnunni. „Hér er gott að vera, dásamlegt starfsfólk og enn þá yndislegri íbúar. Hér líður mér vel.“ Faðir hans er frá Patreksfirði og móðir hans er Dalvíkingur. Hann fædd- ist í Reykjavík, ólst upp á Pat- reksfirði og á milli snjóflóðanna á Flateyri og í Súðavík flutti fjöl- skyldan til Akureyrar. „Þegar ég fullorðnaðist fór ég á flakk en kom svo aftur hingað norður.“ Cordon Bleu-orðan var fyrst veitt 1986 og áður en kom að nöfnunum höfðu 67 manns fengið hana. Hilmar B. Jónsson er þriðji heiðursfélagi KM en hinir eru Bragi Ingason og Ib Wessman. Magnús Örn og Magn- ús Örn heiðraðir saman - Hilmar B. Jónsson kjörinn heiðursfélagi KM Ljósmyndir/Brynja Kristinsdóttir Cordon Bleu Magnús Örn Guðmarsson og Magnús Örn Friðriksson. Heiðursfélagi Hilmar B. Jónsson og Þórir Erlingsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.